Fréttablaðið - 01.10.2011, Síða 30
1. október 2011 LAUGARDAGUR30
Ef þau væru á lífi í dag
Heimurinn hefur stökkbreyst á þeim árum sem liðin eru frá dauða stjarna á borð við Kurt Cobain, Marilyn Monroe, John
Lennon og Janis Joplin. Þau fengu ekki tækifæri til að skrifa inn á Twitter-síðu, berjast gegn ólöglegu niðurhali á tónlist sinni
eða fljúga um loftin blá í sérstökum flugbílum. Þetta síðasta hefur reyndar ekki enn orðið að veruleika, en blaðamaðurinn Atli
Fannar Bjarkason og teiknarinn Halldór Baldursson gerðu heiðarlega tilraun til að rýna í líf stjarnanna, væru þær á lífi í dag.
Janis Joplin er virkur tónlistar-
maður og enn virkari alkóhólisti.
Stjarna Janis Joplin hefur ekki
skinið skært undanfarin ár en hún
hættir þó aldrei að syngja og gefa
út plötur með ýmsum hljóm-
sveitum. Hún hefur átt í harðri
baráttu við Bakkus og farið í ótal
meðferðir, án árangurs. Hvort sem
áfengið hjálpar til eða ekki þá er hún
alltaf hress, heimsækir John Lennon vin
sinn oft og reglulega berast fréttir af því að
„Pearl“ hafi splæst drykkjum á almúgann
á ölknæpum víða um heim. Stöðugar
vangaveltur um kynhneigð Joplin valda
henni litlu hugarangri og hún kýs að tjá sig
lítið um einkalífið í fjölmiðlum og því
síður á Twitter.
Janis Joplin
68 ára
Marilyn Monroe hefur oft verið
hressari, en óheilbrigt líferni hefur
tekið sinn toll.
Eftir að blómlegum kvikmyndaferli
Marilyn Monroe lauk tók við erfið
barátta við elli kerlingu. Monroe er
bundin við hjólastól, ekki endilega
vegna aldurs heldur hefur óheil-
brigt líferni tekið sinn toll. Þrátt fyrir
það lætur hún óhóflegar útlitskröfur
stjörnuborgarinnar hafa mikil áhrif á
sig og hefur farið í ótal lýtaaðgerðir
og skartar enn ljósu lokkunum
sem hún er svo fræg fyrir. Hún hefur
aldrei tileinkað sér tækninýjungar á borð
við Twitter og Facebook og heldur sig til hlés ásamt
tvítugum elskhuga sem fólk telur að sé á eftir auð-
æfum hennar.
Marilyn Monroe
85 ára
Umhverfisaðgerðasinni og misheppnaður
leikari. Kurt Cobain endurvekur Nirvana.
Eftir áralanga bið hefur hljómsveitin Nirvana
ákveðið að koma saman á ný, en hún hætti
um miðjan tíunda áratuginn. Kurt Cobain
hefur verið einfari síðustu ár, grænmetisæta,
umhverfisaðgerðasinni og hálfgerður
trúbador. Hann hefur sent frá sér misgóðar
kassagítarplötur en virðist vera kominn á
hausinn þar sem Nirvana er á leiðinni í
tónleikaferðalag um heiminn. Cobain er
mjög virkur á Twitter og nýtir miðilinn
til að berjast fyrir réttindum dýra
og plantna. Cobain hefur einnig
reynt að koma sér framfæri í
Hollywood en án árangurs
enda vonlaus leikari.
John Lennon
71 árs
John Lennon er kominn
út úr skápnum en vill ekki
endurvekja Bítlana.
Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir útgáfufyrirtækja og Pauls McCartney fæst John Lennon
ekki til að endurvekja Bítlana. Ekki einu sinni til að koma fram á minningar tónleikum
um George Harrison. Lennon er löngu búinn að losa sig við Yoko, kominn út úr
skápnum og lifir fábrotnu lífi í ótilgreindu hitabelti ásamt helmingi yngri elskhuga
þar sem hann kemst í snertingu við náttúruna á hverjum degi. Hann heldur áfram að
senda frá sér tónlist en aðeins allra hörðustu aðdáendurnir eru enn á hans bandi og
þykjast skilja tónlistina. Lennon er með Twitter-síðu sem hann uppfærir sjaldan með
boðskap sem er eins og tónlist hans, óskiljanlegur í augum fjöldans.
Kurt Cobain
44 ára