Morgunblaðið - 24.09.2010, Blaðsíða 5
FRÉTTIR 5Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. SEPTEMBER 2010
Bókanir í ævintýraferð Mogga-
klúbbsins til Kína hafa gengið vel en
þeim lýkur í dag. Ólafur Egilsson,
fyrrverandi sendiherra Íslendinga í
Kína, verður fararstjóri en ferðin er
skipulögð af Guðna Þórðarsyni, oft
kenndum við Sunnu. Guðni segir
Ólaf þekkja land og þjóð vel í Kína.
„Innifalið er allt sem fólk þarf fyr-
ir sjálft sig. Þ.e.a.s. morgunverður,
hádegisverður og kvöldverður.
Morgunverðirnir eru á hótelunum
en hádegisverðirnir eru hingað og
þangað eftir því hvar fólk er statt en
alltaf verður farið á ekta kínverska
veitingastaði. Einn kvöldverðurinn
er svo mikil veisla á frægasta pek-
ing-andar-veitingastað í Peking,“
segir Guðni.
Þá er hópnum boðið á lokahátíð
heimssýningarinnar sem nú fer fram
í Kína. „Fólk fær tækifæri til að
skoða sýninguna um daginn en svo
er hátíð um kvöldið. Þá verður mikið
um dýrðir en Kínverjarnir segjast
þá ætla að koma með mestu flug-
eldasýningu sem sést hafi. Þeir eru
frægir fyrir það.“
Sendiherra gerist
fararstjóri í Kína
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Ís-
lands, átti í gær fund með Vladimír
Pútín, forsætisráðherra Rússlands,
en áður höfðu þeir báðir flutt ræðu á
alþjóðaþingi um norðurslóðir sem
haldið er í Moskvu.
Í tilkynningu frá forsetaembætt-
inu segir að Pútín hafi á fundinum
lýst áhuga rússneskra orkufyr-
irtækja á því að kanna möguleika
Drekasvæðisins. Einnig væri brýnt
að hefjast nú þegar handa um gerð
áætlana og reglna varðandi ferðir
skipalesta sem myndu fara um hinar
nýju norðurleiðir á komandi árum
og áratugum. Byggja þyrfti hafnir,
skipuleggja svæði fyrir gáma-
geymslur og þróa samgöngu-
miðstöðvar sem þjónað gætu þessari
nýju vídd í heimsviðskiptunum. Þar
skiptu lega Íslands og Rússlands
höfuðmáli.
Þá sagði Pútín að rússneskum
stjórnvöldum hefði verið kappsmál
að styðja Ísland á tímum fjár-
málakreppunnar og slíkur stuðn-
ingur væri hluti af erindisbréfi
Rússa innan Alþjóðagjaldeyrissjóðs-
ins.
Forseti Íslands benti m.a. á að
þróun alþjóðlegra samtaka sem og
rannsóknarsamstarf á norðurslóðum
hefðu fært íbúunum ný tækifæri til
áhrifa. Þá ræddi hann um sameig-
inlega arfleifð landanna tveggja.
Ólafur og
Pútín á norð-
urslóðum
Reuters
Leiðtogar Ólafur Ragnar og Pútín.
Héraðsdómur Reykjaness dæmdi í
gær tvítugan karlmann í sjö mánaða
fangelsi, þar af fjóra skilorðsbundið,
fyrir fjölda brota, þar á meðal að
hafa hrækt á lögreglumann, hótað
honum og öðrum lögreglumönnum
lífláti og að skera börn þeirra á háls.
Annar tvítugur maður var dæmd-
ur í mánaðar skilorðsbundið fangelsi
fyrir að hóta þremur lögreglumönn-
um lífláti við sama tækifæri.
Sá sem þyngri dóminn hlaut var
einnig dæmdur fyrir að vera með
samtals 10,32 grömm af amfetamíni
og 6,39 grömm af kannabisefnum í
fórum sínum en hann var að auki
sviptur ökuréttindum ævilangt fyrir
að aka bíl ítrekað undir áhrifum
fíkniefna. Þá var hann dæmdur til að
greiða um 1,2 milljónir króna í máls-
kostnað.
Hótaði að
deyða börn
lögreglumanns
Fjögur ungmenni hafa játað að
hafa farið til Krýsuvíkur á nýárs-
dagskvöld síðasta í þeim eina til-
gangi að kveikja í gömlu kirkjunni
þar. Þetta kemur fram á bloggvef
Þórhalls Heimissonar, sókn-
arprests í Hafnarfirði. Bætir Þór-
hallur því við að lögreglan muni
skýra nánar frá því sem gerðist inn-
an tíðar.
Kveikt var í kirkjunni 2. janúar
sl. Hún var byggð árið 1857, fyrir
153 árum, og endurbyggð og
endurvígð árið 1964.
Kveiktu í
kirkjunni
Morgunblaðið/Sigurður Ægisson
Saga Kirkjan var notuð sem íbúðarhús 1917-1929 en var þá aftur helguð.
LAUSNIR FYRIR HEIMILI | landsbankinn.is | 410 4000
Lausnir fyrir heimili
Landsbankinn ætlar sér stóran hlut í uppbyggingu íslensks efnahagslífs og mun
þjónusta einstaklinga og fyrirtæki í greiðsluvanda af enn meiri krafti en áður.
Bankinn setti nýverið á stofn Ráðgjafastofu einstaklinga sem sinnir þjónustu við þá
sem standa frammi fyrir greiðsluerfiðleikum. Úrræði Landsbankans til að takast á
við greiðsluvanda einstaklinga eru fjölmörg, t.d.:
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
4
3
7
0
2
N
B
I
h
f.
(L
a
n
d
s
b
a
n
k
in
n
),
k
t
.
4
7
1
0
0
8
-
0
2
8
0
.
ENDURÚTREIKNINGUR ERLENDRA FASTEIGNALÁNA
Einstaklingar með fasteignalán í erlendri mynt geta nú óskað eftir endurútreikningi lána sinna. Lánin
verða endurreiknuð miðað við verðtryggða eða óverðtryggða vexti sem Seðlabankinn ákveður með
hliðsjón af lægstu vöxtum nýrra almennra útlána hjá lánastofnunum. Úrræðið verður í boði um leið
og endurútreikningi lána er lokið. Þeirri vinnu verður hraðað eins og hægt er.
5000 KR. AF HVERRI MILLJÓN Á MÁNUÐI
Einstaklingar með fasteignalán í erlendri mynt eiga kost á að greiða 5000 kr.
af hverri milljón af upprunalegum höfuðstól lánsins þar til endurútreikningur
liggur fyrir. Greiðsla af láni sem var upphaflega 10 milljónir króna verður
50.000 krónur á mánuði.
25% HÖFUÐSTÓLSLÆKKUN LÁNA
Viðskiptavinir með lán í erlendri mynt eiga kost á að sækja um 25%
höfuðstólslækkun gegn því að lánunum sé breytt í óverðtryggð eða
verðtryggð lán í íslenskum krónum.
110% AÐLÖGUN ÍBÚÐALÁNA
Einstaklingar með íbúðalán hjá Landsbankanum, hvort sem er í erlendri
mynt eða íslenskum krónum, geta sótt um að lánið sé fært niður í 110%
veðhlutfall af markaðsvirði eignar. Eftirstöðvar áhvílandi láns, umfram
110% af markaðsvirði íbúðarhúsnæðis, eru felldar niður.
Lausnirnar eru háðar nánari skilmálum.
Viðskiptavinir sem nýta sér úrræði bankans fyrirgera
ekki rétti sínum leiði dómar eða lagasetning til betri
niðurstöðu.
Hafið samband við þjónustufulltrúa í næsta útibúi.
Við tökum vel á móti þér um land allt.
Nánari upplýsingar á landsbankinn.is