Morgunblaðið - 12.10.2010, Page 13
FRÉTTIR 13Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. OKTÓBER 2010
Mikið var um að vera hjá nem-
endum og kennurum Fellaskóla á
Fljótsdalshéraði í síðustu viku.
Þá var verndarsvæði Fellaskóla,
skólarjóðrið, vígt. Í tilkynningu
segir að stundin hafi verið hin
skemmtilegasta. Nemendur elduðu
fyrir gesti mat að hætti indjána og
einnig voru allir fræddir um
indjánadansa og vísundaveiðar. Þá
nutu allir þess að slaka á úti í nátt-
úrunni.
Batt stundin endahnút á þema-
daga nemendanna sem höfðu m.a.
búið til tjöld og veiðarfæri. Að sjálf-
sögðu voru gestir skreyttir með
fjöðrum og málaðir.
Skemmtu sér vel
í skólarjóðrinu
Í dag, þriðjudag kl. 16:00, standa
Faxaflóahafnir fyrir málþingi fyrir
notendur Faxaflóahafna í Sjóminja-
safninu við Grandagarð.
Fundurinn er öllum opinn en þeir
sem eru með starfsemi á hafn-
arsvæðum Faxaflóahafna eru sér-
staklega hvattir til að mæta. Á
fundinum verður m.a. farið yfir
fjárhagsáætlun næsta árs, farið yfir
helstu framkvæmdir og breytingar,
fjallað um þróun vöruflutninga til
og frá Íslandi, sagt frá starfsemi í
hafsækinni ferðaþjónustu og skýrt
frá þróun í komum skemmti-
ferðaskipa. Á fundinum gefst gott
tækifæri til þess að koma með fyr-
irspurnir og ábendingar um allt
það sem varðar hafnarekstur, þjón-
ustu og aðstöðu fyrir viðskiptavini.
Málþing á vegum
Faxaflóahafna
Samfylkingarfélag Fljótsdalshér-
aðs (SFF) lýsir í ályktun yfir
óánægju með framgöngu þing-
manna Samfylkingarinnar í at-
kvæðagreiðslu á Alþingi nýverið
um hvort ákæra ætti nokkra fyrr-
verandi ráðherra fyrir landsdómi.
Stjórn SFF telur að þingmenn
flokksins hafi sært stjórnmál
landsins djúpu sári. Ekki sé um
það bitist hvernig þingmenn kusu
heldur hvernig hægt er að hlaupa
milli feigs og ófeigs eftir eigin
geðþótta á augnabliki. Þau vinnu-
brögð einstakra þingmanna að sjá
ekki yfirsjónir félaga sinna, eða að
telja yfirsjónir pólitískra andstæð-
inga stærri en liðsfélaga sinna for-
dæmir stjórn SFF „meir en orð fá
lýst“.
Þingmenn hafa sært
landið djúpu sári
STUTT
ÚR BÆJARLÍFINU
Gunnar Kristjánsson
Grundarfjörður
Ný námsbraut er nú í farvatninu hjá Fjöl-
brautaskóla Snæfellinga. Samkvæmt frétta-
tilkynningu frá skólanum er ætlunin að unnt
verði að bjóða upp á tveggja ára námsbraut
sem hugsuð er til þess að þjálfa og undirbúa
nemendur fyrir þátttöku í atvinnulífinu. Gert
er ráð fyrir að farið verði af stað með náms-
brautina haustið 2012. Vinnuheiti hennar er
Öryggis- og þjónustubraut. Leitað verður eftir
samvinnu við fyrirtæki og stofnanir á starfs-
svæði FSN einkum þegar kemur að starfs-
þjálfun. Hugmyndin gengur út á að nemendur
séu í bóklegu námi í þrjár annir og eina önn í
vettvangsnámi hjá þeim fyrirtækjum/
stofnunum sem samstarf næst við. Spennandi
verður að sjá hvernig þessi braut þróast.
Íþróttaálfurinn hefur um nokkurt skeið
verið númer eitt hjá yngri kynslóðinni svo ekki
sé talað um Sollu stirðu. Forstöðumaður Lík-
amsræktarstöðvarinnar hér í bæ taldi á dög-
unum allt stefna í að kalla mætti allflesta
Grundfirðinga íþróttaálfa svo ákaft stunduðu
menn líkamsræktina. Það hafi svo sannarlega
ekki verið vanþörf á að opna eina slíka í
Grundarfirði en Líkamsræktin tók til starfa sl.
vetur og hefur aðsókn í hana farið fram úr
björtustu vonum. Öll námskeið fullsetin hvaða
nafni sem þau nefnast og nú síðast Ketilbjöllu-
námskeið en það þurfti að flytja það námskeið
í annað húsnæði vegna þess rýmis sem þarf til
að hendast um með bjöllurnar. Enginn hefur
þó komið með tillögu um að kalla Grundarfjörð
Latabæ ennþá, hvað þá hver fái titilinn Solla
stirða.
Síðasti túrinn hjá þeim á Þorvarði Lárus-
syni SH var farinn í liðinni viku Áhöfninni 14
manns hefur verið sagt upp og verður skipinu
nú lagt vegna skerðingar kvóta í karfa og ýsu
en skipið hefur verið á veiðum fyrir Samherja
á Akureyri undanfarin ár. Eitt er þó víst að
ekkert uppgjafarhljóð er í skipstjóranum Sig-
urði Ólafi Þorvarðarsyni sem segir að verið sé
að athuga ýmsa möguleika í stöðunni fyrst
svona fór. „Það er sko ekki til í minni orðabók
að gefast upp,“ segir hann og glottir við tönn.
Ný starfstengd náms-
braut í augsýn
Morgunblaðið/Gunnar Kristjánsson
Útgerð SH bíður nú verkefna.
Íslenskir ostar – hreinasta afbragð
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
–
1
0
-1
3
0
1