Morgunblaðið - 14.06.2010, Side 4

Morgunblaðið - 14.06.2010, Side 4
4 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. JÚNÍ 2010 Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is Birt með fyrirvara um prentvillu. Heimsferðir áskilja sér rétt til leiðréttinga á slíku.Ath. að verð getur breyst án fyrirvara. Nú getur þú tryggt þér síðustu sætin í sólina til Alicante í júní á hreint ótrúlegu verði. Gríptu tækifærið og tryggðu þér flugsæti á frábærum kjörum. í júní – frá kr. 59.980 Allra síðustu sætin Alicante Verð kr. 59.980 Netverð á mann. Flugsæti báðar leiðir með sköttum til Alicante. Aðeins örfá sæti. Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Nokkuð virðist vera að rofa til hjá fólki og fyrirtækjum í ferðaþjónustu en blikur voru á lofti þegar flugsam- göngur röskuðust af völdum eldgoss- ins í Eyjafjallajökli í vor. Einnig hef- ur hestaflensan víða sett strik í reikning. Landsmóti hestamanna á Vindheimamelum í Skagafirði hefur verið aflýst en þar í héraði róa ferða- þjónustuaðilar á ný mið og bjarga því sem bjargað verður með því móti. Ljóst er þó að margir munu ekki rífa vænan fisk úr roði í ár. „Til lengri tíma litið virðast áhrif eldgosanna á ferðaþjónustuna ekki ætla að verða mikil. Þar kemur til það markaðsátak sem íslensk stjórnvöld efndu til og virðist þegar vera farið að skila árangri,“ segir Friðrik Pálsson sem á og rekur Hót- el Rangá, auk þess að vera með hót- elrekstur við Hrauneyjar og í Skóg- um undir Eyjafjöllum. Markaðsátak breytt miklu „Að undanförnu hefur verið ró- legt í bókunum hjá okkur. Hvað varðar síðari hluta sumars virðist hins vegar sem sé að rofa til. Mark- aðsátakið hefur breytt miklu og tek- ist hefur að leiðrétta misskilning um að landið væri á kafi í ösku. Fyrir fólk sem vill öruggar ferðir skiptir slíkt miklu en á hinn bóginn hafa gosin eflt svonefnda ævintýraferða- mennsku. Hvað varðar hestaflens- una tel ég að áhrif hennar verði fyrst og fremst bundin við hestaleigur, sýningahald og þvíumlíkt en hafi minni áhrif á öðrum sviðum ferða- þjónustu,“ segir Friðrik Pálsson. „Við ætlum að standa élið af okkur,“ segir Rósa María Vésteins- dóttir sem með fjölskyldu sinni starfrækir ferðaþjónustu á Hofs- stöðum í Blönduhlíð í Skagafirði. Þar á bæ líkt og annarsstaðar í Skaga- firði var reiknað með miklum fjölda ferðamanna á Landsmót hesta- manna á Vindheimamelum í júlíbyrj- un, en sem kunnugt er var mótshald- ið blásið af vegna hestaflensunnar. Skagfirðingar spyrna við Rósa segir að þetta muni vænt- anlega hafa í fjör með sér að færri innlendir ferðamenn komi norður þá daga sem mótið var á dagskrá. Er- lendir ferðamenn eigi óhægara með að breyta sínum plönum eða fá flug endurgreidd og megi því gera ráð fyrir að margir þeirra komi til lands- ins þrátt fyrir frestun mótsins. Verði því reynt að koma til móts við þá sem hægt er, svo sem með kynbótasýn- ingum á Vindheimamelum og fleiri hestatengdum uppákomum. Þá hafi Sveitarfélagið Skagafjörður og ferðaþjónusta í héraðinu hrundið af stað markaðsátaki þar sem reynt sé að höfða til almennra ferðamanna. „Ég er bjartsýn á að þetta skili okkur árangri. Eins og staðan er núna gera stöku ferðaþjónustuaðilar ráð fyrir allt að 50% samdrætti sem ég trúi að verði alls ekki raunin.“ „Þetta ætlar að sleppa vel,“ seg- ir Hjalti Gunnarsson á Kjóastöðum í Biskupstungum. Hann hefur starfað fyrir Íshesta í áraraðir og verið með hestaferðir yfir Kjöl. Hann fór í skemmri ferð um helgina og segir allt hafa gengið vel. „Það var hnútur í mér. Hrosin voru á einhverjum tímapunkti með flensueinkenni sem nú virðast úr sögunni,“ segir Hjalti sem ætlar að leggja upp í fyrstu ferð sumarsins yfir Kjöl um næstu helgi. Aðstæður á Kili segir hann ákjósan- legar og reiðfæri gott. Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson Á fjöllum Hestakonur á Hrunamannaafrétti um helgina hvar farið var um undir stjórn Hjalta Gunnarssonar. Standa af sér élið  Ferðaþjónustan að hressast við eftir áföll vegna eldgossins  Markaðsátak megnar mikið og Skagfirðingarnir í sókn Jónas Margeir Ingólfsson jonasmargeir@mbl.is Starfshópur hjá Reykjavíkurborg vinnur nú að endurskoðun á rekstri mötuneyta í leik- og grunnskólum borgarinnar. Tillaga hópsins er að samræma matseðla mötuneyta með því að útvega þeim hráefni daglega sem eldhússtarfsmenn hafa frjálsar hendur með að elda úr. „Þetta verkefni er ótrúlega spennandi. Það mun hins vegar mæta einhverri andstöðu því það eru valdir ákveðnir dagar fyrir ákveðið hráefni. Það er verið að setja niður daga fyrir fisk- og kjötmáltíðir til að ná sem hagstæðustu verði og aukinni skil- virkni,“ segir Jóhanna Eyrún Torfa- dóttir, formaður starfshópsins. Mötuneyti leik- og grunnskóla Reykjavíkurborgar hafa sætt gagn- rýni en í sunnudagsblaði Morg- unblaðsins birtist umfjöllun um þrjár konur sem hafa beitt sér í baráttunni fyrir bættu mataræði í skólum borg- arinnar. Jóhanna segir greinilegt að matseðill mötuneytanna hafi dalað en telur tillögu starfshóps síns vera breytingu til batnaðar hvað varðar gæði og næringarinnihald matvæla. „Það verður reynt að fara í útboð til að athuga hvaða fyrirtæki vill bjóða í þetta en þá höfum við mjög miklar gæðakröfur. Sem dæmi má nefna að ef við ætlum að fá fiskbollur verður birgirinn að hafa 70% fisk í þeim, saltmagnið verður að vera mjög lítið o.s.frv. Þannig höfum við kost á að samræma gæðakröfur á milli skóla,“ segir Jóhanna en bætir við að þetta sé að vissu leyti við- kvæmt mál því ekki megi setja starfs- fólki mötuneyta of þröngar skorður. „Eldhúsin upplifa þetta stundum á þann veg að við séum að ráðskast of mikið með þau, svo við reynum að vinna þetta í samráði við kokka og skólastjórnendur. Hins vegar verður líka að endurskoða umgjörð mötu- neyta, þ.e. mannafla, aðbúnað og tím- ann sem börnin fá til að borða mat- inn.“ Gæðakröfur samræmdar í mötuneytum  Starfshópur skoðar skólamötuneyti Morgunblaðið/Golli Grunnskólabörn Jóhanna Eyrún vonar að verkefnið heppnist vel. Hólmfríður Þorgeirsdóttir verkefnastjóri næringar hjá Lýðheilsustöð fagnar umræðu um mötuneyti skólanna. „Síðastliðin fimm ár höfum við unnið að verkefni í samstarfi við sveitarfélögin til að stuðla að bættu mataræði í leik- og grunnskólamötuneytum. Við höfum gefið út leiðbein- ingar fyrir mötuneytin og í tengslum við það var boðið upp á námskeið fyrir starfsfólk skólamötuneyta. Það hafa verið gerðar kannanir til að fylgjast með matarframboði og það hefur ýmislegt áunnist á þessum fimm árum þó margt megi betur fara, það má alltaf gera betur,“ segir Hólmfríður sem kveður mikilvægt að gera greinarmun á unnum kjötvör- um og forelduðum mat úr kjöti eða fiski sem getur verið ágætis matur. „Miðað við matseðla nú á vormisseri er ýmislegt sem bendir til að bæta megi matinn í sumum skólum borgarinnar þó erfitt sé að meta gæði mat- arins frá nöfnum rétta á matseðli. Það er mjög mismunandi eftir sveit- arfélögum og jafnvel innan sveitarfélaga hvernig þessu er háttað. Það er víða verið að gera góða hluti,“ segir hún og tekur fram að Lýðheilsustöð sé ekki eftirlitsaðili en fái vísbendingar um hvernig málum er háttað. Stuðla að bættu mataræði VERKEFNASTJÓRI HJÁ LÝÐHEILSUSTÖЄVið sjáum fram á fjölgun,“ seg- ir Hörður Sigurbjarnarson hjá Norðursiglingu á Húsavík. Hann þakkar þetta réttri markaðs- setningu. Í fyrra hafi 40-50 þús- und manns farið í hvalaskoðun frá Húsavík. Hafi aukningin ver- ið nær 20% milli ára. Farþegunum fjölgar enn HVALASKOÐUN Á HÚSAVÍK Vegna efnahagsþrenginga mun sjóður stjórnvalda til styrktar smáum eyríkjum styrkja færri verkefni en upphaflega stóð til. Eyjaverkefnið svokallaða var kynnt á fundi Sameinuðu þjóðanna í New York og var upphaflega áætlað að heildarframlag sjóðsins næmi sex milljónum Bandaríkja- dala sem dreifast átti á þrjú ár. Í svari utanríkisráðuneytisins við fyrirspurn Morgunblaðsins segir að á síðasta ári hafi í fyrsta sinn verið tekin ákvörðun um stuðning til verkefna sem falla undir sjóðinn. Um var að ræða fjögur verkefni í þremur löndum: Marshalleyjum, Barbados og tvö í Belize.Ákvörðun síðasta árs hljóð- aði samtals upp á um 72 milljónir króna, sem koma til greiðslu á ár- unum 2009 og 2010. Í ár reiknar utanríkisráðuneytið með allt að 75 milljónum króna í sjóðinn, annars vegar til að klára skuldbindingar síðasta árs og hins vegar vegna nýrra styrkja á þessu ári. Markmiðið að stuðla að sjálfbærri þróun Markmið sjóðsins er m.a. að stuðla að sjálfbærri þróun í smáum eyþróunarríkjum, berjast gegn fá- tækt, stuðla að sjálfbærri nýtingu náttúruauðlinda og vinna að fram- gangi jafnréttismála. hlynurorri@mbl.is Færri smáeyja- verkefni styrkt vegna þrenginga Fjögur verkefni í þremur löndum Uppsveifla var í rjúpnastofn- inum á Norður- og Austurlandi þriðja árið í röð og annað árið í röð á Vest- fjörðum. Sam- andregið var aukningin á þessum svæðum að meðaltali um 29%. Rjúpnatalningar Náttúru- fræðistofnunar Íslands nú í vor sýna að landið skiptist í tvo hluta með tilliti til stofnbreytinga rjúp- unnar. Rjúpnastofninn á Suður-, Suðvestur- og Vesturlandi hefur síðustu ár hagað sér á annan máta og þar hefur verið fækkun allt frá 2005 ef undan er skilið árið 2009. Samandregið fyrir öll talninga- svæði í þessum landshlutum var meðalfækkun 39% á milli áranna 2009 og 2010. Mat á veiðiþoli rjúpnastofnsins mun liggja fyrir í ágúst í kjölfar mælinga á varp- árangri rjúpna, afföllum 2009/2010 og veiði 2009. Rjúpu fjölgar enn á Norður- og Austurlandi

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.