Morgunblaðið - 24.09.2010, Page 10
N
æstkomandi sunnudag
kl. 20 verður Elite
Model Look keppnin
2010 haldin á Grand
hóteli en nokkur ár
eru liðin frá því að slík keppni var
síðast haldin hér á landi. Nýir aðilar
standa nú að opnun skrifstofu Elite á
Íslandi sem mun hefja formlega
starfsemi sama dag og keppnin fer
fram. Ingibjörg Finnbogadóttir
framkvæmdastjóri skrifstofunnar
varð fyrir svörum um endurkomu
Elite.
– Hverjir eru það sem standa að
Elite á Íslandi að þessu sinni?
„Þetta kom þannig til að Jón
Ólafsson athafnamaður og Bernard
Hennet hjá Elite í París eru félagar
og það barst í tal hjá þeim í vor að
stofna aftur skrifstofu hér á Íslandi
eftir öll þessi ár. Í framhaldi af því
ákváðu þeir að stökkva á þetta og
Jón fékk mig og Tinnu Aðalbjörns-
dóttur með sér.“
Að sögn Ingibjargar verður skrif-
stofan bæði með karlkyns og kven-
kyns módel á sínum snærum og mun
einnig leita að hæfileikaríku fólki fyr-
ir auglýsingar og kvikmyndir.
Leita að fersku útliti
Ingibjörg segir Elite keppnina
verða mjög flotta, enda koma að
henni ótal styrktaraðilar og stór nöfn
í umboðsheiminum úti eru væntanleg
til landsins til að sitja í dómnefnd;
þær Michaela Quesada, fulltrúi Elite
í París, og Barbara Pfister „casting
director“ frá New York. Auk þeirra
sitja í dómnefndinni Helgi Már
Björgvinsson, sölu- og markaðsstjóri
Icelandair, Baldur Kristjánsson ljós-
myndari og Ellen Loftsdóttir stílisti.
Stelpurnar eru á aldrinum 16-20
ára og mun sigurvegarinn keppa í
lokakeppninni Elite Model Look
World í næsta mánuði.
„Við auglýstum eftir stelpum í
keppnina í lok ágúst og þátttakan var
mjög fín. Við ákváðum samt að hafa
stelpurnar ekki of margar til að
byrja með og völdum átta til þátt-
töku en venjulega keppa í kringum
15 stelpur í svona keppni. Sigurveg-
arinn verður síðan fulltrúi okkar í
Kína núna í október þar sem ein
stúlka verður valin sigurvegari úr
hópi stúlkna alls staðar að úr heim-
inum.“
– Og hverju eruð þið að leita að?
„Við erum að leita að nýjum andlit-
um, fersku „lúkki“; því sem er að
gerast í tískuheiminum í dag. Stelp-
urnar þurfa náttúrlega að vera flott-
ar, öruggar, hafa aðlaðandi persónu-
leika og myndast vel.“
holmfridur@mbl.is
Elite-módelkeppnin haldin á ný
Elite Iceland skrifstofan verður opnuð formlega
sunnudaginn 26. september næstkomandi með
keppninni Elite Model Look 2010 á Grand Hótel.
Keppendur Frá vinstri: Harpa Hilmarsdóttir, Thelma Haraldsdóttir, Anna Jia, Edda Óskarsdóttir, Helga Gabríela Sigurðardóttir, Áslaug Björnsdóttir, Eydís Evendsen, Andrea Röfn Jónasdóttir.
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. SEPTEMBER 2010
Linda Hallberg er ungur sænskur
förðunarfræðingur sem heldur úti
þessari frábæru bloggsíðu um förð-
un, hár, húð og neglur. Linda er aug-
ljóslega mjög fær í sínu fagi og hún
er með flottar hugmyndir.
Þarna er hægt að fá allskonar leið-
beiningar um förðun og mjög góðar
og margar myndir fylgja með sem
sýna vel hvernig á að gera.
Eins er hægt að sjá hvernig á til
dæmis að flétta eða greiða hár á
ákveðinn hátt. Svo er líka sýnt hvern-
ig á að setja munstur á neglur og
svona mætti lengi telja.
Þeir sem ekki skilja mikið í sænsku
ættu ekki að láta það stoppa sig í því
að njóta alls sem þarna er í boði, því
myndirnar tala agjörlega sínu máli,
hvort sem verið er að kenna eitthvað
eða sýna af öðrum ástæðum. Til
dæmis gefa myndirnar frá hrekkja-
vökunni góðar hugmyndir um bæði
klæði og förðun í tilefni þess dags en
hann er ekki svo langt undan.
Linda prófar líka allskonar hluti
(Linda testar), tékkar á nýjustu ilm-
vötnunum, kinnalitunum eða hverju
öðru sem hana langar að prófa.
Hún er líka með „tips og trix“ og
gefur ráð um hvernig sé best að finna
besta grunnfarðann fyrir haustið.
Vefsíðan www.blogg.veckorevyn.com/lindas-sminkblogg/
Frumleg Nýjasta færslan hennar
Lindu sýnir m.a þessa flippuðu förðun.
Allt um förðun, hár, húð, neglur
Ingveldur Geirsdóttir
ingveldur@mbl.is
Árlegt Októberfest Stúd-entaráðs Háskóla Íslandsfer fram um helgina á lóðfyrir framan aðalbyggingu
skólans.
„Októberfest var fyrst haldið ár-
ið 2003 þegar þýskunemar héldu litla
hátíð. Þetta hefur aðeins stækkað síð-
an og er nú komið í þriggja daga hátíð
sem fer fram í þremur tjöldum,“ segir
Ósk Gunnarsdóttir stúdentaráðsliði
og einn skipuleggjenda Októberfest.
Stúdentaráð vinnur að hátíðinni í
samvinnu við AM-Events sem kemur
nú að undirbúningnum í þriðja sinn.
Októberfest byrjaði í gærkvöldi
með Ring-rokk-festivali þar sem níu
hljómsveitir stigu á svið. Í kvöld er
hið hefðbundna Októberfest og segir
Ósk mikla stemningu í skólanum fyr-
ir kvöldinu.
„Háskólanemendur mæta í
tjaldið kl. 19, margir beint úr vís-
indaferð, og þá byrja herlegheitin.
Það verður búningakeppni þar sem
flottasti búningurinn fær verðlaun,
einnig verður mottukeppni þar sem
flottasta yfirvaraskeggið verður val-
ið. Það sést úti í skóla að það eru
óvenjumargir með mottur í tímum og
misflottar en það er gott að metn-
aðurinn er fyrir hendi.
Það verður líka lúðrasveit og
jóðlari og þýska danshljómsveitin
Tanzen, svo erum við með veit-
ingatjald sem býður upp á bratwurzt
og pretzeln fyrir svanga gesti,“ segir
Ósk um kvöldið í kvöld.
Hátíðarsvæðið Hér má sjá Ósk Gunnarsdóttir sem situr í Stúdentaráði og
skipuleggur Októberfest ásamt Jens Fjalari formanni Stúdentaráðs.
Jóðlari og Skítamórall
Viðamesta Októberfest
Stúdentaráðs Háskóla Ís-
lands hingað til fer fram
um helgina. Þýsk hátíð í
kvöld með jóðlara og
danshljómsveitinni Tanz-
en og ekta íslenskt sveita-
ball með Skítamóral
annað kvöld.
spector var með þetta sem kosn-
ingaloforð í vor og svo leitaði hann
til okkar í skemmtinefndinni og við
gerðum þetta að samstarfsverkefni
skemmtinefndar og skólafélags,“
segir Helga en ásamt henni eru í
skemmtinefndinni Halldóra Ársæls-
dóttir og Unnur Bergmann.
Líf og fjör
Spurð hvort búið sé að uppfylla
mörg kosningaloforð segir Helga að
stutt sé liðið á önnina en Einar hafi
einnig lofað að ísbíll kæmi stund-
um á skólalóðina og það hafi gerst
einu sinni það sem af er önn.
Helga er í fimmta bekk, á þriðja
ári, og segir veturinn leggjast vel í
sig enda mun hún, ásamt fleirum,
sjá um að halda uppi fjörinu í skól-
anum. Hún segir hlutverk skemmti-
nefndarinnar vera að sjá um alls-
konar viðburði innan skólans í
vetur eins og markaðinn og að hafa
líf og fjör í matarhléum annað slag-
ið.
„Okkar aðalverkefni er að sjá um
söngkeppnina sem verður haldin í
janúar, sem er undankeppni MR fyr-
ir Söngkeppni framhaldsskólanna,“
segir Helga.
Skólaport verður opið á morgun,
laugardag, milli kl. 14 og 17 og eru
allir velkomnir á markaðinn. Hann
er staðsettur í Casa nova sem er
port á bak við aðalbyggingu
Menntaskólans í Reykjavík.
Ingveldur Geirsdóttir
ingveldur@mbl.is
Nemendur Menntaskólans í Reykja-
vík halda markað á morgun sem
þeir kalla Skólaport.
„Þetta er svona markaður eins og
Kolaportið og af því drögum við
nafnið. Nemendur og kennarar
skólans geta leigt borð og selt allt
milli himins og jarðar,“ segir Helga
Björnsdóttir, nemandi við MR og
einn skipuleggjenda Skólaportsins.
„Það verður margt í boði, t.d. verð-
ur ein stelpa að selja skartgripi
sem hún gerir sjálf, einn stelpuhóp-
ur verður með sölubás þar sem all-
ur ágóðinn rennur til góðgerð-
armála og svo verða einhverjir með
kökubasar og heitt kakó. Aðrir eru
að tæma úr geymslum og fataskáp-
um, t.d. ætla nokkrar stelpur að
selja föt og skó og ég veit um einn
strák sem ætlar að selja sjónvarp.
Það er búið að panta um tuttugu
bása. Í þeim hópi er einn bekkur
með heilan bás,“ segir Helga. Fleira
verður á boðstólum því nemendur
ætla að reka kaffihús í kaffiteríu
skólans, Cösu, þar sem tónelskir
MR-ingar munu líka stíga á svið.
„Nemendur sem spila á hljóðfæri
skiptast á að halda uppi stemning-
unni,“ segir Helga.
Þetta er í fyrsta skipti sem haldinn
er slíkur markaður í MR.
„Einar Lövdahl sem er núna in-
MR-ingar selja notað og
nýtt í Skólaporti á morgun
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Skólaport Helga Björnsdóttir, Unnur Bergmann, Einar Lövdahl og Halldóra Ár-
sælsdóttir skipuleggja markaðinn sem fer fram á morgun í porti skólans.
Markaður