Morgunblaðið - 24.09.2010, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 24.09.2010, Qupperneq 19
FRÉTTIR 19Erlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. SEPTEMBER 2010 Reuters Indverji við auglýsingaskilti í Nýju Delí um Samveldisleikana í októ- ber. Undirbúningurinn hefur geng- ið brösuglega og þykir málið vera hneisa fyrir þjóðina. Myndir af grútskítugum salernum hafa verið áberandi á síðum breskra blaða, nokkrar þjóðir hafa nú frestað för íþróttafólks þar til góður aðbún- aður hefur verið tryggður. Samveldisleikar í hættu Kristján Jónsson kjon@mbl.is Norðmenn eru felmtri slegnir vegna fjöl- skylduharmleiks í einu af úthverfum Óslóar, Mortensrud, en 41 árs karlmaður virðist hafa myrt eiginkonu sína og þrjár dætur og síðan fyrirfarið sér. Ekki er vitað með vissu hvenær þessi harmleikur varð en síðast sást til fólksins á þriðjudag. Yngsta barnið var aðeins 14 daga gamalt. Lögreglan í Ósló segir að ættingjar og nágrannar verði yfirheyrðir en hugsanlega muni aldrei fást á skýringar á því sem gerðist, að því er fram kemur í Aftenposten. Maðurinn hét Saeid Ahmadzadeh, var Kúrdi, upprunninn í Íran en dvaldist lengi í Írak. Hann kom til Noregs 1991 eftir að hafa flúið frá Írak og hlaut ríkisborgararétt 1999. Ahmadzadeh var sagður mjög vel látinn, afar umhyggjusamur faðir en fremur einrænn, ef marka má nágranna hans og félaga. Dæturnar „blíðlyndar og fjörugar“ „Allir vissu hver börnin voru en ekki móðirin eða faðirinn,“ segir einn nágranninn, Muham- mad Zahid Bhatti, sem segir foreldrana hafa haldið sig mest innandyra. „Ég spjallaði við hann einu sinni en hann var mjög fálátur og svaraði bara því sem ég spurði um, sagði ekk- ert fleira.“ Ekkert hafi þó bent til þess að nokkuð væri að á heimilinu. Litlu stúlkurnar, sjö og níu ára, hafi verið blíðlyndar og fjörugar, allir hafi þekkt þær, hans eigin börn hafi leikið sér við þær. „Dóttir mín spurði mig í dag hvenær stelpurnar kæmu aftur heim,“ sagði Bhatti. Eiginkonan, sem var 37 ára, var frá Mar- okkó og með dvalarleyfi í Noregi, börnin voru öll með norskt ríkisfang. Konan og 14 daga gömul dóttir hennar fundust látnar í blokk- aríbúð þeirra í Mortensrud, úthverfi í Ósló, í fyrradag. Níu ára dóttir konunnar fannst síðan látin í stöðuvatninu Gjersjøen, skammt sunnan við Ósló, þegar verið var að leita þar að öldr- uðum manni sem saknað var. Leit var þá hafin að Ahmadzadeh og sjö ára dóttur hjónanna sem einnig var saknað. Fundu kafarar lík mannsins og stúlkunnar í vatninu skömmu fyrir miðnætti á miðvikudagskvöld og bíll mannsins var skammt frá. Fjölskylduharmleikur í Ósló  Faðir af Kúrdaættum myrti eiginkonu og börn og drekkti sér síðan  Vel látin fjölskylda úr röðum innflytjenda frá Íran og Marokkó Scanpix Sorg Blóm og kertaljós við íbúðarblokkina í Mortensrud í Ósló þar sem fjölskyldan bjó. „Okkur sem þekktum hann finnst þessi morð óskiljanleg,“ segir náinn vinur Ah- madzadeh, Iran Morovati. Erfan Tarin, sem stundaði ásamt Ahmadzedeh nám í fé- lagsvísindum við Óslóarháskóla, segir Ah- madzadeh hafa verið prúðmenni er barist hafi fyrir mannréttindum í Íran. Að sögn Verdens Gang var Ahmadzadeh um tíu ára skeið í skæruliðasveitum kúr- dískra kommúnista sem höfðu bækistöðv- ar í Kúrdahéruðum Íraks en störfuðu í Ír- an. Flugher Saddams Husseins Íraksforseta réðst á Kúrdabyggðir lands- ins með eiturgasi 1988 og myrti tugþús- undir óbreyttra borgara. Sagður hafa verið skæruliði í áratug Gjersjøen-vatn Mortensrud SAEID AHMADZADEH Kristján Jónsson kjon@mbl.is Þótt öll atkvæði hafi verið talin í Sví- þjóð og stjórnina skorti tvö sæti upp á þingmeirihluta er enn óljóst hver niðurstaða kosninganna um sl. helgi verður. Komið hefur í ljós að mistök voru gerð, ekki var gengið rétt frá um 50 utankjörstaðakjörseðlum sem úrskurðaðir höfðu verið ógildir. Fulltrúi eins sveitarfélagsins í Värmlandi skilaði bunka af 50 ógild- um seðlum til héraðsyfirvalda í Karlstad en samkvæmt lögum á að setja slíka seðla í sérstakan, innsigl- aðan poka með skýringum. Í Värmlandi vantaði einn stjórn- arflokkanna, Þjóðarflokkinn, aðeins sjö atkvæði til að hreppa eitt sæti í viðbót og líklegt er að flokkurinn kæri vegna málsins. „Þetta er mjög óþægilegt,“ sagði Gith Nilsson, sem hefur umsjón með kosningum fyrir héraðið. „Sumt af því sem bent var á að gerði seðlana ógilda heldur vatni en annað veldur mér áhyggjum. Til dæmis að umslögin utan um seðlana hafi ekki verið límd aftur. Ég held að það dugi ekki til ógildingar.“ Munurinn er ótrúlega lítill, stjórnarflokkarnir fengu 173 þing- sæti og á landsvísu tæplega 2.000 at- kvæðum minna en rauðgræna fylk- ingin og Svíþjóðardemókratarnir. Staðan enn óljós í Svíþjóð  Mistök við meðhöndlun ógildra atkvæða Verður talning kærð? » Einn af talsmönnum Þjóðarflokksins, Carl Hamilton, útilokar ekki að flokkurinn kæri talninguna í Värmlandi. » Fari svo gæti dregist fram í nóvember að endanleg niður- staða fáist. Ef til vill gæti þurft að kjósa á ný. Eldaskálinn Ármúli 15 . 108 Reykjavík . sími: 562 1420 eldaskalinn@eldaskalinn.is . www.invita.com – persónulega eldhúsi› Allt að 80% afsl. Invita hættir á Íslandi ALLT Á AÐ SELJAST INVITA ISLAND P R E N T S N IÐ GERÐU OKKUR TILBOÐ Komirðu með teikningu, sjáum við hvernig þetta nýtist þér Eldhúsinnréttingar – Baðinnréttingar

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.