Fréttablaðið - 24.12.2011, Blaðsíða 38
24. desember 2011 LAUGARDAGUR30
BAKÞANKAR
Davíðs Þórs
Jónssonar
STEINI
PÉSI
&GAUR Á TROMMU
Laugardagur 07.01.2012 22:30
Föstudagur 13.01.2012 22:30
Föstudagur 27.01.2012 22:30
Miðasala á gamlabio.i
s
og midi.is. Símanúmer
í
miðasölu 563 4000.
Opið mán.-mið. 14:00
-18:00
og fim.-sun. 14:00-20:
00.
MIÐAR Á
2012 SÝNINGAR
KOMNIR Í SÖLU!
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
krossgáta
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
Hann er kallaður
Vit grannur...
Hæ, Emilía? Í
hverju ætlarðu
að vera í kvöld? Æææ,
veit það
ekki
elskan.
Ég var að spá í að
djassa þetta aðeins
upp en það er svosem
ekkert tilefni.
Ciao
bella!
Nei, eigum við ekki
bara að hafa þetta
hversdagslegt og
skvetta rólega í
okkur á öldur-
húsinu?
Hvers-
dagslegt
skal það
vera!
Sjáumst á
pöbbnum
elskan!
GAUR! Ég frétti að þið
Sara væruð
hætt
saman!
Já, ég...
bíddu,
hvernig
veistu það?
Sara hringdi í Dísu
og hún sendi SMS á
Pierce og hann póstaði
þessu á Facebook.
Fólk virðist telja að þú
sért frekar sleginn yfir
þessu.
Satt?
Ég veit ekki
enn hvernig
mér líður.
Þetta gerðist
bara fyrir tíu
mínútum.
Nú er tími
háhraðanets og til-
finningar mínar eru
á ISDN-hraða.
Pabbi, þú
gleymdir
að taka
innkaupa-
kerru!
Ég er bara að
fara að kaupa
nokkrar
ljósaperur,
af hverju
þurfum við
kerru?
Ó.
LÁRÉTT
2. varsla, 6. í röð, 8. spor, 9. draup,
11. ekki heldur, 12. frétt, 14. skran,
16. hvað, 17. gerast, 18. skörp brún,
20. tveir, 21. göngulag.
LÓÐRÉTT
1. helminguð, 3. frá, 4. máski, 5.
viður, 7. at, 10. ílát, 13. eldsneyti, 15.
stefna, 16. vopnað lið, 19. tveir eins.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. vakt, 6. áb, 8. far, 9. lak,
11. né, 12. fregn, 14. drasl, 16. ha, 17.
ske, 18. egg, 20. ii, 21. rigs.
LÓÐRÉTT: 1. hálf, 3. af, 4. kannski,
5. tré, 7. bardagi, 10. ker, 13. gas, 15.
leið, 16. her, 19. gg.
Sennilega hefur engin flökkusaga farið eins víða og sagan af fæðingu Jesú. Jóla-
guðspjallið er löngu orðið snar þáttur af
íslenskum jólum og þar af leiðandi menn-
ingu okkar. Aftansöngurinn í útvarpinu er
ómissandi í jólahaldi margra heimila og
skólar setja gjarnan upp helgileiki þar sem
fyrsta setningin er oftar en ekki: „En það
bar til um þessar mundir að boð kom frá
Ágústusi keisara að skrásetja skyldi alla
heimsbyggðina.“ Þegar þessi setning hljóm-
ar í útvarpinu á aðfangadagskvöld þýðir hún
í raun: „Jólin eru komin.“
SUMUM finnst það varpa rýrð á þessa
frásögn að engar heimildir utan Nýja
testamentisins skuli greina frá því að
boð af þessu tagi hafi komið frá Ágústusi
keisara um þessar mundir. Reyndar má
stórefa að hin sögulega persóna, Jesús
frá Nasaret, hafi í raun fæðst í Betlehem
í Júdeu. Staðsetningin þjónar líklega
fyrst og fremst þeim tilgangi að
sýna að í Jesú hafi ræst messí-
asarspádómur Míka (5.1).
En messías Míka var hinn
hefðbundni messías klass-
ísks gyðingdóms; verald-
legur konungur. Míka hafði
ógeð á „stjórnmálastétt“ síns
tíma. Þess vegna þurfti for-
ingja sem var ómengaður
af spillingu hirðarinnar í
Jerúsalem, nýjan gullaldarleiðtoga, nýjan
Davíð konung. Messíasinn skyldi því koma
frá borg Davíðs – ekki Jerúsalem. Betlehem
táknaði ferska vinda, „nýtt blóð“.
VEGNA þess hve sagnfræðilegum áreiðan-
leika jólaguðspjallsins virðist vera áfátt
hef ég heyrt fullyrt að það sé bara helgi-
saga. Í mínum huga er orðasambandið
„bara helgisaga“ aftur á móti þversögn.
Eins mætti kalla alla sögu, listir og menn-
ingu mannkynsins „bara alla sögu, listir
og menningu mannkynsins“, bróðurþel og
náunga kærleika „bara bróðurþel og náunga-
kærleika“ og sjálfan tilgang lífsins „bara
sjálfan tilgang lífsins“.
HELGISAGA miðlar ekki þurrum sagn-
fræðilegum staðreyndum á borð við ártöl,
dagsetningar og staðsetningar, heldur er
hún táknræn og þrungin trúarlegri merk-
ingu. Jólaguðspjallið geymir þannig eilífan,
andlegan sannleika, en ekki sagnfræði legan
raunveruleika. Þrír vitringar, fulltrúar
mannlegrar visku og þekkingar úr öllum
heimshornum (þau voru þrjú í Ísrael til
forna) leggja heiminn að fótum frelsarans
í formi gjafa. Guð sendir þeim lægst settu í
samfélaginu þessi skilaboð: „Verið óhrædd-
ir.“ Frelsari er fæddur. Vonin er komin í
heiminn. Lífið hefur tilgang. Guð elskar þig.
GLEÐILEG JÓL.
„Bara helgisaga“