Morgunblaðið - 31.05.2010, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 31.05.2010, Blaðsíða 2
Kjartan Magnússon 43 ára, borgarfulltrúi Karl Sigurðsson 37 ára, tölvunar- fræðingur og tónlistarmaður Baldur Arnarson baldura@mbl.is „Við hittum fulltrúa Samfylkingar- innar í Reykjavík og áttum óform- legan fund með þeim. Þetta var spjall á léttum nótum. Ég held að það litist af því að þeir séu að velta því fyrir sér hvers konar flokk þeir eru að fara í samstarf við,“ sagði Jón Gnarr, odd- viti Besta flokksins, um stöðu við- ræðna seinnipartinn í gær. „Það er í rauninni ekkert í stefn- unni. Það var sameiginleg ákvörðun miðstjórnar Besta flokksins að við skyldum reyna þetta fyrst,“ segir Jón um ástæður þess að ekki skuli fyrst leitað til Sjálfstæðisflokksins. Hugðust flokkarnir þá taka upp þráðinn í viðræðunum í dag. Stefnan samin af her manna Jón Gnarr kveðst aðspurður ekki aðhyllast frjálshyggju en hann vill þó ekki láta staðsetja sig hugmynda- fræðilega að öðru leyti. Störf hans muni einkennast af skrefum til hægri og vinstri í borgarmálunum. – Eruð þið tilbúin með málefna- lista og kröfur í einstökum málum? „Já.“ – Hversu ítarlegur er þessi listi? „Það er her manna búinn að vera að störfum nokkuð lengi við að setja niður þessa lista og það er gífurlega mikil vinna. Þetta er náttúrlega flokkur sem er með allskonar. Það er mjög margt sem okkur langar til að bæta og laga. Það eru hlutir sem snúa að stjórnsýslunni, sem er flókið. Þar erum við með lögfróða menn. Það er ein okkar helsta krafa að fólkið í borginni fái áþreifanleg tæki- færi til að hafa áhrif á ákvarðana- töku með virku íbúalýðræði.“ – Skynjarðu vilja af hálfu Sam- fylkingarinnar til að koma til móts við þessar kröfur ykkar? „Já. Mér fannst það.“ Þakklátur, glaður og stoltur – Þið vinnið stórsigur. Hvað er þér efst í huga eftir úrslitin? „Ég er gífurlega þakklátur og glaður með þennan mikla stuðning og þrátt fyrir óhefðbundna og óvenjulega kosningabaráttu. Við náðum gífurlega miklum árangri án þess að auglýsa nokkurn skapaðan hlut. Við auglýstum aðeins í útvarpi en það voru engar dagblaðaauglýs- ingar. Við vöktum athygli á okkur með hugvitssemi og gleði. Þannig að ég er gífurlega þakklátur og stoltur af fólki. – Er öruggt að Besti flokkurinn verði í meirihluta? „Já.“  Oddviti Besta flokksins segir miðstjórn flokksins fremur kjósa samstarf við Samfylkingu en Sjálfstæðisflokkinn  Boðar hægri og vinstri pólitík í borginni Jón Gnarr 43 ára, leikari Einar Örn Benediktsson 48 ára, fjölmiðla- fræðingur og tónlistarmaður Óttarr Proppé 41 árs, bóksali og tónlistarmaður Elsa Hrafn- hildur Yeoman 37 ára, sjálfstætt starfandi Eva Einarsdóttir 34 ára, tómstunda- og félagsmála- fræðingur Júlíus Vífill Ingvarsson 59 ára, borgarfulltrúi Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir 38 ára, borgarfulltrúi, Gísli Marteinn Baldursson 38 ára, borgarfulltrúi Dagur B. Eggertsson 37 ára, borgarfulltrúi Oddný Sturludóttir 33 ára, borgarfulltrúi Björk Vil- helmsdóttir 46 ára, borgarfulltrúi Sóley Tómasdóttir 36 ára, borgarfulltrúi Byrja á Samfylkingu Morgunblaðið/Eggert Heimsfrægur? Jón Gnarr með nýjum vinnufélögum í borginni á kosninga- nótt. Wall Street Journal og BBC höfðu þá þegar borið úrslitin undir hann. Hanna Birna Kristjánsdóttir 44 ára, borgarstjóri 2 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 31. MAÍ 2010 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Ívar Páll Jónsson, fréttastjóri, ivarpall@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins | Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Prentun Landsprent ehf. Úrslit sveitarstjórnarkosninga Flest bendir til að Samfylking, VG, Næst besti flokkurinn og Listi Kópavogsbúa myndi nýjan meirihluta í Kópavogi. Fulltrúar flokkanna áttu tvo formlega fundi í gær og ætla að hittast aftur í dag. Rannveig H. Ásgeirsdóttir, oddviti Lista Kópa- vogsbúa, sagði í gærkvöldi að viðræður gengju vel. „Við áttum gott samtal. Það er ekkert sem veld- ur ágreiningi. Í grunninn eru allir að hugsa á svip- uðum nótum,“ sagði Rannveig. Hún treysti sér ekki til að spá um hversu langan tíma tæki að ljúka viðræðum. Verið væri að fara skipulega yfir alla málaflokka og vinna að markmiðasetningu. Hún segir ekkert benda til annars en að viðræðurnar skili jákvæðri niðurstöðu. „Ég skynja einlægan vilja allra til að lenda þessu og mér sýnist að það sé lítið sem beri í milli,“ segir Guðríður Arnardóttir, oddviti Samfylkingar í Kópavogi. Óformleg samtöl við VG VG er í lykilstöðu í Hafnarfirði. Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir, oddviti flokksins, átti í gær óformlegar viðræður við fulltrúa Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks. Hún segir að flokkurinn hafi ekki tekið ákvörðun um að hefja formlegar við- ræður við annan hvorn flokkinn. Samfylkingin hef- ur óskað eftir formlegum viðræðum við VG um myndun nýs meirihluta í Hafnarfirði. Guðrún segir alveg ljóst að hvernig sem fari verði breytingar í Hafnarfirði. Hún segir „allt opið“ varðandi hver verði bæjarstjóri. Sjálfstæðismenn hafa lagt til að allir flokkarnir þrír ræði saman um verkefni sem við blasa. egol@ mbl.is » 14 Nýr meirihluti að myndast í Kópavogi  Vel gengur hjá fjórum flokkum sem ræða um myndun nýs meirihluta í bæjarstjórn Kópavogs  VG í Hafnarfirði vill tryggja að breytingar verði gerðar áður en formlegar viðræður hefjast Morgunblaðið/Eggert Bæjarstjórn Forystumenn stjórnarandstöðuflokkanna í Kópavogi settust niður til fundar í gærkvöldi. Meirihlutar falla » Meirihluti Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks í Kópavogi féll í kosningunum, en samstarf flokkanna hófst 1990. » Samfylkingin og forveri hennar, Alþýðuflokkurinn, hafa verið við völd í Hafnarfirði frá árinu 1986 ef árin 1998-2002 eru undanskilin. » Sjálfstæðisflokkurinn í Hafn- arfirði vann á, en Sjálfstæð- isflokkurinn í Kópavogi tapaði miklu. » Framsóknarflokkurinn náði naumlega inn manni í Kópavogi, en litlu munaði að hann fengi mann í Hafnarfirði. Liðlega 22% kjósenda Sjálfstæð- isflokksins í Reykjavík gerðu breyt- ingar á röðun frambjóðenda eða strikuðu út nöfn. Verið er að vinna úr breyttum seðlum en ljóst er að breytingarnar hafa engin áhrif á röð frambjóðenda. Kristín Edwald, formaður yf- irskjörstjórnar, segir að þótt tölur fylgismeiri framboðanna hafi verið gefnar upp í heilum þúsundum hafi fyrstu tölur sýnt rétta mynd af stöðu talningarinnar og skiptingu fulltrúa á þeim tíma sem þær voru teknar upp. Hún segir að sömu vinnubrögð hafi verið viðhöfð við talningu í Reykjavík og áður. Mestar breyt- ingar hjá D-lista Útstrikanir og breytingar á atkvæðaseðlum Greidd Breyttir atkvæði seðlar Hlutfall B 1.629 61 4% D 20.006 4.475 22% E 681 9 1% F 274 5 2% H 668 15 2% S 11.344 971 9% V 4255 475 11% Æ 20.666 904 4% 59.523 6.915 11,6% Sigur Besta flokksins með Jón Gnarr í far- arbroddi hefur vakið athygli erlendis. Bæði breska rík- isútvarpið BBC og fréttastofa AFP segja flokkinn hafa brotist fram á sjónarsviðið fyrir um sex mánuðum. Besti flokk- urinn hafi m.a. kynnt málefni sín á Youtube og er vísað bæði á myndbandið og fjallað um kosn- ingaloforð flokksins, svo sem „Sjálfbært gagnsæi“, frí hand- klæði fyrir sundlaugagesti og ís- björn í Húsdýragarðinn. Bretar tala um Besta flokkinn Sigur Jón Gnarr

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.