Morgunblaðið - 12.10.2010, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 12.10.2010, Qupperneq 1
Þ R I Ð J U D A G U R 1 2. O K T Ó B E R 2 0 1 0  Stofnað 1913  238. tölublað  98. árgangur  ALLT ER EITTHVAÐ ER NÝ PLATA MEÐ JÓNASI SIG. RONALDO OG FÉLAGAR ÆFÐU Í LAUGARDALNUM Á HJÓLUM INNAN UM GEITUR OG KÝR Í ÖLPUNUM ÍSLAND MÆTIR PORTÚGAL PÝRENEAFJÖLLIN NÆST 10RITVÉLAR FRAMTÍÐAR 30 Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is Nái hugmyndir stjórnvalda og Hagsmunasam- taka heimilanna fram að ganga, um almenna niðurfærslu á höfuðstól íbúðalána, gæti þurft að afskrifa um 220 milljarða króna. Er þá mið- að við 18% niðurfærslu eins og helst hefur ver- ið rætt um á fundum stjórnvalda. Útistandandi verðtryggð íbúðalán námu alls um 1.230 milljörðum króna í lok sumars. Stærstan hluta átti Íbúðalánasjóður, eða nærri 730 milljarða, bankarnir um 320 milljarða og lífeyrissjóðirnir um 184 milljarða. Verði höf- Afskrifa þyrfti 220 milljarða  Hugmyndir um almenna niðurfærslu skulda falla í grýttan jarðveg hjá talsmanni lífeyrissjóðanna  Nái áform um 18% niðurfærslu fram að ganga þýddi það 130 milljarða afskriftir fyrir Íbúðalánasjóð semja við þá, aðeins 37% lána í bönkunum séu í skilum. Áform um niðurfærslu falla í grýttan jarð- veg hjá lífeyrissjóðunum. „Okkur líst ekki vel á þessar hugmyndir,“ segir Arnar Sigurmunds- son, formaður Landssamtaka lífeyrissjóða, við Morgunblaðið. Allt inngrip stjórnvalda geti aldrei leitt til annars en að rýra eignir lífeyr- issjóðanna og skerða lífeyrisréttindi fólks. „Við gerum okkur grein fyrir að margir eiga í erfiðleikum en þeim verður ekki hjálpað með því að skerða bætur lífeyrisþega.“ MHver á að borga brúsann? »6 uðstóll lánanna færður niður um 18% gæti það þýtt afskriftir upp á 130 milljarða hjá Íbúða- lánasjóði, nærri 60 milljarða hjá bönkunum og rúma 30 milljarða hjá lífeyrissjóðunum. Misvel tekið Hugmyndum um almenna niðurfærslu hef- ur verið misvel tekið, bæði innan stjórnar- flokkanna og stjórnarandstöðunnar, sem og hjá hagspekingum. Þá er talið ólíklegt að bankarnir, og eigendur þeirra, taki hugmynd- unum fagnandi. Hagsmunasamtök heimilanna hafa hins vegar bent á að bönkunum sé meiri akkur í því að lækka kröfur á lánþega eða 18% niðurfærsla » Höfuðstóll á 20 milljóna króna verð- tryggðu íbúðaláni til 40 ára myndi lækka í 16,4 milljónir króna, nái hugmyndir um 18% niðurfærslu fram að ganga. » Mánaðarleg afborgun af slíku láni myndi lækka úr 100 þúsund krónum í 82 þúsund. Endanlegur kostnaður við lánið færi úr 95 milljónum í 78 milljónir kr. Íslenska U21 árs landsliðið í knattspyrnu fagn- aði að vonum í Skotlandi í gærkvöldi eftir 2:1 sigur á Skotum enda tryggði það sér sæti í átta liða úrslitakeppni Evrópumótsins, sem verður í Danmörku í júní á næsta ári. Gylfi Þór Sigurðs- son (nr. 10) skoraði bæði mörk Íslands. » Íþróttir Ljósmynd/SNS Group Craig Watson Næst er það úrslitakeppnin í Danmörku Lán, sem eru í vanskilum eða nálægt vanskilum, eru tæplega 65% af heild- arútlánum bankakerf- isins hér á landi ef miðað er við nafn- virði lánanna. Bankarnir hafa hins veg- ar afskrifað hluta af lánunum og er bókfært virði lélegra lána um 45 prósent af heildarútlánum bankakerfisins. Kemur þetta fram í skýrslu Al- þjóðagjaldeyrissjóðsins vegna þriðju endurskoðunar efnahags- áætlunar Íslands. Heildarútlán bankakerfisins námu í ágústlok 2.280 milljörðum króna og er því um háar fjárhæðir að ræða. »14 Stór hluti útlána í vanskilum  Útlán bankakerf- isins 2.280 milljarðar Veðurblíðan það sem af er október hefur verið einstök og hitamet hafa verið slegin á nokkrum veðurstöðv- um á landinu. Trausti Jónsson veðurfræðingur bendir á að þetta séu mikil við- brigði frá því í fyrra og hittifyrra þegar byrjaði að snjóa í höfuðborg- inni strax eftir mánaðamótin. „Fyrstu daga október tvö síðustu ár fengum við snjó og hálku en nú er verið að tala um hitamet á mörgum veðurstöðvum,“ segir Trausti. „Það var annars kominn tími á að októ- ber tæki við sér en hlýir október- mánuðir hafa ekki verið algengir seinni árin. Miðað við aukin hlýindi aðra mánuði ársins hefur október legið svolítið eftir.“ Meðalhiti í Reykjavík það sem af er október er nú 9,6 stig, sem er um hálfu stigi meira en meðaltal alls júnímánaðar 1961-1990 og 4,2 stig yfir meðallagi. Það er með því hæsta sem finna má fyrstu tíu dag- ana í október. »4 Morgunblaðið/Ómar Blíða Borgarbúar nutu veðurblíðunnar um helgina eins og sumar væri. Október sýnir lit og er kominn í metaham Tilboð í leigu á nýrri björg- unarþyrlu fyrir Landhelgisgæsluna verða opnuð á morgun. Áformað var að leigja þyrlu til viðbótar þeim tveimur sem fyrir eru. Hins vegar hafa allar forsendur breyst síðan auglýst var eftir þyrl- unni því í fjárlagafrumvarpinu er Gæslunni gert að skera niður kostnað um 8% á næsta ári. „Útboðið var í raun bara könnun á möguleikum, en þetta er í full- komu uppnámi,“ segir Georg Lár- usson, forstjóri Gæslunnar. »12 Óvíst að Landhelg- isgæslan geti leigt þriðju þyrluna

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.