Morgunblaðið - 24.09.2010, Qupperneq 1
F Ö S T U D A G U R 2 4. S E P T E M B E R 2 0 1 0
Stofnað 1913 223. tölublað 98. árgangur
NORÐMENN
ERU FELMTRI
SLEGNIR
FLATSKJÁIRNIR
TAKA STÖÐUGT
FRAMFÖRUM
LEITAÐ AÐ NÝJUM
ANDLITUM OG
FERSKU ÚTLITI
TÖLVUR OG TÆKNI 8 SÍÐUR FYRIRSÆTUKEPPNI 10HARMLEIKUR Í ÓSLÓ 19
Átakið Labbað í leikskólann er hafið. Því er beint til foreldra að ganga eða
hjóla með börnum sínum til og frá leikskóla. Þessi þróttmiklu börn láta
ekki sitt eftir liggja.
Hjólað í haustblíðunni
Morgunblaðið/Golli
Bjarni Benedikts-
son, formaður
Sjálfstæðisflokks-
ins, segir í grein í
Morgunblaðinu í
dag að boðað hafi
verið til fundar í
stjórnarráðinu
með formönnum
allra flokka eftir
að Hæstiréttur
komst að þeirri
niðurstöðu í júní að verðtrygging lána
með bindingu við erlenda gjaldmiðla
væri óheimil.
„Í kjölfar dómsins kom nefnd um
fjármálalegan stöðugleika saman og
mat það svo að vissar líkur væru á því
að íslenska bankakerfið myndi hrynja
að nýju,“ segir Bjarni. „Alvarleiki
málsins draup af andlitum embættis-
manna og ráðherra.“ Ríkisstjórnin
hafi verið algjörlega óundirbúin.
Bjarni segir að þetta tilvik sé sam-
bærilegt við það sem tillaga um ákær-
ur gegn fyrrverandi ráðherrum bygg-
ist á. Ef gæta ætti ýtrustu sanngirni,
jafnræðis og því fordæmi væri fylgt
sem nú er í uppsiglingu væri rétt að
leggja fram ákæru á hendur Jóhönnu
Sigurðardóttur, Steingrími J. Sigfús-
syni og Gylfa Magnússyni. Í greininni
kemur andstaða Bjarna við ákærur af
þessu tagi skýrt fram. »21
„Alvarleiki málsins
draup af andlitum“
Óviðbúin fyrri gengisdómi Hæstaréttar
Bjarni
Benediktsson
Fram-
leiðslugeta ál-
vers Alcan í
Straumsvík verð-
ur aukin um 20%
á næstu fjórum
árum. Álverið
verður ekki
stækkað, en þess
í stað verður
búnaður sem þegar er fyrir hendi
uppfærður með það fyrir augum að
hann geti nýtt aukinn rafstraum við
álframleiðsluna. Reiknað er með að
framkvæmdum ljúki í árslok 2012
og straumurinn verði smátt og
smátt aukinn í kjölfarið þar til full-
um afköstum verður náð, um mitt
ár 2014. Framleiðslugetan verður
þá 228 þúsund tonn, en er í dag 189
þúsund tonn. Öll leyfi liggja fyrir.
Landsvirkjun tryggði sér nýlega
lánsfjármagn í skuldabréfaútboði, á
6,5% vöxtum. Forstjóri Landsvirkj-
unar segir þau kjör ásættanleg mið-
að við aðstæður. »6
Öll leyfi komin í hús
Hagvöxtur á næsta ári verður að-
eins um 0,5 prósent, ef spá grein-
ingardeildar Arion banka rætist.
Spáin verður kynnt í dag.
Spá greiningardeildar Arion
banka er því mun svartsýnni en
spár fjármálaráðuneytis og Seðla-
banka.
Í nýjustu útgáfu Peningamála
Seðlabankans er gert ráð fyrir að
hagvöxtur á næsta ári verði 2,4 pró-
sent og fjármálaráðuneytið spáði
því svo haustið 2009 að hagvöxtur
árið 2011 yrði 2,8 prósent og það ár
yrðu umskipti í atvinnulífinu.
Bæði spá fjármálaráðuneytis og
Seðlabanka gera ráð fyrir mun
meiri stóriðjuframkvæmdum á
næsta ári en gert er í spá Arion, en
á spá bankans er ekki gert ráð fyrir
framkvæmdum í Helguvík. »18
Svartsýnisspá
um hagvöxt
Þingmenn Samfylkingarinnar
standa frammi fyrir mjög erfiðu
vali þegar atkvæði verða greidd um
hvort höfða eigi mál á hendur fyrr-
verandi ráðherrum. Talið er að
fyrst verði borin upp tillaga um að
ákæra Geir H. Haarde og síðan um
að ákæra Ingibjörgu Sólrúnu Gísla-
dóttur. Samþykki Samfylkingin
ákæru á hendur Geir hafa sjálf-
stæðismenn í hendi sér hver niður-
staðan verður þegar atkvæði verða
greidd um ákæru á hendur Ingi-
björgu Sólrúnu. Ef sjálfstæðismenn
sitja hjá duga atkvæði Samfylking-
arinnar skammt til þess að hindra
að Ingibjörg verði ákærð. »4
Morgunblaðið/Golli
Alvara Erfið atkvæðagreiðsla framundan.
Samfylkingin á
völina og kvölina
Raðir af fólki sem bíður eftir að fá út-
hlutaðan mat og helstu nauðsynjar
frá hjálparstofnunum samræmast
ekki hugmyndinni um norrænt vel-
ferðarkerfi, enda þekkist það hvergi
annars staðar á Norðurlöndum.
Matarúthlutanir eru ekki nýjar af
nálinni á Íslandi en þó ekki eins rót-
grónar og margir telja.
Harpa Njáls félagsfræðingur seg-
ir að yfirvöld hafi búið vandamálið til
á 10. áratugnum. Kreppan hafi því
bæst ofan á félagslegan vanda sem
þegar var til staðar og margfaldað
hann.
Fátækt þekkist ekki síður annars
staðar á Norðurlöndum en á Íslandi
en þar þykja matarúthlutanir samt
sem áður fráleitar enda er þar mun
lengri reynsla af opinberri sam-
félagsþjónustu, að sögn Láru
Björnsdóttur, formanns Velferðar-
vaktarinnar. Hún segir viðhorf til
matargjafa menningarbundin, t.a.m.
séu útlendingar víða vanir því að
kaþólska kirkjan útdeili ölmusu.
Þess misskilnings hefur enda gætt
meðal útlendinga á Íslandi að matar-
úthlutanir séu hluti af opinberri vel-
ferðarþjónustu. Lára og Harpa eru
sammála um að afar slæmt sé ef það
viðhorf sé að skjóta rótum á Íslandi
að matarúthlutun hjálparstofnana sé
eðlilegur hluti samfélagsins. »14
Matargjafirnar eins-
dæmi á Norðurlöndum
Telja að úthlutanir séu opinber þjónusta
Jónas Margeir Ingólfsson
jonasmargeir@mbl.is
Hæstiréttur lagði í gær fyrir héraðs-
dómara að taka mál um meint brot
Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, Kristín-
ar Jóhannesdóttur, Tryggva Jónsson-
ar og félagsins Gaums til efnismeð-
ferðar.
Málinu var áður vísað frá héraðs-
dómi að hluta á þeim grundvelli að nú
þegar hefðu ákærðu mátt þola refs-
ingu í formi skattaálags fyrir þau brot
sem þau voru ákærð fyrir. Fyrir
Hæstarétti héldu þau fram að ef refs-
ing yrði ákvörðuð í annað sinn mætti
líta á það sem brot gegn samningsvið-
auka við mannréttindasáttmála Evr-
ópu en þar segir að enginn skuli sæta
lögsókn né refsingu fyrir brot sem
hann hefur þegar verið sakfelldur fyr-
ir.
Hæstiréttur benti á að hér á landi er
byggt á því að heimilt sé að haga
stjórnkerfi skattamála með þeim
hætti að fjallað sé um beitingu álags og
ákvörðun refsingar í hvoru máli um sig
þótt þau geti átt rót sína að rekja til
sömu eða samofinna atvika. Þá vísaði
Hæstiréttur til þess að byggt væri á
meginreglunni um tvíeðli landsréttar
og þjóðaréttar og því þyrfti að liggja
skýrt fyrir að íslensk lög færu í bága
við sáttmálann með dómi Mannrétt-
indadómstóls Evrópu.
Helgi Magnús Gunnarsson, sak-
sóknari efnahagsbrota, segir niður-
stöðu Hæstaréttar skynsamlega. „Það
á ekkert að vera að hlaupa eftir þessu
fyrr en það er búið að fjalla um ná-
kvæmlega sömu gjöld fyrir Mann-
réttindadómstóli Evrópu. Þetta er
ekkert ósvipað öðrum túlkunum
Hæstaréttar á mannréttindasáttmál-
anum. Þeir hafa ekkert verið að
breyta framkvæmd sinni án þess að
hafa skýr fordæmi Mannréttinda-
dómstólsins.“
Skattamál
brýtur ekki
mannréttindi
Hæstiréttur leggur fyrir héraðsdóm
að taka fyrir skattamál eigenda Gaums
Morgunblaðið/Kristinn
Gaumur Málið til efnismeðferðar
Mál Gaums
» Ákærðu sögðust nú þegar
hafa hlotið refsingu fyrir brotið
í formi skattaálags og því væri
óheimilt að dæma aðra refs-
ingu í málinu.
» Hæstiréttur vísaði málinu til
efnismeðferðar á grundvelli
þess að slíkt fyrirkomulag er
heimilt á Íslandi.
» Saksóknari segir niðurstöðu
Hæstaréttar skynsamlega.
MDæmi í skattamáli Gaums »14