Morgunblaðið - 31.05.2010, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 31.05.2010, Blaðsíða 24
24 Minningar MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 31. MAÍ 2010 ✝ Hjartans þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför ástkærs eiginmanns míns, föður okkar og afa, ÓTTARS KJARTANSSONAR. Sérstakar þakkir færum við hjúkrunarþjónustunni Karitas, líknardeild Landspítalans og félögum okkar í Hestamannafélaginu Gusti. Jóhanna Stefánsdóttir, Kjartan Sævar Óttarsson, Oddný Kristín Óttarsdóttir og Karen Birta Kjartansdóttir. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang- amma, ARNHEIÐUR HELGA GUÐMUNDSDÓTTIR, Vallholti 16, Selfossi, áður Sólbergi, Stokkseyri, lést mánudaginn 24. maí Útförin fer fram frá Ríkissal Votta Jehóva Hraunbæ 113 Reykjavík miðvikudaginn 2. júní kl. 13.00. Jarðsett verður í Stokkseyrarkirkjugarði. Anna Jósefsdóttir, Ingibergur Magnússon, Guðmundur Jósefsson, Arndís Lárusdóttir, Sigmundur Sigurjónsson, Ólafur Jósefsson, Rósa Kristín Þorvaldsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Friðgeir BjarnarValdemarsson bif- reiðastjóri fæddist í Felli, Glerárþorpi, 24. júlí 1931, hann lést á Sjúkrahúsinu á Ak- ureyri 21. maí 2010. Foreldrar hans voru hjónin Valdemar Júl- íusson og Ingibjörg Björnsdóttir. Systur Friðgeirs voru Lára og Sara sem báðar eru látnar. Hinn 21. mars 1953 kvæntist Friðgeir eft- irlifandi eiginkonu sinni, Gyðu H. Þorsteinsdóttur, f. 31. október 1934. Foreldrar hennar voru hjónin Þorsteinn Jónsson og Sigrún Björnsdóttir. Börn Friðgeirs og Gyðu eru: 1) Valdís María, f. 6. nóv- ember 1953, gift Jóni Sigþóri Gunn- arssyni, f. 12. apríl 1953, dætur þeirra, a) Gyða Hrönn, f. 1974, gift Berglind Sif, f. 1981, og á hún 1 son. e) Vala Birna, f. 1983 gift Rashid Javid, f. 1980. 3) Edda Sigrún, f. 2. apríl 1958, gift Kristni Björnssyni, f. 28. maí 1959, börn þeirra, a) Björn, f. 1979, kvænturr Elisu Pa- loni, f. 1976. b) Einar, f. 1982 , kvæntist Rannveigu Elíasdóttur, f. 1982, þau skildu og eiga þau 2 syni. c) Andri, f. 1989. 4) Gunnhildur Gyða, f. 17. desember 1960, giftist Hauki S. Ingasyni, f. 1960, þau skildu, dóttir þeirra er Linda Rún, f. 1992, núverandi sambýlismaður Gunnhildar er Anders Larsson, f. 26. apríl 1967, dóttir þeirra er Tindra Björk, f. 2002. Friðgeir ólst upp í Felli í Gler- árþorpi á Akureyri, þar sem stór- fjölskyldan bjó öll saman lengst af, Valdemar í norðurendanum og Garðar bróðir hans í suðurend- anum. Friðgeir og Gyða byggðu Stórholt 4 og bjuggu þar í 13 ár, þá fluttu þau í Hamragerði 22, sem þau byggðu einnig og bjuggu þar til ársins 2001, þegar þau fluttu í Mýr- arveg 113 þar sem þau hafa búið síðan. Útför Friðgeirs fer fram frá Ak- ureyrarkirkju í dag, 31. maí 2010, og hefst athöfnin kl. 13.30. Jóni Árelíusi Þor- valdssyni, f. 1964 og eiga þau 2 börn. b) Elva Dögg, f. 1980, sambýlismaður Hauk- ur Pálmason, f. 1977 og eiga þau 2 syni. c) Hildur Ýr, f. 1986, sambýlismaður Elfar Halldórsson, f. 1986. 2) Valdemar Þor- steinn, f. 17. janúar 1955, kvæntur Svein- birnu Helgadóttur, f. 9. mars 1953, börn þeirra, a) Helga Sig- ríður, f. 1975, giftist Aaron Mitch- ell, f. 1975, þau skildu, núverandi sambýlismaður Úlfar Hauksson, f. 1966 og á hún 3 dætur. b) Gyða Heiða, f. 1976, sambýlismaður Daníel Birgir Ívarsson, f. 1973 og á hún 2 syni. c) Friðgeir Bjarnar, f. 1979, sambýliskona Rakel Þorleifs- dóttir, f. 1980 og eiga þau 2 syni. d) Genginn ert þú götu breiða, genginn ert þú Guði á hönd. Góðir englar til Guðs þig leiða, þú glaður kannar ókunn lönd. Það er svo margt sem mun á þig minna, þau munu ei slitna, þessi bönd. Því seinna mun ég sjálf þig finna, þá saman göngum hönd í hönd. (Höf. Sigþór) Kveðja frá eiginkonu. Þegar ég minnist tengdaföður míns kemur upp í hugann mynd af vinnusömum manni sem hélt afar þétt utan um sína fjölskyldu. Fjöl- skylduböndin voru sterk og náðu bæði til hans nánustu og einnig stór- fjölskyldunnar úr Felli í Glerár- þorpi. Friðgeir var afar bóngóður maður og minnist ég ekki að það hafi þurft að biðja hann oftar en einu sinni um hvaðeina sem með þurfti. Hann hafði kynnst mikilli vinnu frá blautu barnsbeini til sjávar og sveita. Oft minntist hann með ánægju dval- arinnar á Sörlastöðum í Fnjóskadal þar sem hann dvaldist sem ungur drengur og einnig síldaráranna þeg- ar hann reri á Garðari og Gylfa. Fiddi vann sem verkstjóri hjá Möl og Sandi í mörg ár. En þegar átti að draga úr vinnuálaginu færði hann sig á Sendibílastöðina með eigin bíl og vann þá oft daga og nætur við að flytja pelsklædda farþega hringinn kringum landið, enda mikil upp- bygging í minka- og refaeldi. Hafði hann mikla ánægju af að kynnast landinu og bændum á þessum ferð- um. Á síðustu árum átti Fiddi við vax- andi veikindi að stríða en ferðaáhug- inn var samur. Eigum við afar góðar minningar frá sumrinu 2008 þegar við dvöldum í sumarbústað á Suður- landi og fórum í stuttar ferðir þar út frá alla daga, með viðkomu á Hvera- völlum heiman og heim. Einnig er ógleymanleg ferð til Ítalíu í septem- ber síðastliðnum með Fidda, Gyðu og fleirum úr fjölskyldunni til að vera við brúðkaup sonar okkar. Þessar síðustu vikur undirstrik- uðu einn ónefndan eiginleika Frið- geirs, það er að segja æðruleysið. Aldrei kvartaði hann og hann var tilbúinn að hughreysta þá sem þess þurftu með. Kæri Friðgeir, þakka þér sam- fylgdina, minning þín lifir með okk- ur. Kristinn Björnsson. Elsku besti afi minn, ég er alveg afskaplega sorgmædd í hjarta mínu, en samt er mér létt því ég veit að þér líður mun betur þar sem þú ert núna. Við höfum átt margar góðar minn- ingar saman, bæði gamlar og nýjar og þá sérstaklega Ítalíuferðina okk- ar sem við fórum í fyrra. Það var yndislegur tími sem við áttu saman í þessu fallega landi og ég er svo glöð að þú og amma ákváð- uð að koma með því þessi ferð hefði aldrei verið eins án ykkar. Mér fannst við öll sem fjölskylda tengjast miklu meira í þessari ferð og fyrir það er ég að eilífu þakklát. Svo má nú ekki gleyma Copthorne hótelinu við Gatwick, það var nátt- úrulega bara yndislegt og ég er al- veg ákveðin í að fara þangað aftur þér til heiðurs, þó það verði ekki eins án þín, því eins og þú sagðir „Mér er alveg sama þó flugvélin bili og við komumst ekki heim í dag.“ Ég mun aldrei gleyma því hvernig þú ljómaðir í hvert skipti sem þú tal- aðir um þessari ferð og þér fannst ekkert sérstaklega leiðinlegt að segja frá henni heldur. Ég man hvað þú varst stoltur af mér þegar ég útskrifaðist og var það mér mjög mikils virði og ég man þeg- ar þú hringdir í mig rétt fyrir út- skriftina mína og sagðir mér að þú vildir hafa það á hreinu að ef mig vantaði eitthvað, hvort sem það væri peningur eða aðstoð við eitthvað þá sæir þú um þína og að ég þyrfti bara hringja, og finnst mér þetta lýsa þér í einu og öllu, alltaf tilbúinn til að að- stoða og rétta fram hjálparhönd. Þú ert svo yndislegur afi og þú gast alltaf komið mér til að hlæja og eins og það var erfitt að kveðja þig þá gladdi það mig, og ég veit að það gleður þig, að heyra að ég komst inní háskólann og ætla ég mér að gera þig enn stoltari af mér þar. Mér finnst samt svo undarlegt að hugsa til þess að að heyra aldrei aft- ur „Hvað segir þú?“ frá þér þegar ég svara í símann eða að fá óvænt símtal frá þér þegar þú hefur óvart rekið þig í takkann á gemsanum þínum en ég veit þú vakir yfir mér og mínum og það mun aldrei líða sá dagur sem ég hugsa ekki til þín. Ég mun ávallt geyma fallegu minningarnar okkar saman í hjarta mínu. Þú kominn nú ert á betri stað Og yfir mér vakir, ég er viss um það. Ég kveð þig að sinni, uns við hittumst á ný, þú ávallt í huga mér verður, ég lofa þér því. Þín, Hildur Ýr Sigþórsdóttir. Vertu sæll, kæri afi. Takk fyrir all- ar minningarnar úr Hamragerði og hjólhýsinu, sumarbústaðnum og Mýrarveginum, ferðunum í flutn- ingabílnum og ekki síst úr ævintýra- legri Ítalíuferð í fyrra haust. Þær verða með okkur alla tíð. Vort líf er svo ríkt af ljóssins þrá, að lokkar oss himins sólarbrá, og húmið hlýtur að dvína, er hrynjandi geislar skína. Vor sál er svo rík af trausti og trú, að trauðla mun bregðast huggun sú, þó ævin sem elding þrjóti, guðs eilífð blasir oss móti. Vort hjarta er svo ríkt af hreinni ást, að hugir í gegnum dauðann sjást. – Vér hverfum og höldum víðar, en hittumst þó aftur – síðar. (Jóhannes úr Kötlum.) Björn, Einar, Andri og fjölskyldur. Í síðustu viku barst mér sú frétt að Friðgeir, fyrrverandi tengdafaðir minn, væri orðinn alvarlega veikur. Við þær fréttir koma minningabrot upp í hugann, um góðar stundir og þær tilfinningar sem óneitanlega fylgja með. Þar sem ég er búsettur í Svíþjóð ákvað ég að skrifa nokkrar línur til Fidda, eins og hann var allt- af kallaður, þar sem ég vissi að hann ætti erfitt með að tala í síma vegna veikinda sinna. Ég ætlaði því að biðja Gyðu konu hans að lesa bréfið fyrir mig til hans. Þegar ég svo hringdi í Gyðu til að biðja hana um þennan greiða fyrir mig sagði hún mér að Fiddi hefði dáið fyrr um morguninn. Það sem mig hafði langað að segja Fidda var að mér hefði alltaf þótt vænt um að heyra í honum. Að ég hafi alltaf vitað að þau hjónin höfðu verið svo ánægð með aðstoðina sem ég veitti þeim í London þegar Fiddi fór í aðgerð 1992. Ég vissi að þessi ferð styrkti tengsl okkar. Mér hefur alltaf þótt mjög vænt um þau og þau tóku alltaf vel á móti okkur þegar við komum norður. Ég vildi að hann vissi að mér hafi alltaf fundist gaman að fara með honum í stuttu bíltúrana á flutningabílnum þegar við vorum fyrir norðan. Því miður náði hann ekki að heyra þessi orð mín, en ég vil að fjölskylda hans viti að ég ber mjög hlýjan hug til hennar og sérstaklega Gyðu sem verður að takast á við erf- iða sorg eftir svo langt og farsælt hjónaband. Ég vil því senda mínar dýpstu samúðarkveðjur til allra í fjölskyld- unni. Haukur Skarphéðinn Ingason. Nú kveð ég góðan vin sem ég er innilega þakklátur fyrir að hafa eign- ast. Ég kynntist Fidda fyrst árið 1995 þegar leiðir okkar Gyðu, kon- unnar minnar, lágu saman en hún bjó á neðri hæðinni hjá afa sínum og ömmu í Hamragerðinu, þeim Fidda og Gyðu. Við Fiddi urðum strax mestu mátar og miklir vinir, ég hafði alltaf gaman af því að sitja og spjalla við Fidda um gömlu dagana og voru ófáar sögurnar sem hann sagði mér af því þegar hann vann á smurstöð- inni, á krananum hjá Hólma eða þeg- ar hann var að keyra minka og refi út um allt land. Einnig talaði hann oft um Sörlastaði og samferðamenn sína þar, og alltaf hafði ég nú jafn gaman af því þegar hann spurði hvort ég myndi nú ekki eftir þessum og hin- um sem voru löngu farnir og ég alltof ungur til að muna eftir. Þetta sýndi bara hvað hann var ungur í anda og fannst allir vera á sama reki og hann. Fiddi var einstaklega iðinn maður og þurfti alltaf að hafa eitthvað fyrir stafni og naut ég þeirra forréttinda að fá að dunda í ýmsu með honum hvort sem var niðri í skúr, austur í hjólhýsi eða í sumarbústaðnum. Hann bjó sér og fjölskyldu sinni sælureit austur í Aðaldal og síðan í sumarbústaðnum, Felli, af mikilli natni og var aldrei slakað á í því að fegra og bæta. Og var hugur hans svo sterkur allt fram í andlátið að hann bað mig daginn áður en hann kvaddi að bera nú á lóðina í kringum sumarbústaðinn svo grasið yrði fal- legt í sumar. Síðastliðin 8 ár höfum við fjöl- skyldan verið svo heppin að hafa Fidda og Gyðu hinum megin við göt- una í Mýrarveginum og eru ófáar ferðirnar sem rölt hefur verið á milli húsa eða bara vinkað í gluggunum. Alltaf var hann kominn til að fylgjast með þegar ég var eitthvað að brasa úti á lóð eða á pallinum og alltaf vildi hann nú hjálpa til. Já ég á eftir að sakna sárt góðs vinar sem alltaf var gaman að umgangast, hvort sem við vorum að vinna saman, tala saman eða skemmta okkur saman. Hann hugsaði vel um sína og vildi öllum vel og getur stoltur kvatt þennan heim, hann hefur svo sannarlega skilað sínu. Þótt erfitt sé að kveðja getum við huggað okkur við það að nú líður honum vel og hann er örugglega byrjaður að rækta garðinn og búa sér til sælureit þar sem við eigum vísan stað þegar við komum til hans. Takk fyrir allar góðu stundirnar sem við áttum saman. Guð blessi minn- ingu þína. Jón Á. Þorvaldsson. Friðgeir Bjarnar Valdemarsson Morgunblaðið birtir minningar- greinar endurgjaldslaust alla út- gáfudaga. Skil | Greinarnar skal senda í gegnum vefsíðu Morgunblaðsins. Smellt á reitinn Senda inn efni á for- síðu mbl.is og viðeigandi efnisliður valinn. Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstu- degi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist. Minningargreinar Ástkær móðir mín, JÓNÍNA VALGERÐUR SIGTRYGGSDÓTTIR, áður til heimilis Seljavegi 3a, lést á Vífilsstöðum síðastliðinn föstudag. Margrét H. Marvinsdóttir. Elskulegur bróðir okkar og frændi, FILIPPUS HANNESSON, Núpsstað, verður jarðsunginn frá Bænhúsinu, Núpsstað, 4. júní kl. 14 Margrét Hannesdóttir, Jón Hannesson, Jóna Aðalheiður Hannesdóttir, Ágústa Þorbjörg Hannesdóttir, systkinabörn og aðrir ættingjar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.