Morgunblaðið - 31.05.2010, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 31.05.2010, Blaðsíða 30
30 Dagbók MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 31. MAÍ 2010 Grettir Smáfólk Hrólfur hræðilegi Gæsamamma og Grímur Úthverfið Kóngulóarmaðurinn Ferdinand HEIMURINN ER SVO LÍTILL VEGNA ÞESS AÐ ÞÚ ERT BÚINN AÐ BORÐA SVO MIKIÐ AF HONUM! Í EFTIRRÉTT LANGAR MIG Í BAKAÐ ALASKA Æ, NEI Ó, JÚ! AMMA OKKAR, SEM HATARTEPPI, ER AÐ KOMA Í HEIM- SÓKN. HÚN REYNIR ALLTAF AÐ TAKA TEPPIÐ HANS LÚLLA HÚN TRÚIR ÞVÍ AÐ BÖRNUM EIGI AÐ VERA KENNDUR AGI... HÚN VILL AÐ BÖRNIN SÍN SÉU SJÁLFSTÆÐ... HÚN SKIPTIR SÉR AÐ HLUTUM SEM KOMA HENNI EKKI VIÐ! ÞAÐ ER ANSI HÆTTULEGT AÐ RÁÐAST Á ÞENNAN KASTALA HVAÐ ER LÆKNIRINN AÐ GERA HÉRNA? HANN ER AÐ DREYFA AUGLÝSINGUM FYRIR STOFUNA SÍNA KLÓRAÐ & ÞEFAÐ ÞETTA ERU 90% AF MÍNU LÍFI NÝJAR BÆKUR! ÆTLI ÞAÐ SÉU EINHVER ÁHUGAVERÐ, GÖMUL ÚTVÖRP Á EBAY Í KVÖLD ÞAÐ ER KOMIÐ UPP Í 50.000 kr.! ÉG HEF EKKI EFNI Á ÞVÍ... EN ÉG HEF HELDUR EKKI EFNI Á ÞVÍ AÐ SLEPPA ÞVÍ ÉG ER FARIN AÐ SOFA... ÉG TRÚI ÞESSU EKKI! ÞAÐ ER HEYWOODIE RH-50 Á UPPBOÐI! ÞETTA ER EITT EFTIRSÓTTASTA ÚTVARP Í HEIMINUM! HVAÐ VEISTU UM ÞENNAN BIG-TIME NÁUNGA! SVARAÐU MÉR! ÉG GET EKKI SAGST HAFA SLEGIST VIÐ HANN HÆ, MARÍA! ÉG VAR AÐ... ÉG HRINGDI BARA TIL AÐ SEGJA ÞÉR... AÐ VIÐ GETUM ALDREI HIST FRAMAR Þakkir til Olís Ég vil endilega færa starfsmönnum Olís mínar bestu þakkir fyrir frábæra þjón- ustu. Sendi fyrirspurn til þeirra varðandi ákveðinn hlut sem mig vantaði. Svarið kom samdægurs og hlut- urinn daginn eftir. Viðmót og þjónusta þessa félags er alveg í sérflokki og til mik- illar fyrirmyndar. Ég þakka kærlega fyrir mig. Viðar. Hvað um Leiðarljós? Ég vil gjarna taka undir það sem áður hefur verið sagt varðandi sýningar á Leiðarljósi. Það má hliðra til með sýning- artímann því fólk sem horfir á þáttinn hefur oft ekkert við að vera. Þetta er mikið rætt og fólk er óánægt með að þátt- urinn hafi verið tek- inn af dagskrá. Áhorfandi að norðan. Ást er… … þegar hann tekur utan um þig. Velvakandi Svarað í síma 5691100 frá 10–12 velvakandi@mbl.is Félagsstarfeldriborgara Aflagrandi 40 | Vinnustofa kl. 9, út- skurður kl. 13, félagsvist kl. 13.30. Árskógar 4 | Handavinna, smíði/ útskurður kl. 9, félagsvist kl. 13.30, myndlist kl. 16. Dalbraut 18-20 | Myndlist og postulín 9, leikfimi kl. 10, brids kl. 13. Félag eldri borgara, Reykjavík | Brids kl. 13, spjall/kaffi kl. 13.30. Félagsheimilið Gjábakki | Botsía kl. 9.30, leiðbeinandi í handavinnu til há- degis, lomber kl. 13 og canasta kl. 13.15. Félagsstarf eldri borgara, Garðabæ | Vatnsleikfimi kl. 8, síðasti tími á önninni, kvennaleikfimi síðustu tímar á önninni, gönguhópur frá Jónshúsi. Félagsstarf Gerðubergi | Vinnustofur opnar kl. 9, m.a. fjölbreytt handavinna og tréútskurður. Frá hádegi er spilasalur opinn, kóræfing kl. 15. Föstud. 4. júní farið til Grindavíkur á bæjarhátíðina ,,Sjóarinn síkáti“, Grindavíkurtrefillinn afhentur, skráning á staðnum og s. 575- 7720. Háteigskirkja - starf eldri borgara | Félagsvist kl. 13 á mánudögum í Setrinu Háteigskirkju. Hraunbær 105 | Fimmtudaginn 3. júní dagsferð í Borgarfjörð, ekið um Hval- fjörð og hádegismatur borðaður á Hvanneyri. Skráning á skrifstofu eða í síma 411-2730. Verð m/mat 7500 kr. Hvassaleiti 56-58 | Jóga kl. 8.30, 9.30 og 10.30. Opin vinnustofa kl. 9, brids kl. 13. Hæðargarður 31 | Örsýning Listasmiðju t.d. útskurður, postulínsmálun og búta- saumssýning auk samsýningar Lista- smiðju, Frístundaheimilisins Sólbúa og Skapandi skrifa. Listasmiðjan er opin í júnímánuði. Íþróttafélagið Glóð | Ringó í Smár- anum kl. 11.30. Uppl. í síma 554-2780, glod.is. Korpúlfar Grafarvogi | Gönguhópur Korpúlfa gengur frá kl. 10 í dag frá Graf- arvogskirkju. Á morgun sundleikfimi í Grafarvogssundlaug kl. 9.30. Langahlíð 3, félagsmiðstöð | Við Hringborðið, spjallhópur kvenna kl. 10.30, handverks- og bókastofa opin 11.30, prjónaklúbbur o.fl. kl. 13, botsía kl. 13.30, söngstund kl. 15. Vesturgata 7 | Handavinna, botsía og leikfimi kl. 9.15, kóræfing kl. 13, tölvu- kennsla kl. 12. Vitatorg, félagsmiðstöð | Sumarferð verður farin 3. júní, frá Vitatorgi kl. 12.15, keyrt um göngin og farið að Hvanneyri síðan ekið um Skorradal að Draghálsi og síðan að Glym í Hvalfirði, þar sem verður kaffihlaðborð, heim um Hvalfjörð. Upplýsingar og skráning í síma 411-9450. Hjálmar Freysteinsson hrósaðihappi á laugardagskvöld: Þjóðin ætti að þrasa minna og þakka fyrir heppnina, að við skyldum ekki vinna Evróvisjónkeppnina. Jón Arnljótsson orti á kjördag: Er ég skóna á mig tókst að reima, í mig kjark að mæta á kjörstað taldi, en ég gleymdi gleraugunum heima og get því ekki svarað hvern ég valdi. Það kom fram í rimmu Péturs Stefánssonar og Friðriks Stein- grímssonar á föstudag hversu gott ölið er í hitanum syðra, en að auð- veldara er að kæla bjórinn í élinu fyrir norðan. Í framhaldi af því sendi Pétur kveðju norður: Braggast allt sem betur fer, bráðum grænkar mórinn. Loksins ertu að líkjast mér; liggur og þambar bjórinn. Friðrik svaraði að bragði: Þegar hækkar hitastig og hörfar kulda bölið, sest ég út og sóla mig og sötra blessað ölið. Sigurði Ingólfssyni lýsir því yfir að sér sé slétt sama um pólitíkina. „Enda hef ég margt lært af Elvis,“ skrifar hann. „Konan mín er í út- löndum nebblega og rétt í þessu gaf ég hundinum að borða, hleypti hon- um svo inn til Sölva sonar míns og lagðist aftur upp í rúm, með tölvuna. Sem er asnalegt á einhvern hátt. Enda ákvað ég að senda konu minni smess sem var natúrligvís innspírer- að af hundinum: Hundurinn sefur hjá Sölva, sólin er risin á ný, við hlið mér er tíkarleg tölva og tómt þar sem þú ert oft hlý. En þetta er auðvitað einhver bé- vítans rómantík. Það er Elvis að kenna, hann er fyrir þær.“ Það er alltaf fróðlegt þegar Ólaf- ur Stefánsson ræðir og rifjar upp kveðskap á Leirnum, póstlista hag- yrðinga. Nú síðast var það kveð- skapur Hrólfs Sveinssonar, „ljóða- gerðarmanns í Reykjavík“, fæddur 1911, og fyrir tilviljun jafnaldri Helga Hálfdánarsonar þýðanda og lyfjafræðings. „Sumir sögðu þá all skylda, en aðrir að þeir hefðu staðið í ritdeilum í blöðum. Ég veit ekkert um það en held upp á þá báða. Hrólf- ur gaf út Ljóðmæli 1993. Þar er þessi vísa og eins og gerð fyrir Leir- inn: Vort streð við að stuðla og ríma er særsta böl allra tíma. Sjálft skáldið úr Vör hefur veitt þau svör og vegna rímsins í síma.“ Séra Hjálmar Jónsson bætti við: Þessa heiðursmenn hefi ég skráða sem höfunda þekkta og dáða. Um ritvöll þeir óðu, í illdeilum stóðu. En ég hef víst jarðsett þá báða. Sigurður Jónsson tannlæknir var í öðrum hugleiðingum er hann mætti í Sundhöllina á föstudag, ekki síður þörfum, og þakkaði það í limru að komast ferða sinna og geta notið þess sem fyrir augu og eyru ber: Við heilshugar þakka hljótum ef heilsu góðrar við njótum því heppinn sá er sem heyrir og sér og stendur enn styrkum fótum. Vísnahorn pebl@mbl.is Af öli, hita og Evróvisjón

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.