Morgunblaðið - 24.09.2010, Síða 34
Púff! Meðlimir Swords of Chaos hveita sig upp.
Arnar Eggert Thoroddsen
arnart@mbl.is
Rokksveitin Swords of Chaos hefur
um nokkra hríð verið einn af fasta-
punktum Reykjavíkurrokksins en
fyrsta plata sveitarinnar, The End
Is As Near As Your Teeth, er ný-
komin út, „LOKSINS!“ eins og sigri
hrósandi bassaleikari sveitarinnar,
Úlfur Hansson, orðar það.
„Við erum mjög kátir með þetta.
Ferlið er búið að taka um ár en elstu
lögin eru ca. fjögurra ára gömul,
hefur ábyggilega komið í góðar þarf-
ir líka. „Við í Swords erum síðan í
startholunum fyrir næstu plötu og
ég á von á því að hún verði allt öðru-
vísi en þessi. Okkur langar til að
semja meira í stúdíóinu, flækja þetta
aðeins á jákvæðan hátt. Nú þegar
þessi plata er loks komin er hægt að
líta fram á veginn og kokka upp eitt-
hvað spennandi. Það er hugur í okk-
ur!“ Swords of Chaos halda tónleika
í Havarí á morgun en útgáfu-
tónleikar verða 1. október næstkom-
andi á Faktorý
sem er heil eilífð í okkar huga.“
Platan var tekin upp í október, í
hljóðstofu Friðriks og Jóhanns,
hljóðveri sem var svo gott sem fok-
helt að sögn Úlfs, en einmitt sá þátt-
ur hefði gætt upptökurnar töfrum.
„Ég fór svo á túr með Jónsa í upp-
hafi þessa árs. Það er búið að vera
ótrúlegt ævintýri og maður hefur
lært mikið af því.“ Á plötunni er kol-
brjálað rokk en einnig seiðmögnuð
raftónlist, hljóðverk sem þeir fé-
lagar unnu með Kiru Kiru. Aukasjálf
Úlfs sem raftónlistarmaðurinn Klive
Swords of Chaos gefa
út langþráða breiðskífu
Tekin upp í fokheldu hljóðveri
34 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. SEPTEMBER 2010
Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
Danski kvikmyndagerðarmaðurinn
Janus Metz er 35 ára gamall og
hefur hlotið lof fyrir heimildar-
myndir sínar. Hann á hina umtöl-
uðu mynd Armadillo á RIFF en
þar er fjallað um líf danskra her-
manna í Afganistan árið 2009, nán-
ar tiltekið á herbækistöð er nefnist
Armadillo. Stöðin er í Helmand-
héraði í sunnanverðu landinu en
þar hafa átök erlenda fjölþjóðaliðs-
ins og talibana oft verið harðari en
í flestum öðrum héruðum Afganist-
ans. Metz verður meðal gesta á
RIFF.
Metz og félagi hans, myndatöku-
maðurinn Lars Skree, fylgdust með
hermönnunum í samanlagt þrjá og
hálfan mánuð í bækistöðinni og
deildu með þeim kjörum. En voru
þeir félagar, báðir að sjálfsögðu
vopnlausir, ekki dauðhræddir?
„Jú, það vorum við auðvitað,“
segir Metz. „En þetta er spenna
sem einhvern veginn brýst fyrst
fram í manni eftir atburðina. Þegar
þetta gerðist einbeittum við okkur
að starfinu sem var að búa til
mynd. Sé þetta að gerast rétt hjá
manni eru bardagarnir þó ógnvæn-
legri en ella. Sé þetta lengra í
burtu getur það virst dálítið óraun-
verulegt.“
Höfðu enga reynslu
af hermennsku
Metz og Skree hafa enga reynslu
af hermennsku en fóru á æfingar
með hermönnunum fyrir brottför-
ina til Afganistans til þess að átta
sig betur á því hvernig hægt væri
að gera heimildarmynd af þessu
tagi, hvort það væri yfirleitt hægt
að mynda í miðjum bardögum.
„Við þurftum að læra hvað
ákveðnar skipanir merktu, hvernig
bregðast bæri við ákveðnum að-
stæðum. Ef gefin er skipunin
„slanga vinstri“ verðum við að vita
að það þýðir að láta sig falla til
jarðar, sprengjukúla er á leiðinni.
Við ákváðum að klæðast einkenn-
isbúningum eins og hermennirnir,
okkur var ráðlagt það. Ef við skær-
um okkur úr hópnum myndum við
verða enn meira freistandi skot-
mark.“
-Kaldur raunveruleikinn bók-
staflega drýpur af þessari mynd.
En hafið þið verið sakaðir um að
sviðsetja eitthvað?
„Nei, en margir sem sjá myndina
segja að þetta sé næstum því of
raunverulegt til að geta verið satt!
Það sem gerist er ekki sviðsett,
þarna sjást t.d. fallnir talibanar í
skurði, lík þeirra. En auðvitað
verðum við að velja og hafna. Þeg-
ar við myndum reynum við að velja
okkur stað þar sem ekki er hávær
rafstöð í bakgrunninum svo að ég
nefni dæmi.“
-Sluppuð þið tveir ósærðir?
„Já, það gerðum við, a.m.k. lík-
amlega. Það var hrikalega erfitt að
gera þessa mynd og það er fyrst
núna að ég er farinn að losna við
hana úr sinninu. Maður verður
var við eins konar seinkuð við-
brögð við því að hafa verið
vitni að svona hrottalegum
átökum og ofbeldi. Um tíma
var erfitt fyrir mig að tala
um það sem ég upplifði
þarna.
Við urðum að stofna okkur
sjálfum í sams konar hættu og
hermennirnir til að geta gert
þessa mynd til þess að þeir öðl-
uðust nægilega virðingu fyrir okk-
ur. Við gætum hafa særst eins og
margir aðrir en við sluppum. Ég
hef einu sinni gert mynd um
glæpamenn í Suður-Afríku en aldr-
ei fyrr kynnst neinu sem líkist
þessu.“
Breytast í eins konar úlfaflokk
„Það sem við reynum m.a. að
sýna er að stríð er ringulreið vegna
þess að það er háð af fólki. Það
spila líka inn í þetta hefndarþorsti
og jafnvel blóðþorsti.
Smám saman breytast hermenn-
irnir í eins konar úlfaflokk, einingu
þar sem allt snýst um að standa
saman. Samkennd er oft jákvæð en
getur auðveldlega orðið hættuleg.
Þá geta menn hafnað í kaldrana,
hálfgerðu svartnætti þar sem
mörkin milli þess sem er rétt og
þess sem er rangt hverfa.
En við reynum líka að sýna þann
vanda sem menn eru í vegna þessa
stríðs, hvað það er mikil gjá milli
Afgana og útlendinga, hvað dönsku
hermennirnir eiga erfitt með að
átta sig á því hvað er að gerast
handan virkismúranna. Þeir eru
einangraðir. Óbreyttir borgarar eru
eins og lús milli tveggja nagla. Þeir
eru yfirleitt ekki uppteknir af því
að taka afstöðu til talibana eða
ISAF [erlenda herliðsins] heldur
eiga fullt í fangi með það eitt að
komast lífs af.
Þótt ég hafi gert þessa mynd tek
ég ekki afstöðu með eða móti stríð-
inu en það er ljóst að þetta gengur
ekki vel núna, menn hafa stokkið út
í ófæru. Mestu hlýtur að skipta að
Afganar taki sjálfir á eigin málum,
taki við stjórninni.“
Beltisdýr Stilla úr heimildarmyndinni Armadillo sem fær fimm stjörnur hjá gagnrýnanda (sjá síðu 36).
Hvað þýðir „slanga vinstri“
á hermannamálinu?
Danska myndin
Armadillo er sýnd
á RIFF Kvik-
myndagerðar-
menn fylgdust
með hermönnum í
Afganistan og
mynduðu blóðuga
bardaga við
talibana
Eftir að sýningu á myndinni lýk-
ur í kvöld í Bíó Paradís mun leik-
stjórinn, Janus Metz, taka við
fyrirspurnum úr sal. Þá verður
hann og þátttakandi í málþingi
á vegum RIFF og Alþjóðlegs
jafnréttisskóla við Háskóla Ís-
lands (GET-programme). Auk
Metz og fulltrúa GET munu
Fahad Jabali, einn af leik-
stjórum Vetrar á Gasa, og
Sharon Ward, framleið-
andi myndarinnar Eit-
urlyf í Afganistan, taka
þátt í umræðum. Mál-
þingið fer fram í Þjóð-
minjasafninu í dag kl.
16:00- 17:30.
Stendur fyrir
máli sínu
SPURT OG SVARAÐ
Janus
Metz
Í dag kl. 16 verður haldin út-
gáfuteiti vegna bókarinnar Ritun
kvikmyndahandrita eftir kvik-
myndagerðarmanninn Önnu Th.
Rögnvaldsdóttur. Teiti þessi verð-
ur haldin í húsi Nemaforum, í Slipp-
húsinu við Reykjavíkurhöfn, og er
gengið inn Mýrargötumegin.
Ritun kvikmynda-
handrita fagnað
Fólk
Á morgun heldur þungarokks-
hljómsveitin Ask the Slave útgáfu-
tónleika á skemmtistaðnum Fak-
torý vegna annarrar breiðskífu
sinnar, The Order of Things.
Undanfarið ár hefur Ask the
Slave einbeitt sér að gerð plöt-
unnar og ekki haldið tónleika í um
ár. Aðdáendur hljómsveitarinnar
hljóta því að vera spenntir fyrir
tónleikunum í kvöld þar sem biðin
hefur verið þónokkur. Hljómsveitin
sér um upphitun og á neðri hæð
staðarins heldur Dj Logi Pedro
uppi stuðinu með Retro Stefson dj-
setti frá miðnætti.
Ask the Slave loksins
með tónleika
Í október verða átta ár liðin frá
því hinir vösku drengir í Hvann-
dalsbræðrum stofnuðu hljómsveit-
ina. Af því tilefni ætla drengirnir
að halda tónleika á Græna hatt-
inum í kvöld og á morgun og
verða eingöngu leikin lög af
fyrstu þremur diskum bræðranna.
Hvanndalsbræður bjóða og upp á
fordrykk!
Hvanndalsbræður
fagna átta ára afmæli