Morgunblaðið - 14.06.2010, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 14.06.2010, Blaðsíða 12
12 FréttirVIÐSKIPTI/ATVINNULÍF MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. JÚNÍ 2010 Örn Arnarson ornarnar@mbl.is Hætta er á því að skuldakreppa á borð við þá sem gengið hefur yfir Grikkland bresti á í Japan. Þetta sagði Naoto Kan, forsætisráðherra Japans, í sinni fyrstu stefnuræðu á þinginu eftir að hann tók við embætti. Naoto sagði að gegndarlaus skulda- bréfaútgáfa hins opinbera og skulda- söfnun samhliða henni fengi ekki staðist til lengdar og myndi á end- anum leiða til greiðslufalls ríkisins. Skuldir japanska ríkisins nema nú um 218% af landsframleiðslu og er hlutfallið það hæsta sem þekkist meðal þróaðra hagkerfa. Þrátt fyrir mikla skuldasöfnun hefur japanska ríkið getað fjármagnað sig býsna auðveldlega gegnum tíðina. Hátt sparnaðarhlutfall japanskra heimila ásamt vilja þarlendra fjárfesta til þess að kaupa ríkisskuldabréf, jafn- vel þó að þau beri neikvæða raun- vexti, hefur stuðlað að auðveldu að- gengi hins opinbera að lánsfjármagni. Hinsvegar óttast margir að það kunni að vera breytast og teikn hafa verið á lofti um að japanskir spari- fjáreigendur leiti í auknum mæli ann- arra leiða til þess að ávaxta sitt jen. Stórfelld skuldabréfaútgáfa stjórn- valda í fyrirsjáanlegri framtíð kann svo að leiða til þess að framboðið verði mun meira en efirspurnin með tilheyrandi hækkun á fjármagns- kostnaði sem svo eykur á skulda- vandann enn frekar. Vegna vandans hefur Kan boðað víðtækar umbætur á stjórn efna- hagsmála og hefur meðal annars mælt fyrir breytingum á skattkerf- inu. Slíkar breytingar gætu hinsveg- ar verið varasamar þar sem hagvöxt- ur hefur verið lítill í Japan á undanförnum árum. Ástandið ekki svo slæmt Þrátt fyrir miklar skuldir þá er margt sem bendir til sterkrar stöðu japanska hagkerfisins og dregur úr líkum á mögulegu greiðsluþroti. Jap- anir flytja út mun meira en þeir flytja inn auk þess sem Japanir eru alþjóð- legir lánardrottnar fremur en skuld- arar. Við þetta bætist að jenið er al- þjóðleg mynt og þar af leiðandi geta stjórnvöld búið til verðbólgu með peningaprentun og þar með saxað á skuldir hins opinbera. Varar við grísk- um harmleik  Naoto Kan, forsætisráðherra Japans, varaði við hættunni á greiðslufalli ríkisins og skuldakreppu í fyrstu stefnuræðu sinni í þinginu  Hlutfall skulda ríkisins af landsframleiðslu nemur 218% Skuldum vafðir » Hlutfall opinberra skulda af landsframleiðslu Japans er 218%. » Hlutfall opinberra skulda er hvergi hærra meðal þróaðra hagkerfa heimsins. » Stærstur hluti skulda jap- anska ríkisins er í eigu þar- lendra fjárfesta. Þórður Gunnarsson thg@mbl.is Engan skyldi undra að mikill sam- dráttur hafi átt sér stað í veltu tengdri bílasölu frá árinu 2007. Á síðasta ári hafði veltan minnkað um 60% á tveimur árum og nam tæplega 31 milljarði. Þegar há- punkti þenslunnar á árinu 2007 var náð nam veltan tæplega 78 milljörðum króna. Velta í sölu vara- og fylgihluta í bíla hefur einnig dregist mikið saman, en há- mark veltunnar í þeim geira var raunar árið 2006. Þeir sem standa í rekstri bíla- og hjólabarðaverk- stæða geta unað vel við sinn hlut, því velta í þeim geira hefur minnk- að lítillega frá árinu 2007 og stend- ur raunar nánast í stað. Sala notaðra bíla eykst Samkvæmt vísitölu sem Bílgreina- sambandið tekur saman hefur velta í sölu á notuðum bílum aukist um 40% frá hruni. Mikil veltu- aukning í sölu notaðra bíla á sama tíma og 60% heildarveltusamdrátt- ur í bílasölu getur vart þýtt annað en að sala nýrra bíla sé nánast hrunin, en rekstrarerfiðleikar margra bílaumboða bera þess aug- ljós merki. Hið rótgróna fyrirtæki Hekla, sem stofnað var árið 1933, lenti í fanginu á Nýja Kaupþingi í febr- úar á síðasta ári og er þar enn. Heimildir Morgunblaðsins herma að Erna Gísladóttur, fyrrverandi eigandi B&L, hafi sýnt kaupum á því fyrirtæki áhuga. Ennþá hefur þó ekkert gerst í þeim málum. Ingvar Helgason og B&L eru komin í eina sæng og hafa gengið í gegnum fjárhagslega endurskipu- lagningu. Bifreiðaumboðið Ræsir varð gjaldþrota strax sumarið 2008, en þá þegar hafði gengi krónunnar lækkað talsvert. Ræsir var stofn- aður árið 1942 og hafði lengst af umboðið fyrir Mercedes Benz hér á landi, en Askja, systurfélag Heklu, tók við umboðinu árið 2004. Gjaldþrot Ræsis nam 442 millj- ónum króna, en um það bil 20% náðist upp í kröfur sem lýst var í þrotabúið. Velta í bílasölu og tengdum greinum 80.000 70.000 60.000 50.000 40.000 30.000 20.000 10.000 0 í milljörðum króna 1998 1999 2000 2001 2002 2003 2004 2005 2006 2007 2008 2009 Bílasala Bíla- og hjólbarðaviðgerðir Sala vara- og fylgihluta í bíla Veltan í bílasölu ekki alveg horfin  Velta í bílasölu dregst saman um 60% frá árinu 2007  Veltan á markaðnum nam 31 milljarði í fyrra . Velta í bílasölu » Velta í bílasölu á árinu 2009 dróst saman um 60% frá árinu 2007. » Velta í sölu not- aðra bíla hefur hins vegar auk- ist um 40% frá því í desember 2008. » Mörg af stærstu bílaum- boðum landsins hafa lent í fanginu á bönkum. Í FYRIRTÆKJAVIÐSKIPTUM H a u ku r 0 4 .1 0 Guðni Halldórsson viðskiptalögfræðingur, gudni@kontakt.is Arnór H. Arnórsson rekstrarhagfræðingur, arnor@kontakt.is Brynhildur Bergþórsdóttir rekstrarhagfræðingur, lögg. verðbr.- og fasteignasali, brynhildur@kontakt.is Gunnar Svavarsson viðskiptafræðingur, gunnar@kontakt.is Jens Ingólfsson rekstrarhagfræðingur, jens@kontakt.is Sigurður A. Þóroddsson hdl. sigurdur@kontakt.is Leit að heppilegum fyrirtækjum eða kaupendum. Verðmat fyrirtækja. Viðræðu- og samningaferli. Gerð kaupsamninga og tengdra samninga. Fjármögnun fyrirtækjaviðskipta. Við teljum að eftirfarandi fyrirtæki geti verið fáanleg: • • • • • Forgangslisti er nýjung fyrir kaupendur og fjárfesta. Skráning á www.kontakt.is SÉRFRÆÐINGAR • Skráðu þig á forgangslista og við sendum þér reglulega upplýsingar í tölvu- pósti um tækifæri sem við getum ekki sett í auglýsingar. Upplýsingar og skrán- ing á www.kontakt.is. • Gamalgróin heildverslun sem selur þekktar vörur í verslanir um land allt. Árs- velta 75 mkr. EBITDA 6 mkr. Eigið húsnæði. Litlar skuldir. • Tvö iðnfyrirtæki sem henta vel til sameiningar. Sameinuð ársvelta um 150 mkr. og EBITDA um 25 mkr. Viðkomandi kaupandi þyrfti að leggja fram um 20 mkr. í peningum og um 20 mkr. fasteignaveð til að ná meirihluta í báðum fyrirtækj- unum. • Meirihluti í rótgrónu iðnfyrirtæki. Ársvelta 90 mkr. EBITDA 10 mkr. Litlar skuld- ir. • Fyrirtæki á heilbrigðissviði með langtímasamninga. EBITDA 12 mkr. • Verslun með heilsuvörur í góðum rekstri. Eigin innflutningur. • Helmingshlutur í stóru og arðbæru iðnfyrirtæki með langtímasamninga. Viðkom- andi þarf að leggja fram 100 mkr. og getur fengið starf sem fjármálastjóri. • Rótgróið verslunarfyrirtæki með eigin framleiðslu í Kína á alþjóðlegu vörumerki óskar eftir meðeiganda-fjárfesti til að auka framleiðslu og sölu erlendis. • Heildverslun með ráðandi stöðu á sérhæfðu sviði. Ársvelta 270 mkr. EBITDA 34 mkr. Góð tækifæri til vaxtar. Þjóðskrá flytur 18. júní Þjóðskrá verður lokuð föstudaginn 18. júní 2010 vegna flutninga. Nýtt heimilisfang er Borgartún 21, 2 hæð. Opnunartími afgreiðslu verður frá 9-16. Starfsfólk Þjóðskrár biðst velvirðingar á óþægindum sem þetta getur valdið. Þjóðskrá

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.