Morgunblaðið - 31.05.2010, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 31.05.2010, Blaðsíða 22
22 Minningar MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 31. MAÍ 2010 ✝ Dóra Skúladótt-ir var fædd í Sjávarborg. Hvammstanga, V- Hún. Hún lést á krabbameinsdeild Landspítalans 15. maí 2010. Foreldrar hennar voru: Jón Skúli Ólafsson, f. í Húna- vatnssýslu 16. febr- úar 1911, d. 16. september 1990 og Guðbjörg Olsen f. í Vestmannaeyjum 1920, d. í Reykjavík 24. ágúst 2005. Dóra var ein af 8 systkinum en þau voru: Hildur Ósk Jóhannsdóttir f. 1946, búsett í Svíþjóð. Jón Skúli Bergman Skúlason f. 1947, búsett- ur í Reykjavík. Dóra Skúladóttir fædd í Sjávarborg, Hvamms- tanga, V-Hún., 1948, d. 15. maí 2010, búsett í Reykjavík. Sigríður Guðrún Skúladóttir f. 1950, búsett í Reykjavík. Unnur Skúladóttir f. 1951, búsett í Svíþjóð. Elínborg Skúladóttir f. 1958, búsett á Akra- nesi. Lára Skúladóttir f. 1957, d. 1995, var búsett í Reykjavík. Daníel Skúlason fæddur 1960, bú- settur í Reykjavík. Eiginmaður Dóru er Jón B. Sveinsson f. 25.1. Ragnar, þann 15. nóvember 1965 og hófu þau búskap upp úr því og giftu sig 28. maí 1968. Að þeim tíma liðnum hófu þau bæði að starfa við mötuneyti Búrfells- virkjunar sem var þá í mótun en þar störfuðu bæði Dóra og Jón framundir 1970. Þar á milli, eða 14. janúar 1969, eignast þau sitt annað barn sem var meybarn og hlaut nafnið Rakel og var hún fyrsta meybarn sem fæddist eftir að byggð hófst aftur í Þjórsárdal. Dóra og Jón voru þá búin að skrá lögheimili sitt að Sámsstöðum í Gnúpverjahreppi. Síðan eiga þau heima á Blöndubakka 6. Þar bjuggu þau í níu ár. Síðan fluttust þau Stallaseli 2. Þá fæddist Ólöf Rut 5. febrúar 1979. Dóra lauk verslunarnámi í fjölbraut og starf- aði sem bókari í prentsmiðju G.Ben. og síðan sem ritari á lög- mannsstofu Tómasar Gunn- arssonar. Hún stofnaði Brúð- arkjólaleigu Dóru 1987 og rak hana í tíu ár eða þar til hún veikt- ist af völdum heilabóðfalls. Fyrir tæpu ári, í júní 2009, greindist Dóra með lungnakrabbamein. Dóra dvaldi á líknardeild Land- spítalans í Kópavogi. Aðstand- endur vilja þakka sérstaklega heimahjúkrun Karitas, Ólöfu Rut Jónsdóttur og starfsfólki Líkn- ardeildar. Útför Dóru fer fram frá Selja- kirkju mánudaginn 31. maí 2010 og hefst athöfnin klukkan 13. 1946. Börn þeirra eru: 1) Sveinn Jóns- son f. 15. nóvember 1965, maki er Elín Björg Haraldsdóttir f. 12. maí 1969, börn þeirra eru: Viktor f. 12. júlí 1993, Egill Snær f. 22. desem- ber 2000, Eva María f. 31. desember 2005. Fyrir á Sveinn Jón Heiðar f. 7. febrúar 1989. 2) Rakel Jónsdóttir f. 14. janúar 1969, maki er Birkir Leósson. Börn þeirra eru: Birkir Ívar Birkisson f. 22.apríl 1996, Birta Íva Birkisdóttir 22. maí 2000. Fyrir á Rakel Sif Sveins- dóttur f. 19. september 1986 og Dóru Sveinsdóttur f. 24. febrúar 1989. 3) Ólöf Jónsdóttir f. 5. febrúar 1979. Dóra ólst upp á Hvamms- tanga og reyndi margt fyrir sér, fyrst í vist á Raufarhöfn og fluttist síðan til Reykjavíkur og hóf störf sem herbergisþerna á Hótel Borg 1964 en þar kynntist hún eftirlif- andi manni sínum, Jóni B. Sveins- yni, f. 25.1. 1946 Jón var þá matreiðslunemi á Hótel Borg. Þau eignuðust sitt fyrsta barn, Svein Það er alltof erfitt að kveðja þig, mamma mín, en Guð hefur ætlað þér hlutverk annars staðar. Sennilega vantaði Brúðarkjólaleigu Dóru á betri stað, en mamma sá alltaf svo mikið eftir að verða að selja versl- unina eftir slæmt heilablóðfall sem hún náði sér aldrei eftir. Móðir mín var mikill karakter og gat skopast að öllu. Hún átti líka mjög auðvelt með að setja sig í spor annarra og reyndi alltaf að hlúa að þeim sem áttu erfitt. Ég man sterklega eftir því sem barn að ég ætti að passa fötin mín vel og gefa svo fötin upp á Reykjalund þeg- ar þau pössuðu ekki lengur. Það var svo alltaf gert. Ég mun alltaf minnast mömmu við eldhúsborðið að sauma föt. Oft varð ég sem barn hrædd um að hún mundi gleypa eitthvað af títu- prjónunum sem hún stakk upp í sig og talaði svo með þá út í loftið. Eitt sinn skeði það slys, þegar hún var að sauma að nálin í saumavélinni brotn- aði og skaust upp í augað, þá var brunað upp á slysó að leita að nálinni sem fannst svo og allt endaði vel. Mamma var orkumikil kona og var alltaf sífellt að og lagði sig alla í það sem hún tók sér fyrir hendur. Elsku besta mamma, það verður mjög erfitt að hafa þig ekki með okk- ur lengur og við munum sakna þín mikið. Að þér er mikill missir hjá barnabörnunum sem þú elskaðir svo mikið. Þeim þótti svo gaman að gista hjá þér, föndra með þér og bara vera á spjallinu, sem var endalaust gaman. Við munum aldrei gleyma þér, elsku mamma mín. Allir fallegu hlutirnir sem þú bjóst til handa okkur og fal- lega heimilið sem þú bjóst um okkur börnin hjálpa okkur einnig að muna þig. Það verður erfitt fyrir pabba og Ólöfu systur að hafa þig ekki lengur á heimilinu og ég bið Guð að gefa þeim styrk til að halda áfram. Við söknum þín svo mikið, elsku mamma mín, þú varst alltaf svo flott og vel til höfð, ég er stolt af því að þú varst mamma mín og amma barna minna. Móðir mín góð. Hún saumaði sér kjóla. Dóttir mín góð vantar þig ekki kjól? Ég skal sauma á þig kjól. Mig langar að sauma á þig kjól móðir mín góð, silkikjól með kristöllum og demöntum, en þú fórst allt of fljótt. Þú gafst mér ómetanlega gjöf. Þú kenndir mér að sauma kjóla. Dætur mína góðar vantar ykkur ekki kjóla? Ég skal sauma á ykkur kjól. Ég vil kenna ykkur að sauma kjóla og þessa ómetanlegu gjöf langar mig ykk- ur erfa. Sofðu nú rótt móðir mín góð. Þín dóttir, Rakel. Sakna þín svo mikið, sárt að ég sé þig ekki þegar ég vakna á morgnana. Að geta aldrei spjallað við þig um heima og geima eða leitað til þín þeg- ar eitthvað bjátar á. Það er svo tómlegt núna og of hljótt og rótlaust. Sérstaklega þegar ég er að horfa á bíómyndir vantar mig þig til að trufla mig með túlkun þinni á myndunum. Nágrannar verða aldrei eins núna. Sakna húmors, hláturs og sam- veru. Gott að vita samt að núna er þessu lokið og þú vonandi ekki að þjást lengur. Síðasta ferðin þín á spítalann átti að vera stutt og bjóst maður við því að þú myndir ná þér upp úr þessu, hefði ég vitað að þetta væri síðasta stoppið þá hefði ég smyglað þér þarna út að reykja á sjúkrahúsinu í Fossvoginum. Hefði ég vitað að þessi barátta léki þig svona grátt þá hefði ég ekki ýtt þér út í þessa meðferð svona stíft, við hefðum átt að skella okkur bara til Manchester í verslunarferðina sem þig langaði alltaf að draga mig með í, föndra, spila, dunda okkur í kross- gátum, skella okkur bara aftur til Mallorka og dansa við Macarena-tón- list og gert margt fleira í staðinn fyrir að eyða tímanum inn og út af spít- alanum í næstum heilt ár. Hvíl í friði, elsku mamma mín, þrautseigasta, sterkasta manneskja sem ég hef kynnst og er stolt að hafa átt þig að sem móður. Vona að þú sért á góðum stað núna og megi Guð geyma og passa þig þar til við hittumst hressar og hraustar aftur, elska þig og sakna þín óend- anlega mikið. Guð tekur alltaf þá bestu snemma og er hann eigingjarn Guð en kannski hefur hann stærra plan sem við fáum aldrei að vita, bara upplifa. Við kveðjum þig með kærleiksríkum huga þér Kristur launar fyrir allt og allt. Þú varst svo sterk og lézt ei böl þig buga og birtan skín í gegnum húmið kalt. Það er gott er lífsins degi lýkur, að ljómi birta um þann sem kvaddur er. Því eitt er víst, að Guð vor gæzkuríkur, glaða framtíð hefur búið þér. Kæra mamma, ljúfur Guð þig leiði, um landið efra að Edens fögrum lund, og á þinn legstað blóm sín fögur breiði, svo blessi Drottinn þessa hinztu stund. Í okkar hjarta ljúf þín minning lifir, þú leiddir okkur fyrstu bernsku spor. Við biðjum Guð, sem ræður öllu yfir, að enn þér skíni blessuð sól og vor. Hjartans þakkir, elsku mæta móðir, þér miskunn veiti Guð svo hvílist rótt. Þig verndi og gæti allir englar góðir, ástarþakkir, mamma, góða nótt. (H.J.) Kveðja, Ólöf Rut Jónsdóttir. Fyrstu kynni mín af tengdamóður minni, Dóru Skúladóttur, voru í árs- lok 1994 skömmu eftir að ég hafði kynntist Rakel dóttur hennar. Dóra tók mér strax mjög vel og var sam- band okkar allt tíð mjög gott enda var hún þægileg og elskuleg kona sem vildi öllum vel. Það var þannig ekki hægt annað en að líka vel við hana. Óhætt er að segja að á þeim tíma hafi Dóra verið í blóma lífsins. Hún rak þá eigið fyrirtæki, Brúðar- kjólaleigu Dóru, af miklum myndar- skap og metnaði. Augljóst var að þessi rekstur og allt sem að honum sneri átti þá huga Dóru að fullu, ásamt með fjölskyldunni sem alltaf var þó í fyrsta sæti hjá henni. Fljótt skipuðust veður í lofti í lífi Dóru þegar hún veiktist mjög skyndilega, fékk heilablóðfall, og líf hennar varð ekki samt eftir. Vegna heilsubrests varð hún að láta frá sér fyrirtækið, þó sárt væri. Það sem skipti Dóru mestu máli þ.e. fjölskyld- an var þó enn til staðar ásamt reynslu og kunnátta hennar í handverki sem hún hafði þá meiri tíma en áður til að sinna. Dóra var alla tíð mikil handverks- kona og allt þess háttar lék í höndum hennar og er þá sama hvort verið er að tala um erfiðan saumaskap eða annað handverk. Þeir eru ófáir fallegu og nytsömu hlutirnir sem hún gerði og gaf öðrum. Dóra hafði einnig mikið yndi af garð- og blómarækt og tókst þar einnig einstaklega vel upp. Eitt helsta tómstundagaman Dóru voru krossgátur og önnur álíka hugarleik- fimi og þar var sömu sögu að segja, að þar var hún einnig á heimavelli. Dóra var ekki einungis góð móðir og tengdamóðir heldur ekki síður barnabörnum sínum góð amma. Þann- ig hafa öll börn okkar sótt mjög í að vera í Stallaseli hjá ömmu, afa og Ólöfu frænku. Þar var amman alltaf tilbúin að leyfa börnunum að taka þátt í því sem hún var að gera og hjálpa þeim í því sem þau voru að gera. Börn- in höfðu bæði mikið gagn og gaman af því. Fyrir tæpu ári síðan greindist Dóra með krabbamein. Dóra ætlaði sér að hafa betur í þeirri erfiðu baráttu og framan af trúði maður að eiginleikar hennar, ákveðnin og þrjóskan, mundu hjálpa til við að leiða hana þar til sig- urs en allt kom fyrir ekki. Gamansemi var einnig stór eiginleiki hjá Dóru en hún gat alltaf séð skoplega hlið á að- stæðum. Þar er skemmst að minnast að jafnvel á dánarbeði, rétt fyrir and- lát sitt, þá sá hún skoplegu hliðina á því að fólk streymdi í heimsókn til hennar. Ég mun minnast elskulegrar tengdamóður minnar með hlýhug og söknuði. Ég sendi þér kæra kveðju nú komin er lífs þíns nótt, þig umvefji blessun og bænir ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði nú sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því, þú laus ert úr veikinda viðjum þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér, og það er svo margs að minnast svo margt sem um hug minn fer, þó þú sért horfinn úr heimi ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir) Ég votta Jóni, Ólöfu, Sveini, Rakel og fjölskyldunni allri mína dýpstu samúð. Birkir Til elsku tengdamömmu. Við andlátsfregn þína, allt stöðvast í tímans ranni. Og sorgin mig grípur, en segja ég vil með sanni, að ósk mín um bata þinn, tjáð var í bænunum mínum, en Guð vildi fá þig, og hafa með englunum sínum. Við getum ei breytt því sem frelsarinn hefur að segja. Um hver fær að lifa, og hver á svo næstur að deyja. Þau örlög sem við höfum hlotið, það verður að skilja. Svo auðmjúk og hljóð, við lútum að frelsarans vilja. Þó sorgin sé sár, og erfitt er við hana að una. Við verðum að skilja, og alltaf við verðum að muna, að Guð hann er góður, og veit hvað er best fyrir sína. Því treysti ég nú, að hann geymi vel sálina þína. Þótt farin þú sért, og horfin ert burt þessum heimi. Ég minningu þína, þá ávallt í hjarta mér geymi. Ástvini þína, ég bið síðan Guð minn að styðja, og þerra burt tárin, ég ætíð skal fyrir þeim biðja. (Bryndís Halldóra Jónsdóttir.) Takk fyrir allt, elsku Dóra, og Guð geymi þig. Þín tengdadóttir, Elín Björg Haraldsdóttir. Elsku Dóra amma. Amma kær, ert horfin okkur hér, en hlýjar bjartar minningar streyma um hjörtu þau er heitast unnu þér, og hafa mest að þakka, muna og geyma. Þú varst amma yndisleg og góð, og allt hið besta gafst þú hverju sinni, þinn trausti faðmur okkur opinn stóð, og ungar sálir vafðir elsku þinni Þú gættir okkar, glöð við undum hjá, þær góðu stundir blessun, amma kæra. Nú hinstu kveðju hjörtu okkar tjá í hljóðri sorg og ástarþakkir færa. (Ingibjörg Sigurðardóttir.) Takk fyrir allar góðu stundirnar, þín er sárt saknað. Minning þín mun ávallt lifa í hjört- um okkar, elsku amma. Þín barnabörn, Jón Heiðar,Viktor, Egill Snær og Eva María. Elsku amma mín, ég veit ekki hvar ég á að byrja en það sem ég er stoltust af er að hafa gefið þér lang- ömmubarn og kynnt hann fyrir þér og ég mun ætíð minna hann á þig og kynna hann fyrir þér eins og ég þekkti þig, elsku amma mín. Ég á svo margar góðar minningar um þig og erfitt að stytta þær í smá- texta, en þær munu ávallt eiga sér stað í hjarta mínu. Flestar minning- arnar eru frá þeim tíma sem mamma og pabbi skildu, þar sem ég nánast bjó hjá ykkur á þeim tíma og alltaf tókstu á móti mér með opnum örm- um og eldaðir kjötbollur með káli handa mér þegar þú vissir af mér á leiðinni í heimsókn, enda kona sem var alltaf með á hreinu hvað væri uppáhaldið mitt. Þú varst alltaf tilbúin til að að- stoða mann hvort sem það tengdist saumaskap eða lærdómi, enda kom ég nánast alltaf í heimsókn til ykkar Ólafar þegar ritgerðaskil voru á næstunni og alltaf fékk ég góða ein- kunn eftir þá hjálp. Man þegar þú varst með brúðar- kjólaleiguna, hvað það var ofsalega gaman og koma og máta kjólana, það var mesta sportið og að labba á milli þeirra fannst mér ógurlega notalegt. Þú varst alltaf með gott auga fyrir fallegum og flottum hlutum og ég mun aldrei gleyma síðustu orðunum sem þú sagðir við mig, að þessi gler- augu sem ég væri með væru svo flott. Ég veit að þú átt góða að á himn- um, langömmu og langafa og Láru systur þína, svo að ég veit að þú ert í góðum höndum og laus við alla verki. Elsku amma mín, ég mun aldrei gleyma þér og Brynjar Sveinn mun sko alltaf eiga góða minningu og mynd um langömmu sína. Ég mun aldrei gleyma þér og mun alltaf elska þig, elsku amma mín. Sif Sveinsdóttir. Dóra Skúladóttir HINSTA KVEÐJA Elsku amma mín, ég vil kveðja þig með fáum orðum. Ég sakna þín því þú varst alltaf svo góð við mig og skemmtileg. Það var allt- af gaman að spila saman og gera ýmislegt annað saman. Það var líka gaman að spjalla við þig. Ég sakna þín mikið en veit að góður Guð mun gæta þín vel. Hvíldu í friði hjá Guði. Birkir Ívar. Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, PÁLL PÁLSSON, Brisbane, Ástralíu, áður Þingeyri við Dýrafjörð lést laugardaginn 29. maí. Minningarathöfn auglýst síðar. Ruth L. Pálsson, Páll Pálsson yngri, Þórður Guðni Pálsson, Anna Guðrún Stefánsdóttir, Hafþór Ingi Pálsson, Sigríður Bjarnadóttir, Herdís Pála Pálsdóttir, Jón Ágúst Sigurðsson, Aníka Rós Pálsdóttir, Karl Jóhann Pálsson, Katrín Brynja Valdimarsdóttir, Helen Thura Pálsson, Matthew Simon Pálsson og barnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.