Fréttablaðið - 01.10.2011, Síða 34
1. október 2011 LAUGARDAGUR34
„Ef þú tekur þátt í lífsstíl homma og lesbía ertu að binda þig
niður. Þú er að binda þig niður í persónulega vanlíðan og
ánauð.“ Michelle Bachmann í útvarpsviðtali, ræðir um samkynhneigð
„Svo það sé á hreinu, þá trúi ég á þróunarkenninguna og
treysti vísindamönnum varðandi hlýnun jarðar. Kallið mig
klikkaðan.“ John Huntsman á Twitter
og hefur sett trúmál enn frekar
á oddinn. Hún er einlæg baráttu-
kona gegn hjónaböndum sam-
kynhneigðra og fóstur eyðingum
og segir að þróunarkenning
Darwins eigi að vera kennd jafn-
hliða sköpunarsögu Biblíunnar og
nemendur eigi að taka sína eigin
upplýstu ákvörðun í framhald-
inu. Þá hefur eiginmaður hennar
starfrækt eins konar meðferðar-
stöð þar sem meðal annars virð-
ist vera boðið upp á meðferð gegn
samkynhneigð.
Gloppótt þróunarkenning
Perry er ekki síður á þessari línu
en það má nefna að skömmu áður
en hann tilkynnti um framboð sitt
stýrði hann heljarinnar bæna-
samkomu í heimaríki sínu Texas
þar sem hann leiddi 30.000 manns
í bæn. Hann er einnig efins um
þróunar kenningu Darwins, sem
hann segir vera „gloppótta“, og þó
að hann segist ekkert vera á móti
samkynhneigðum er hann samt
persónulega andsnúinn því að þeir
fái að ganga í hjónaband.
Santorum er enn einn sann-
trúarmaðurinn, en á ferli sínum,
meðal annars sem öldungadeildar-
þingmaður, hefur hann meðal ann-
ars líkt kynlífi samkynhneigðra við
dýraníð. Sú afstaða hefur þó ekki
haft jákvæð áhrif á fylgi hans og er
afar ólíklegt að hann muni blanda
sér í toppbaráttuna.
Tvístígandi hófsemdarmenn
Hinir frambjóðendurnir taka ef
til vill síður afgerandi afstöðu en
hafa engu að síður allir lýst því
yfir að þeir séu trúaðir og Guð
hafi haft áhrif á líf þeirra. Það
sem allir frambjóðendur eiga sam-
merkt er að þeir vilja tryggja sér
fylgi íhaldssamra grasrótarsam-
taka. Teboðshreyfingin er þar lang-
sterkust, en samkvæmt nýlegri
könnun kemur í ljós að fylgjendur
hennar leggja áherslu að að kjörn-
ir full trúar séu afar trúaðir og að
mál tengd trú séu framarlega í
pólitískri umræðu.
Vafasamt er þó að einblína
á Teboðshreyfinguna, því að
þó að hún sé afar sterk innan
Repúblikana flokksins gæti of hörð
staða í ofangreindum málum kost-
að mikið fylgi hjá hófsömu miðju-
fólki þegar prófkjörin eru að baki
og slagurinn við Obama um óháðu
kjósendurna hefst. Í sömu könnun
og vísað var til hér að ofan kemur
nefnilega líka í ljós að vaxandi
meirihluti almennings vill alls ekki
blanda trúmálum og stjórnmálum
saman.
Því verður fróðlegt að fylgjast
með línudansinum sem fram
undan er næsta árið, þar sem fram-
bjóðendur munu kappkosta við að
afla sér fylgis á sem breiðustum
grundvelli án þess þó að styggja
kristna íhaldið.
Þ
rátt fyrir að kannan-
ir meðal almennings í
Bandaríkjunum sýni
að flestir séu þeirrar
skoðunar að brýnustu
verkefni í bandarísk-
um stjórnmálum lúti að efnahags-
málum og atvinnulífi hefur engu að
síður lengi verið sterk skírskotun til
trúarmála í málflutningi þarlendra
stjórnmálamanna.
Óvíða kemur þessi tilhneig-
ing skýrar fram en í forvali
Repúblikana flokksins sem fer fram
um þessar mundir. Þó að fyrstu
prófkjörin fari ekki fram fyrr en
eftir fjóra mánuði og forsetafram-
bjóðandi verði ekki útnefndur fyrr
en eftir um það bil ár er slagurinn
hafinn fyrir margt löngu og línur
teknar að skýrast um hver það
verður sem mun leggja í Barack
Obama forseta í forsetakosningun-
um í nóvember á næsta ári.
Helstu nöfnin í baráttunni að
þessu sinni eru Mitt Romney, Rick
Perry og Michelle Bachmann, sem
hefur að vísu dalað í fylgi síðustu
vikur, eftir að Perry fór að blanda
sér í slaginn. Þar fyrir utan eru
menn eins og frjálshyggjumaðurinn
staðfasti Ron Paul, Herman Cain,
Newt Gingrich, John Huntsman og
Rick Santorum. Tim Pawlenty hefur
þegar dregið sig úr keppni og enn er
óvíst hvort Sarah Palin lætur af því
verða að bjóða sig fram.
Margvísleg málefni tengjast trú
Málefni tengd trú eru fjölmörg á
pólitíska sviðinu vestan hafs. Þó
að þau snúist ekki beint um texta
Biblíunnar er um ýmis umdeild
samfélagsleg mál að ræða sem
hafa orðið að bitbeini milli íhalds-
samra kristinna og frjálslyndara
fólks. Þar má nefna hjónabönd sam-
kynhneigðra, sem eru eitur í bein-
um heittrúarmanna, en líka rétt
samkynhneigðra hermanna til að
tjá sig opinskátt um líf sitt. Þá er
deilt harkalega um rétt kvenna til
fóstur eyðinga og nýjasta dæmið
er kenningar um sköpun heimsins
og mannskepnunnar, það er hvor
sé réttari, þróunar kenningin eða
sköpunar saga Biblíunnar.
Slokknaði á eldhuganum
Bachmann hefur vakið hvað
mesta athygli fyrir orð sín og
gjörðir það sem af er. Hún hefur
alla tíð verið mjög opinská um trú
sína og segir framboð sitt vera
vegna köllunar að ofan. Sá sem
þar situr vill greinilega hafa vaðið
fyrir neðan sig því að Perry seg-
ist líka bjóða sig fram að frum-
kvæði Drottins. Bachmann var
um tíma talin líkleg til að veita
Romney harða samkeppni um
útnefninguna, eftir að hafa komið
vel út úr könnun í Iowa-ríki, en
fylgið hefur hrunið af henni eftir
að Perry steig fram. Hún hefur
nú endurskipulagt baráttu sína
EFTIRMINNILEG UMMÆLI FRAMBJÓÐENDA
E ftir að hafa komið inn með miklum látum og tekið forystuna í skoðanakönnunum umsvifalaust hefur Rick Perry tapað fylgi
eftir slælega frammistöðu í kappræðum undanfarið. Hann og Mitt
Romney skiptast nú á að leiða milli kannana en allt púður virðist
úr Michelle Bachmann í bili og fylgið hrynur af henni.
Kannanir sem bera saman fylgi repúblikana við Barack
Obama forseta leiða í ljós að Romney kemur best út en á þó
enn nokkuð í land. Mat fjölmargra stjórnmálagreinenda er að
svo virðist sem enginn núverandi frambjóðenda eigi raunhæfa
möguleika á að leggja Obama að velli.
Perry og Romney leiða hópinn
Frambjóðendur á Guðs vegum
Keppnin um útnefningu Repúblikanaflokksins fyrir forsetakosningarnar í Bandaríkjunum á næsta ári er þegar orðin gríðar-
hörð. Þrátt fyrir að miklir efnahagslegir erfiðleikar steðji að landinu hafa sumir frambjóðendur lagt ofuráherslu á samfélagsmál
sem tengjast trúarbrögðum. Þorgils Jónsson kynnti sér vægi þessa umdeilda málaflokks í forsetaslag repúblikana.
„Þetta er kenning sem er í gangi en það eru gloppur í henni.
Við í Texas kennum bæði hana og sköpunarkenninguna og
klárir strákar eins og þú hljóta að geta séð hvor er rétt.“
Rick Perry við ungan dreng um þróunarkenninguna
Sagnfræðingurinn Magnús Sveinn Helga-son, sem kennir bandarísk stjórnmál
við Háskólann á Bifröst, segir ljóst að mál
tengd kristinni trú og gildum séu mikilvæg í
stjórnmálabaráttunni þar í landi.
„Það hefur sýnt sig undanfarið að
repúblik anar sem eru líklegir til að kjósa í
prófkjörum hafa verið að færast til hægri
og hófsömum hefur fækkað. Þessi grasrót er
íhaldssöm í siðferðismálum og metur fram-
bjóðendur út frá sinni eigin veraldarsýn.
Vilji frambjóðendur komast í gegnum próf-
kjör þurfa þeir sem sagt að höfða afdráttar-
laust til grasrótarinnar. Þarna er um nokkur
lykilmál að ræða. Á tíunda áratugnum var
það afstaða til fóstureyðinga en nú virðist
sem nýjasta prófmálið sé þróunarkenningin
gegn sköpunarkenningu Biblíunnar.“
Magnús segir að þessi trúarlegu sið-
ferðismál hafi hafið innreið sína í stjórn-
mál vestan hafs fyrir alvöru með forseta-
framboði demókratans Jimmys Carter árið
1976. Árin þar á undan hafi frjálslyndi auk-
ist í samfélaginu með auknum réttindum
kvenna, blökkumanna og annarra hópa sem
höfðu áður verið undirokaðir, og kristna
íhaldshreyfingin hafi orðið til sem viðbrögð
við þeirri þróun.
„Þar komu kristnir inn sem ákveðinn
öflugur kjósendahópur í fyrsta sinn. Svo
náði Ronald Reagan þessum hópi frá demó-
krötum og síðan þá hafa repúblikanar nokk-
urn veginn haldið þeim.“
Magnús segir áhrif strangtrúaðra hafa
dvínað á níunda áratugnum og í upphafi þess
tíunda en þá hafi þeir stimplað sig inn á ný.
„Eftir það hafa þeir haft mjög sterka stöðu
og mikið vægi í bandarískum stjórnmálum.“
■ HVENÆR FÓRU TRÚMÁL AÐ SKIPTA SKÖPUM Í KOSNINGUM?
Jimmy Carter reið á vaðið í forsetakosningunum árið 1976
Magnús Sveinn Helgason, sagnfræðingur og sérfræðingur í bandarískum stjórnmálum
Í BLJÚGRI BÆN Rick Perry segir sjálfan Guð hafa hvatt sig til að sækjast eftir útnefningu repúblikana til forsetakosninganna á
næsta ári. Skömmu áður en hann kunngerði framboð sitt fór hann fyrir 30.000 manns á bænasamkomu í Texas. FRÉTTABLAÐIÐ/AP