Fréttablaðið - 01.10.2011, Síða 54
1. október 2011 LAUGARDAGUR10
“Make your mark.
Improve lives.”
Roche, Switzerland
Um er að ræða nýtt starf hjá Roche NimbleGen
á Íslandi.
Starfsmaður mun heyra undir framkvæmdastjóra og
leiða teymi starfsfólks í innkaupadeild, á lager,
í pökkunar- og útflutningsdeild.
Starfsmaður mun starfa með yfirmönnum fram-
leiðsludeilda að skipulagningu framleiðslu; að
rétt magn hráefnis sé til staðar og að pantanir séu
afgreiddar til viðskiptavina á réttum tíma. Hann/hún
tekur þátt í áætlanagerð, reglulegum vörutalningum
og vörubókhaldi ásamt úrbótum á verkferlum og
innleiðingu nýjunga í framleiðslu.
Hæfniskröfur:
• Reynsla af framleiðslu- og/eða framleiðslu-
stjórnun
• Háskóla–/tækniskólamenntun eða sambærileg
starfsreynsla
• Þekking á SAP er kostur
• Frumkvæði og fagmennska í starfi
• Góð enskukunnátta er nauðsynleg
Við leitum að kraftmiklum og áhugasömum
einstaklingi.
Viðkomandi þarf að vera skipulagður og eiga gott
með samskipti við annað fólk.
Í boði er spennandi starf í vaxandi alþjóðlegu
líftækni fyrirtæki. Hjá Roche NimbleGen á Íslandi
starfa um 70 starfsmenn við ýmis störf; svo sem við
framleiðslu, rannsóknir á rannsóknastofu, gæða-
eftirlit og skrifstofu störf.
Áhugasamir sendi umsókn og starfsferilsskrá (CV) á
netfangið: reykjavik.jobs@roche.com
Umsóknarfrestur er til 15. október nk.
Nánari upplýsingar veitir Guðný Einarsdóttir, starfs-
mannastjóri gudny.einarsdottir@roche.com;
s: 414-2125
Roche NimbleGen Iceland LLC - útibú á Íslandi
Vínlandsleið 2-4, 113 Reykjavík
Production Planner
samhæfing framleiðslu
Laust embætti rektors Hólaskóla
- Háskólans á Hólum
Embætti rektors Hólaskóla - Háskólans á Hólum er laust
til umsóknar.
Í samræmi við 1. mgr. 25. gr. laga um búnaðarfræðslu,
nr. 57/1999, auglýsir mennta- menningarmálaráðherra
hér með laust til umsóknar embætti rektors Hólaskóla -
Háskólans á Hólum.
Rektor er yfirmaður stjórnsýslu Hólaskóla - Háskólans á
Hólum og ber ábyrgð á rekstri hans. Hann ber ábyrgð á
gerð starfs- og rekstraráætlana og að þær séu samþykktar
af háskólaráði. Rektor er jafnframt æðsti fulltrúi hans
gagnvart mönnum og stofnunum innan skólans og
utan hans. Hann stýrir starfsemi háskólans og hefur
frumkvæði að því að háskólaráð marki sér heildarstefnu
í málefnum skólans. Rektor fer með ráðningarvald yfir
öllum starfsmönnum skólans og setur þeim erindisbréf
eða starfslýsingar. Um laun rektors fer eftir ákvörðun
kjararáðs.
Mennta- og menningarmálaráðherra skipar rektor til fimm
ára í samræmi við 1 mgr. 25. gr. laga um búnaðarfræðslu,
að fenginni umsögn háskólaráðs. Skipunartímabil rektors
er frá 1. janúar 2012.
Embættisgengir í embætti rektors Hólaskóla - Háskólans
á Hólum eru þeir einir sem lokið hafa æðri prófgráðu við
háskóla og hafa stjórnunarreynslu að baki.
Umsóknarfrestur hefur verið framlengdur til og með 14.
nóvember nk.
Mennta- og menningarmálaráðuneyti,
28. september 2011.
menntamálaráðuneyti.is
Fjármálastjóri með alþjóðlega reynslu
Reykjavik Geothermal leitar að fjármálastjóra með reynslu af
slíkum störfum í alþjóðlegu samhengi. Fyrirtækið starfar að
alþjóðlegum jarðhitaverkefnum á sviði ráðgjafar og þróunar.
Félagið hefur um 30 starfsmenn og hefur starfsstöðvar í
Reykjavik, New York, Addis Ababa og Port Morrisby.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Háskólamenntun á sviði fjármála
• Traust þekking á reikningshaldi og áætlanagerð
• Stjórnunarhæfileiki og lipurð í mannlegum samskiptum
• Traust greiningarhæfni
• Færni í ræðu, riti og framkomu
• Frumkvæði, kraftur og skipulögð vinnubrögð
• Mjög góð enskukunnátta
Reynsla af:
• Fjármálastjórn í alþjóðaumhverfi
• Fjárstýringu og áhættustýringu
• Samskiptum við innlenda og erlenda banka
• Samningagerð
• Alþjóðlegri verkefnafjármögnun
Umsóknarfrestur er til og með 21. október 2011 og ber að
skila umsóknum með tölvupósti ásamt ferilskrá og nöfnum
umsagnaraðila á netfangið vilhjalmur@rg.is. Öllum umsóknum
verður svarað skriflega og er fullum trúnaði heitið við vinnslu þeirra.
Frekari upplýsingar veitir Vilhjalmur Skúlason í síma 892-0018.
Forstöðumaður Dvalarheimilis aldraðra í Stykkishólmi
Stykkishólmsbær óskar eftir að ráða í starf
forstöðumanns Dvalarheimilis aldraðra, Stykkishólmi.
Um er að ræða 60%-100% starf, eftir samkomulagi.
Æskilegt er að starfmaður geti hafið störf sem fyrst, eða eftir
nánara samkomulagi. Laun eru samkvæmt kjarasamningum
Launanefndar sveitarfélaga.
Starfssvið:
Umsjón og ábyrgð á umönnun heimilisfólks og
sjúklinga í hjúkrunarrýmum.
Umsjón og ábyrgð á rekstri Dvalarheimilisins.
Menntun– og hæfniskröfur:
Hjúkrunarfræðimenntun eða jafngilt nám.
Frumkvæði og metnaður.
Sjálfstæð og öguð vinnubrögð.
Góðir samskiptahæfileikar.
Dvalarheimili aldraðra í Stykkishólmi, sem er sjálfseignarstofnun,
tók til starfa 9. ágúst 1978. Á heimilinu eru átján einsmanns– og
tvö tveggja manna herbergi. Sextán íbúðir fyrir aldraða eru
tengdar Dvalarheimilinu.
Umsóknir skulu berast Stykkishólmsbæ,
Hafnargötu 3, 340 Stykkishólmi eða á netfangið
baejarstjori@stykkisholmur.is
Öllum umsóknum verður svarað.
Umsóknarfrestur er til og með 14. október nk.
Nánari upplýsingar veitir Gyða Steinsdóttir, bæjarstjóri,
sími: 433 8100 og netfangið gyda@stykkisholmur.is
StöðvarfjörðurFáskrúðsfjörðurReyðarfjörður
EskifjörðurNorðfjörðurMjóifjörður
fjardabyggd.is
Eskifjörður
Reyðarfjörður
Fáskrúðsfjörður
Stöðvarfjörður
Mjóifjörður
Norðfjörður
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/F
JA
5
66
11
0
9/
11
Tónskóli Neskaupstaðar
og Norðfjarðarsókn óska eftir
að ráða tónlistarkennara
og organista við Norðfjarðar- og
Mjóafjarðarkirkju.
Um er að ræða 100% stöðu tónlistarkennara
og 50% stöðu organista. Kjör eru samkvæmt
samningum launanefndar sveitarfélaga og
viðkomandi stéttarfélags.
Umsóknarfrestur er til 14. október. Æskilegt er
að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Tónskólinn er í nýju húsnæði, vel búinn tækjum
og í kirkjunni er frábært orgel. Í Fjarðabyggð er
miðstöð tónlistar á Austurlandi og þar eru góðir
kórar og blómlegt tónlistarlíf.
Upplýsingar um störfin veita
Egill Jónsson, skólastjóri Tónskóla Neskaupstaðar,
í síma 896 6736 og Guðjón B. Magnússon,
formaður sóknarnefndar, í síma 895 9976.
Tónlistarkennari
og organisti