Fréttablaðið - 24.12.2011, Blaðsíða 34
24. desember 2011 LAUGARDAGUR26
24 tíma vakt
Sími 551 3485
Davíð H. Ósvaldsson S: 896 8284 Óli Pétur Friðþjófsson S: 892 8947
ÞEKKING–REYNSLA–ALÚÐ
ÚTFA
RARÞJÓNUSTA
Vaktsími:
581 3300 & 896 8242
www.utforin.is
Allan sólarhringinn
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Sverrir Einarsson Kristín Ingólfsdóttir Hermann Jónasson
Símar: 565 5892 & 896 8242
ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR
Móðir mín, amma og langamma,
Anna Anita Valtýsdóttir
Lindargötu 57, áður Hverfisgötu 112,
Reykjavík,
lést laugardaginn 3. desember, Landspítalanum
Fossvogi. Útförin fór fram í kyrrþey að hennar ósk.
Rósý Karlsdóttir
Ásta Harðardóttir Óskar Eiðsson
Guðfinnur Harðarson Guðný Birgisdóttir
Anita Harðardóttir
barnabarnabörn
Hjartans þakkir færum við þeim sem
sýndu okkur samúð og hlýhug
við andlát og útför föður okkar,
tengdaföður, afa og langafa,
Jóns Aðalsteins
Jónassonar
Hjúkrunarheimilinu Hrafnistu
í Reykjavík, áður til heimilis að
Sléttuvegi 21, Reykjavík,
og heiðruðu minningu hans á margvíslegan hátt.
Sérstakar þakkir fær starfsfólk 3. hæðar G á Hrafnistu
í Reykjavík fyrir einstaka umhyggju og hlýju.
Sveinn Grétar Jónsson Hanna Kristín Guðmundsdóttir
Jónas R. Jónsson Helga Benediktsdóttir
Margrét R. Jónasardóttir
Jón Aðalsteinn Sveinsson Guðrún Elísabet Ómarsdóttir
Ásta Sigríður Sveinsdóttir Sigurður Karl Guðgeirsson
og barnabarnabörn.
Bergþóra Sigfúsdóttir
er látin, útför auglýst síðar.
Sigfús Grétarsson.
Elskuleg systir mín, mágkona
og frænka okkar,
Anna Steinunn
Sigurðardóttir
Drápuhlíð 39,
lést á hjúkrunardeild Hrafnistu í Reykjavík
22. desember.
Flosi Hrafn Sigurðsson Hulda Sigfúsdóttir
Ágústa Lyons Flosadóttir John Lyons
Sigurður Flosason Vilborg Anna Björnsdóttir
og aðrir aðstandendur
Elskulegur faðir, tengdafaðir, afi, sonur,
bróðir og mágur,
Björn Sölvi Sigurjónsson
Frumskógum 1b, Hveragerði,
sem lést á Landspítalanum Hringbraut fimmtudaginn
22. desember, verður jarðsunginn frá Digraneskirkju
fimmtudaginn 29. desember kl. 11.00.
Margrét Björnsdóttir Guðmundur Hallgrímsson
og dætur
Guðlaug J.A. Einarsdóttir
Björgvin Sigurjónsson Sædís Magnúsdóttir.
timamot@frettabladid.is
Merkisatburðir
1613 Fimmtíu manns frá Siglunesi við Siglufjörð fórust í snjó-
flóði á leið til kirkju.
1624 Póstþjónusta var stofnuð í Danmörku af Kristjáni 4. Hún
var fyrst til húsa í dönsku kauphöllinni.
1934 Ríkisútvarpið hóf lestur jólakveðja og hefur hann verið
fastur liður á hverju ári síðan.
1951 Líbía lýsti yfir sjálfstæði.
Það var jólalegt í strætisvagni nr. 19
einn nýliðinn morgun þegar hópur ung-
linga úr Árbænum var á leið á Barna-
spítala Hringsins. Þar voru á ferðinni
fulltrúar frá félagsmiðstöðinni Tíunni
og hver og einn var með fangið fullt af
jólagjöfum til að færa leikstofu spítal-
ans. Þeir höfðu, ásamt fjölmörgum
öðrum krökkum, safnað fyrir gjöf-
unum í góðgerðaviku sem efnt var til
í Tíunni. „Unglingarnir vildu láta gott
af sér leiða. Þeir undirbjuggu og skipu-
lögðu þessa viku og skorti hvorki metn-
að né áhuga til að gera hlutina eins vel
og mögulegt var,“ segir Bjarni Þórðar-
son, verkefnastjóri Tíunnar.
Tían er félagsmiðstöð fyrir aldurinn
10-16 ára og er við hlið Árbæjar skóla.
Tveir stærstu viðburðir góðgerða-
vikunnar þar voru jólabingó og
góðgerða ball. Mörg fyrirtæki gáfu vinn-
inga í bingóið og var aðalvinningurinn
utanlandsferð með Iceland Express.
Einnig gáfu margir listamenn vinnu
sína á ballinu og má nefna Jón Jónsson,
Friðrik Dór, Steinda Jr. og Bent. Alls
söfnuðust 150.000 krónur sem runnu
óskertar í jólagjafakaupin. „Jólaandinn
kom yfir unglingana. Þeir sáu um þessa
viðburði frá A til Ö, tóku fulla ábyrgð og
fylgdu hlutunum eftir. Við starfsfólkið
vorum bara leiðbeinendur, eins og við
eigum að vera.“ segir Bjarni.
Á Barnaspítalann koma börn allt
upp að 18 ára aldri. Bjarni segir starfs-
fólk deildarinnar hafa stungið upp á að
keyptir væru hlutir sem hentuðu sem
afþreying fyrir unglingaaldurinn, enda
gefendurnir sérfræðingar í þeim. Ung-
lingarnir útbjuggu lista, Bjarni fór í
búðir og keypti það sem á listanum var
og þeir pökkuðu inn. „Þar sem Play-
station 2 tölva er inni á öllum stofum
spítalans keyptum við Playstation-leiki,
og svo líka DVD-myndir, spil, púsl og
fleira,“ lýsir Bjarni.
Bjarni segir góðgerðavikuna hafa
verið upplifun fyrir unglinga og aðra
í Árbæjarhverfinu. „Ballið sem krakk-
arnir héldu var vinaball, þannig að þeir
máttu taka með sér vin á það, óháð því
hvort hann var úr hverfinu eða ekki.
Bingóið var opið fyrir alla og þangað
komu foreldrar og fleiri, þannig hafði
það samfélagslegt gildi,“ segir Bjarni.
Hann endar spjallið á að senda þeim
jólakveðjur og þakkir sem gáfu til góð-
gerðavikunnar og einnig þeim ungling-
um og íbúum Árbæjarhverfis sem tóku
þátt. gun@frettabladid.is
UNGLINGARNIR Í ÁRBÆNUM: GÁFU BARNADEILD HRINGSINS GJAFIR
Fylltust sönnum jólaanda
og vildu láta gott af sér leiða
ÞAU MÆTTU Á BARNADEILDINA FYRIR HÖND TÍUNNAR Efri röð: Sunneva Líf Lorange, Sandra María Kjartansdóttir, Auður Arna Sigurðardóttir,
Una Birna Haukdal, Margrét Sæmundsdóttir, Hringur. Neðri röð: Guðrún Friðriksdóttir, Kristín Líf Abigail, Brynja Sigurðardóttir.
Sálmurinn Heims um ból var fluttur í
fyrsta sinn í bænum Oberndorf, í nágrenni
Salzburg, á aðfangadagskvöld árið 1818.
Þá hefur líklega fáa grunað að á næstu
200 árum myndi hann hljóma um jólahá-
tíðina um allan heim.
Textann við Heims um ból samdi
Joseph Mohr árið 1816. Hann var þá prest-
ur í Mariapfarr, afskekktu þorpi í Austur-
ríki. Mohr varð síðan aðstoðar prestur í
Oberndorf og að morgni aðfangadags
árið 1818 á hann að hafa komið að máli
við Franz Gruber, sem var tónlistarkennari
á staðnum, og beðið hann að semja lag
við textann, fyrir tvo einsöngvara, kór og
gítar. Hvort tveggja var svo flutt við messu
í Nikulásarkirkjunni um kvöldið.
Íslenska þýðingin á þessum frægasta
jólasálmi alla tíma er eftir Sveinbjörn
Egilsson.
ÞETTA GERÐIST: 24. DESEMBER 1818
Frægasti jólasálmurinn frumfluttur
VALBORG BENTSDÓTTIR skrifstofustjóri (1911-1991) var fædd þennan dag.
„Ég gekk á vit þess draums sem fjarlægðin gerði fagran.“