Morgunblaðið - 12.10.2010, Side 10
10 DAGLEGT LÍFHreyfing og útivist
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. OKTÓBER 2010
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
Að upplifa stórbrotna nátt-úrufegurð Alpanna áhjóli er alveg magnað.Því fylgir mikil frelsis-
tilfinning,“ segja þeir Óskar Gúst-
avsson og Snorri Guðjónsson sem
fóru í hjólaferð í haust um fjall-
lendið við Mont Blanc í Sviss.
„Við fylgdum að mestu leyti
vinsælli gönguleið og leiðarlýs-
inguna fengum við af vefsvæðinu
wikiloc.com. Við hlóðum leiðinni
niður í GPS-tækið okkar og fylgd-
um því. Við hefðum aldrei fundið
þessa litlu og skemmtilegu stíga
sem þessi leið lá um, ef við hefðum
ekki hjólað eftir þessum staðsetn-
ingarpunktum sem við höfðum í
GPS-tækinu okkar.
Vissulega er mikið fjalllendi
þarna og undirlagið var ekki alltaf
mjög hentugt til hjólreiða. Við
þurftum stundum að bera hjólin
yfir bratta og grýtta slóða og einu
sinni tók það okkur hálfan dag að
komast yfir mjög svo skógivaxna
hlíð, með hjólin á öxlunum. En
þetta gerði ferðina bara fjölbreytt-
ari.“
Vilja gamla slóða
Þeir félagarnir hafa hjólað
heilmikið saman í gegnum tíðina
en telja sig þó ekki neina hjóla-
brjálæðinga.
„Hjólaferðir eru hluti af ann-
arri útivist sem við stundum. Við
förum líka í skíðaferðir, jeppaferð-
ir og fjallgöngur. Við erum nokkr-
ar fjölskyldur sem höfum farið
saman í allskonar ferðir en við er-
um yfirleitt fámenn í hjólaferð-
Þurftum að reka kýr
af hjólaveginum
Þeir hjóluðu um Mont Blanc-fjallgarðinn og lentu í ýmsum ævintýrum, hjóluðu
fram á geitur og kýr og þurftu að bera hjólin framhjá þeim skepnum sem ekki
vildu fyrir nokkurn mun víkja. Þeir þurftu líka stundum að bera hjólin langan
veg þegar slóðinn var alls ófær. En náttúrufegurðin og ánægjan var allsráðandi.
sasdasd
Afslappað Kálfur á beit á barnum góða á Ítalíu.
Sveitasæla Snorri mætir geitahjörð rétt við bæinn Chamonix.
Jamie er vinsæll hlaupabloggari. Hún
kallar sig Running Diva Mom eða
hlaupandi prímadonnu-móður. Hún
byrjaði að hlaupa fyrir um tveimur til
þremur árum síðan þegar dóttir
hennar var átján mánaða. Jamie segir
að hlaupin séu nú „hennar tími“ og
geri hana að betri móður. Með blogg-
inu vill hún sýna öðrum mæðrum
fram á að þær geti líka fundið smá
tíma fyrir sjálfan sig á hverjum degi.
Jamie á nú tvö börn og styðja þau
hana í hlaupunum auk þess sem eig-
inmaður hennar er líka mikill íþrótta-
garpur og taka þau hjón þátt saman í
mörgum maraþonum.
Jamie skrifar um hlaupaáætlun
sína, mataræði, undirbúning fyrir
maraþon, ferðir sínar á keppnisstað
og hvernig gekk. Í hliðardálk má sjá
þau hlaup sem hún hefur tekið þátt í
og árangur hennar í þeim.
Jamie er sannkölluð prímadonna,
vefsíðan hennar er bleik með hlé-
barðamynstri, samkvæmt myndunum
er hún mikið fyrir „stelpulegan“
hlaupafatnað og allt sem er bleikt.
Runningdivamom.blogspot.com er
vefsíða sem ætti að geta blásið öðr-
um mæðrum í brjóst að finna tíma
fyrir sjálfan sig á hverjum degi fyrir
hreyfingu og aðra heilsueflingu.
Vefsíðan www.runningdivamom.blogspot.com
Reuters
Hreyfing Síðuhaldarinn tekur þátt í maraþonum víða um Bandaríkin.
Hlaupandi prímadonna
Út var að koma bókin Boot Camp – Hámarks-
árangur eftir Arnald Birgi Konráðsson og Ró-
bert Traustason.
Boot Camp hefur náð miklum vinsældum hér
á landi enda vita þeir sem reynt hafa að þessar
krefjandi æfingar skila góðum árangri og það
er auðvelt að læra þær. Um leið fela þær í sér
áskorun og hvatningu til að láta reyna á þol lík-
amans án þess að ganga of langt.
Í þessari bók eru lýsingar á fjölbreyttum æf-
ingum og teygjum ásamt æfingaáætlunum með
bæði grunnæfingum fyrir byrjendur og elítuæf-
ingum fyrir lengra komna. Skýringar-myndir
eru af öllum æfingunum og þeim fylgja ábend-
ingar um ýmis áhersluatriði. Einnig eru gagn-
legar ráðleggingar um mataræði og fleira sem
gott er að vita til að ná hámarksárangri.
Endilega …
… prófið Boot Camp-bókina
Ingveldur Geirsdóttir
ingveldur@mbl.is
Íslenskir fjallaleiðsögumenn kynntu
nýverið þrjá nýja fjallgönguhópa þar
sem þátttakendur eiga það sameig-
inlegt að ganga á fjöll árið um kring.
Hóparnir nefnast Léttfeti, Fjallageng-
ið og Brattgengið. Fyrirkomulag hóp-
anna er ólíkt og því ættu allir að geta
fundið sér farveg sem hentar. Kjarninn
í dagskrá hópanna eru vikulegar æf-
ingar og mánaðarlegar fjallgöngur þar
sem tekist er á við miskrefjandi fjöll.
„Það má segja að þetta sé nýjung hjá
okkur, ekki þó alveg. Við höfum skipu-
lagt ferðir frá 1994 og höfum síðustu
þrjú ár verið með stór átaksverkefni í
samstarfið við 66°N en það var um
síðustu áramót sem við fórum að
bjóða fólki upp á heilsársprógramm
svipað og árskort í ræktina; að ganga
með okkur og gera það að lífsstíl, að
ferðast til fjalla. Sá hópur nefnist
Fjallafólk og við göngum mán-
aðarlega á há og lág fjöll og förum
vikulega í minni göngu sem við köll-
um þriðjudagsþrekæfingar. Þá erum
við í nágrenni byggðar og gerum
styrktaræfingar og slíkt,“ segir Jón
Gauti Jónsson, leiðsögumaður hjá Ís-
lenskum Fjallaleiðsögumönnum.
„Það sem við erum að gera með þess-
um nýju hópum er að svara kalli
markaðarins vegna þess að Íslend-
ingar vilja augljóslega eiga þennan
valkost á móti líkamsræktarstöðvum
eða öðru slíku. Við erum að bjóða
fólki að ganga með okkur allt árið í
kring,“ bætir Jón Gauti við.
Fjallganga
Við erum að bjóða fólki að
ganga með okkur allt árið
Fjallafólk Allir glaðir og kátir komnir á áfangastað.
White Caviar Illuminating Systeme
lightening • lifting • luxury
Vertu velkomin að kynnast því
allra nýjasta frá la prairie
í Hygeu Kringlunni á morgun
miðvikudaginn 13. okt. kl. 13-17
Bjóðum 10%
kynningarafslátt
og kaupauka Kringlan, sími 533 4533
Smáralind, sími 554 3960