Morgunblaðið - 12.10.2010, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 12.10.2010, Blaðsíða 32
32 MENNING MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. OKTÓBER 2010 Frábær gaman- mynd frá þeim sömu og færðu okkur “40 Year old Virgin” og “Anchor- man” FRÁ LEIKSTJÓRA MEET THE PARENTS 7 Steve Carrell og Paul Rudd fara á kostum ásamt Zach Galifianakis sem sló eftirminnilega í gegn í “The Hangover” SÝND Í ÁLFABAKKA OG AKUREYRI BEN AFFLECK LEIKUR BANKARÆNINGJA Í SINNI BESTU MYND TIL ÞESSA HHHH „ÞESSI LÆTUR KLÁRLEGA SJÁ SIG Á ÓSKARNUM Á NÆSTA ÁRI.“ - T.V. - KVIKMYNDIR.IS HHHHH “ÞETTA ER EINFALDLEGA BESTA MYNDIN SEM ÉG HEF SÉÐ Á ÁRINU” - Leonard Maltin HHHH “EF ÞAÐ ER TIL MYND SEM ÞÚ VERÐUR AÐ SJÁ, ÞÁ ER ÞAÐ ÞESSI” - Boxoffice Magazine HHHH “THE TOWN ER ÞRILLER EINS OG ÞEIR GERAST BESTIR OG RÚMLEGA ÞAД - Wall Street Journal SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI, AKUREYRI OG KEFLAVÍK Bráð- skemmtileg grínmynd fyrir alla fjölskylduna HHH - D.H. EMPIRE SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI, AKUREYRI OG KEFLA GILDIR EKKI Á ÍSLENSKAR, VIP OG 3D MYNDIRÞRIÐJUDAGSBÍÓ Í DAG - KR. 650 650 kr. Tilboðil 650 kr Tilboðil 650 kr. Tilboðil BESTA SKEMMTUNIN WALL STREET 2 kl.8-10:30 L EAT PRAY LOVE kl.8 L SOLOMON KANE kl. 10:30 16 ALGJÖR SVEPPI OG... kl.6 L AULINN ÉG m. ísl. tali kl.6 L / SELFOSSI FURRY VENGEANCE kl.6 L THE TOWN kl.8 -10:30 16 ALGJÖR SVEPPI OG... kl.6 L DINNER FOR SCHMUCKS kl.8-10:10 L / AKUREYRI THE TOWN kl.6-8-10-10:40 16 FURRY VENGEANCE kl.6-8 L THE TOWN kl.8-10:40 VIP GOING THE DISTANCE kl.8:30 L DINNER FOR SCHMUCKS kl.6-8:15-10:30 7 ALGJÖRSVEPPIOG... kl.63D L SOLOMON KANE kl.8:15-10:40 16 AULINN ÉG m. ísl. tali kl.6 L SOLOMON KANE kl.5:50 VIP THE GHOST WRITER kl.10:40 12 / ÁLFABAKKA THE TOWN kl.8-10:10-10:40 16 FURRY VENGEANCE kl.6 L GOINGTHEDISTANCE kl.8 L ALGJÖRSVEPPIOG... kl.63D L STEP UP 3 - 3D kl.83D 7 INCEPTION kl. 10:10 12 HUNDAR OG KETTIR kl.6 m. ísl. tali L / KRINGLUNNI Sérhver sem ætlar sér að ná frama í menningarheim- inum á Íslandi ætti sem fyrst að af- neita Breiðbandinu og búa til velvalda hótfyndni um lág- kúru bandsins. Það er auðvelt að safna kaldhæðnum kommentum um hljómsveit einsog Breiðbandið. Textar þeirra koma frá staðal- ímyndum um karlmenn og konur. Húmorinn byggir á fitu, bjór- drykkju, fótbolta, röflandi kvenfólki, stinningarlyfjum og karlmönnum sem kunna ekki að halda á þvotta- bursta. Tónlistin er lítt ögrandi. Gít- arinn áberandi og melódían einföld. En fyrir þá sem ekki hefur verið drekkt í kynjafræðum og hafa ekki tuggið femínistafræðin með morg- unmatnum né þurft að skríða upp menningar-metorðastigann með til- vitnunum í díalektísk fræði Derrida, þá er þetta létta grín Breiðbands- manna bara skemmtilegt. Einfaldur og góðlegur húmor þeirra hittir í mark. Breiðbandið - Bætir á sig bbbmn Alþýðutón- list Börkur Gunnarsson Um er að ræða geisladisk og mynddisk með upptökum frá tón- leikum til heiðurs Elvis Presley í Salnum 27. mars 2010. Ekkert er til sparað til að láta þessa útgáfu líta vel út en innihaldið er heldur rýrt og stendur ekki undir útgáfu. Friðrik Ómar er alltaf góður og syngur lög Elvis vel. Það hefur eflaust verið gaman að vera á tónleikunum en þeir gefa ekkert tilefni til að vera gefnir út á geisla- og mynddiski. Það er ekkert þarna sem þarf að sjá eða heyra aftur; þetta eru aðeins hefð- bundnir, látlausir tökulagatónleikar. Plötuumslagið er glæsilegt en nefna verð ég undarlega útfærslu á Elvis-hárgreiðslu Friðriks Ómars, er hún meira eins og Tinni hittir Herbert Guðmundsson árið 1985 en Elvis. Fyrir þá sem voru gestir á tónleikunum er líklega gaman að eiga þennan grip en við hin förum bara út í búð og kaupum okkur safn- disk með hinum eina sanna Elvis. Hver er til- gangurinn? Friðrik Ómar – Elvis bbnnn Ingveldur Geirsdóttir Ekki er nema eðli- legt að mann hafi rekið í rogastans er maður heyrði fyrstu plötu Jón- asar Sigurðssonar fyrir réttum fjór- um árum. Ég vissi að Jónas hafði ver- ið í hinu galgopalega bandi Sólstrandargæjunum og átti því ekki von á miklu, en BAMM … þvílíkt og annað eins. Platan, sem ber hinn und- irfurðulega titil Þar sem malbikið svífur mun ég dansa inniheldur skrýtipopp í hæsta gæðaflokki og var dansinn á mörkum hins sérkennilega og hins aðgengilega það velheppn- aður að lög af plötunni rötuðu í út- varp – og nutu vinsælda. Ég var því að vonum spenntur fyr- ir þessari plötu, en um leið nokkuð uggandi. Þegar menn hitta vel í mark með frumburði renna þeir gjarnan á rassinn með næsta skammt, og er meira að segja til nafn á þetta í popp- fræðum, kallað „Hin erfiða plata nr. 2“. Það er mér því mikil og ómæld ánægja að skýra frá því að ekkert slíkt er í gangi hér. Það er ekki einu sinni vottur af því. Og ef eitthvað er, tekur þessi plata hinni fyrri fram. Þetta er á allan hátt heilsteypt verk; rennslið er öruggara, hljómurinn er fyllri, hugmyndirnar að fullu mót- aðar og maður heyrir á Jónasi að hann veit upp á hár hverju hann vill ná fram. Þetta er svona eins og mun- urinn á Mellow Gold og Odelay Becks. Sá mikli meistari kemur stundum upp í hugann þegar hlýtt er á Jónas, en einnig landar hans Egill Sæbjörns og Mugison. Líkt og á fyrri plötu er allt þægilega á skakk og skjön, lögin, krydduð með brassi, óhljóðum og í einu tilfelli Sinclair Specrum-tölvu fara í óvæntar áttir, statt og stöðugt og maður situr með sperrt eyrun frá upphafi til enda. Textarnir eru líka kapítuli út af fyrir sig, og nær Jónas hæstu hæðum í hinu magnaða „Hleypið mér út úr þessu partíi“. Heyrn er sögu ríkari, gott fólk. Ein af betri plötum ársins til þessa, ekki spurning. Það er í góðu lagi, að vera hugsandi gæi Jónas Sigurðsson - Allt er eitthvað bbbbb Arnar Eggert Thoroddsen Jónas Sigurðsson „Er einhver þarna úti?“ Íslenskar plötur Sjá ennfremur viðtal við Jónas á bls. 30 Hinn grínaktugi leikariBen Stiller sýnir á sérnýja, dramatíska hlið íkvikmyndinni Green- berg og stendur sig bara prýðilega, svei mér þá! Stiller er beinaber, föl- ur og lokkaprúður, líkt og gamall, útbrunninn rokkari frá hippa- tímabilinu. Myndin segir af Roger nokkrum Greenberg, tónlistarmanni sem býr í New York en hefur ekki náð frama með listsköpun sinni og starfar sem smiður. Bróðir hans, Phillip, á hins vegar mikilli velgengni að fagna og býr í glæsihýsi í Hollywood-hæðum Los Angeles með eiginkonu sinni, börnum og hundi. Phillip biður bróð- ur sinn að gæta húss og hunds á meðan hann og fjölskyldan eru í fríi í Víetnam. Aðstoðarkona Phillips, Florence, sér til þess að Roger skorti hvorki mat né drykk og að hundurinn fái nóg að éta. Hin unga Florence heillast af Roger, þrátt fyr- ir að hann sé þurr á manninn og fá- máll og að á þeim sé töluverður ald- ursmunur, Roger fertugur en hún hálfþrítug. Aldursmunurinn veldur nokkrum núningi milli þeirra, Roger lífsreyndur og -þreyttur en Florence sakleysið uppmálað og létt í lund. Engu að síður fella þau hugi saman en sambandið er stormasamt þar sem Roger tekur bræðiköst af minnsta tilefni, er taugaveiklaður og sár út í allt og alla. Undarleg hegðun Rogers á sér þó eðlilegar skýringar sem koma í ljós þegar líða tekur á myndina og þá einkum í samskiptum hans við fyrrverandi hljómsveit- arfélaga sinn, Ivan, sem leikinn er af hinum fantagóða Rhys Ifans. Greenberg er lágstemmt drama, oft á tíðum gamansamt, og persónu- sköpun sem og vel skrifuð samtöl gera hana að fyrirtaks kvikmynd. Sennilega er rétta orðið „grát- brosleg“. Hér er áhugaverð mynd dregin upp af manni á miðjum aldri sem brennt hefur allar brýr að baki sér, er vinafár og einmana, draum- arnir brostnir. Forsögunni er fléttað í smáum skömmtum inn í framvind- una, í upphafi veit maður ekkert um aðalpersónuna en smám saman er lögunum flett utan af henni. Myndin er framreidd af raunsæi, engar ýkj- ur eða stælar, og leikurinn er fyrsta flokks. Stiller sýnir hér á sér nýja hlið: hann er alvöruleikari, ekki bara sprelligosi. Mörg dásamleg atriði má finna í myndinni, t.d. þegar Green- berg hittir gamla skólafélaga í garð- veislu en nær engum tengslum við þá, líkt og þeir séu ókunnugt fólk. Annað atriði er ekki síðra, þegar hann hellir sér yfir ungmenni í teiti og skammar þau fyrir að vera svona örugg með sig. Þannig hafi hans kynslóð nú ekki verið! Þá ætti mynd- in að höfða öðru fremur til fólks sem komið er á þennan aldur, fertugt eða þar um bil, þann aldur er barneignir, uppeldi og starfsframi er í algleym- ingi og vinatengsl taka að veikjast, oft á tíðum. Þegar fólk fer að líta yfir farinn veg og velta því fyrir sér hvar það sé statt í lífinu. Hefur það náð þeim markmiðum sem það setti sér fyrir 15-20 árum, er það sátt við líf sitt? Og þar frameftir götunum. Greenberg er ein allsherjar til- vistarkreppa, bráðvel heppnuð sem slík en þó kannski fullhæg á köflum. Græna ljósið, Bíó Paradís Greenberg bbbmn Leikstjóri: Noah Baumbach. Aðal- hlutverk: Ben Stiller, Greta Gerwig, Rhys Ifans. 107 mín. Bandaríkin, 2010. HELGI SNÆR SIGURÐSSON KVIKMYND Þjakaður Stiller í hlutverki Greenberg í samnefndri kvikmynd. Visinn og bagaður Stiller

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.