Morgunblaðið - 14.06.2010, Page 16

Morgunblaðið - 14.06.2010, Page 16
16 Umræðan MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. JÚNÍ 2010 Eftirlitsstofnun EFTA – ESA – hefur sent íslenzku rík- isstjórninni áminning- arbréf þess efnis að Ísland hafi brotið gegn Evróputilskipun um innlánatrygg- ingar. Stofnunin hef- ur eftirlit með því að staðið sé við samning- inn um Evrópska efnahagssvæðið, þ.e. EES- samninginn, en nefnd tilskipun telst vera hluti hans. Veittur er tveggja mánaða frestur til að svara þessu fyrsta skrefi ESA í málinu. Stuttu eftir fall Landsbankans tóku brezk og hollenzk yfirvöld það ráð að greiða þeim er átt höfðu innistæður á Icesave- reikningum fjárhæð er næmi áætl- uðu tjóni þeirra. Í Bretlandi fengu 300.000 sparifjáreigendur greidda 4,5 milljarða punda, og samkvæmt niðurstöðu ESA er Íslandi skylt að greiða um 2,1 milljarð punda af þeirri fjárhæð. Hollenzki seðla- bankinn greiddi 118.000 reiknings- eigendum þar í landi 1,53 millj- arða evra og samkvæmt niðurstöðu ESA ber Ísland ábyrgð á greiðslu 1,34 milljarða evra af þeirri fjárhæð. Rök ESA eru þau að Ísland hafi mismunað innistæðueigendum í ís- lenzkum útibúum Landsbankans og útibúum hans erlendis með ólögmætum hætti, og þar með brotið gegn 1. mgr. 4. gr. tilskip- unar 94/19/EB, sbr. 3. gr. aðfar- arorða hennar, og svo gegn 4. gr. EES-samningsins sem segir: „Hvers konar mismunun á grund- velli ríkisfangs er bönnuð á gild- issviði samnings þessa nema ann- að leiði af einstökum ákvæðum hans.“ Í grein í Morgunblaðinu 26. okt. 2009 benti ég á, hversu grunnfær væru þau rök Sigurðar Líndals, að niðurstaða alþjóðlegs dómstóls í Icesave-málinu hlyti að verða Ís- lendingum í vil, því að ábyrgð Ís- lendinga yrði „að styðjast við skýr fyrirmæli í lögum, fjölþjóðlegum samningum eða löglega bindandi yfirlýsingum forystumanna þjóð- anna“. Ég minnti á að jafnræð- isreglan væri meginregla laga sem kynni að verða vísað til ef málið kæmi til kasta dómstóla og dómar væru oft rétt- arskapandi. Hvort- tveggja byði hættunni heim. Raunin er og sú að ESA telur sig ekki þurfa að styðjast við annað en meginreglur laga þegar hún kveð- ur upp úr um að Ís- land hafi brotið gegn EES-samningnum. Í áminningarbréfi ESA segir að sparifé í innlendum útibúum Landsbankans hafi verið aðgengilegt eigendum þar sem það hafi verið fært í nýju bank- ana, þ.á m. Nýja Landsbankann. Innistæðueigendur í erlendum útibúum hafi hins vegar ekki haft aðgang að reikningum sínum og ekki notið þeirrar lágmarks- verndar sem tilskipun 94/19/EB mælir fyrir um. Innistæðutrygg- ingakerfið skuli taka til allra inni- stæðueigenda og heimili ekki slíka mismunun. Í frétt Morgunblaðinu 27. maí sl. er getið viðbragða þriggja ís- lenzkra frammámanna við áminn- ingu ESA. Réttilega er haft eftir Gylfa Magnússyni viðskiptaráð- herra, að ESA sé að hefja ferli sem geti endað með dómi fyrir EFTA-dómstólnum, og fari „allt á versta veg geti staða Íslands orðið mjög óþægileg. Enn sé þó hægt að leysa málið við samningaborðið eins og vilji Íslendinga hafi staðið til.“ Eftir Bjarna Benediktssyni, for- manni Sjálfstæðisflokksins, er hins vegar haft að röksemdafærsla ESA sé veikburða: „ESA kemst að þeirri niðurstöðu að ríkið sé ábyrgt án þess að það standi í lög- um eða tilskipuninni sjálfri. Þess vegna eru þetta sérstaklega veik rök sem þeir eru að nota.“ Og Sigmundur Davíð Gunn- laugsson, formaður Framsókn- arslokksins, segir málið geta „far- ið fyrir dómstóla, EFTA-dómstólinn til dæmis“, og „samninganefndarmönnum Íslands hafi þótt þetta vera mjög góð tíð- indi“, því að „Bretar og Hollend- ingar myndu alls ekki vilja að það skapaðist þessi réttaróvissa sem gæti þýtt að málið færi fyrir dóm- stóla, allra síst núna þegar allt er í uppnámi í bankakerfi Evrópu.“ Enn fremur var Stefán Már Stef- ánsson, lagaprófessor og sérfræð- ingur í Evrópurétti, spurður álits. Hann kveðst ekki sammála nið- urstöðu ESA, en telja mat Sig- mundar Davíðs rétt: „Ef þetta endar með samningsbrotamáli er alveg hægt að koma því fyrir EFTA-dómstólinn.“ Í grein Stef- áns Más og Lárusar L. Blöndals hrl. í Morgunblaðinu 4. júní sl. er bent á veilur í röksemdafærslu ESA: Það sem ESA segir vera mismunun af Íslands hálfu er það í reynd ekki. Sparifjáreigendur fengu ekki greiðslur úr gömlu bönkunum tryggðar með íslenzkri ríkisábyrgð – slík ábyrgð var ekki veitt – heldur voru nýju bankarnir stofnaðir á rústum hinna gömlu og þeir tryggðu greiðslurnar. Sakir ríkisfangs var engum mismunað. Jafnræðisreglan er jafnframt hlut- fallsregla: Stærðarmunur Íslands og t.d. Bretlands og Hollands er gífurlegur og ýmis frávik frá jafn- ræði ríkja teljast lögmæt innan Evrópusambandsins fyrir sakir stærðarmunar ríkja, svo sem að hin stærri skuli ráða yfir fleiri at- kvæðum en hin smærri. ESA tek- ur ekki tillit til stærðarmunar í niðurstöðu sinni þótt rök séu til þess. Sterkar lagalegar röksemdir Íslands gera þó naumast dóm- stólameðferð málsins eftirsókn- arverða því að lagalega rétta dóma leiðir ekki nauðsynlega af góðum málflutningi. Rök ESA láta ekki heldur verr en svo í eyrum að Margrét Ein- arsdóttir, lektor við Háskólann í Reykjavík, vísar þeim ekki á bug. Dómstólaleiðin hefur í för með sér áhættu sem samningaleiðin er laus við. Það yrði mikil ógæfa ef al- þjóðlegur dómur gengi gegn Ís- landi í málinu. Hvernig ber að bregðast við áminningu ESA í Icesave-málinu? Eftir Sigurð Gizurarson »Dómstólaleiðin hefur í för með sér áhættu sem samningaleiðin er laus við. Sigurður Gizurarson Höfundur er hæstaréttarlögmaður. Hvers vegna er eng- in kynning, engin um- ræða um kínverska peningasendingu til Íslands? Hafa Kínverjar ver- ið þekktir fyrir góð- gerðarstarfsemi við aðrar þjóðir? Því fer fjarri. Hvers vegna er engin gagnrýnin um- fjöllun fréttamanna um þetta mál? Aðeins sýnt í frétt- um þegar seðlabankastjóri skrifar undir samning um 66 milljarða króna og aðalpunkturinn í fréttinni sá að mjög háttsettur embætt- ismaður fari fyrir nefndinni. Utanríkisráðherra Íslands er hæstánægður með málið og lét að því liggja að Kínverjar væru áhuga- samir fyrir að fjármagna Búð- arhálsvirkjun. Þessir kínversku peningar detta niður úr skýjunum og ráðamenn grípa þá eins og himnasendingu. Eng- inn gagnrýnir málið. Kastljósið í sjón- varpinu sýnir dæg- urmál en minnist ekki á þetta mál einu orði. Sem er í raun og veru stórmál. Kínverjar hafa áhuga á auðlindum landsins og staðsetn- ingunni og eru ekki að hugsa um hagsmuni Íslendinga. Þeir eru að hugsa til langs tíma og um sína eigin hagsmuni. Í norska ríkissjónvarpinu var frétt um málið og þá var þessi pen- ingasending tengd við kínverskar orkuframkvæmdir á Íslandi. Þrátt fyrir erfiða stöðu margra orkufyr- irtækja og að þau séu sólgin í er- lenda fjárfesta er mjög skammvinn lausn að selja nýtingarrétt á orku- auðlindunum okkar. Orkuauðlindir Íslendinga eru einar dýrmætustu auðlindir í heimi og eiga ekki að vera til sölu. Kínverjar hafa nú mikil ítök í Bandaríkjum Norður-Ameríku gegnum gífurlegar lánveitingar og hafa komið sér inn í fátæk ríki Afr- íku. Þeir sjá að auðlindaríkt land í norðri er á hausnum og koma sér fyrirhafnarlaust inn bakdyramegin með glæsilega peningafúlgu. Er þetta allt í lagi? Ég bara spyr. Kristján Baldursson Hvar eru gagnrýnir fréttamenn? Eftir Kristján Baldursson »Kínverjar sjá að auð- lindaríkt land í norðri er á hausnum og koma sér fyrirhafn- arlaust inn bakdyra- megin með glæsilega peningafúlgu. Er þetta allt í lagi? Kristján Baldursson Höfundur er tæknifræðingur, búsettur í Noregi. ✝ Gunnar Helgasonfæddist í Reykja- vík 18. ágúst 1923. Hann lést á Sóltúni 4. júní 2010. Foreldrar hans voru Helgi Hall- grímsson, kennari, kaupmaður og fulltrúi hjá Hafn- arsjóði Reykjavíkur, f. 14 apríl 1891, d. 23 maí 1979, og Ólöf Sigurjónsdóttir, hús- freyja, f. 29. mars 1890, d. 22. febrúar 1970. Systkini Gunn- ars eru: 1) dr. Hallgrímur Helga- son, tónskáld, (látinn), 2) Ástríður Andersen, fv. sendiherrafrú, 3) Sig- urður Helgason, forstjóri, (látinn), 4) Jón Halldór Helgason, fram- kvæmdastjóri, (látinn). Gunnar giftist Halldóru J. Krist- jánsdóttur 6. des. 1955, en þau skildu í júlí 1985. Börn: 1) Kristján Tómas, f. 6.2. 1956, verkfræðingur, búsettur í Bandaríkjunum, maki Beverly Anolik Gunnarsson, 2) Gunnar, f. 5.3. 1958, kerfisfræð- ingur, búsettur í Svíþjóð, maki Gunnilla Ekegren, börn þeirra eru Josefine, Jóhann og Adrian. 3) Mar- grét, f. 25.3.1961, skrifstofumaður, maki Vilhjálmur H. Vilhjálmsson, flugstjóri, börn: Kristján, Ólöf Sól- rún. 4) Hallgrímur Helgi, f. 14.4. 1964, leiðsögumaður, maki Guðrún Erna Högnadóttir, innanhúss- arkitekt. 5) Ólöf, f. 25.10. 1967, d. 25.1. 1979. 6) Guðjón Halldór, f. 4.9. 1969, flugstjóri, maki Henrietta Guðrún Gísladóttir, flugfreyja, börn: Gísli Tómas, Rebekka Móey, Móeiður Margrét. Gunnar var stúdent frá MR 1944 og lauk cand juris frá Háskóla Ís- lands 1957, hrl. nóv- ember 1981. Gunnar var starfsmaður Orku í Reykjavík 1951, lög- fræðingur hjá lög- fræðideild flugliðs varnarliðsins á Kefla- víkurflugvelli frá júní 1953 til 1956. Fulltrúi á málflutnings- skrifstofu Lárusar Fjeldsted hrl. og Benedikts Sigurjóns- sonar hrl. frá ágúst 1956 til 1958. Skip- aður fulltrúi hjá lög- reglustjóranum á Keflarvík- urflugvelli frá 1958 til 1961. Skipaður setudómari í „olíumálinu“ svokallaða 1958. Framkvæmda- stjóri Gísla Jónssonar & co 1962- 1974. Framkvæmdastjóri Lofleiða- Keflavík hf., dótturfélags Loftleiða hf. frá 1962 til 1965. Lögfræðilegur fulltrúi Loftleiða hf. frá mars 1965, aðallögmaður og yfirmaður lög- fræðideildar Flugleiða hf. eftir sameiningu Flugfélags Íslands og Lofleiða frá 1974 til 1990. Gunnar var stofnfélagi Lions- félagsins Njarðar 1961-62. Einn af stofnendum Tollvörugeymslunnar 1962, stofnandi fiskeldis- og laxa- ræktarfyrirtækisins Látravík hf., Lárósi á Snæfellsnesi 1965 og í stjórn frá upphafi. Einn af stofn- endum Steypustöðvar Suðurlands hf. á Selfossi. Sat í stjórn Flugleiða og flugfélagsins Arnarflugs. Einn af stofnendum Sporðs 1981. Hann var gerður að heiðursborgara í Kansas City 19. apríl 1982 og í Tex- asfylki 30. nóv. 1982. Útför Gunnars fer fram frá Há- teigskirkju í dag, 14. júní 2010, og hefst athöfnin kl.13. Nú helgina áður en sá er þetta ritar fór í ferðalag til Tyrklands hringdi Hallgrímur Helgi, sonur Gunnars Helgasonar, og tilkynnti andlát föður síns. Þá var blóðrautt sólarlag yfir Viðeyjarsundi vegna svifryks frá Eyjafjallajökli. Gunnar hafði kvatt þennan heim sáttur, þá saddur lífdaga og farið hinstu för- ina, sennilega mun lengri en þessi til Tyrklands, þótt áfangastaðurinn sé kannski hérna hinum megin við hornið. Gunnar var þrælvanur ferðamaður og margar ferðir voru líka farnar seinasta hálfan annan áratug síðustu aldar og koma nú upp í hugann. Áfangastaðir eins og Jökulfirðir, Arnarvatnsheiði, Kjarrá og Vík í Mýrdal standa fyrir hug- skotssjónum. Einnig París, Lúxem- borg, Helsingfors, Álandseyjar og Svíþjóð. Farið var einnig um heima og geima rökræðunnar og fræð- anna. Heim stjórnmálanna og oft svifið á öldum hljómanna. Ekki síst í „Höllinni“ á Leiðvangseyju við Stokkhólm. Í sölum hennar var stórkostlegur hljómburður. Þegar aðrir voru lagstir á eyrað til svefns sátum við tveir gjarnan lengur með tár í glasi og hlustir fullar af tónum. Þá kom það stundum fyrir að Gunnar stóð upp, setti ákveðna plötu á fóninn og settist síðan álútur yfir kristalbikar sínum, sem tók þá við tárum er fóru að hrynja hljóð- lega, eitt og eitt niður vanga hans. Þegar tregaþrungin tónlistin var þögnuð og hvarmar orðnir þurrir, sagði hann gjarnan: „Þetta spilaði ég og Gunnar sonur minn nóttina sem dóttir mín dó.“ Síðan var staðið upp, slökkt og kvatt með góða nótt á vörum. Enginn vafi er hvaða messa hljómar nú í sálu Gunnars Helga- sonar. Góða nótt, forni vinur. Sigurður V. Sigurjónsson. Gunnar föðurbróðir minn og einn af mínum albestu frændum er fall- inn frá, en minningarnar um hann og allar skemmtilegu stundirnar sem ég átti með honum verða eilífar. Fyrstu minningar mínar um Gunnar frænda eru frá því að ég var lítill gutti í sveit. Á bænum Brekku í Skagafirði dvaldi ég nokkur sumur ásamt sonum Gunnars, fyrst með Gíma og síðar Badda. Á miðju sumri vorum við strákarnir sóttir af pabba mínum og Gunnari frænda og stefn- an tekin inn í Fljót að veiða silung. Á þessum æskuárum okkar strák- anna mótaðist veiðidella okkar. Það var ævintýri að vera í bát með pabba, Gunnari og Kristjáni Finn- bogasyni að draga fisk í Fljótunum. Veiðibakterían þróaðist með árun- um og voru ófáar stundirnar sem ég átti með Gunnari og veiðifélögunum við árbakkann í Þverá og Kjarrá í Borgarfirði sem og við Hofsá í Vopnafirði. Gunnar var víðlesinn og fróður, og hafði sterkar skoðanir á öllu mögulegu. Fyrir vikið fékk hann viðurnefnið „Colonolinn“ (Ofurst- inn) vegna beinskeyttra sjónarmiða til hinna ýmsu málaflokka. Það var ávallt skemmtilegt að rýna með Gunnari í íslenska samtímapólitík og heimsmálin. Skemmtilegar um- ræður við matarborðið í veiðihús- unum eru mér minnisstæðar og Gunnar átti auðvelt með að ná at- hygli manna með skemmtilegum frásagnarstíl. Það sem Gunnar föð- urbróðir og pabbi minn áttu sameig- inlegt fyrir utan áhuga sinn á veiði og náttúru var að hafa sterkar og fastmótaðar skoðanir sem voru nán- ast óhagganlegar. Við Baddi frændi göntuðumst með það að þeir væru með „Helgason-syndromið“, sem hafði sáð sér lítillega innan ættar- innar. Góðar og skemmtilegar minn- ingar um Gunnar frænda munu allt- af lifa og sendi ég fjölskyldu Gunnars og ástvinum innilegar sam- úðarkveðjur. Sigurður Einar Sigurðsson. Það fyrsta sem kemur upp í huga mér, þegar ég minnist náfrænda míns og besta vinar, Gunnars Helgasonar hrl., er þakklætið fyrir að hafa fengið að vera í mjög nánum tengslum við hann sl. tuttugu ár. Gunnar var þá nýhættur störfum sem yfirlögfræðingur Flugleiða og áður Loftleiða, en í þágu þeirra fé- laga hafði hann starfað ásamt bróð- ur sínum, Sigurði, og fleiri góðum mönnum um áratuga skeið. Á ör- skömmum tíma urðu kynni okkar Gunnars að einlægri og mjög náinni vináttu. Engu skipti aldursmunur okkar, þ.e. Gunnar var allt til hinstu Gunnar Helgason

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.