Morgunblaðið - 12.10.2010, Qupperneq 4
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Hitamet var slegið á nokkrum veð-
urstöðvum um helgina og það sem af
er októbermánuði hefur veður verið
með blíðasta móti. Á Þingvöllum
mældist hitinn 17 stig á sunnudag og
hefur slíkur hiti ekki áður mælst í
þjóðgarðinum í október. Þétt umferð
var á Þingvöllum alla helgina þar
sem haustið skartaði sínu fegursta
með fjölbreytilegum litum laufs og
lyngs. Á laugardaginn tóku um 200
manns þátt í fræðslugöngu upp með
Öxará þar sem fylgst var með æv-
intýrum risaurriðans úr Þingvalla-
vatni.
Trausti Jónsson veðurfræðingur
segir að það sem af er október hafi
veður verið með allra besta móti.
Hann bendir á að þetta séu mikil við-
brigði frá því í fyrra og hittifyrra
þegar byrjaði að snjóa í höfuðborg-
inni strax eftir mánaðamótin.
„Fyrstu daga október tvö síðustu
ár fengum við snjó og hálku en nú er
verið að tala um hitamet á mörgum
veðurstöðvum,“ segir Trausti. „Það
var annars kominn tími á að október
tæki við sér, en hlýir októbermánuðir
hafa ekki verið algengir seinni árin.
Miðað við aukin hlýindi aðra mánuði
ársins hefur október legið svolítið
eftir.“
Fyrir utan metið á Þingvöllum
segir hann ekki ólíklegt að hitamet
hafi verið slegið á Eyrarbakka. Önn-
ur met séu flest á stöðvum þar sem
ekki hafi verið gerðar veðurathugan-
ir í langan tíma, gjarnan 5-15 ár, og
því nái samanburðurinn ekki langt
aftur.
Á sunnudag voru engin Íslands-
met slegin því flesta daga október-
mánaðar hefur hiti einhvern tímann
farið í 18-20 stig og þá yfirleitt á
Norðausturlandi og norðanverðum
Austfjörðum Næstu daga er spáð lít-
illega kaldara veðri með einhverri
vætu sunnanlands og vestan. Trausti
segist ekki sjá snjó í kortunum,
en á höfuðborgarsvæðinu sé al-
gengt að fyrsti snjórinn
falli í kringum
fyrsta vetrar-
dag, sem í ár er
23. október.
Dæmi séu þó um að ekki hafi byrjað
að snjóa fyrr en rétt fyrir jól. „Norð-
ur í höfum er 20 stiga frost þannig að
veturinn er farinn að nálgast. Þetta
hefur allt sinn gang og veturinn kem-
ur,“ sagði Trausti Jónsson.
Mikil litadýrð
Mikil umferð var alla helgina í
þjóðgarðinum á Þingvöllum og
greinilegt að margir hafa skipulagt
helgarbíltúrinn á þessar slóðir. Einar
Á.E. Sæmundsen, fræðslufulltrúi
þjóðgarðsins á Þingvöllum, segir að
veðurblíðan hafi verið einstök und-
anfarið og litadýrðin mikil.
„Laufin hafa haldið sér lengur en
algengt er en nú er birkið farið að
gefa eftir,“ segir Einar. „Guli liturinn
er orðinn ríkjandi en inni á milli má
enn sjá þokkalega græna víðirunna.
Það er skrýtið að segja það en litir
haustsins hefðu orðið enn skarpari
hefðum við fengið fleiri frostnætur.“
Fjöldi fólks hefur heimsótt Þing-
velli í haust og um helgina var þar
mikill gestagangur. Íslendingar voru
í miklum meirihluta og var fólk á öll-
um aldri.
Kominn tími á október
Hitamet slegið á nokkrum veðurstöðvum Tvö síðustu ár var snjór og hálka í
höfuðborginni í byrjun október Helgarbíltúr margra var í blíðuna á Þingvöllum
Ljósmynd/Einar Á.E. Sæmundsen.
Haust Fjöldi fólks tók þátt í fræðslugöngu við Öxará á laugardag. Auk þess að fræðast um urriðann naut fólk eindæma veðurblíðu og litadýrðar.
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. OKTÓBER 2010
Urriðinn
dansar
í Öxará
Rannsóknir Ferðir Þingvallaurriða
sem hrygna í Öxará eru skráðar.
Sækja úr djúpi
vatnsins í ævintýri
og ástarleiki
„Á laugardaginn var fræðsluganga
upp með Öxará sem dró að sér um
200 manns í veðurblíðunni,“ segir
Einar Á. E. Sæmundsen, fræðslu-
fulltrúi þjóðgarðsins. „Jóhannes
Sturlaugsson fræddi okkur um
göngur urriðans úr djúpum Þing-
vallavatns á haustin en þá sækja
þeir í ævintýri og ástarleiki í Öx-
ará.“
Á heimasíðu þjóðgarðsins er
fjallað um fræðslugönguna undir
fyrirsögninni Urriðadans í Öxará.
Þar segir meðal annars: „Rann-
sóknafyrirtækið Laxfiskar hóf nú í
september að skrá ferðir allra Þing-
vallaurriða sem ganga til hrygn-
ingar í Öxará með fiskteljara sem
lengdarmælir og kvikmyndar alla
fiska sem ganga upp á hrygning-
arstöðvarnar.
Nemur einstaklingsmerki
Auk þess er samhliða starfræktur
skynjari sem nemur einstaklings-
merki, svokölluð rafkenni sem
drjúgur hluti fiskanna ber innvortis.
Með því móti er árum saman hægt
að fylgjast á einstaklingsgrundvelli
með ferðum fiska og afla upplýsinga
um stærð og útlit þeirra sömu fiska.
Umrædd hátækniaðstaða til sjálf-
virkrar vöktunar á hrygningarfiski
Þingvallaurriðans í Öxará er full-
komnasta aðstaða af slíkum toga
sem sett hefur verið upp til að fylgj-
ast með ferðum staðbundinna urriða
yfir hrygninguna og samsetningu
hrygningarstofnsins með hliðsjón af
kyni, stærð og einstaklingum. Að-
staðan gerir m.a. mögulegt að fylgj-
ast með sama fiskinum árum saman
yfir hrygningartímann en þekkt er
að sömu urriðarnir hrygna árum
saman í Öxará.“
Trausti Jónsson, veðurfræð-
ingur, segir sérkennilegast hve
hlýtt var á fjallvegum í nokkur
hundruð metra hæð vestur á
fjörðum, en hiti mældist t.d. 15-
18 stig á Gemlufallsheiði og á
Seljalandsdal. Býsna hár hiti
hafi verið á fleiri stöðum á
þessu svæði.
Einnig hafi verið mjög hlýtt
inn til landsins á Norð-
austurlandi á sunnu-
dag, 16 stig mældust í
Svartárkoti í Bárðardal
og 14,5 stig á Möðru-
dal. Á þessum árs-
tíma sé oft kominn
harðavetur á þess-
um slóðum.
Hlýindi á
fjallvegum
ÓLÍKINDI Í VEÐRI
Októbersnjórinn hefur enn
ekki látið á sér kræla.
Meðalhiti í Reykjavík það sem af er
október er nú 9,6 stig, sem er um
hálfu stigi meira en meðaltal alls
júnímánaðar 1961-1990 og 4,2 stig
yfir meðallagi. Það er með því hæsta
sem finna má fyrstu tíu dagana í
október. Hlýrra var þó 1959, 11,0
stig.
„Veðurlag þá var öðruvísi en núna,
þungbúið og úrkomusamt syðra,“
skrifaði Sigurður G. Guðjónsson á
heimasíðu sína í gær. „Mikil árstíða-
leg kólnun er vitaskuld í gangi frá
fyrsta til síðasta dags í október. Eftir
daginn í dag er næsta víst að með-
alhitinn í bænum mun enn stíga.
Hlýjustu októbermánuðir sem
mælst hafa í Reykjavík eru 7,9 stig
1915 sem var líka sólarminnsti októ-
ber sem þar hefur nælst og 7,7 stig
1959 og 1946. Á Akureyri var síðast-
nefndi mánuðurinn sá hlýjasti, 7,9
stig. Þar er meðalhitinn það sem af
er núna 8,3 stig.“
Meiri meðalhiti en oft í júní
Þungbúið og úrkomusamt í Reykjavík í október fyrir hálfri
öld þegar meðalhiti fyrstu daga mánaðarins var meiri en nú
Heiðskírt Bjart var yfir á sunnudag eins og sést á gervitunglamyndinni.
Lambahjörtu og lifur
kr.
kg298
Lambanýru
kr.
kg198 HOLLU
R
OG GÓÐ
UR
MATUR
ódýrt og hollt