Fréttablaðið - 14.12.2011, Síða 24
Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf.
www.mistyskor.is
Uppháir herrakuldaskór úr leðri og fóðraðir með lambsgæru.
Teg: 53802 - litur: brúnt - stærðir: 40 - 47 - Verð: 24.775.-
Nú er farið að kólna
og allra veðra von.
Sími 551 2070
Opið mán.-fös. 10-18.
Opið á laugard. 10-14.
Ertu komin með eintak?
Bókun á skrifstofu í síma
562 1000 eða á www.utivist.is
Ferðaáætlun Útivistar kemur út í dag
Framhaldslíf Óslóarjólatrésins Félag trérenni-
smiða á Íslandi sýnir í Ráðhúsi Reykjavíkur hluti
sem unnir eru úr bol Óslóartrésins frá því í fyrra.
„Það er mikill heiður að vera
beðin, því hingað til hafa þetta
verið okkar bestu hönnuðir sem
hannað hafa óróann,“ segir Ingi-
björg Hanna Bjarnadóttir vöru-
hönnuður, sem hannaði jólaóróa
Styrktarfélags lamaðra og fatl-
aðra í ár. Ingibjörg Haraldsdóttir
skáld samdi ljóðið.
Þær stöllur fengu frjálsar hend-
ur um hvern úr jólasveinafjöl-
skyldunni þær tækju fyrir og varð
Leppalúði fyrir valinu.
„Við vorum alveg sammála um
það,“ segir Ingibjörg Hanna. „Það
hefur lítið verið skrifað um Leppa-
lúða, sem kom okkur á óvart því
hann er jú eiginmaður Grýlu og
pabbi jólasveinanna. Ég hef auð-
vitað mínar skoðanir á því hvernig
hann lítur út og hvers konar kar-
akter hann er.
Ég talaði við fólk í kringum
mig og spurði hvernig það upp-
lifði Leppalúða og það var merki-
lega samhljóma mínum skoðunum:
Leppalúði er svolítið ræfilsegur
og horaður, með rytjulegar tjásur
kringum skallann og hökutopp og
lifir í skugganum af Grýlu og jóla-
sveinunum.“
„Hann Leppalúði þótti nokkuð
baldinn.
Í bernsku var hann ódæll
og átti enga vini.
Af þessu varð hann vansæll
og vildi hefna sín.“
Svona hljóma fyrstu línurnar í
ljóði Ingibjargar Haraldsdóttur
um Leppalúða og tók Ingibjörg
Hanna mið af því við hönnun óró-
ans.
„Ég vildi ná því fram að einu sinni
hefði Leppalúði verið sterkari kar-
akter, sem leyndist enn innra með
honum. Tunglsljósið lýsir því upp
helminginn af andlitinu og þar er
hann ungur með neista í augum
en gamall í skugganum,“ útskýr-
ir Ingibjörg og þvertekur fyrir að
óróinn hennar eigi sér einhverja
ákveðna fyrirmynd.
„Ég heyrði reyndar út undan
mér að sumum þætti hann líkjast
ákveðnum ráðherra en það var alls
ekki ætlunin,“ segir hún hlæjandi.
Óróarnir eru íslensk fram-
leiðsla, smíðaðir af Geislatækni í
Garðabæ, og sér starfsfólk vinnu-
stofunnar Áss um pökkun. Allur
ágóði af sölu jólaóróans rennur
til starfa í þágu fatlaðra barna og
ungmenna og er hægt að forvitn-
ast nánar um óróana á vefsíðunni
www.jolaoroinn.is.
„Við fengum að skoða aðstöðuna
hjá Styrktarfélagi lamaðra og fatl-
aðra og fannst ótrúlega gaman að
sjá hvað þessir peningar nýtast
vel. Það var virkilega gaman að
fá að taka þátt í þessu verkefni.“
segir Ingibjörg Hanna.
heida@frettabladid.is
Leppalúði hafði neista
Árlega fær Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra íslenskan hönnuð og íslenskt ljóðskáld til að búa til óróa
og ljóð um einhvern meðlim jólasveinafjölskyldunnar. Ágóðinn rennur til starfsemi félagsins.
Leppalúði Ingibjargar Hönnu.
Ingibjörg Hanna Bjarnadóttir vöruhönnuður hannaði jólaóróa Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra í ár. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
FRÉTTIR VIÐSKIPTI SPORT UMRÆÐAN LÍFIÐ SJÓNVARP
TAKTU VÍSI
Á HVERJUM
MORGNI!