Fréttablaðið - 24.12.2011, Blaðsíða 42
24. desember 2011 LAUGARDAGUR34
folk@frettabladid.is
Kvennadeild Rauða krossins í Reykjavík sendir sjálfboðaliðum bestu óskir um gleðileg jól
og farsælt komandi ár og þakkar þeim vel unnin störf í þágu deildarinnar.
Sjónvarpskokkarnir hafa galdrað fram snilldarmáltíðir á skjánum í ár og
gefið áhorfendum uppskriftir að listaverkum fyrir bragðlaukana. Frétta-
blaðið forvitnaðist um hvernig þeir útfæra mesta matarkvöld ársins.
Sjónvarpskokkarnir
galdra fram jólin
FER ÚT AÐ BORÐA
Sveinn Kjartansson
„Ég hef farið út að borða á aðfangadag
undanfarin ár,“ segir Sveinn Kjartansson,
matreiðslumeistari og eigandi Fylgifiska.
Í ár fer Sveinn á Vox, þar sem boðið er
upp á sérstakan jólamatseðil. „Hann var
alltaf eini staðurinn sem var opinn en nú
eru þeir reyndar orðnir fleiri.“ Sveinn segist
hafa prófað að bjóða fólki heim og elda
fyrir það. „En ég var byrjaður að reyna að
geispa fólkinu út klukkan níu.“ Fyrir forvitna
má geta þess að á matseðli Vox er meðal
annars reykt ýsa og humar í forrétt,
steikt andarbrjóst í aðalrétt og
ris à l´amande í eftirrétt.
STÝRIR BRÚNUÐU
KARTÖFLUNUM
Friðrika Hjördís Geirsdóttir
„Við erum með hamborgarhrygg sem bróðir minn sér
um að reykja,“ segir Friðrika Hjördís Geirsdóttir, Rikka.
Þótt Rikka stjórni eldhúsinu á aðfangadag hjálpast
fjölskyldan öll að, pabbi sjónvarpskokksins sér um
að skræla kartöflurnar og mamma hennar, sem þykir
reyndar listakokkur sjálf, býr til ísinn. Rikka reiknar
reyndar með að hún sjái um þá deild í ár. Rikka hefur
hins vegar mestu skoðunina á brúnuðu kartöfl-
unum sem hún hefur náð miklum meistaratökum
á. „Ég vil ekki sjá forsoðnar kartöflur og það á að
sjóða þær með hýðinu. Og svo set ég smá salt í
karamelluna,“ segir Rikka en boðið verður upp á
sjávarbombu í forrétt. „Þetta er brauðréttur sem
er ákaflega fallega skreyttur.“
KALKÚNN FYRIR ALLA
Rósa Guðbjartsdóttir
„Uppáhaldið mitt eru veislur
þannig að jólin eru í miklu
eftirlæti,“ segir Rósa Guð-
bjartsdóttir. Hún sér um
eldamennskuna fyrir fjöl-
skylduna á aðfangadag þar
sem foreldrar þeirra hjóna
snæða með þeim. „Ég hef
verið með kalkún í fimmtán
ár og það ríkir yfirleitt mikil
eftirvænting eftir honum,“
segir Rósa sem hefur þróað
sérstaka fyllingu sem nýtur
alltaf mikilla vinsælda. „Ég
læt síðan kalkúninn liggja
í pækli í tvo daga, það
er alveg ómissandi að
hafa kalkúninn og ég
dunda mér lengi við
hann.“ Í forrétt ætlar
Rósa að bjóða upp
á einhvers konar
útfærslu af reyktum
laxi en í eftirrétt
hefur verið lögð
mikil pressa á hana
að bjóða upp á
súkkulaðifreist-
inguna svokölluðu.
„Ætli við verðum
þá ekki með tvo,
súkkulaðifreistingu
og heimagerðan ís frá
ömmu.“
HEFÐBUNDIÐ OG EINFALT
Jói Fel
„Við erum alltaf með hamborgarhrygg sem er eldaður á hefðbundinn
hátt. Við reynum að viðhalda gömlum hefðum og halda í jólin enda með
fjögur börn,“ segir Jói Fel. „Krakkarnir vilja hamborgarhrygg þannig að
við hjónin fáum okkur bara rjúpu á annan í jólum,“ bætir Jói við.
Að sjálfsögðu er þó mikið lagt í máltíðina, sósan gerð alveg
frá grunni og heimagerða rauðkálið verður að vera á sínum
stað. Jói hefur engan forrétt á aðfangadag, stjórnar aðal-
réttinum frá a til ö og svo er það frúin sem á heiðurinn af
eftir réttinum. „Við höfum verið saman í fjórtán ár og höfum
alltaf haft sömu eplakökuna sem hún býr til. Ég viðurkenni
að mér fannst þetta ekki besta kakan til að byrja með en
hún er alveg ómissandi núna.“
ELDA SAMAN FYRIR FORELDRANA
Hrefna Rósa Sætran
„Við verðum með hreindýr,“ segir Hrefna Rósa
Sætran en hún ætlar ásamt kærasta sínum,
Birni Árnasyni, að sjá um matreiðsluna á
aðfangadag þar sem gestirnir verða for-
eldrar þeirra beggja. Hrefna segist reyndar
fá mikið af spurningum á aðfangadag um
hvernig fólk eigi að bera sig að við mat-
reiðsluna og segist svara þeim eftir bestu
getu. Og sjónvarpskokkurinn hlakkar mikið
til eldamennskunnar á aðfangadag því þau
ætla að leggja allt í sölurnar til að gera
veisluna sem besta úr garði. „Við ætlum
bara að vera að elda allan daginn. Björn
tekur þetta mjög alvarlega og vill gera
allt frá grunni og það má ekki minn-
ast á neitt svindl, við verðum með
okkar eigið soð og alvöru sósu.“
Í forrétt verður boðið upp á
humarsúpu og í eftirrétt verður
svo sjerrí-ísinn.
15.417 YOUTUBE-NOTENDUR höfðu horft á skopstælingu af for-síðumyndatöku The Charlies fyrir Monitor minna en sólarhring eftir að
myndbandið var birt.
Hollenska tískutímaritið Jackie birti
nýverið grein undir fyrirsögninni De
Niggabitch, þar sem lesendum var
sýnt hvernig hægt væri að klæða sig
eins og Rihanna. Fyrirsögnin og inni-
hald greinarinnar vöktu mikla undr-
un og reiði enda þótti hún niðrandi.
Í greininni stendur meðal annars
að Rihanna sé hin fullkomna „nigga-
bitch“ og sé óhrædd við að sýna það.
Orðavalið vakti mikla reiði og stuttu
eftir útgáfu greinarinnar birti rit-
stjórinn afsökunarbeðni. Rihönnu
fannst hún þó ekki duga til og las rit-
stjóranum Evu Hoeke pistilinn með
aðstoð Twitter-samskiptaforritsins.
„Ég vona að þú getir lesið ensku því
tímarit þitt er ekki í takt við þær
framfarir sem hafa átt sér stað í
mannréttindabaráttunni. Mér finnst
þú dónaleg og lágkúruleg. Þessi
tvö orð hafa enga þýðingu, hvað
er „niggabitch“? Fyrir hönd kyn-
stofns míns rita ég þessi tvö orð þér
handa: Éttu skít!“ skrifaði söngkona á
Twitter-síðu Hoeke.
Las ritstjóranum pistilinn
REIÐ Rihanna er bálreið út í ritstjóra hollenska tískutímaritsins Jackie og las
henni pistilinn í gegnum Twitter. NORDICPHOTOS/GETTY
Adam Lambert Idol-stjarna var
handtekinn fyrir utan skemmti-
stað í Helskinki á þriðjudaginn
var. Lambert var undir áhrifum
áfengis og hafði veist að kærasta
sínum.
Lambert er staddur í Finn-
landi ásamt kærasta sínum, Sauli
Koskinen, sem er finnskur, og
ætla þeir að eyða jólunum þar
ásamt fjölskyldu Koskinens. Þeir
höfðu farið út að skemmta sér á
þriðjudaginn þegar ósætti varð
og réðst Lambert í kjölfarið á
Koskinen. Dyraverðir skemmti-
staðarins skárust í leikinn og
hringdu eftir aðstoð
lögreglu, sem
mætti á svæðið og
handtók Lambert.
Koskinen skrifaði
daginn á eftir á
bloggsíðu sína að
þeir væru orðnir
sáttir á ný og hlökk-
uðu til jólanna.
Idol-stjarna
handtekin
HAND-
TEKINN Adam
Lambert var
handtekinn
í Helsinki á
þriðjudaginn
fyrir að ráðast
á kærasta sinn.
NORDIC PHOTOS/
GETTY
Adele er byrjuð í raddþjálfun
eftir að hafa gengist undir aðgerð
á raddböndunum í síðasta mán-
uði. Söngkonan
ætlar einn-
ig að sleppa
því að drekka
um jólin til að
vernda röddina.
Fyrri helming-
ur næsta árs
verður róleg-
ur hjá henni,
enda þarf hún
að jafna sig
á aðgerðinni.
Engir tónleikar
eru fyrirhugað-
ir, engir sjónvarpsþættir, blaða-
viðtöl eða neitt annað. Auk þess
að vernda röddina mun Adele
vera ánægð með að geta loksins
tekið sér frí frá sviðsljósinu eftir
annasöm síðustu ár.
Adele fer í
raddþjálfun
AÐ JAFNA SIG
Adele er á batavegi
eftir aðgerð á
raddböndunum í
síðasta mánuði.