Fréttablaðið - 28.12.2011, Síða 2
28. desember 2011 MIÐVIKUDAGUR2
SLYS „Ég skrúfa frá gasinu og þá
skyndilega leggur eldsúlu upp úr
gashellunni sem læsist í glugga-
tjöldin fyrir ofan. Ég heyri kon-
una mína strax æpa og skrúfa þá
fyrir þar sem ég átta mig á því
sem er að gerast. Þetta slapp því
í rauninni mjög vel en ég rétt
ímynda mér hvað hefði gerst ef
ég hefði verið einn þarna og ekki
áttað mig. Þá hefði þessi timbur-
bústaður bara fuðrað upp,“ segir
Hrafnkell Á. Proppé skipulags-
fræðingur, en það lá við stórslysi
þegar gashella í sumarbústað
fjölskyldu hans var nýverið næst-
um búin að kveikja í bústaðnum.
Þá segist Hrafnkell hafa heyrt
svipaðar sögur frá fólki í kring-
um sig í kjölfar slyssins.
Gashellan í sumarbústaðnum
er tengd lögn sem liggur út úr
bústaðnum og í gaskút sem er
geymdur fyrir utan. Svo virðist
sem vatn hafi komist inn í þrýsti-
minnkarann á gaskútnum, fros-
ið og skemmt þrýstiminnkarann
með þeim afleiðingum að gas-
flæði úr kútnum var mun meira
en öruggt getur talist.
Kjartan S. Guðjónsson, starfs-
maður Olís, þekkir vel til gas-
kúta- og grilla. Hann segir
sjaldgæft að þrýstiminnkarar
skemmist með þessum afleið-
ingum en brýnir þó fyrir fólki að
verja gaskúta sem eru geymdir
utandyra fyrir því að vatn komist
inn í þrýstiminnkara.
„Það sem er líklegast að hafi
gerst þarna er að gaskúturinn
hafi verið geymdur úti óvarinn,
án yfirbreiðslu. Þá hefur rignt og
snjóað á kútinn, vatn farið inn í
þrýstiminnkarann og frosið inni
í honum. Frostið hefur síðan vald-
ið skemmdum,“ segir Kjartan og
heldur áfram: „Það er hins vegar
mjög sjaldgæft að þrýstiminnkar-
ar bili á þennan hátt; yfirleitt bila
þeir þannig að það kemur einfald-
lega ekkert út úr gaskútnum.“
Kjartan segir að slysahætta
sé þó meiri þegar gaskútar séu
geymdir utandyra fyrir notkun
í heimahúsi. Það sé mjög vara-
samt og ennþá varasamara en
ef um grill utandyra væri að
ræða. Þá bendir hann á að frost-
skemmdir valdi því að skipta
þurfi um þrýstiminnkara. Skyn-
samlegra sé að verja einfald-
lega gaskútana og þurfa þá ekki
að skipta og eiga ekki á hætta að
lenda í slysum.
magnusl@frettabladid.is
15% afsláttur
Fæst án lyfseðils
N J Ó T U M Þ E S S A Ð H R E Y F A O K K U R
af öllum styrkleikum og pakkningastærðum
MENNTAMÁL Framkvæmda-
sýsla ríkisins hefur fyrir hönd
Háskóla Íslands boðið til opinnar
hönnunar-
samkeppni
um byggingu
fyrir Stofnun
Vigdísar Finn-
bogadóttur
í erlendum
tungumálum.
„Fyrir-
huguð bygg-
ing mun rísa á
horni Suður-
götu og Brynjólfsgötu og verður
um 4.000 fermetrar að stærð,“
segir á vef Ríkiskaupa. Bygg-
ingin á að hýsa starfsemi tungu-
málamiðstöðvar undir formerkj-
um UNESCO og einnig að bjóða
aðstöðu til kennslu og rannsókna
á erlendum tungum.
Gert er ráð fyrir að niður-
stöður hönnunarsamkeppninnar
verði kynntar 16. maí 2012. - óká
VIGDÍS
FINNBOGADÓTTIR
Fjögur þúsund fermetra hús:
Blásið til hönn-
unarsamkeppni
GASKÚTUR Mikilvægt er að breiða yfir gaskúta sem geymdir eru utandyra í frostinu.
Annars er hætta á að vatn smjúgi inn í þrýstiminnkarann í gaskútnum og frjósi sem
getur eyðilagt þrýstiminnkarann. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Gaskútar geta vald-
ið slysahættu í frosti
Gaskútar sem geymdir eru utandyra í frosti geta skemmst og valdið slysahættu.
Mest hætta þar sem kútar eru geymdir úti en ætlaðir til inninotkunar. Mikil-
vægt að breiða yfir kútana svo vatn komist ekki inn og valdi frostskemmdum.
STRÆTÓ Nemar í grunnskólum höfuð-
borgarsvæðisins fá nú líka strætókort.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
SAMGÖNGUR Grunnskólanemar á
höfuðborgarsvæðinu munu geta
fengið nemakort í strætó frá og
með áramótum. Kortin hafa hing-
að til aðeins verið í boði fyrir
nema á framhalds- og háskólastigi.
Í tilkynningu frá Strætó bs.
kemur fram að Umboðsmaður
barna og foreldrar grunnskóla-
nema hafi meðal annarra viljað
að kortin yrðu í boði fyrir grunn-
skólanema.
Sala á nemakortunum hófst í
gær og gilda kortin frá 1. janúar
til maíloka. - þeb
Strætókort í boði fyrir alla:
Grunnskóla-
nemar fá kort
VIÐSKIPTI Tómas Már Sigurðsson,
forstjóri Alcoa Fjarðaáls, mun
taka við sem forstjóri Alcoa í Evr-
ópu hinn 1. janúar næstkomandi.
Tómas mun
hafa aðsetur í
Genf og hafa
yfirumsjón með
álframleiðslu-
sviði Alcoa í
Evrópu. Þar með
mun hann bera
ábyrgð á rekstri
álvera Alcoa á
Íslandi, Spáni
og í Noregi auk
súrálsverksmiðju Alcoa á Spáni.
Starfsfólki Alcoa Fjarðaáls var
tilkynnt um þetta í gær en til-
kynnt verður um það síðar hver
tekur við af Tómasi Má hjá Alcoa
Fjarðaáli. - mþl
Tómas Már Sigurðsson:
Verður forstjóri
Alcoa í Evrópu
TÓMAS MÁR
SIGURÐSSON
EÞÍÓPÍA, AP Tveir sænskir blaða-
menn, þeir Johan Persson og
Martin Schibbye, voru í gær
dæmdir til ellefu ára fangavistar í
Eþíópíu fyrir stuðning við hryðju-
verkasamtök.
Þeir fóru ólöglega inn í landið
og voru handteknir fyrir sex
mánuðum í austurhluta landsins
þar sem þeir voru í fylgd með
sómölskum uppreisnarhópi.
Mannréttindasamtök hafa gagn-
rýnt handtökuna og dóminn og
segja afar erfitt fyrir blaðamenn
að afla sér frétta í landinu. - gb
Tveir Svíar í fangelsi í Eþíópíu:
Dæmdir í ellefu
ára fangavist
KÍNA, AP Kínversk stjórnvöld hafa gangsett staðsetn-
ingarnet sem gegna mun sama hlutverki og GPS-
staðsetningarkerfið. Kerfið verður opið almenningi
eins og GPS-kerfið en mun gera kínverska herinn
óháðan bandarískum gervitunglum sem hægt er að
loka fyrir.
Enn sem komið er virkar kerfið, sem kallast
Beidou, aðeins í Kína en fyrir lok næsta árs er ætl-
unin að það nái til allrar Asíu. Beidou hefur verið
í þróun frá árinu 2000 og áformað er að það nái til
heimsins alls árið 2020.
Til að svo megi verða þarf að koma miklum fjölda
gervitungla á braut um jörðu. Alls verður sex nýjum
gervitunglum skotið á loft á næsta ári.
Forsvarsmenn Beidou-kerfisins segja skekkju-
mörkin um tíu metra. Talið er víst að með aðgangi
sem kínverski herinn hefur að kerfinu sé nákvæmn-
in meiri, samkvæmt frétt BBC um málið.
Kerfið nýtist meðal annars til að miða stýriflaug-
um, og hafa sérfræðingar bent á að með því megi
gera árásir á Taívan og önnur nágrannaríki Kína.
Þá er kerfið nauðsynlegt til að nota mannlausar
flugvélar.
Kínverjar eru þriðja þjóðin sem hefur komið sér
upp tækni af þessu tagi. Auk GPS-kerfisins sem
Bandaríkin eiga rekur Rússland sitt eigið kerfi,
Glonass. Þá vinnur Evrópska geimvísindastofnunin
að þróun staðsetningarnets sem fengið hefur nafnið
Galileó. - bj
Svar Kína við GPS-kerfi Bandaríkjanna mun ná yfir alla Asíu fyrir lok árs 2012:
Opið öllum en nýtist hernum
Á BRAUT UM JÖRÐU Sex kínverskum gervitunglum verður
skotið á braut um jörðu á næsta ári. NORDICPHOTOS/GETTY
HEILBRIGÐISMÁL Reglugerð um
vöktun súna (sjúkdóma sem smit-
ast á milli manna og dýra) og
súnuvalda tók nýverið gildi, að
því er fram kemur á vef Matvæla-
stofnunar. Reglugerðin byggir á
tilskipun Evrópusambandsins.
„Með þessari reglugerð eru í
fyrsta sinn settar heildarreglur á
Íslandi um vöktun og varnir gegn
sjúkdómum sem berast á milli
manna og dýra,“ segir á vefnum.
Í reglugerðinni sjálfri segir að til-
gangur hennar sé að sjá til þess
að súnur og súnuvaldar og tengt
þol þeirra gegn sýklalyfjum sé
vaktað á réttan hátt og að tilhlýði-
leg faraldsfræðileg rannsókn fari
fram þegar upp koma sjúkdómar
sem berast með mat. - óká
Ný sjúkdómavarnareglugerð:
Gætt að súnum
og súnuvöldum
LÖGGÆSLA Ögmundur Jónasson
innanríkisráðherra segist ekki
telja þörf á því að lögreglumenn
hafi almennari aðgang að skot-
vopnum en nú er.
Í frétt blaðsins í gær var fjallað
um grein í félagsblaði lögreglu-
manna þar sem velt var upp
þeirri hugmynd að koma skot-
vopnum fyrir í læstum hirslum í
lögreglubílum.
„Auðvitað vill maður að lög-
regla sé þannig búin að lögreglu-
mönnum stafi ekki hætta af
þeim sem þeir eru að glíma við
hverju sinni,“
segir Ögmund-
ur í samtali við
Fréttablaðið.
„En almenna
viðhorfið
hvað skotvopn
áhrærir hefur
h i n s vega r
verið það að
æskilegast sé
að lögregla sé
óvopnuð. Það er sú regla sem við
viljum halda í heiðri.“
Ögmundur segir að vissulega
séu undantekningar á þessari
reglu, til dæmis sérsveit ríkislög-
reglustjóra. Einnig séu skotvopn
til staðar hjá sumum embættum
á landsbyggðinni. Þau séu helst
notuð ef aflífa þurfi dýr.
„Víkingasveitin getur gripið til
vopna ef brýna nauðsyn krefur
en mitt viðhorf er að lögreglan
eigi að vera óvopnuð og hætta sé
á að vítahringur myndist þar sem
vopn kalli á vopn. Það viðhorf
hefur líka verið ríkjandi innan
lögreglunnar sjálfrar.“
- þj
Innanríkisráðherra um hugmyndir um skotvopnaburð lögreglu:
Ekki þörf á byssum fyrir löggur
ÖGMUNDUR
JÓNASSON
Guðmundur, er nokkuð Gó fyrr
en Bó segir gó?
„Það er ekkert Bó fyrr en Gó segir
Bó.“
Guðmundur Óskar Guðmundsson
stendur fyrir tónleikunum Jólagestir Gó
á Café Rosenberg. Nafnið er tilkomið
sem grínádeila á stóru jólatónleikana,
Frostrósir og Jólagesti Bó.
SPURNING DAGSINS