Morgunblaðið - 14.06.2010, Page 8
8 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. JÚNÍ 2010
Tilboð grínistanna alkunnu JónsGnarrs Kristinssonar og Dags
B. Eggertssonar til Hönnu Birnu
Kristjánsdóttur er óljóst um
margt. Það er eðlilegt því að
menn eiga ekki að hlæja að brönd-
urunum fyrr en í blá-endann.
En grínlaustverður málið
óneitanlega dá-
lítið skrítið.
Brandarakall-arnir tveir semja málefnaskrá
í eins gamaldags pólitísku pukri
og hægt er að hugsa sér.
Svo fóru þeir upp á blokkarþak íBreiðholti og töluðu þar
tungum.
Síðan hafa þeir samband viðHönnu Birnu og spyrja hvort
hún vilji ekki halda uppi aga á
borgarstjórnarfundum og gefa
gestum og gangandi í glas í
Höfða.
Um stefnu og málefni muni þeirgóðu gleðigjafar ekki tala við
hana. En þeir séu að öðru leyti
eins og þær tvær úr Tungunum
„til í hvað sem er.“
Ástæða ætti að vera til að ætlaað Hanna Birna sé ekki til í
hvað sem er.
Þótt Samfylkingin sé klofin uppað herðablöðum eftir kosning-
arnar hlýtur fráfarandi borgar-
stjóri í Reykjavík hugsanlega að
ætla sér annað hlutverk og meira
en að koma mönnum á herðablöð-
unum út úr Höfða sem verktaki
fyrir vinstri menn.
En að öðru leyti er best aðbrandarinn taki enda svo
menn geti byrjað að hlæja.
Höfði
Ekki hlæja strax
Veður víða um heim 12.6., kl. 09.00
Reykjavík 11 rigning
Bolungarvík 10 skýjað
Akureyri 5 léttskýjað
Egilsstaðir 6 heiðskírt
Kirkjubæjarkl. 8 alskýjað
Nuuk 7 léttskýjað
Þórshöfn 8 alskýjað
Ósló 11 skúrir
Kaupmannahöfn 12 skýjað
Stokkhólmur 12 skýjað
Helsinki 13 þoka
Lúxemborg 15 skýjað
Brussel 14 skýjað
Dublin 12 léttskýjað
Glasgow 11 heiðskírt
London 13 skýjað
París 16 skúrir
Amsterdam 13 léttskýjað
Hamborg 14 léttskýjað
Berlín 16 léttskýjað
Vín 25 léttskýjað
Moskva 24 heiðskírt
Algarve 16 heiðskírt
Madríd 12 skýjað
Barcelona 16 léttskýjað
Mallorca 17 léttskýjað
Róm 20 léttskýjað
Aþena 28 heiðskírt
Winnipeg 15 alskýjað
Montreal 17 alskýjað
New York 16 heiðskírt
Chicago 24 skýjað
Orlando 25 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
STAKSTEINAR
VEÐUR
14. júní Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 2:58 23:59
ÍSAFJÖRÐUR 1:33 25:33
SIGLUFJÖRÐUR 1:16 25:16
DJÚPIVOGUR 2:14 23:42
Sögur
og sagnir í
Elliðaárdal I
Þriðjudagskvöldið 15. júní verður farin göngu-
og fræðsluferð í Elliðaárdal undir leiðsögn
Stefáns Pálssonar, sagnfræðings. Dalurinn á
sér merka sögu allt frá komu Ketilbjarnar
gamla landnámsmanns.
Gengið verður um og
sagðar sögur. Mæting er
kl. 19:30 við Minjasafn
Orkuveitunnar í
Elliðaárdal.
• Orkuveita Reykjavíkur rekur
stærstu jarðvarmaveitu í heimi. www.or.is
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/O
R
K
50
28
1
06
/1
0
Athugið að efni dagsins getur riðlast af
ýmsum ástæðum og er því bent á að nánari
upplýsingar er að finna á vef Orkuveitunnar.
Háskólinn á Akureyri brautskráði á
laugardag 376 kandídata á há-
skólahátíð sem haldin var í Íþrótta-
höllinni. Konur voru í miklum
meirihluta þeirra sem brautskráð-
ust eða 288 en karlar 88 eða um
25%.
Margir meðal brautskráðra
stunduðu fjarnám fyrir milligöngu
háskólasetra og símenntunar-
miðstöðva á 10 stöðum á landinu.
Flestir komu frá Reykjanesbæ,
Hafnarfirði, Selfossi/Árborg og Ísa-
firði. Þess má einnig geta að meðal
brautskráðra kandídata voru kandí-
datar frá Norður-Ameríku, Asíu,
Afríku og Evrópu.
Háskólaárið 2009-20010 stunduðu
um 1.500 nemendur nám á þremur
sviðum við Háskólann á Akureyri.
Skipting kandídata eftir deildum er
þannig að 76 brautskráðust frá
heilbrigðisdeild, 214 af hug- og fé-
lagsvísindadeild og 86 kandídat-
anna komu úr viðskipta- og raun-
vísindadeild.
Íslenskur háskóli eða útibú?
Stefán B. Sigurðsson rektor vék
að umræðu um fækkun háskóla í
ræðu sinni, en auk fjögurra rík-
isháskóla eru einnig reknir hér á
landi þrír einkaháskólar. „Margir
hafa bent á að hjá stórum þjóðum
er víða einn háskóli á milljón íbúa.
Samkvæmt þeim mælikvarða ætt-
um við ekki að hafa neinn háskóla
hér, heldur einungis útibú frá ein-
um af stóru háskólunum í ná-
grannalöndum okkar,“ sagði rektor
í ræðu sinni.
Síðar sagði Stefán: „Ekki er
minnsti vafi að Háskólinn á Ak-
ureyri hefur skilað vel því hlutverki
sem honum var ætlað. Hann hefur
aukið menntunarstig landsbyggð-
arinnar verulega á þeim tíma sem
hann hefur starfað.
Við könnun á hvaðan þeir nem-
endur koma sem stunda nám við
HA og hvert þeir fara til starfa að
námi loknu hefur komið í ljós að
um 80% nemenda skólans eiga lög-
heimili utan suðvesturhornsins og
um 70% brautskráðra fara til
starfa á landsbyggðinni. Þetta sýn-
ir okkur hversu mikilvægt er að
tryggja áframhaldandi starfsemi
Háskólans á Akureyri til fram-
tíðar.“ aij@mbl.is
Háskólahátíð Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, var viðstaddur
brautskráningu frá Háskólanum á Akueyri á laugardag.
Konur í miklum
meirihluta frá HA
Aukið menntunarstig landsbyggðar
Nýlokið er árlegri talningu díla-
skarfsstofnsins. Þegar reglu-
bundnar talningar hófust 1994 var
stofninn á niðurleið, en frá 1995
hefur honum fjölgað að meðaltali
um nálægt 4% á hverju ári.
Hreiðrin eru nú alls 5250.
Dílaskarfurinn lifir mest á mar-
hnúti og er líklegt að fæðuskilyrði
að vetrinum stjórni stofnstærðinni.
Fjölgun dílaskarfs má túlka sem
vísbendingu um gott ástand átu á
grunnsævi þar sem botn er grýtt-
ur. Á sama tíma er fækkun og lé-
leg afkoma hjá lunda og kríu og
fleiri fuglastofnum sem byggja á
sandsíli.
Háskólasetur Snæfellsness,
rannsókna- og fræðasetur Háskóla
Íslands, hefur umsjón með talning-
unni. Dílaskarfurinn er einn
stærsti sjófuglinn hér við land og
verpir nú á dögum eingöngu á
skerjum og hólmum í Breiðafirði
og Faxaflóa. Hann er staðfugl og
vetrarstöðvarnar eru á grunnsævi
(innan við 20 m dýpi) í kringum
allt land. Talningar á dílaskarfs-
hreiðrum eru gerðar árlega eftir
loftmyndum sem teknar eru í maí.
5250 hreiður dílaskarfs