Fréttablaðið - 01.10.2011, Blaðsíða 80
1. október 2011 LAUGARDAGUR48
Helgarnámskeið fyrir skapandi fólk!
1. Olíumálunarnámskeið með Þuríði Sigurðardóttur á Sólheimum í
Grímsnesi 7. - 9. október
2. Ljósmyndanámskeið með Grétu Guðjónsdóttur á Búðum á
Snæfellsnesi 21.-23. október
3. Vatnslitanámskeið með Derek Mundell á
Sólheimum í Grímsnesi 29. - 30. október
Nánari upplýsingar
á www.arttravel.is
krakkar@frettabladid.is
48
Þú getur sent brandara til krakkar@frettabladid.is
Af hverju vorið þið valin til að
leika í myndinni?
Victoria: Það voru um 200 stelp-
ur sem tóku þátt í prufum. Svo
voru tíu kallaðar inn aftur og á
endanum völdu þau mig.
Ísak: Eftir upplestur og viðtal
í prufum leist þeim bara svona
ósköp vel á mig að ég var valinn
í hlutverkið.
Langar ykkur að verða leikarar
í framtíðinni?
Victoria: Jahá! Algjörlega.
Ísak: Ég stefni á að verða leik-
ari, en allt getur breyst.
Mörg börn dreymir um leik í
bíómyndum og að verða fræg.
Er það jafn gaman og margir
halda?
Victoria: Já og nei. Maður þarf
oft að bíða lengi eftir tökum og
segja sömu setningarnar aftur
og aftur. En þetta er alveg æðis-
leg reynsla og svakalega gaman
að upplifa tökur á kvikmynd frá
allt öðru sjónarhorni en í bíósal.
Ísak: Vissulega gaman, en
margir gera sér ekki grein fyrir
hversu mikillar einbeitingar og
vinnu bíómynd krefst. Maður
verður að gefa sig allan í þetta.
Þurftuð þið að læra eitthvað
nýtt fyrir hlutverkið?
Victoria: Já, ég þurfti að fara í
klifur- og parkour-tíma hjá Fim-
leikafélaginu Björk og í nokkra
tíma á BMX-hjóli. Líka í radd-
og textaþjálfun.
Ísak: Ég leik skáta og þurfti að
læra að draga fána að húni og
hnýta skátahnúta.
Hvað hefur sagan kennt ykkur
um dauðann og lífið?
Victoria: Ég veit núna hvað
dauði ættingja eða vinar getur
haft afar mikil áhrif á mann, en
sagan kenndi mér líka að maður
á að halda áfram að lifa lífinu
þótt eitthvað komi upp á.
Ísak: Þessi fallega saga kenndi
mér að lífið er ekki alltaf dans
á rósum heldur fylgja því líka
tímabil sorgar. Sagan kenndi
mér líka að þegar maður verð-
ur sorgmæddur á maður ekki að
láta vorkenna sér heldur takast
á við vandamálin.
Hvað var skemmtilegast við að
leika í myndinni?
Victoria: Bílaeltingaleikurinn á
ruslahaugunum, það var alveg
geggjað!
Ísak: Það stendur upp úr hversu
gaman var að vinna með
skemmtilegu og góðu fólki, en
skemmtilegasta atriðið var
þegar við Victoria urðum að
flýja vondu kallana.
En hvað var erfiðast?
Victoria: Þegar ég var að tala í
síma. Þá var erfitt að stoppa á
réttum stöðum og muna á sama
tíma hvað maður ætti að segja.
Ísak: Þegar við vorum í tökum
við flótta undan vondu köllunum
að degi til, alla nóttina og fram
undir morgun.
Trúið þið á drauga?
Victoria: Ég veit það ekki alveg,
kannski bara!
Ísak: Já! Ég trúi á drauga, en
held þeir séu ekki eins slæmir
og margir telja. Ætli þeir hjálpi
manni ekki bara gegnum lífið,
án þess að maður taki eftir því?
Hvort ætli sé skemmtilegra að
vera leikari, spæjari eða hetja?
Victoria: Leikari, því þá getur
maður leikið bæði spæjara og
hetju og margt, margt fleira.
Ísak: Öll störfin þykja mér
spennandi, því í þeim er alltaf
tekist á við nýja hluti.
thordis@frettabladid.is
DRAUGAR HJÁLPA Í LÍFINU
Stutt er milli saklausra leikja og dauðans alvöru. Það reyndu þau Victoria Björk
Ferrel og Ísak Hinriksson þegar þau léku í myndinni Hröfnum, sóleyjum & myrru.
Siggi: „Ætli ég sé ekki versti golfleikari í heimi?“
Jói: „Nei, nei. Þeir eru til miklu verri. Þeir spila bara ekki.“
Spurning: Hvernig nærðu fíl niður úr tré?
Svar: Fáðu hann til að standa á laufblaði og bíddu svo eftir
haustinu.
Sex ára stúlka við vin sinn: „Ef ég erfi afa minn þá veit ég ekki
hvað ég á að gera við hann.“
Spurning: Hvernig kemurðu í veg fyrir að moldvörpur grafi í
sundur garðinn þinn?
Svar: Þú felur skóflurnar.
ÞJÓÐSÖGUR geta verið fróðlegar og skemmtilegar en líka
spennandi og á slóðinni http://www.snerpa.is/net/thjod/
draug.htm er fjöldi draugasagna.
Nafn og aldur: Sóldís Freyja Vignis-
dóttir, ég er 11 að verða 12.
Í hvaða skóla ertu: Vatnsendaskóla.
Í hvaða stjörnumerki ertu: Sporð-
drekanum.
Áttu happatölu? Já, 42.
Helstu áhugamál/hvað gerirðu í frí-
stundum þínum? Spila fótbolta og er
með vinum ;o)
Besti matur? Píta eða pasta.
Eftirlætisdrykkur? Vatn.
Hvaða námsgrein er í eftirlæti?
Íslenska, textíl og smíði.
Áttu gæludýr – ef svo er, hvern-
ig dýr og hvað heitir það? Nei, ég á
ekkert dýr.
Skemmtilegasti dagurinn og af
hverju? Miðvikudagur, ég veit ekki af
hverju.
Eftirlætistónlistarmaður/hljóm-
sveit? Justin Bieber, Friðrik Dór o.fl.
Uppáhaldslitur? Fjólublár og
grænn.
Hvað gerðirðu í sumar? Keppti í
fótbolta, var með vinum, fór í sumar-
bústaði og í Ölver (sumarbúðirnar)
og margt fleira.
Skemmtilegasta bók sem þú hefur
lesið? Bróðir minn Ljónshjarta eða
Rympa á ruslahaugnum.
Hvað ætlarðu að verða þegar þú
ert orðin stór? Atvinnumaður í fót-
bolta og flugfreyja.
Sóldís Freyja Vignisdóttir
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN
MEIRA AF LANDSBYGGÐINNI
Meira sjónvarp, meira útvarp, meiri fréttir, meiri upplýsingar, meiri umræða,
meira líf, meiri íþróttir, meiri virkni, meira úrval. Þú færð meira af öllu á Vísi.