Morgunblaðið - 31.05.2010, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 31.05.2010, Blaðsíða 15
FRÉTTASKÝRING Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Kosningasigur L-listans við bæj- arstjórnarkosningarnar á Akureyri er bein afleiðing bankahrunsins og skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis, að mati Grétars Þórs Eyþórssonar, prófessors í stjórnmálafræði við Há- skólann á Akureyri. Hann telur að það hafi magnað upp þessa bylgju að Sjálfstæðisflokkur og Samfylkingin sem töpuðu mestu störfuðu saman í meirihluta. Einstök staðbundin mál hafi einnig haft áhrif. „Fólk vildi breytingar, það er meg- inskýringin,“ segir Geir Kristinn Að- alsteinsson viðskiptafræðingur, sem var efstur á Lista fólksins. „Ég tel að þetta sýni að almenningur vilji venju- legt fólk til að vinna fyrir sig,“ segir Geir. Guðfaðirinn er með reynslu L-listinn, Listi fólksins, fékk 45% atkvæða á Akureyri og hreinan meirihluta bæjarfulltrúa, sex fulltrúa af ellefu. Er það í fyrsta skipti sem eitt framboð nær meirihluta. Annað nýtt framboð, Bæjarlistinn, fékk einn fulltrúa. Flokkar sem starfa á lands- vísu biðu afhroð, fengu aðeins einn mann hver. Sjálfstæðisflokkurinn tapaði þremur, Samfylkingin tveimur og VG einum. Fimm bæjarfulltrúar L-listans eru nýir í bæjarstjórn, en guðfaðir listans, Oddur Helgi Halldórsson, hefur setið í bæjarstjórn fyrir listann frá 1998 og hafði áður setið í bæj- arstjórn fyrir Framsóknarflokkinn. Markmið framboðsins var að ná inn þremur mönnum og var Oddur Helgi í baráttusætinu, því þriðja. „Þetta er hluti af því sama og er að gerast í Reykjavík, óánægja með fjórflokkinn. Svo hef ég verið að gagnrýna mörg stór mál meirihlut- ans,“ segir Oddur Helgi, en listi hans tengist ekki stjórnmálaflokkum á landsvísu. Hann nefnir sem dæmi umdeildar tillögur að skipulagi þar sem gert er ráð fyrir síki í mið- bænum. Fram hefur komið töluverð gagnrýni á það, meðal annars áskor- un um fjögur þúsund bæjarbúa. Málefnin komust ekki að Hermann Jón Tómasson bæj- arstjóri, oddviti Samfylkingarinnar, segir að fyrir hálfu ári hafi bæjarbúar sýnt ánægju með störf meirihlutans. Það hafi breyst. Bætir hann því við þær skýringar sem áður hafa verið nefndar að fólk hafi verið óánægt með það hvernig gengi að vinna þjóð- ina í gegnum kreppuna. Sigrún Björk Jakobsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins, segir að meiri- hlutinn sé að skila góðu búi en mál- efnin hafi ekki komist í umræðuna í kosningabaráttunni. Viðbrögð henn- ar við umræðu um kaupmála sem hún gerði við eiginmann sinn er dæmi um mál sem virðist hafa ráðið einhverju um afstöðu kjósenda sem og það að þrír bæjarstjórar störfuðu á kjörtímabilinu. Sig- rún Björk segir að hún eigi meðal annars við kaupmálann þegar hún talar um mál sem hafi yf- irskyggt mál- efni bæj- arins. Venjulegt fólk til valda  Listi fólksins með meirihluta á Akureyri  Hefðbundnir flokkar biðu afhroð  Flestir telja að óánægja með fjórflokkinn vegna bankahrunsins ráði mestu Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Sigur Bæjarfulltrúar L-listans,Geir Kristinn Aðalsteinsson, Halla Björk Reynisdóttir, Oddur Helgi Halldórsson, Tryggvi Gunnarsson, Hlín Bolladóttir og Inda Björk Gunnarsdóttir. 15 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 31. MAÍ 2010 Í Skorradals- hreppi í Borg- arfirði voru 42 á kjörskrá og 22 greiddu atkvæði, eða 52,3%. Flest atkvæði fékk Steinunn Fjóla Benediktsdóttir, einu meira en Pétur Davíðsson. Aðrir aðalmenn í sveitarstjórn eru Davíð Pétursson, Guðrún Jó- hanna Guðmundsdóttir og Hulda Guðmundsdóttir. Davíð Pétursson bóndi á Grund settist fyrst í sveitarstjórn árið 1966 og er að hefja sitt 12. kjör- tímabil, en hann hefur verið oddviti frá 1970. Hann segir að 44 ár sam- fleytt í sveitarstjórn sé vissulega langur tími en þess séu dæmi fyrr á árum að menn hafi setið lengur en 50 ár í sveitarstjórn. Davíð kveðst frekar eiga von á því að þetta verði hans síðasta kjör- tímabil, því reikna megi með því að dagar litlu sveitahreppanna verði taldir þegar næst verður kosið eftir fjögur ár. sisi@mbl.is Davíð er að hefja sitt 12. kjörtímabil Davíð Pétursson Kosningin í Grímsey gekk fljótt og vel fyr- ir sig að sögn Bjarna Magn- ússonar hrepp- stjóra. Allir kjós- endur, sem staddir voru í eyjunni, 39 að tölu, skiluðu sér á kjörstað. Áður höfðu þrír kosið utan kjörfundar. Bjarni hefur annast kosning- arnar síðan 1969. Venjan er sú að hafa kjörstaðinn opinn þar til síð- ustu sjómennirnir hafa skilað sér í land. Að því búnu hófst taln- ingin. En þar sem Grímsey hefur sam- einast Akureyri voru atkvæðin send flugleiðis í land og talin með öðrum atkvæðum þar. sisi@mbl.is Allir kjósendur skil- uðu sér í Grímsey Bjarni Magnússon Samhliða kosningum til bæjar- stjórnar Akureyrar kusu Gríms- eyingar um það hvort leyfa ætti hunda- og kattahald í eyjunni. Fóru leikar þannig að þrír voru fylgjandi kattahaldi en 47 voru and- vígir. 20 voru fylgjandi hundahaldi en 33 voru því andvígir. Að sögn Bjarna Magnússonar hreppstjóra má líklegast telja að hið fjölskrúðuga fuglalíf í eyjunni ráði afstöðu fólks í þessu máli. Fólk vilji ekki taka neina áhættu. Það verður svo bæjaryfirvalda á Akureyri að fylgja banninu eftir. sisi@mbl.is Vilja ekki fá hunda og ketti í eyjuna Kjörstjórn Hvalfjarðarsveitar kvað upp úrskurð vegna þess að tveir bæjarfulltrúar voru jafnir þegar kom að því að reikna inn síðasta manninn inn í bæjarstjórnina. Voru frambjóðendurnir jafnir þegar reiknað var í heilum tölum og þurfti því að grípa til aukastafs. Samkvæmt því fær E-listi, Ein- ing, Hvalfjarðarsveit, 3 fulltrúa í sveitarstjórn, H-listi Heilda fær einn fulltrúa og L-listi Hvalfjarð- arlistans fær þrjá menn kjörna. Samkvæmt útkomutölum, reikn- uðum sem heilum tölum, voru tveir fulltrúar jafnir, 3. maður E-lista og 2. maður H-lista. Þegar útkomutöl- ur voru reiknaðar með einum auka- staf urðu niðurstöður þær sem kjörstjórn úrskurðaði. Líklegt er talið að þessi niður- staða verði kærð til kjörnefndar. Kjörstjórn þurfti að grípa til aukastafs Ráðinn verður faglegur bæj- arstjóri til Akureyrar að sögn Geirs Kristins Aðalsteinssonar, oddvita L-listans. Auglýsingin verður væntanlega það fyrsta sem Akureyringar sjá til nýja meirihlutans sem tekur við stjórnvelinum í júní. „Það kann enginn hér að hafa hreinan meirihluta, hvorki stjórnmálamenn né embætt- ismenn. Hér er verið að feta nýja slóð og vandi fylgir veg- semd hverri,“ segir Oddur Helgi Halldórsson og bætir því við að bæjarfulltrúar L- listans séu vel til þess fallnir að stjórna bænum. Verið að feta nýja slóð AUGLÝST EFTIR MANNI Oddur Helgi Halldórsson, guðfaðir L-listans. Bæjarlistinn Framsóknarflokkur (1) Sjálfstæðisflokkur (4) L-listinn (1) Samfylking (3) Vinstri græn (2) (1)=sæti 2006 FRÉTTASKÝRING Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Sjálfstæðisflokkurinn hélt hreinum meirihluta í flestum stærri bæjum sem hann hefur haft meirihluta í og vann meirihluta á nokkrum stöðum til viðbótar. Skýringanna virðist helst að leita í því að bæjarfulltrúar hafi náð að nálgast kjósendur út frá málefnum viðkomandi sveitarfélags en ekki landsmálanna. Þannig hafi þeim tekist að halda trausti. Sjálfstæðisflokkurinn hélt meiri- hluta sínum í Reykjanesbæ, Garða- bæ, á Seltjarnarnesi, í Vestmanna- eyjum og Hveragerði og náði hreinum meirihluta í Mosfellsbæ, Árborg og á Álftanesi. Hins vegar féll meirihluti flokksins á Akranesi en hann varð til þegar bæjarfulltrúi Frjálslynda flokksins gekk í Sjálf- stæðisflokkinn. Framsóknarflokk- urinn náði hreinum meirihluta á Hornafirði. „Ég er stoltur af stjórnmálunum í Reykjanesbæ. Við gáfum ekkert færi á að láta þau snúast um flokka- drætti heldur lögðum áherslu á að tala fyrir málum og verkefnum,“ segir Árni Sigfússon, bæjarstjóri Reykjanesbæjar. Spjótin stóðu á sjálfstæðismönnum í Reykjanesbæ vegna umræðna í kjölfar kaupa kanadísks orkufyrirtækis á HS Orku. Ráðherrar VG beittu sér mjög í þeirri umræðu og Árni segist hafa upplifað það þannig að hluti ríkisstjórnarinnar hafi gert atlögu að Reykjanesbæ, meðal annars í þáttum í Sjónvarpinu, án þess að honum gæfist tækifæri til að svara fyrir sig. Sem betur fer hafi íbú- arnir með- tekið skýr- ingarnar og staðið með þeim. Sjálf- stæð- isflokk- urinn í Garðabæ bætti við sig fylgi þrátt fyrir að frambjóðandi sem ekki náði markmiðum sínum í prófkjöri flokksins færi í sérframboð og næði kjöri. Vegna umræðu um lítinn hlut kvenna á framboðslistanum ákvað Erling Ásgeirsson, sem sigraði í prófkjörinu, að skipta um sæti við unga konu, fór í fimmta sætið en Áslaug Hulda Jónsdóttir færðist upp í það fyrsta. Flokkurinn fékk fimm menn kjörna af sjö og Erling náði kjöri. „Ég tel að það sé vegna þess að við höfum staðið okkur vel á kjör- tímabilinu og íbúarnir eru ánægðir með okkar störf, sérstaklega árang- ur í fjármálum,“ segir Erling þegar leitað er skýringa hans. Ýttu pólitíkinni til hliðar  Sjálfstæðisflokkurinn hélt völdum víðast þar sem hann hafði hreinan meirihluta  Bæjarstjóri Reykjanesbæjar segir atlögu hluta ríkisstjórnarinnar hafa mistekist Ljósmynd/Hilmar Bragi Kosið Árni Sigfússon greiðir atkvæði ásamt Bryndísi Guðmundsdóttur, Guðmundi, Sigfúsi og Aldísi. Morgunblaðið/Ómar Á kjörstað Í Garðabæ var 71% kjörsókn og hlaut Sjálf- stæðisflokkurinn 63,5% atkvæði þegar upp var staðið. Sjálfstæðismenn munu auglýsa eftir bæjarstjóra fyrir Árborg þar sem þeir náðu hreinum meirihluta. Eyþór Arnalds, odd- viti listans, mun ekki sækja um. Ráðinn verður fram- kvæmdastjóri með þekkingu á rekstri því halda þarf vel ut- an um fjármálin, að sögn Ey- þórs. Laun bæjarstjórans verða lægri en núverandi bæj- arstjóra. MEIRIHLUTI Í ÁRBORG Eyþór Arnalds og Elfa Dögg Þórð- ardóttir fagna. Nýr stjóri Kosningastiklur

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.