Fréttablaðið - 28.12.2011, Page 4

Fréttablaðið - 28.12.2011, Page 4
28. desember 2011 MIÐVIKUDAGUR4 Í leiðara blaðsins í gær var missagt að verja ætti 25 milljörðum til vitundar- vakningar gegn kynbundnu ofbeldi. Upphæðin er 25 milljónir. LEIÐRÉTT EYÐILEGGING Sprengjuárásin á aðfanga- dag olli miklu tjóni. NORDICPHOTOS/AFP NÍGERÍA, AP Að minnsta kosti 35 létu lífið í sprengjuárás á kaþólska kirkju í Nígeríu á aðfangadag. Óttast er að fleiri árásir verði gerðar á kaþólskar kirkjur þetta árið, en á síðasta ári kostuðu árásir af þessu tagi um jólin 32 manns lífið. Þetta er því annað árið í röð sem íslamskir öfgamenn, sem vilja koma á sjaría-lögum, gera árásir á kaþólskar kirkjur í Nígeríu um jólin. „Það verður enginn friður fyrr en gengið verður að kröfum okkar,“ sagði talsmaður samtaka sem nefna sig Boko Haram. - gb 35 létust í sprengjuárás: Nígeríubúar ótt- ast fleiri árásir Bætur borgaðar 1. janúar Tryggingastofnun mun greiða út bætur hinn 1. janúar, eins og venja er, þó að daginn beri upp á sunnudag. Þetta kemur fram á síðu Trygginga- stofnunar. FÉLAGSMÁL NEYTENDUR Viðbótartekjuöflun ríkissjóðs árið 2012 mun skila 20,7 milljörðum króna, nái áætlanir fram að ganga. Sala ríkiseigna og arður af eignum ríkissjóðs á að skila 11 milljörðum, en 9,7 verða í formi skatttekna. Fréttablaðið kynnti sér hvaða breytingar skella á um áramótin. Breytingar verða á tekjuþrepum skattkerfisins og hækka mörkin á milli fyrsta og annars þreps um 9,8 prósent. Það þýðir að fleiri falla í fyrsta þrepið og hærri upphæð fellur undir það hjá þeim sem fara í hærri þrep. Mörk annars og þriðja þreps hækka einnig, en sú hækkun nemur 3,5 prósentum. Þessar breyt- ingar munu skila ríkis- sjóði 300 milljónum lægri tekjum. Þær á að vega upp með framlengingu heim- ildar til úttektar á sér- eignasparnaði, sem nemur þremur mán- uðum. Gjald af áfengi og tóbaki, bifreiðagjald, útvarpsgjald og gjald t i l Framkvæmda- sjóðs aldraðra hækk- ar um 5,1 prósent og sérstakt vörugjald af bensíni, sem og olíu- gjald, hækkar um 2,5 prósent að teknu tilliti til hækkana á kolefnis- gjaldi sem á að hækka um þriðjung. Þetta er metið til 0,2 prósenta hækkunar á vísitölu neysluverðs. Áfengis- og tóbaks- verslun ríkisins fór fram á að gjald á nef- tóbak yrði hækkað um 200 prósent, en það er nú 4,12 krónur á hvert gramm, eða hluta úr grammi. Niðurstaðan var að hækkunin nemur rúmlega 30 prósentum. Gert er ráð fyrir að það skili um 94 milljónum króna í ríkissjóð. Þá má nefna það að bifreiða- gjald hækkar, sem og vörugjöld af bensíni og olíu. Það má því gera ráð fyrir að rekstur bif- reiða verði dýrari. Hvað fyrirtæki varðar ber mest á fjársýsluskatti sem lagður verður á fjármálafyrir- tæki. Skatturinn leggst á launagreiðslur. Til stóð að hafa skattinn 10,5 pró- sent en í meðförum efna- hags- og viðskiptanefndar lækkaði hann í 5,45 pró- sent. Það var ekki síst til að mæta gagnrýni um að skatturinn þýddi að fyrir- tækin drægju úr launa- kostnaði sínum með því að segja upp fólki. Í staðinn verður lagður á skattur á hagnað fjármálastofnana umfram einn milljarð. Umhverfis- og auðlinda- skattur hækkar einnig og mun það hafa áhrif á elds- neytiskostnað fyrirtækja. kolbeinn@frettabladid.is Áfengi og tóbak verða dýrari Þrepamörk skattkerfisins breytast um áramótin og hafa áhrif á tekjuskatta. Þá hækka álögur á ýmsar neysluvörur, svo sem áfengi, tóbak, bensín og olíu. Afla á tæpra 10 milljarða króna í nýjar tekjur 2012. Umhverfis- og auðlindaskattur. Fjárhæð kolefnisgjalds á hvern lítra af gas- og dísilolíu hækkar úr 4,35 í 5,75 krónur, á hvern lítra af bensíni úr 3,80 í 5 krónur og á hvert kílógramm af brennsluolíu úr 5,35 í 7 krónur. Verður óbreytt á flugvéla- og þotueldsneyti, 5,35 krónur. Fjársýsluskattur. Leggst á allar tegundir launa eða þóknana fyrir starf, hverju nafni sem nefnist, hjá fjármálafyrirtækjum. 5,45 prósenta skattur. Við álagningu opinberra gjalda árin 2012 og 2013 skal til viðbótar við sérstakan skatt samkvæmt lögunum greiða 0,0875 prósent af skattstofni. Gjalddagi viðbótarskattsins er 1. nóvember 2012 og 2013. Fyrirtæki TEKJUR ■ Breyting á skattþrepum ■ Mörk milli fyrsta og annars þreps í tekjuskatti einstaklinga hækka úr 209.400 kr. tekjuskattsstofni á mánuði í 230.000 kr. sem jafngildir 2.760.000 kr. á ári. Hækkun um 9,8 prósent. ■ Mörk milli annars og þriðja þreps hækka úr 680.550 kr. tekjuskattsstofni á mánuði í 704.370 kr. en það eru 8.452.400 kr. á ári. Þetta er hækkun um 3,5 prósent. ■ Auðlegðarskattur. Nýtt 2 prósenta viðbótarskattþrep á eignir einstak- linga annars vegar og hjóna hins vegar yfir tiltekin mörk sem skili 1,5 milljörðum kr. á næsta ári. ■ Frádráttur iðgjalda. Heimild til frádráttar iðgjalda frá tekjuskattsstofni vegna viðbótarlífeyrissparnaðar verði 2 prósent í stað 4 prósenta næstu þrjú árin sem skili 1,4 milljörðum. NEYSLA ■ Áfengi. Hækkun krónutölu gjalds. Skilar 2,3 til 4,3 prósenta hækkun ústöluverðs. ■ Tóbak. Hækkun krónutölu gjalds. Skilar um 3,5 prósenta hækkun heild- söluverðs til smásala. ■ Neftóbak. Hækkun krónutölu gjalds. Skilar um 35 prósenta hækkun heildsöluverðs til smásala. ■ Bifreiðagjald. Bifreiðagjald ökutækja að eigin þyngd 3.500 kg eða minna hækkar úr 5.000 í 5.255 fyrir losun allt að 121 gramms af skráðri kolefnis- losun. Losun hvers gramms umfram það hækkar úr 120 krónum í 126. ■ Vörugjald af bensíni og olíu hækkar um 2,5 prósent. ■ Gjald til Framkvæmdasjóðs aldraðra hækkar um 5,1 prósent. Skilar 90 milljónum í ríkissjóð. ■ Útvarpsgjald. Hækkar úr 17.900 í 18.800 krónur á ári. Skilar 200 millj- ónum í ríkissjóð. Einstaklingar milljarðar eru við- bótar- tekjur ríkissjóðs 2012, þar af 9,7 milljarðar í formi skatt- tekna. 20,7 ÁFENGI Útsöluverð áfengis hækkar um 2,3 til 4,3 prósent um áramótin. Sterka vínið hækkar mest. REYKJAVÍKURBORG Verja á 650 milljónum króna í bygg- ingu nýrrar félagsmiðstöðvar í Spönginni í Grafar- vogi. Þar munu þjóðkirkjan og hjúkrunarheimilið Eir meðal annarra hafa aðstöðu. „Þarna verður fyrst og fremst aðstaða fyrir Korp- úlfa, sem er félagsstarf eldri borgara í Grafarvogi. Kirkjan verður þarna með kirkjusel og Eir með þjón- ustu fyrir heilabilaða,“ segir Hrólfur Jónsson, for- stöðumaður framkvæmda- og eignasviðs borgarinnar. Nýja byggingin verður einmitt tengd Eir með yfir- byggðum gangi. Áætlað er að taka húsið í notkun á árinu 2014. Hrólfur segir hugmyndina að félagsmiðstöð á þessum stað eiga rætur að rekja aftur til ársins 1996. Útfærslan hefur tekið breytingum í gegnum tíðina. Þar til í hruninu var rætt um töluvert stærri bygg- ingu sem einnig átti að hýsa Borgarbókasafnið og hverfisþjónustumiðstöðina Miðgarð. Bóksafnið verð- ur hins vegar áfram í Grafarvogskirkju og Miðgarð- ur verður í leiguhúsnæði á Gylfaflöt. - gar Fimmtán ára hugmynd að veruleika í breyttri mynd í 650 milljóna framkvæmd: Byggja félagsmiðstöð í Spönginni FÉLAGSMIÐSTÖÐ Í SPÖNG Nýja félagsmiðstöðin verður tengd við hjúkrunarheimilið Eir. MYND/THG ARKITEKTAR DANMÖRK Danski herinn hefur viðurkennt að hafa afhent írösk- um stjórnvöldum fanga í Írak. Þá hefur herinn viðurkennt að hafa tekið mun fleiri fanga í Íraksstríð- inu en áður hefur verið gefið upp. Tveir fyrrverandi varnarmála- ráðherrar dönsku stjórnarinnar, þau Gitte Lillelund Bech og Søren Gade, segjast ekkert hafa vitað um þetta. „Það er mjög alvarlegt, ef menn halda sig ekki við alþjóðalög,“ hefur danska blaðið Politiken eftir Lillelund Bech. - gb Danski herinn brotlegur: Danir afhentu Írökum fanga VEÐURSPÁ Alicante Basel Berlín Billund Frankfurt Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas London Mallorca New York Orlando Ósló París San Francisco Stokkhólmur HEIMURINN Vindhraði er í m/s. Hitastig eru í °C. Gildistími korta er um hádegi. 16° 7° 7° 6° 7° 6° 6° 6° 20° 10° 16° 9° 17° 5° 7° 13° 4°Á MORGUN Strekkingur með SV og S- strönd annars hægari. FÖSTUDAGUR Vaxandi vindur sunnan og vestan til, jafnvel stormur. 1 -1 -2 -3 -3 0 -1 -1 -3 -4 0 -1 -1 -2 -2 -3 -4 -4 -4 -6 -7 4 6 6 3 2 2 2 3 7 5 4 12 BJART OG STILLT verður fram eftir degi en svo vex vindur með éljum og snjókomu sunn- an og vestan til. Það sem eftir lifi r árs verða nokkrar sviptingar í veðrinu, það gengur lægð yfi r landið seint á föstudag með snjókomu, slyddu og jafnvel rigningu og miklum vindi. Ingibjörg Karlsdóttir veður- fréttamaður GENGIÐ 27.12.2011 GJALDMIÐLAR KAUP SALA HEIMILD: Seðlabanki Íslands 218,4696 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 122,05 122,63 190,99 191,91 159,56 160,46 21,457 21,583 20,464 20,584 17,794 17,898 1,5659 1,5751 188,12 189,24 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Einar Davíðsson einar.davidsson@365.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Steingrímsson hlynurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is ALLT SÍMI 512-5402: Jóna Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Brynja Gunnarsdóttir brynjag@365.is, Snorri Snorrason snorris@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Benedikt Jónsson benediktj@365.is, Sigríður Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Ívar Hansen ivarorn@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512- 5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigurlaug Aðalsteinsdóttir sigurlaug@365.is, Arna Kristinsdóttir arnarut@365.is, Guðný Gunnlaugsdóttir gunny@365.is, Sigrún Guðmundsdóttir sigrunh@365.is KYNNINGARSTJÓRI: Einar Skúlason einar.skulason@365.is

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.