Fréttablaðið - 24.12.2011, Blaðsíða 25

Fréttablaðið - 24.12.2011, Blaðsíða 25
Sölufulltrúar: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Brynja Dan Gunnarsdóttir brynjadan@365.is 512 5465 Snorri Snorrason snorris@365.is 512 5457 E in fegursta og hjartnæm- asta kveðja ársins verð- ur flutt í útvarpi allra landsmanna klukkan sex í kvöld. Hún fylgir í kjölfar fagn- andi hljóms jólaklukkna og er svohljóðandi: Útvarp Reykjavík. Gleðileg jól. „Ég verð ekki beinlínis við- kvæm á þessari stóru stund, enda óheppilegt að láta tilfinningarn- ar bera sig ofurliði. Ég finn hins vegar vel fyrir hátíðleika jólanna og mikilvægi hlutverks míns,“ segir Anna Sigríður, sem í kvöld sest í þriðja sinn við hljóðnemann á gömlu gufunni til að tilkynna Íslendingum nær og fjær, til sjáv- ar og til sveita, að jólin séu komin með sínum himneska herskara og hátíð í bæ. „Fimmtán mínútum fyrir jól þagnar útsending Ríkisútvarps- ins og sú þögn er mörgum mik- ils virði. Síðan hefst stígandi klukknahljómur og á sekúndunni sex fer ég með sömu kveðjuna og sögð hefur verið í áratugi. Allt er þetta dýrmætur hluti af hefðum jólanna, eins og aftansöngurinn sem ætíð er sendur beint úr Dóm- kirkjunni,“ segir Anna Sigríður og hlakkar til vaktarinnar í dag. „Ég læt hugann hvarfla um allt land, og ekki síst inn í sveitir, dali og þangað sem afskekkt er, því sjálf er ég úr litlu þorpi vestur á Fjörðum. Hugurinn streymir því gjarnan heim í gamla þorp- ið mitt,“ segir Anna Sigríður og er hvergi hrædd um fótaskort á tungunni þegar hún færir birtu og gleði í hvert einasta kot með vissu um að jólin séu loks komin. „Ég hef aldrei verið hrædd um að fipast. Ég gæti þess að róa hugann, fá yfir mig jólaskapið og hvíla í því, og vona að það skili sér til hlustenda. Þá er mikill styrkur að tæknimanninum sem bakkar upp þulinn og losar um stressið.“ Önnu Sigríði er starfið ljúf skylda þegar jólin ganga í garð. „Í útvarpshúsinu ríkir hátíðlegt and- rúmsloft og vel hugsað um okkur í hvívetna. Á boðstólum eru ávext- ir, sætar kökur og sælgæti eins og hver getur í sig látið, og hlaðborð af fínasta jólamat. Ég hverf svo í faðm eiginmannsins sem bíður mín heima að vakt lokinni og þá höldum við okkar jól,“ segir Anna Sigríður. En fylgir sérstök tilfinning því að vera sá boðberi sem kemur af stað bylgju kærleika og óska um gleðileg jól um hvert byggt ból? „Ég reyni að velta mér ekki um of upp úr áhrifum kveðjunnar. Mestu skiptir að bera virðingu fyrir hlutverki mínu og hlust- endum. Ég er bara boðberi heil- agra jóla og finnst það reglulega ánægjulegt.“ thordis@frettabladid.is Anna Sigríður Einarsdóttir, útvarpsþulur á Rás 1, tilkynnir landsmönnum að jólin séu komin klukkan sex. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Boðberi heilagra jóla Hjálparsími Rauða krossins 1717 er opinn allan sólar- hringinn yfir hátíðarnar líkt og alla aðra daga ársins. Þar veita þjálfaðir sjálfboðaliðar stuðning vegna þunglyndis, kvíða, fjármálavandræða, vanlíðunar og einsemdar. Þá eru veittar upplýsingar um samfélagsleg úrræði eins og matar- úthlutanir og opnunartíma ýmissa athvarfa. UM HVE RFISMERKI Prentgripur 141 825 Suðurhraun 1 Garðabæ Sími: 59 50 300 www.isafold.is við prentum TÍMARIT o.fl. o.fl. sögur uppskriftir leikirgjafir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.