Morgunblaðið - 14.06.2010, Blaðsíða 2
Þegar hálfur þriðji mánuður
er eftir af fiskveiðiárinu, en
því lýkur 31. ágúst, er búið
að veiða um 88% af afla-
marki í þorski. Af karfa hafa
verið veidd um 91% og um
90% af keilu. Afli er kominn
yfir aflamark eða 102% í
löngu, samkvæmt því sem
fram kemur á vef Fiskistofu.
Af ýsu og ufsa er landaður
afli rúmlega 71% af afla-
marki.
88% af afla-
marki í þorski
FISKVEIÐIÁRIÐ
2 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. JÚNÍ 2010
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, sisi@mbl.is Viðskipti
vidsk@mbl.is Ívar Páll Jónsson, fréttastjóri, ivarpall@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins | Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is
Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Prentun Landsprent ehf.
www.noatun.is
Grillveislur
www.noatun.is
eða í næstu Nóatúns verslun
Pantaðu veisluna þína á
999VERÐ
FRÁ
MEÐ MEÐL
ÆTIÁ MANN
Grillveislur Nóatúns:
Grísahnakkasneiðar
Lambalærissneiðar
Kjúklingabringur
Lambafile
Ein með öllu
Þín samsetning
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Mörg fiskvinnsluhús hafa lengur lok-
að yfir hásumarið en þau hafa gert
síðustu ár. Ástæðan er einkum minni
kvóti í mörgum helstu tegundum og
því verri kvótastaða heldur en und-
anfarin ár. Nýtt fiskveiðiár byrjar 1.
september. Sem dæmi um lengri lok-
anir í ár má nefna fiskiðjuver Sam-
herja á Dalvík og á Húsavík og Brim
á Akureyri. Grandi grípur ekki til
lokunar í sumar þó svo að úr minna
hráefni verði úr að moða.
Þar sem uppsjávartegundir eins
og norsk-íslensk síld og makríll eru
unnar verður hins vegar mikið um að
vera í sumar. Á það einkum við
svæðið frá Vopnafirði til Vest-
mannaeyja.
Landvinnsla Samherja á Dalvík og
Húsavík verður lokuð í fimm vikur í
sumar í stað þriggja vikna á síðasta
ári. Um 170 manns vinna hjá fyr-
irtækinu við fiskvinnslu á þessum
stöðum og tekur starfsfólkið hefð-
bundið sumarleyfi á tímabilinu frá
miðjum júlí fram yfir miðjan ágúst.
Gestur Geirsson, framkvæmda-
stjóri landvinnslu Samherja, segir að
ástæða lokunar í svo langan tíma sé
einfaldlega erfið kvótastaða.
„Kvótar í helstu tegundum hafa
minnkað ár frá ári. Þorskkvótinn
hefur aldrei verið jafn lítill og á
þessu fiskveiðiári og eðlilega kemur
það niður á vinnslunni í landi,“ segir
Gestur. „Þó svo að lögð sé til aukning
í þorskveiðum á næsta ári þá er ekki
víst að hún komi í hlut hefðbundinna
sjávarútvegsfyrirtækja. Síðan er
samdráttur í öðrum tegundum þann-
ig að ég er ekkert sérlega bjartsýnn
fyrir næsta ár.“
Hann segir að kaupendum erlend-
is hafi verið tilkynnt um þessa lokun
með góðum fyrirvara, en eðlilega
snerti slík stöðvun viðskiptavini fyr-
irtækisins.
Getum ekki galdrað
fisk í húsin
Landvinnslu Brims á Akureyri
verður lokað í á fjórðu viku í sumar,
15. júlí – 9. ágúst. Á síðasta sumri var
ekki unnið í húsum fyrirtækisins í
tvær vikur, en um 120 starfa í fisk-
iðjuveri Brims. Guðmundur Krist-
jánsson, forstjóri Brims, segir að
fyrirtækið hafi síðustu vikur keypt
heilfrystan Rússafisk til að halda
starfseminni gangandi. Það skili fyr-
irtækinu nánast engu, en starfsfólkið
hafi þó vinnu á meðan.
„Við getum ekki galdrað fisk í hús-
in og fyrst við megum ekki veiða
meira er ekkert annað að gera en að
loka yfir hásumarið,“ segir Guð-
mundur. „Aðstæður í sjávarútveg-
inum hafa vægast sagt verið nið-
urdrepandi síðustu ár. Kvóti hefur
minnkað í nánast öllum helstu teg-
undum og aukning sem Hafrann-
sóknastofnun leggur nú til í þorski
fer nánast öll í strandveiðar og aðra
pólitíska sjóði.
Rugla alla umræðu
Það er eins og stjórnmálamenn
telji að þeir geti skapað ný störf með
úthlutun veiðiheimilda til nýrra að-
ila, en staðreyndin er sú að einungis
er verið að færa störf frá einum aðila
til annars. Þess vegna meðal annars
þurfum við að loka í lengri tíma í ár
heldur en í fyrra.“ Guðmundur segir
að strandveiðarnar rugli alla um-
ræðu. Erlendir viðskiptavinir fagni
eðlilega verðlækkun á mörkuðum
samfara strandveiðunum, en það
framboð standi aðeins í nokkra daga
í mánuði yfir hásumarið. Útlend-
ingar heimti hins vegar áfram lágt
verð og skilji lítið í stjórnun fiskveiða
á Íslandi.
„Er það framtíð sjávarútvegs á Ís-
landi að fleiri hundruð trillur fái að
veiða fisk í fjóra daga í mánuði eins
og reyndin varð núna í júní?“ spyr
Guðmundur að
lokum.
Meiri sumarlokanir víða
Tilkynntar erlendum kaupendum með góðum fyrirvara Aukning sem lögð er
til í þorski fer nánast öll í strandveiðar og aðra pólitíska sjóði, segir forstjóri Brims
Fiskvinnsla Starfsfólk í fiskiðjuverum er víða sent í sumarfrí á sama tíma vegna sumarlokana sem standa lengur í
ár en í fyrra. Það er handagangur í öskjunni hjá þessum konum sem vinna á Grundarfirði.
Morgunblaðið/RAX
Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
Flutningsjöfnunarsjóður olíuvara
var rekinn með 17,5 milljóna króna
halla á síðasta ári, samkvæmt árs-
reikningi sem stjórn sjóðsins gekk
frá á dögunum. Árið áður var hagn-
aður sjóðsins 11,5 milljónir króna.
Innheimt er sérstakt gjald á allar
innfluttar olíuvörur og er þeim fjár-
munum ætlað að greiða fyrir flutn-
ingskostnað olíufélaganna frá inn-
flutningshöfn til næstu útsölustaða
olíuvara. Gjaldið skilaði 353 milljón-
um króna á síðasta ári en endur-
greiddur kostnaður við flutninga ol-
íufélaganna var um 365 milljónir
króna.
Sameiginlegur rekstrarkostnaður
var upp á 7,8 milljónir króna. Þar af
voru laun til stjórnarmanna tæpar
fjórar milljónir króna. Fimm sitja í
stjórn, þar af þrír frá olíufélögunum
N1, Olís og Skeljungi, sem fara sam-
eiginlega með eitt atkvæði í stjórn-
inni á móti hinum tveimur. Annar
þeirra er tilnefndur af efnahags- og
viðskiptaráðherra og einn frá Neyt-
endastofu.
Gunnar G. Þorsteinsson stjórnar-
formaður, tilnefndur af Neytenda-
stofu, segir að sjóðinn beri að reka á
núllinu. Stundum sé hann rekinn
með lítilsháttar hagnaði og stundum
með tapi. Verði einhver hagnaður sé
honum eytt árið eftir.
Samkvæmt upplýsingum frá olíu-
félögunum ná framlög úr sjóðnum
ekki að endurgreiða að fullu allan
þann kostnað sem félögin bera af
flutningi olíuvara frá innflutnings-
höfn til útsölustaða. Í öllu falli grein-
ir olíufélögin á um hvort nægjanlega
mikið sé flutningsjafnað, fyrst sjóðn-
um sé ætlað það hlutverk.
Spurður um þetta segir Gunnar að
sjóðurinn starfi eingöngu eftir sam-
þykktum hans. Hluti af kostnaði fé-
laganna sé vegna dreifingar olíunnar
og þau beri þann kostnað. Sjóðnum
sé aðeins ætlað að bera kostnað af
flutningi frá innflutningshöfn að
birgðastöð eða útsölustað.
Varðandi liðinn stjórnarlaun, í
ársreikningi, upp á tæpar fjórar
milljónir króna, bendir Gunnar á að
inni í þeirri tölu sé einnig annar
rekstrarkostnaður sjóðsins. Sameig-
inlegur rekstrarkostnaður er sem
fyrr segir sagður 7,8 milljónir en
samkvæmt ársreikningi kostaði end-
urskoðun, bókhaldsvinna og „ýmis
sérfræðiráðgjöf“ um 3,3 milljónir
króna fyrir síðasta ár.
Tap á flutningsjöfnunar-
sjóði olíuvara í fyrra
Stjórnarlaun tæp-
ar fjórar milljónir
„Við getum ekki beðið endalaust.
Afleiðingarnar eru uppsagnir sem
þegar eru hafnar og halda áfram
um næstu mánaðamót,“ segir Árni
Jóhannsson, forstöðumaður mann-
virkjasviðs hjá Samtökum iðnaðar-
ins. Hann segir bagalegt að fram-
kvæmdir við Búðarhálsvirkjun og
Suðurlandsveg tefjist. SI hafi fyrir
löngu varað við erfiðri stöðu, en
næsta lítið hafi gerst og þar með
hafi möguleikar íslenskra fyrir-
tækja minnkað til að taka þátt í
uppbyggingunni.
Framkvæmdir við fyrsta áfanga
breikkunar Suðurlandsvegar frest-
ast fram á sumar. Háfell ehf., sem
var með þriðja lægsta tilboð í
verkið, hefur kært niðurstöðuna.
Telur Háfell að Vegagerðinni sé
óheimilt að taka tilboði frá Véla-
leigu AÞ.
Verklok á Suðurlandsvegi
væntanlega óbreytt
Kærunefnd útboðsmála ákvað í
síðustu viku að stöðva samnings-
gerðina. Þar með seinkar upphafi
framkvæmda þar til endanlega
hefur verið skorið úr um efnisat-
riði kærunnar. Að sögn vegamála-
stjóra hefur seinkunin ekki áhrif á
verklok, 30. september 2011.Vega-
gerðin hefur sent kærunefndinni
greinargerð vegna málsins. Kær-
andi fær að gera athugasemdir áð-
ur en endanlegur úrskurður fellur.
Engar framkvæmdir verða við
Búðarhálsvirkjun í sumar. Sam-
kvæmt úrskurði kærunefndar út-
boðsmála er Landsvirkjun skylt að
bjóða verkið út að nýju á Evrópska
efnahagssvæðinu. eyrun@mbl.is
Getum
ekki beðið
endalaust
Framkvæmdir við
Suðurlandsveg tefjast