Morgunblaðið - 31.05.2010, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 31.05.2010, Blaðsíða 29
Dagbók 29 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 31. MAÍ 2010 Sudoku Frumstig 8 9 2 5 8 3 7 9 8 6 2 5 1 9 8 1 3 1 3 7 7 6 1 8 2 3 8 6 5 7 9 4 5 2 7 3 6 9 4 4 3 6 8 2 4 2 9 7 6 4 8 2 5 8 1 4 9 7 7 6 5 7 7 3 1 8 5 2 1 3 6 7 2 8 9 4 1 6 3 5 4 3 1 6 5 2 8 7 9 6 9 5 3 7 8 1 2 4 9 8 4 1 3 6 2 5 7 3 6 7 5 2 4 9 1 8 5 1 2 8 9 7 4 6 3 8 7 6 4 1 5 3 9 2 1 5 9 2 8 3 7 4 6 2 4 3 7 6 9 5 8 1 9 5 4 3 7 2 6 8 1 8 3 7 6 1 9 4 2 5 1 6 2 8 5 4 7 9 3 3 7 6 1 2 8 5 4 9 2 4 8 5 9 7 1 3 6 5 9 1 4 3 6 2 7 8 6 2 3 9 4 1 8 5 7 4 1 9 7 8 5 3 6 2 7 8 5 2 6 3 9 1 4 1 2 8 3 4 9 5 6 7 7 4 5 1 6 2 8 9 3 3 6 9 8 7 5 1 4 2 9 8 6 7 5 4 3 2 1 4 1 3 9 2 8 6 7 5 2 5 7 6 3 1 4 8 9 8 7 4 5 9 3 2 1 6 5 9 1 2 8 6 7 3 4 6 3 2 4 1 7 9 5 8 Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku Þrautin felst í því að fylla út í reitina þannig að í hverjum 3x3-reit birtist tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má tvítaka neina tölu í röðinni. Í dag er mánudagur 31. maí, 151. dag- ur ársins 2010 Orð dagsins: Vaknið því, þér vitið eigi, hvaða dag Drottinn yðar kemur. (Matth. 24, 42.) Víkverji lifir í þeirri sjálfsblekk-ingu, sem sumir kalla, að hann telur sig vera nokkuð ópólitískan. Kannski af því hann eins og svo margir hafði misst trúna á stjórn- mál, stjórnmálamenn og loforðin sem honum virtust fjúka út í busk- ann þegar stóllinn var öruggur. x x x Það þýðir þó ekki að Víkverji hafiekki skoðanir á því hvernig hann vill sjá samfélagið rekið. Það þýðir ekki heldur að hann sé ekki eins og aðrir pirraður á hruninu og þeim leiðindakvillum sem því fylgja, eins og niðurskurði og atvinnuleysi með tilheyrandi niðurdrepandi áhrifum á samfélagið. x x x Víkverji hefur hins vegar oft rekiðsig á það að skoðanir hans passa ekki inn í einhvern einn stjórn- málaflokk. Þess vegna hefur hann sagt nei þegar hann hefur verið beð- inn um að gefa kost á sér til starfa á pólitískum vettvangi en þar er hann að sjálfsögðu eftirsóttur mjög. x x x Það gladdi því hið pólitískt litlausahjarta Víkverja þegar Jón Gnarr og Besti flokkurinn stökk fram á sjónarsviðið með skemmti- legri kosningabaráttu. Niðurstöð- urnar í kosningunum í Reykjavík sýna að borgarbúum fannst kominn tími til að stjórnmálamenn hlustuðu á þeirra vilja og ákváðu því að sýna þeim svart á hvítu hver það er sem valdið hefur. Minna þá á, í hvers um- boði stjórnmálamenn starfa. x x x En mikill er máttur tækninnar ogJóni Gnarr og Besta flokknum hefur tekist að tryggja sér fordæma- lausan sigur í borgarstjórnarkosn- ingunum á sex mánuðum. Yngri kyn- slóðin þekkir Jón líka úr hlutverki sínum í Vaktarþáttunum, Kvöld- vaktinni, Dagvaktinni og Fanga- vaktinni. Því var það að einn snáðinn spurði Víkverja: „Þýðir þetta þá að Georg Bjarnfreðarson verður næsti borgarstjóri í Reykjavík?“ víkverji@mbl.is Víkverjiskrifar Krossgáta Lárétt | 1 eymd, 8 gegn- sætt, 9 fugl, 10 álít, 11 þolna, 13 bylur, 15 rusl, 18 sjór, 21 bókstafur, 22 matreiðslumanns, 23 krossblómategund, 24 griðastað. Lóðrétt | 2 drykkjuskap- ur, 3 sadda, 4 tölustafs, 5 korns, 6 ótta, 7 ylur, 12 mánuður, 14 títt, 15 poka, 16 ósar, 17 tang- inn, 18 uxana, 19 kona, 20 ílát. Lausn síðustu krossgátu Lárétt: 1 leiti, 4 fúlan, 7 sellu, 8 múgur, 9 rúm, 11 arna, 13 orka, 14 grind, 15 senn, 17 dæll, 20 ann, 22 ríkur, 23 eitur, 24 finna, 25 tæran. Lóðrétt: 1 losta, 2 iglan, 3 iður, 4 fimm, 5 lágur, 6 norpa, 10 úfinn, 12 agn, 13 odd, 15 skref, 16 nakin, 18 æstir, 19 líran, 20 arða, 21 nett. 6 8 11 15 22 1 24 12 3 10 17 21 4 9 13 18 23 14 5 19 7 20 2 16 Skák Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is 1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. d4 cxd4 4. Rxd4 Rf6 5. Rc3 Rc6 6. Bg5 Db6 7. Rb3 e6 8. De2 a6 9. O-O-O Be7 10. g4 Dc7 11. Be3 b5 12. f4 b4 13. Ra4 Hb8 14. Bg2 Ra5 15. g5 Rd7 16. Rxa5 Dxa5 17. b3 Bb7 18. Kb1 Bc6 19. Rb2 Bb5 20. Df2 Dc7 21. h4 Hc8 22. Hd2 a5 23. h5 a4 24. bxa4 Ba6 25. Bf1 Bxf1 26. Dxf1 Db7 27. Dg2 Rc5 28. Bxc5 Hxc5 29. Hf1 O-O 30. f5 He8 31. Dg4 exf5 32. exf5 Bf8 33. g6 He4 34. Dg2 hxg6 35. hxg6 fxg6 36. fxg6 Hf5 Staðan kom upp á bandaríska meistaramótinu sem er nýlokið í St. Louis. Stórmeistarinn Larry Christiansen (2578) hafði hvítt gegn kollega sínum Dmitry Gurevich (2488). 37. Dh3! Hxf1+ 38. Hd1! og svartur gafst upp enda óverjandi mát. Hvítur á leik. Brids Guðmundur S. Hermannsson | ritstjorn@mbl.is Douze Points Norður ♠G10965 ♥G9643 ♦85 ♣4 Vestur Austur ♠82 ♠ÁKD7 ♥107 ♥K852 ♦D43 ♦KG972 ♣KD10873 ♣-- Suður ♠43 ♥ÁD ♦Á106 ♣ÁG9652 Hvað á að segja með suðurspilin eftir að austur opnar á 1♦? Þorlákur Jónsson og Sjoert Brink fengu þetta vandamál í æfingaleik milli Íslands og Hollands nýlega. Þrjár sagn- ir koma til greina: 1Gr, 2♣ og dobl og þar af er doblið lakasti kosturinn. Brink valdi að segja 2♣. Það gafst ekki vel því eftir tvö pöss gat Sigurbjörn Haraldsson í austur doblað til úttektar. Magnús Magnússon í vestur passaði auðvitað doblið og síðan eltu AV flótt- ann í 2♥ dobluð sem fóru þrjá niður, 500 til Íslands. Við hitt borðið sagði Þorlákur 1Gr. Jón Baldursson í norður spurði um há- liti með 2♣ og endaði síðan í 2♠ sem ómögulegt var að dobla eftir þessar sagnir. Jón fór líka 3 niður en var ódobl- aður og Ísland græddi 8 stig. Er 1Gr þá betra en 2♣? Þar ræður sennilega smekkur eins og í Eurovision. (21. mars - 19. apríl)  Hrútur Sýn þín á lífið er góð og gild, en ekki sú eina. Ókunn persóna hjálpar þér þannig að þú finnur til aukins öryggis á eftir. (20. apríl - 20. maí)  Naut Það er óráð að sjá hlutina bara í svarthvítu því þá missir þú af þýðing- armiklum hlutum gátunnar. Brettu upp ermarnar, garðurinn bíður. (21. maí - 20. júní)  Tvíburar Það er löngu tímabært að þú sýnir ástvinum þínum hvern hug þú berð til þeirra. Mundu að maður er manns gaman. (21. júní - 22. júlí)  Krabbi Spennan magnast í vinnunni. Bjóddu til veislu, farðu í frí eða gerðu eitt- hvað skemmtilegt með börnunum. (23. júlí - 22. ágúst)  Ljón Frelsi og ábyrgð verða ekki aðskilin, eitt felur í sér annað. Dómgreind þín í fjármálum er ekki upp á marga fiska um þessar mundir. (23. ágúst - 22. sept.)  Meyja Þú munt rekast á gamlan félaga þar sem þú áttir síst von á honum svo það verða fagnaðarfundir. Styrktu langanir þínar með því að mæla þér mót við fólk sem á það sem þú vilt. (23. sept. - 22. okt.)  Vog Leggðu þig fram við að fegra heimili þitt. Gerðu hvað þú getur til þess að víkka sjóndeildarhringinn og sumarið má nýta til náms. (23. okt. - 21. nóv.) Sporðdreki Þú þarft að sýna sveigjanleika til þess að geta leyst það mál sem þyngst hvílir á þér. Reyndu að huga að framtíð- inni og taka ákvarðanir. (22. nóv. - 21. des.) Bogmaður Þó að í dag sé dagur sköpunar er dagurinn fjárhagslega neikvæður. Ein- hver sýnir þér áhuga, þú ferð í vörn. (22. des. - 19. janúar) Steingeit Nú eru hagstæðir tímar til þess að koma áhugamálum þínum í fram- kvæmd. Orðum verða að fylgja athafnir svo það er eins gott að þú brettir upp ermarnar. (20. jan. - 18. febr.) Vatnsberi Þú hefur lengi reynt að fá kunningja þinn til að skila ákveðnum hlut. Amorsör mun mjög flótlega hitta þig í hjartastað. (19. feb. - 20. mars) Fiskar Láttu ekki hugfallast þótt endar nái ekki saman heldur farðu yfir öll reikn- ingsyfirlit og þá sérðu hvert peningarnir hafa farið. Hringdu í stönduga vini og biddu þá um að ráðleggja þér. Stjörnuspá 31. maí 1735 Maður gekk upp á stærri Lóndrangann á Snæfellsnesi, í fyrsta sinn svo vitað sé, og mældi hæð hans sem reyndist vera 44 faðmar (um 75 metr- ar). Þótti þetta glæfraför. Drangurinn var ekki klifinn aftur með vissu fyrr en 1938. 31. maí 1851 Jón Sigurðsson, þá 39 ára, var kosinn forseti Kaupmanna- hafnardeildar Hins íslenska bókmenntafélags. Forsetatit- illinn festist við Jón, enda gegndi hann þessari stöðu til dánardags. Hann var einnig forseti Alþingis um skeið. 31. maí 1991 Alþingi kom saman í fyrsta sinn eftir að deildaskipting var afnumin. Það hafði starfað í tveimur málstofum, efri og neðri deild, í 116 ár. 31. maí 2009 Dalai Lama, trúarleiðtogi Tíb- eta, kom til landsins. Hann tók þátt í friðarsamkomu í Hall- grímskirkju og hélt fyrirlestur í Laugardalshöll. Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson. Þetta gerðist… Andri Ásgeir Adolfsson og Jakob Ernfelt Jóhannesson héldu markað við Hrafnagilsskóla í Eyjafjarðar- sveit og söfnuðu 2.657 krónum. Þeir ákváðu að styrkja Rauða krossinn með afrakstrinum. Söfnun Ólöf Birna Margrétardóttir læknir á Landspítal- anum er þrjátíu ára í dag. „Ég bíð eftir því að sam- býlismaðurinn komi mér eitthvað á óvart. Hann er líklegur til þess,“ segir afmælisbarnið. Sambýlis- maðurinn, Sigurður James, þarf því að standa sig í stykkinu. „Ég er búin að stinga því að honum að senda mig í nudd,“ segir hún og er ekki mjög fast- heldin á hefðir á afmælinu. Helst leggur hún það í vana sinn að fá sér gott að borða. Afmælisdagur- inn verður reyndar síðasti dagurinn í fæðingar- orlofi og því full ástæða til að nýta hann vel. Ólöf Birna er á kandídatsárinu og er því mánuð á hverjum stað. Núna vinnur hún á lungnadeild LSH. Þar að auki er hún í meistaranámi í líf- og heilbrigðisvísindum við læknadeild HÍ. Saman eiga þau Ólöf Birna og Sigurður eitt barn, Ingibjörgu Soffíu, sem er á fyrsta ári. „Svo erum við að fara með vinahópnum til Bandaríkjanna eftir mánuð. Við erum svo mörg að verða þrítug að við ætlum að samfagna þar.“ Það verða fjögur pör og fjögur börn sem fara, fyrst til Þorsk- höfða í Massachusetts, eða Cape Cod eins og skaginn heitir á frum- málinu og síðan til New York-borgar. onundur@mbl.is Ólöf Birna Margrétardóttir er þrítug í dag Til Cape Cod með góðu fólki Nýbakaðir foreldrar? Sendið mynd af barninu til birtingar í Morgunblaðinu Frá forsíðu mbl.is er einfalt að senda mynd af barninu með upplýsingum um fæðingarstað, stund, þyngd, lengd, ásamt nöfnum foreldra. Einnig má senda tölvupóst á barn@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.