Fréttablaðið - 01.10.2011, Blaðsíða 4
1. október 2011 LAUGARDAGUR4
SAMFÉLAGSMÁL Mennta- og menn-
ingarmálaráðherra mun eftir helgi
kveða upp úr með það hvort bæjar-
yfirvöldum á Akranesi sé heimilt
að flytja börn milli skóla gegn neit-
un foreldra þeirra.
Þetta segir bæjarstjórinn Árni
Múli Jónasson, spurður um mál
ungrar telpu og unglingspilts
sem ganga í sama grunnskóla
þrátt fyrir að pilturinn hafi fyrir
nokkru orðið uppvís að óeðlilegri
kynferðislegri hegðun í garð telp-
unnar.
Ráðuneytið staðfestir að það
hafi málið til umfjöllunar að beiðni
foreldra annars barnsins. Það hafi
átt í samskiptum við forráðamenn
barnanna og Akraneskaupstað og
muni svara þeim eftir helgi.
Foreldrar telpunnar hafa farið
fram á að pilturinn verði færður
í annan skóla, þar sem hún kvíði
því mjög að þurfa hugsanlega að
hitta hann. Sálfræðingur Barna-
húss hefur metið það sem svo að
réttast væri að aðskilja börnin.
Sálfræðingur drengsins er hins
vegar þeirrar skoðunar að það
væri honum ekki fyrir bestu að
skipta um skóla – hann hafi staðið
sig vel í meðferð vegna málsins og
litlar líkur séu á að hann brjóti af
sér aftur.
Foreldrar telpunnar telja réttinn
sín megin og vilja ekki færa hana
í annan skóla. Málið er því siglt í
strand og foreldrar telpunnar hafa
tekið dóttur sína úr skóla þar til
lausn finnst á málinu.
Árni Múli segir málið vægast
sagt viðkvæmt. „Sálfræðingar og
sérfræðingar í málefnum barna
hafa verið að fjalla um það, meðal
annars með viðtölum við hlut-
aðeigandi börn og forráðamenn
þeirra og leita þannig leiða til að
takmarka þann skaða sem hátt-
semin hefur valdið og getur valdið,
sérstaklega og augljóslega á sálar-
líf barnanna sem í hlut eiga,“ segir
Árni.
Í því sambandi hafi þurft að
líta til þess að gerandinn sé barn
í skilningi laga, sem hafi áhrif á
réttarstöðuna og meðferð málsins.
„Málið er því þannig vaxið að
sálfræðileg úrræði sýnast lík-
legust til að geta orðið að gagni,“
segir Árni. Fræðsluyfirvöld á
Akranesi hafi talið mjög óljóst
hvort þeim væri lagalega heimilt
að ákveða að flytja nemanda milli
skóla vegna háttsemi utan skóla-
tíma og umráðasvæðis skólans,
án samþykkis foreldra.
„Því álitaefni var skotið til
mennta- og menningarmálaráðu-
neytisins, sem hefur haft það til
skoðunar, og mér skilst að niður-
staða ráðuneytisins sé væntanleg
innan skamms,“ segir Árni Múli.
stigur@frettabladid.is
thorunn@frettabladid.is
Málið
er því
þannig vaxið
að sálfræðileg
úrræði sýnast
líklegust til að
geta orðið að
gagni.
ÁRNI MÚLI JÓNASSON
BÆJARSTJÓRI AKRANESS
Akranesbær bíður svars frá
ráðuneyti í máli skólabarna
Menntamálaráðuneytið mun eftir helgi senda Akranesbæ og foreldrum tveggja barna í bænum niðurstöðu
sína um hvernig bregðast eigi við máli telpu sem fer ekki í skóla eftir kynferðislega hegðun samnemanda.
Bragi Guðbrandsson, forstjóri Barnaverndarstofu, segist
ekkert þekkja til málsins sem um ræðir. Almennt séð sé
það regla í svona málum að öll íhlutun af hálfu fagaðila
eigi að styðja bæði börnin. „Það gildir um bæði börn
sem eru gerendur og þolendur í svona málum að þau
þurfa mjög örugga og faglega hjálp. Og meginreglan í
slíkum tilvikum er sú að gera sem minnstar breytingar á
umhverfi barnsins, þeirri félagslegu umgjörð sem barnið
býr við.“ Það sé því talið andstætt hagsmunum barna að
gera stórar breytingar, heldur sé unnið með börn í því
félagslega samhengi sem þau lifi og hrærist í.
Margrét María Sigurðardóttir, umboðsmaður barna,
segist ekki geta tjáð sig um mál sem henni hafi borist.
Almennt gildi hins vegar í málum þar sem hagsmunir
tveggja barna virðist rekast á að yfirvöld þurfi að vega
og meta hvaða hagsmunir vega þyngra og finna lausn
með það í huga.
Meginreglan að breyta sem minnstu
AKRANES Málið hefur verið báðum börnum mjög erfitt og hafa þau verið í sál-
fræðimeðferð vegna þess. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
BRAGI
GUÐBRANDSSON
VEÐUR Hiti fór í 19,6 stig við
Skaftafell undir Öræfajökli um
hádegisbil í gær. Þó lækkaði hita-
stigið fljótlega aftur og var komið
niður í 11 gráður um tveimur
klukkustundum síðar.
Samkvæmt upplýsingum frá
Veðurstofu Íslands er ástæðan
hnjúkaþeyr af jöklinum um
morgun inn. Hann er algengt fyrir-
bæri víða um heim. Þá þrýstist
rakt loft upp fjallshlíðar og minnk-
ar rakamagn loftsins, sem gerir að
verkum að það á auðveldara með
að hitna. - sv
Sumarveður í Skaftafelli:
Tuttugu stig
í hnjúkaþey
LÖGREGLUMÁL Sérstakur saksókn-
ari hefur hætt rannsókn sinni á
fimm lífeyrissjóðum í umsjón
gamla Landsbankans. Sjóðirnir
eru Íslenski lífeyrissjóðurinn,
Lífeyrissjóður Tannlæknafélags
Íslands, Lífeyrissjóður Eimskipa-
félags Íslands, Kjalar lífeyris-
sjóður og Eftirlaunasjóður FÍA.
Í rannsókninni var kannað
hvort stjórnendur og starfsmenn
sjóðanna hefðu á fyrri hluta árs
2008 farið út fyrir lagaramma
um fjárfestingar og hvort upplýs-
ingagjöf til Fjármálaeftirlitsins
hefði verið ábótavant. - jab
Stjórnendur lágu undir grun:
Rannsókn á
sjóðum hætt
LANDSBANKINN Fimm lífeyrissjóðir
undir stjórn gamla Landsbankans hafa
verið til rannsóknar hjá embætti sérstaks
saksóknara í þrjú ár. FRÉTTABLAÐIÐ/RÓSA
VIÐSKIPTI Tólf tilboð hafa borist
í Húsasmiðjuna og einstakar
rekstrareiningar til Framtaks-
sjóðs Íslands. Frestur til að skila
inn óskuldbindandi tilboðum rann
út gær. Þetta kemur fram í til-
kynningu frá Framtakssjóði.
Fyrirtækjaráðgjöf Lands-
bankans, sem annast söluferlið í
umboði Framtakssjóðs Íslands,
mun nú taka tvær vikur til að
yfirfara tilboðin. Auglýst var
eftir óskuldbindandi tilboðum
í Húsasmiðjuna hinn 22. ágúst
síðast liðinn frá fjárfestum og opið
öllum sem stóðust hæfismat. - sv
Frestur til skila runninn út:
Tólf tilboð í
Húsasmiðjuna
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
27°
26°
24°
21°
24°
23°
19°
19°
26°
25°
27°
17°
26°
19°
26°
21°
15°
Á MORGUN
5-10 m/s en 8-13 eystra.
MÁNUDAGUR
Hvöss NA-átt NV-til,
annars hægari.
10
10
10
1010
10
4
8
8
8
9
13
12
15
2318
12
12
8
9
10
7
10
10
10
10
12
11
9 5 7
10
8
9
DREGUR ÚR VINDI
er líður á daginn og
á morgun verður
yfi rleitt fremur
hæg suðaustanátt
en strekkingur
við austurströnd-
ina. Rigning með
köfl um vestan til í
dag en búast má
við rigningu eða
skúrum víða um
land á morgun og
einkum suðaustan-
lands.
Elísabet
Margeirsdóttir
veður-
fréttamaður
EFNAHAGSMÁL Gert er ráð fyrir því
að tekjur ríkisins á árinu 2012 auk-
ist um 18 milljarða króna. Þetta
kemur fram í frumvarpi fjármála-
ráðherra sem kynnt verður í dag.
Frumvarpið verður fyrsta mál
á nýju Alþingi sem sett verður í
dag. Ekki er gert ráð fyrir hækkun
skatta á almenning í frumvarpinu.
Ekki verður farið eftir tillög-
um Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og
OECD um að afnema lægsta þrep
virðisaukaskatts, 7 prósent, og
færa vöruflokka í því þrepi í 14
prósent þrep. Þess í stað verður
settur virðisaukaskattur á banka-
og fjármálastarfsemi, sem hingað
til hefur verið undanþegin slíkum
skatti. Reiknað er með að það skili
4 til 6 milljörðum króna í tekjur.
Gert er ráð fyrir að hækkun á
veiðigjaldi skili um 1,5 milljörð-
um króna í auknar tekjur. Á fisk-
veiðiárinu 2009 til 2010 greiddi
útgerðin 1,4 milljarða í veiðigjald
og 2,8 milljarða króna á nýliðnu
fiskveiðiári. Eftir hækkun nemur
veiðigjaldið 4,3 milljörðum króna.
Þá mun arður og sala eigna skila
10 milljarða króna tekjuaukningu.
Forsvarsmenn ríkisstjórnar-
innar hafa sagt að fjárlög ársins
2012 muni einkennast af ströngu
aðhaldi frekar en miklum niður-
skurði. - kóp
Ekki gert ráð fyrir skattahækkunum á almenning í fjárlagafrumvarpinu:
Auka á tekjur um 18 milljarða króna
FJÁRMÁLARÁÐHERRA Fjárlögin 2012
verða kynnt á blaðamanni fundi fyrir
hádegi í dag. Þau verða lögð fyrir Alþingi
verður sett klukkan 10.30 í dag.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
GENGIÐ 30.09.2011
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
214,5985
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
117,83 118,39
183,70 184,60
159,01 159,89
21,365 21,491
20,139 20,257
17,163 17,263
1,5327 1,5417
183,89 184,99
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is
ALLT SÍMI 512-5402: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Sigríður Hallgrímsdóttir sigridurh@frettabladid.is, Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is, Ívar Örn Hansen ivarorn@365.is RAÐAUGLÝSINGAR/FASTEIGNIR SÍMI 512-5403:
Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigurlaug Aðalsteinsdóttir sigurlaug@365.is, Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Guðný Gunnlaugsdóttir gunny@365.is, KYNNINGARSTJÓRI: Einar Skúlason einar.skulason@365.is