Fréttablaðið - 01.10.2011, Page 52
1. október 2011 LAUGARDAGUR8
Starfsnám í utanríkisþjónustunni
Utanríkisráðuneytið auglýsir starfsnám í utanríkis-
þjónustunni. Markmið starfsnámsins er að gefa ungu
fólki sem er að hefja starfsferil sinn færi á að kynnast
störfum utanríkisþjónustunnar. Starfsnámið er ætlað
fólki sem hefur lokið BA/BS-gráðu og er í, hyggur á,
eða hefur nýlokið meistaranámi í grein sem tengist
málefnasviði utanríkisþjónustunnar.
Um er að ræða sex mánaða tímabil, frá janúar-júní
2012. Starfsnámið fer fram á aðalskrifstofu ráðuneytis-
ins eða starfsstöð utanríkisþjónustunnar erlendis.
Kröfur til umsækjenda:
• BA / BS gráða eða sambærileg menntun í grein
sem tengist málefnasviði utanríkisþjónustunnar
• Góð kunnátta í íslensku, ensku og a.m.k. einu
Norðurlandamáli
• Kunnátta í frönsku, þýsku eða öðru tungumáli
æskileg
• Góð aðlögunarhæfni
• Íslenskur ríkisborgararéttur
Starfsnám hjá utanríkisráðuneytinu er launað
og þiggja starfsnemar laun skv. kjarasamningi
fjármálaráðherra og Félags háskólamenntaðra starfs-
manna stjórnarráðsins.
Umsóknarfrestur er til og með 16. október 2011.
Umsóknir ásamt einkunnum úr háskólanámi skulu
berast á netfangið starfsnam@mfa.is, merkt „Starfs-
nám 2012“. Litið verður svo á að umsóknir gildi í sex
mánuði frá því að umsóknarfresti lýkur. Öllum um-
sóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu
hefur verið tekin.
Nánari upplýsingar veitir Anna Ósk Kolbeinsdóttir í
síma 545-9900 (aok@mfa.is).
VÉLVIRKJAR / BIFVÉLAVIRKJAR
ÍSTAK óskar eftir að ráða vélvirkja, bifvélavirkja eða einstaklinga vana
viðgerðum vinnuvéla og vörubíla. Í starfinu felst vinna við viðgerðir og
viðhald véla og tækja á framkvæmdasvæðum fyrirtækisins hér á landi
og erlendis.
Viðkomandi þurfa að hafa víðtæka reynslu af viðgerðum tækja og
vinnuvéla.
ÍSTAK er leiðandi fyrirtæki á íslenskum
verktakamarkaði. Hjá fyrirtækinu starfa
um 500 manns, víðsvegar um landið
sem og erlendis.
ÍSTAK er alhliða verktakafyrirtæki sem
var stofnað árið 1970 og hefur annast
ýmis verkefni, svo sem virkjanir, stór-
iðjuver, hafnargerð, vega- og brúagerð
auk flugvalla. Ennfremur húsbyggingar
fyrir opinberar stofnanir, sveitarfélög,
fyrirtæki og einstaklinga.
Framkvæmdagleði í fyrirrúmi
Upplýsingar um störfin eru veitt á skrifstofu ÍSTAKS, Engjateigi 7,
105 Reykjavík og í síma 530 2700 milli 8:15 og 17:00. Sækja skal um
störfin á www.istak.is – undir „auglýst störf“ fyrir 10. október næstkomandi.
Óskum eftir að ráða skrifstofustjóra sem er tilbúinn að vinna að fjölbreyttum verkefnum í krefjandi
og skemmtilegu umhverfi. Starfið felst í daglegum rekstri skrifstofu, færslu bókhalds, ferðabókunum,
aðstoð við dótturfélög og ýmislegt fleira. Nauðsynlegt er að viðkomandi hafi talsverða reynslu af færslu
bókhalds og hafi gott vald á íslenskri og enskri tungu.
Títan fjárfestingafélag er fagfjárfestir sem tekur virkan þátt í uppbyggingu fyrirtækja í nánu samstarfi
við stjórnendur og meðfjárfesta. Títan er stöðugt að leita nýrra tækifæra, bæði í nýsköpunarfyrirtækjum
og einnig stærri félögum. Helstu fjárfestingar Títans fram til þessa eru í MP Banka, Securitas, Carbon
Recycling International, Caoz, DataMarket og Thor Data Center.
Áhugasamir sendi umsókn og ferilskrá á baldur@titan.is.
Títan fjárfestingafélag ehf.
óskar eftir skrifstofustjóra
Ferðaskrifstofustarf
Lítil ferðaskrifstofa óskar eftir að ráða
starfsmann í fullt starf.
Fjölbreytt starf sem krefst mikils sjálfstæðis.
Nánari upplýsingar á www.NatureExplorer.is/starf
Vilt þú starfa á skemmtilegum vinnustað?
Við óskum eftir hressum, duglegum og kraftmiklum starfs-
mönnum til starfa á Grill 66 og Quiznos á þjónustu stöðvum Olís
á höfuðborgarsvæðinu.
Unnið er á tvískiptum vöktum og starfið felur m.a. í sér allt sem
viðkemur afgreiðslu, þrif og umsjón með hráefni.
Umsækjendur þurfa að vera 20 ára eða eldri, samvisku samir og
stundvísir auk þess að búa yfir ríkri þjónustulund og hæfni
í mannlegum samskiptum.
Nánari upplýsingar veitir Fríða Guðmundsdóttir, frida@olis.is.
Hægt er að sækja um á
www.olis.is/um-olis/storf-i-bodi/atvinnuumsokn
Hjá Olís er lögð áhersla á góðan aðbúnað starfsfólks,
stuðning til náms og heilsueflingar, heiðarleika
í samskiptum, snyrtimennsku og fagleg vinnubrögð.
Vinur við veginn
FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN
ÞAÐ ERU FLEIRI PARTÝ OG MEIRA FJÖR Á VÍSI
Meiri Vísir.