Morgunblaðið - 24.09.2010, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 24.09.2010, Blaðsíða 22
22 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. SEPTEMBER 2010 Fimmtudaginn 2. september afhjúpaði Reykjanesbær styttu af geirfugli eftir banda- ríska myndlistarmann- inn Todd McGrain sem listamaðurinn vann ár- ið 2008 og færði bæn- um að gjöf fyrir réttu ári. Þetta hefði í alla staði verið gleðileg tíð- indi nema vegna þess að myndverk McGra- ins er nauðalíkt myndverkinu „Geir- fugl“ eftir Ólöfu Nordal frá 1998. Það verk var sett upp í Skerjafirði á sam- sýningu Myndhöggvarafélagsins í Reykjavík, „Strandlengjan“, og keypti Listasafn Reykjavíkur þá verkið, sem stendur þar enn. Við samanburð á myndum af verk- unum, sem birtar voru í Morg- unblaðinu 4. september, mætti halda að hér væri um sama myndverkið að ræða. Samband íslenskra myndlist- armanna telur að bæði framsetning og hugmyndafræðin að baki verki McGrains séu það lík „Geirfugli“ Ólafar Nordal að varði við höfund- arréttarlög nr. 73 frá 1972. Verk Ólaf- ar er steypt í ál en verk Todds McGrains í brons, en að öðru leyti eru áferð, stærð og inntak fuglanna keim- lík. Verkin eru eins framsett þar sem fuglarnir standa báðir við sjó og horfa til hafs í átt að Eldey þar sem síðustu geirfuglarnir á Íslandi voru vegnir. Í viðtali við Morgunblaðið segir Todd McGrain að verk Ólafar „sé gjörólíkt sínu verki, sem fjalli um verndun náttúrunnar“. Hugmyndafræðin að baki verki Ólafar er mjög skýr. Geir- fugl hennar fjallar um náttúruvernd, missi, skammtímagróða, stór- iðjustefnu og tvískinnung með því að vísa í íslenska sögu. Því til staðfest- ingar hafa ljósmyndir og útskýringar á „Geirfugli“ Ólafar verið aðgengileg- ar á ensku í nettímaritinu Icelandic Art News síðan í júlí 2005, í grein eftir Evu Heisler. Þetta hefði Todd McGrain getað kynnt sér, þar sem honum var gert ljóst fyrir ári að hér á landi væri verkið þegar til. Ef maður kynnir sér nánar geirfugl Todds McGrains má sjá að hann er hluti af stærra verki sem nefnt er „The Lost Bird Project“, sem eru styttur af fimm útdauðum fuglateg- undum í heiminum. Sú staðreynd hef- ur verið notuð sem rök fyrir því að þessi tvö verk séu óskyld. Þessar fimm styttur hefur McGrain staðsett á austurströnd Norður-Ameríku, þar með talið frumeintak af geirfuglinum sem afhjúpaður var á Fogo-eyju und- an ströndum Nýfundnalands í júlí á þessu ári. Það er því enn meiri ráð- gáta hvers vegna Todd McGrain velur að halda til streitu að setja niður aukaeintak af geirfugli sínum hér á Ís- landi, nema ef vera kynni að það kæmi sér vel fyrir myndlistarfer- ilinn. Í hans eigin hug- myndafræðilega sam- hengi virðist hún algerlega óþörf. Hafþór Yngvason, safnstjóri Listasafns Reykjavíkur, hafði veður af gjöfinni fyrir ári. Hann lét menningarsvið Reykjanesbæjar þegar vita að hér væri verk sem færi „hættulega nálægt verki Ólafar“ og bað menningarfull- trúa bæjarins „að senda McGrain ljós- mynd af verki Ólafar, þannig að hann gæti endurskoðað sinn hug“ (Mbl. 4. sept.). Í ljósi þeirrar staðreyndar að Todd McGrain var látinn vita í tíma að mjög svipað verk væri þegar fyrir hendi hér á landi er augljóst að hann hefur ekki unnið heimavinnuna sína. Sem starfandi listamaður hefði hann átt að vita að hér færi hann í besta falli mjög nærri broti á höfundarrétti og hætta þá þegar við fyrirætlanir sínar. Lögfræðingur SÍM telur „að þessi verk séu vægast sagt ákaflega lík og að verk Ólafar sé eldra og hafi verið aðgengilegt almenningi sl. tíu ár á net- inu. Því bendi margt til að þarna kunni að vera um að ræða brot á höf- undarrétti. Slíkt verður að sjálfsögðu að ákvarða af dómstólum, fari málið þá leið. Það versta í þessu máli er þó að þeir forystumenn bæjarfélags Reykjanesbæjar sem þáðu þetta verk og settu það upp skuli ekki hafa kann- að málið miklu betur, einkum og sér í lagi þar sem þau fengu ábendingu um hugsanlegt höfundarrréttarbrot fyrir ári“. Vegna ofangreindra staðreynda gerir stjórn Sambands íslenskra myndlistarmanna alvarlegar at- hugasemdir við þau ófaglegu vinnu- brögð sem menningarsvið Reykjanes- bæjar og listamaðurinn Todd McGrain hafa viðhaft í þessu máli og harma það að geirfuglsverk Todds McGrains skuli hafa verið reist á Reykjanesskaga. F.h. stjórnar SÍM. Um Geirfuglsmálið og höfundarrétt Eftir Hrafnhildi Sigurðardóttur Hrafnhildur Sigurðardóttir » Það er því enn meiri ráðgáta hvers vegna Todd McGrain velur að halda til streitu að setja niður aukaeintak af geirfugli sínum hér á Ís- landi … Höfundur er formaður Sambands íslenskra myndlistarmanna. Það er ekki á hverjum degi sem við Íslendingar skörum fram úr þegar baráttan gegn fátækt og hungri í heiminum er annars vegar en slíkt gerðist þó á dögunum. Stefán Ein- arsson, hönnunarstjóri auglýs- ingastofunnar Hvíta hússins sigraði glæsilega í keppni Sameinuðu þjóð- anna í Evrópu um bestu auglýs- inguna til að efla baráttuna gegn fá- tækt í heiminum.. Efnt var til keppninnar í tilefni af því að nú eru tíu ár liðin frá því leiðtogar allra að- ildarríkja Sameinuðu þjóðanna sam- þykktu svokallaða Þúsaldaryfirlýs- ingu í tilefni alda- og þúsaldamótanna árið 2000. Þúsaldarmarkmiðin um þróun fela í sér að átta mælanlegum þróun- armarkmiðum skuli náð fyrir árið 2015 og er hið fyrsta og helsta að fækka um helming fátækasta fólki heims. Nú er að ljúka í New York leið- togafundi Sameinuðu þjóðanna þar sem tekin er út staða Þúsald- armarkmiðanna þegar fimm ár eru til stefnu. Í sigurauglýsingu sinni, bendir Stefán Ein- arsson hæversklega á kjarna málsins: „Kæru leiðtogar. Við bíðum enn.“ Árangur hefur náðst Engum blöðum er um það að fletta að ár- angur hefur náðst. Ef miðað er við ár- ið 1990 hefur hlutfall þeirra sem búa við örbirgð minnkað úr 46 prósentum jarðarbúa í 27 prósent árið 2005. Þetta þýðir að 1,4 milljarðar jarð- arbúa teljast nú til hinna örsnauðu og hefur fækkað um 400 milljónir á 20 árum, eða sem samsvarar sam- anlögðum íbúafjölda Bandaríkjanna, Þýskalands og Svíþjóðar. Fyrir fimm árum skáru fé- lagasamtök með rokkstjörnurnar Bob Geldof og Bono í broddi fylk- ingar upp herör gegn fátækt í heim- inum. Undir þrýstingi frá „Live 8“ hreyfingunni samþykktu leiðtogar G-8, átta helstu iðnríkja heims, á fundi sínum í Glenneagles í Skotlandi að auka opinbera þróunaraðstoð um fimmtíu milljarða dollara og tvöfalda árlega aðstoð við Afríku eða um 25 milljarða dollara. Nú er munurinn á loforðum og efndum, ef aðeins er litið til Afríku, 16 milljarðar dollara. Í opn- unarræðu sinni á leiðtogafundinum í New York hvatti Ban Ki-moon, fram- kvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna rík lönd sérstaklega til að svíkja ekki fyrri fyrirheit um opinbera þróun- araðstoð við fátæk ríki sem hann líkti við líflínu sem væri „milljörðum manna milljarða virði.“ Þegar Ísland bauð sig fram til öryggisráðs Samein- uðu þjóðanna ítrekuðu stjórnvöld vilja sinn til að auka þróunaraðstoð sína þannig að hún næmi 0,7% af þjóð- artekjum en fyrstu fyr- irheit um þetta voru gefin í samþykktum Al- þingis upp úr 1970. Ís- land hefur skorið sig úr hvað þróunaraðstoð varðar í hópi Norður- landanna en þrjú þeirra eru í hópi þeirra sem hafa náð 0,7% markinu. Við erum ekki hálf- drættingar: fyrir róttækan nið- urskurð í ár var okkar hlutfall 0,33%. Ísland er vissulega ekki eina ríkið sem grípur til niðurskurðar en þó dróst opinber þróunaraðstoð ESB ríkja aðeins saman um 0,2% árið 2009. Bretar og Belgar juku raunar þróunaraðstoð sína. Að lifa á 170 krónum á dag Niðurskurður þróunaraðstoðar er gjarnan réttlættur með því að erfitt sé að rétta fátækum úti í hinum stóra heim hjálparhönd, á meðan fátækt aukist innanlands. Mikilvægt er að hafa í huga að hug- takið „sárasta fátækt“ er skilgreint þannig að sá sem hefur að hámarki einn dollar á dag og fjórðungi betur til að lifa af telst fátækur. Andvirði um 170 íslenskra króna! Stefán Ein- arsson hafði efnahagshrunið á Ís- landi, öðrum þræði, í huga þegar hann hannaði sigurauglýsinguna í auglýsingakeppni Sameinuðu þjóð- anna til höfuðs fátækt í heiminum: „Sjálfur er ég frá landi sem sjálft hef- ur lent í áþreifanlegum efnahagserf- iðleikum og því var mér þetta efni frekar hugleikið. Fyrst og fremst varð mér hugsað til þess hve ótrúlega heppin við erum að geta gengið að grundvallarþörfum vísum. Það er mjög sláandi staðreynd að hafi maður aðgang að hreinu vatni, húsnæði, fatnaði og mat, þá tilheyrir maður hinum heppna fjórðungi mannkyns,“ sagði Stefán Einarsson í viðtali við vefsíðu Sameinuðu þjóðanna. Áminning til okkar Um auglýsinguna sjálfa sagði hann: „Út frá þessum andstæðum kvikn- aði hugmyndin að tvískiptingunni á milli leiðtoganna og biðraðar afrískra barna eftir mat. Á meðan leiðtogar heims koma saman í sínu fínasta pússi á enn einum leiðtogafundinum til að semja yfirlýsingar, líða milljónir manna í heiminum skort og eru enn að bíða eftir raunhæfum aðgerðum.“ Auglýsing Stefáns er til marks um að við Íslendingar getum verið á heimsmælikvarða ef við getum og viljum, en um leið er hún þörf áminn- ing: „Ég vildi að auglýsingin væri sterk áminning til leiðtoga heimsins en um leið áminning til okkar allra sem búa við allsnægtir.“ Þetta eru orð í tíma töluð. Og reynslan frá Glenneagles sýnir að án vakandi aðhalds almennings er lík- legast að leiðtogarnir láti hina fátæk- ustu bíða lengi enn. Eftir Árna Snævarr » Í sigurauglýsingu sinni, bendir Stefán Einarsson hæversklega á kjarna málsins: „Kæru leiðtogar. Við bíðum enn.“ Árni Snævarr Höfundur stýrir Norðurlandasviði á Upplýsingaskrifstofu Sameinuðu þjóðanna í Brussel. Ísland á toppnum – aldrei þessu vant Verðlaunamynd Stefáns Einarssonar í samkeppni SÞ. Tíska & förðun Morgunblaðið gefur út glæsilegt sérblað um Tísku og förðun föstudaginn 15. október MEÐAL EFNIS: Nýjustu förðunarvörurnar. Húðumhirða. Haustförðun. Ilmvötn. Snyrtivörur. Neglur og naglalökk. Hár og hárumhirða. Tískan í vetur. Flottir fylgihlutir. Góð stílráð. Íslensk hönnun. Ásamt fullt af öðru spennandi efni. –– Meira fyrir lesendur S ÉR B LA Ð Katrín Theódórsdóttir Sími: 569 1105 kata@mbl.is NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR: PÖNTUNARTÍMI AUGLÝSINGA: Fyrir kl. 16, mánudaginn 11. október Í Tísku og förðun verður fjallað um tískuna haustið 2010 í hári, förðun, snyrtingu og fatnaði auk umhirðu húðarinnar, dekur og fleira.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.