Fréttablaðið - 01.10.2011, Qupperneq 41
Sölufulltrúar: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Brynja Dan Gunnarsdóttir brynjadan@365.is 512 5465 Snorri Snorrason snorris@365.is 512 5457
Fallega
Jólaskeiðin
frá Ernu
Verð 16.500.
ERNA
Skipholti 3, s.552 0775, erna.is
FÁKAFENI 9 - Sími: 553 7060
Opið mánud-föstud. 11-18 & laugard. 11-16
Sérverslun með
Mikið úrval af
fallegum skóm
og töskum
Gæði & Glæsileiki
www.gabor. is
Laugavegi 63 • S: 551 4422
laxdal.is
NÁMSAÐSTOÐ
Vantar þig aðstoð í einhverri námsgrein?
íslenska - stærðfræði - enska - danska - efnafræði - lestur
eðlisfræði - þýska - franska – spænska – stafsetning o.fl.
Öll skólastig - Réttindakennarar
Nemendaþjónustan sf www.namsadstod.is s. 557 9233
Þetta er allt sama tóbakið heitir sýning sem var
opnuð í Þjóðminjasafni Íslands í gær. Henni er ætlað
að varpa ljósi á sögu tóbaksnotkunar og baráttuna
gegn henni allt frá upphafi 17. aldar og fram til 1990.
Til þess eru notaðir gripir og ljósmyndir frá Þjóðminja-
safni, gripir og gögn frá Krabbameinsfélaginu og tónlist
sem hefur verið notuð í baráttunni gegn reykingum.
É
g er fiskur sem veiðir
fiska. Fékk veiðidellu
fyrir tveimur árum og
fer flestar helgar með
Viktori og vinum til veiða við eitt-
hvert vatnanna í nágrenni Essex.
Ég er nokkuð fiskin og hef feng-
ið sjö fiska þegar best lét,“ segir
Leoncie, sem undanfarin sex ár
hefur búið á Englandi en hyggst nú
flytja með íslenskum eiginmanni
sínum til Íslands á ný.
„Viktor þjáist af heimþrá og
það geri ég líka. Ísland er svo frá-
brugðið öðrum löndum og ég
sakna vatnsins, hreina lofts-
ins, fjallanna og harðfisks-
ins.“
Heimferð þeirra hjóna
hefur seinkað vegna veik-
inda Viktors, sem þurfti í
stóran uppskurð, en batinn
kemur hægt og hljótt þótt
Leoncie geti ekki strax
boðið honum á dans-
gólfið.
„Við Viktor kynnt-
umst þegar ég kom í
fyrsta sinn til Íslands að
skemmta í Glæsibæ. Þá
bauð hann mér drykk,
sem ég afþakkaði því ég
taldi hann á höttunum
eftir einhverju meira.
Viktor reyndist hins
vegar yndis legur
íslenskur maður,
sterkur og góður,
og ég varð fljótt
ástfangin,“ segir
Leoncie, sem
gafst sínum
heittelsk-
aða fyrir 29
árum. Saman
bjuggu þau
lengst af
í K ó p a -
v o g i o g
þar hefur
Leoncie auga-
stað á húsi.
„Það er skrýtið
að horfa til Íslands
eftir banka hrunið
og húsnæðisverð er
nánast óviðráðanlegt.
En ég er raunsæismann-
eskja í ákvörðunum og geri
ekkert nema að vel athuguðu
máli, enda gefur mér enginn neitt,“
segir Leoncie, sem er tvístígandi
yfir að flytja aftur til Íslands.
„Í gegnum tíðina hef ég haft
það mjög skítt á Íslandi. Íslend-
ingar þjást margir af djúpstæðum
kynþáttafordómum og þótt íslensk
hegningarlög, grein 233A, kveði á
um ströng viðurlög við kynþátta-
hatri eru lögin bara til skrauts.
Fólk hefur kom-
ist upp með að
kalla mig
ýmsum
ónöfn-
um en
aldrei hefur verið gert neitt í mál-
unum. Á Englandi færi sá hinn
sami í fangelsi, því þar virkar
dómskerfið,“ segir Leoncie sár og
efast um að ástandið hafi batnað
þótt alltaf fjölgi innflytjendum á
Íslandi.
„Viktor þráir að flytja aftur til
Íslands en ég velti sífellt fyrir mér
hvort það sé rétt ákvörðun. Ég er
orðin hundleið á að tilheyra minni-
hlutahópi og vil ekki lifa lengur í
þjóðfélagi þar sem meirihlutinn
valtar yfir allt og alla. Ég fæ ekki
skilið hvers vegna íslenskt þjóð-
félag breytist ekki í samræmi við
aukna fjölmenningu og verður
vinveittara útlendingum,“ segir
Leoncie.
Á Englandi starfar Leoncie
mestmegnis við tónsmíðar fyrir
indverskar kvikmyndir. Vegna
vinnunnar fer hún mikið til síns
gamla heimalands og segist helst
vilja flytja þangað.
„Það eru góðir hlutir að gerast
hjá mér og ég gleðst yfir að allt sé
á uppleið. Nýja platan, Dansaðu
við Leoncie, hefur vakið óvænta
athygli í Bandaríkjunum, en á
henni eru þau tólf ný og gömul
lög sem ég hef samið á
íslensku í gegnum
árin. Mig langar að
kynna heiminum
íslenska tungu
því hún er falleg
og fólk heillast
af málinu,“ segir
L e onc ie , s em
einnig vonast til að
halda útgáfutónleika
á Íslandi og leitar sam-
starfs við tónleikahald-
ara.
„Ég kem langoftast
að tómum kofanum
þegar ég leita liðsinn-
is íslenska tónlistar-
bransans og hef ávallt
verið útilokuð frá tón-
listarverðlaunum,
þrátt fyrir áratuga
tónlistarstarf. Í dag
er mér orðið sama.
Ég kæri mig ekki
um að mála mig
hvíta til þess eins
að vera gjaldgeng;
ég vil bara vera
Prinsessan Leoncie fer til vatnaveiða um helgar á milli þess sem hún semur indverska kvikmyndatónlist.
Vil ekki mála mig hvíta