Fréttablaðið - 01.10.2011, Side 88
1. október 2011 LAUGARDAGUR56
folk@frettabladid.is
Skráning í “Græna Korts Happdrættið” 2013 hefst 4. október 2011.
Þeir aðilar sem vilja taka þátt í happdrættinu verða að skrá sig á sérstakri
heimasíðu sem er á vegum Bandaríska Ríkisins.
Vefslóðin fyrir skráningu í Græna Korts Happdrættið 2013 er
www.dvlottery.state.gov og verður skráning opin frá kl 16.00, 4. október 2011
til kl. 16.00, 5. Nóvember 2011.
Vinsamlegast athugið að þetta er eina heimasíðan á vegum Bandaríska Ríkisins
ætluð fyrir skráningu í Græna Korts Happdrættið.
Hægt er að nálgast frekari upplýsingar á heimasíðu Bandaríska Sendiráðsins,
http://iceland.usembassy.gov
Skráning í “Græna Korts Happdrættið”
EMBASSY OF THE UNITED STATES
Það voru reyndir menn sem stigu
á stóra svið Þjóðleikhússins á
fimmtudagskvöldið og frumsýndu
leikritið Listaverkið fyrir fullum
sal. Salurinn veltist um af hlátri á
meðan Baltasar Kormákur, Hilm-
ir Snær Guðnason og Ingvar E.
Sigurðsson veltum vöngum yfir
skjannahvítu listaverki.
Meðal frumsýningargesta var
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir,
fyrrverandi ráðherra, sem var í
fylgd með föður sínum Gunn-
ari Eyjólfssyni leikara. Einnig
mátti sjá leikarana Ólaf Egils-
son og Unni Ösp Stefánsdóttur.
Tinna Gunnlaugsdóttir þjóðleik-
hússtjóri var vitaskuld í salnum,
sem og lögfræðingurinn Sveinn
Andri Sveinsson.
SÖNGVARINN Kristján Jóhannsson
mætti reffilegur ásamt eiginkonu
sinni, Sigurjónu Sverrisdóttur.
BROSMILD Árni Tryggvason leikari lét
sig ekki vanta og er hann hér með
Hrafnhildi Ingólfsdóttur.
FYLGDUST MEÐ SYNINUM Þau Baltasar
og Kristjana Samper fylgdust með syni
sínum, Baltasar Kormáki, á sviðinu.
STOLT AF PABBA Lilja Pálmadóttir, eiginkona Baltasars Kormáks, sat í salnum
ásamt börnum sínum.
Rauða dreglinum var rúllað
út í Háskólabíói á fimmtu-
dagskvöldið þegar kvik-
myndin Eldfjall var frum-
sýnd. Myndarinnar hefur
verið beðið með eftirvænt-
ingu en hún er sú fyrsta í
fullri lengd eftir leikstjór-
ann Rúnar Rúnarsson.
Vitaskuld var þar að finna Mar-
gréti Helgu Jóhannsdóttur og
Theodór Júlíusson aðalleikara
myndarinnar sem klæddust
svörtu og hvítu í tilefni dags-
ins. Eftir sýninguna var ferð-
inni heitið á Kex Hostel þar
sem gleðin tók völdin
og gestirnir skáluðu
fyrir aðstandendum
myndarinnar. Þar
mátti sjá þau Þor-
stein Bachmann og
Elmu Lísu Gunnars-
dóttir, en þau leika
systkini í mynd-
inni. Einnig mátti
þar sjá Þóri Snæ Sigurjónsson en
hann er einn af framleiðendum
Eldfjalls, ásamt kærustu sinni
Elsu Maríu Blöndal. Sigríð-
ur Thorlacius söngkona var á
Kexi og þar var einnig Mar-
grét Maack, sjónvarps-
kona úr Kastljós-
inu.
ELDFJALLIÐ FRUMSÝNT
SVART OG HVÍTT ÞEMA Aðstandendur myndarinnar, frá vinstri Þórir Snær Sigurjónsson, Margrét Helga Jóhannsdóttir, Theodór
Júlíusson, Þorsteinn Bachmann, Rúnar Rúnarsson og Skúli Malmquist. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
STÆRÐAR-
MUNUR Sindri
Kjartansson
og Jón Gnarr
borgarstjóri
fengu sér
popp.
MÆÐGIN Theodór Júlíusson leikari
mætti með stoltri móður sinni.
FLOTTIR Benedikt Erlingsson og Ragnar
Bragason stilltu sér upp.
HLÆJANDI Ómar Ragnarsson mætti
ásamt Helgu Jóhannsdóttur.
Hlátrasköllin ómuðu
Lagið We Are the Champions
með bresku hljómsveitinni Queen
er mest grípandi lag allra tíma.
Þetta kemur fram í nýrri rann-
sókn sem var framkvæmd við
Goldsmith-háskólann. Þar rann-
sökuðu vísindamenn hvað það er
sem gerir lög grípandi og settu
í framhaldinu saman lista yfir
tíu mest grípandi lög allra tíma.
Við rannsóknina fylgdust þeir
náið með þúsundum sjálfboða-
liða syngja valin lög. Á eftir We
Are the Champions í rannsókn-
inni komu lög á borð við Y.M.C.A.
með Village People, Fat Lip með
Sum 41 og The Final Countdown
með Europe.
Queen trónir
á toppnum
MEST GRÍPANDI
Freddie Mercury
söng mest grípandi
lag allra tíma.
5 MÁNUÐIR eru síðan söngkonan LeAnn Rimes giftist leikaranum Eddie Cibrian en hún vill strax fara að eignast börn með kappanum. Hann á tvö
börn frá fyrra hjónabandi og hafa þau víst heillað Rimes upp úr skónum.