Morgunblaðið - 12.10.2010, Page 26
26 DAGBÓK
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. OKTÓBER 2010
Sudoku
Frumstig
5
7 5 8
9 8
3 4 7
7 6
6 1 3
9 8 4
5 6 4 9
3 7 1 5
9 4
7 8 2 3
4 2 6 9 8
3 6
9 8 1
7
2 8 4
9 7
6 4
4 6 7
2 4
1 2 5 8
5 1 4
1 4 8 2
6 1
4 9 7 2 1
5 2 6 9
9 6 8 4 2 5 3 1 7
7 4 5 1 3 6 9 2 8
2 1 3 7 8 9 5 4 6
1 7 2 5 9 3 8 6 4
8 5 9 6 4 1 2 7 3
4 3 6 2 7 8 1 9 5
5 2 7 8 1 4 6 3 9
6 9 1 3 5 7 4 8 2
3 8 4 9 6 2 7 5 1
3 8 6 2 7 9 5 1 4
1 5 9 6 4 3 7 2 8
2 7 4 8 5 1 9 6 3
5 6 8 4 2 7 3 9 1
4 3 7 9 1 8 2 5 6
9 1 2 3 6 5 8 4 7
8 2 1 7 9 6 4 3 5
6 9 3 5 8 4 1 7 2
7 4 5 1 3 2 6 8 9
8 5 1 9 7 3 4 2 6
9 6 7 4 8 2 5 3 1
2 3 4 1 5 6 7 9 8
7 9 6 8 3 4 1 5 2
1 8 5 2 6 7 9 4 3
4 2 3 5 1 9 6 8 7
5 7 2 3 4 1 8 6 9
6 4 9 7 2 8 3 1 5
3 1 8 6 9 5 2 7 4
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að
gerast þannig að hver níu
reita lína bæði lárétt og
lóðrétt birti einnig tölurnar
1-9 og aldrei má tvítaka
neina tölu í röðinni.
Í dag er þriðjudagur 12. október,
285. dagur ársins 2010
Orð dagsins: Nýtt boðorð gef ég yður,
að þér elskið hver annan. Eins og ég
hef elskað yður, skuluð þér einnig
elska hver annan. (Jóh. 13, 34.)
Strætósamgöngur til og frá Kjal-arnesi, 116 Reykjavík, gætu
verið betri. Víkverji á til að mynda
svolítið vont með að átta sig á því
hvers vegna enginn vagn fer frá
Kjalarnesi milli kl. 10 og 14 á daginn
og milli kl. 18 og 22 á kvöldin. Það
fer vagn klukkan 10.03 en að honum
förnum þarf að bíða í heilar fjórar
klukkustundir eftir þeim næsta.
Sama má segja um hitt tímagatið,
það fer vagn kl. 18.03 en sá næsti
ekki fyrr en kl. 22.03.
Seinna gatið kemur sér afar illa
fyrir ungmenni sem leggja stund á
íþróttaæfingar í Mosfellsbæ og
Grafarvogi. Algengt er að æfingar
hefjist klukkan 20 á kvöldin og til að
ná þeim þurfa ungmenni á Kjalar-
nesi að taka strætó klukkan 18 – og
ýmist bíða í tæpa tvo klukkutíma eða
rúmlega einn og hálfan eftir að æf-
ingin hefjist, ellegar stóla á að for-
eldrarnir skutli þeim. Það gera þeir
eflaust með glöðu geði þegar því
verður við komið.
Víkverji er hugsi yfir þessari
þjónustu, ellegar skorti á þjónustu.
Ætli Árbæingar og Grafarvogsbúar
myndu sætta sig við þetta fyrir-
komulag?
Gaman væri að heyra rökstuðning
Strætó bs. fyrir þessu. Er óhugsandi
að strætó fari á klukkutímafresti til
og frá Kjalarnesi frá klukkan 7 til
22? Eða til vara: Er mögulegt að
brúa bilið milli kl. 18 og 22 með ferð-
um á klukkutíma fresti?
x x x
Víkverji hefur lúmskt gaman afútvarpsæringjunum Simma og
Jóa og kveikir oft á þeim á laugar-
dagsmorgnum meðan hann les blöð-
in. Þeir mæta iðulega vel undirbúnir
til leiks og ná ósjaldan að kitla hlát-
urtaugarnar. Um daginn tókst þeim
hér um bil að drepa Víkverja úr
hlátri. Kappinn átt sér einskis ills
von þegar brast á með glænýrri út-
setningu þeirra félaga á slagaranum
góða Jungle Drum með Emilíönu
Torrini. Textinn var svo fyndinn og
söngurinn svo ákafur að Víkverji var
hársbreidd frá því að lognast út af
ofan í Special K-skálina. Það hefði
líkast til orðið sögulegur dauðdagi.
víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 æki, 4 spil, 7 svíf-
ur, 8 hræfugls, 9 álít, 11 hafa
tíma til, 13 at, 14 ól, 15 heið-
ur, 17 skellur, 20 amboð, 22
megnar, 23 fárviðri, 24 dreg
í efa, 25 lagvopns.
Lóðrétt | 1 ríki dauðra, 2
ójafnan, 3 aumt, 4 fiðurfé, 5
kona, 6 svarar, 10 bál, 12
skyldmenni, 13 gyðja, 15
mergð, 16 samkomurnar, 18
hagur, 19 koma skapi við, 20
fugl, 21 gaffal.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 hugarflug, 8 sýlar, 9 tíðum, 10 ætt, 11 múrað, 13 akr-
ar, 15 farms, 18 hláka, 21 ker, 22 Eldey, 23 aular, 24 handfangs.
Lóðrétt: 2 umlar, 3 afræð, 4 fatta, 5 Urður, 6 ásum, 7 smár, 12
aum, 14 kól, 15 flet, 16 rudda, 17 skyld, 18 hraka, 19 áflog, 20
arra.
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
Skák
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. Rf3 Bb4+ 4. Bd2 c5
5. e3 0-0 6. Bd3 d6 7. Rc3 b6 8. 0-0 Bb7 9.
De2 Bxc3 10. Bxc3 Re4 11. Bxe4 Bxe4
12. Hfd1 De7 13. dxc5 bxc5 14. Rd2 Bb7
15. Rb3 Rc6 16. Hd2 Ba6 17. Df3 Hac8
18. Had1 Hfd8 19. Dg3 e5 20. Dg4 f5 21.
Dxf5 Bxc4 22. Hxd6 Hf8 23. Dd7 Dh4
24. H6d2 Hcd8 25. g3
Staðan kom upp í kvennaflokki Ól-
ympíuskákmótsins sem er nýlokið í
Khanty-Mansiysk í Síberíu í Rússlandi.
Lenka Ptácníková (2.282) hafði svart
gegn Tram Hoang (2.285) frá Víetnam.
25. … Dh5! 26. Dxd8 hvítur hefði orðið
mát eftir 26. Dxc6 Dxd1+! 27. Hxd1
Hxd1+ 28. Kg2 Bf1+ 29. Kg1 Bh3+.
26. … Rxd8 27. Hxd8 Df3 28. H1d2 Be6
29. Hxf8+ Kxf8 30. Kf1 Bh3+ 31. Ke1
Dh1+ 32. Ke2 Bf1+ og hvítur gafst upp.
Lenka stóð sig afar vel á mótinu og náði
áfanga að alþjóðlegum meistaratitli.
Svartur á leik.
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Furðuskepna.
Norður
♠KD4
♥762
♦76
♣ÁK1052
Vestur Austur
♠95 ♠Á8632
♥ÁD103 ♥G95
♦DG102 ♦543
♣873 ♣G4
Suður
♠G107
♥K84
♦ÁK98
♣D96
Suður spilar 3G.
„Furðulegt,“ sagði Sveinn Rúnar Ei-
ríksson. „Þrjú grönd voru spiluð á
nítján borðum, en fóru aðeins niður á
tveimur. Er BR virkilega sterkasta
bridsfélag í heimi?“
Spilið kom upp hjá BR í síðustu viku.
Tíguldrottning var algengt útspil. Til
að hnekkja 3G þarf austur að nota inn-
komuna á ♠Á til að skipta yfir í hjarta,
níuna eða gosann. En almennt svöruðu
Austmenn makker upp í tígli, þrátt fyr-
ir háværan „oddball“.
Terence Reese notaði fyrstur manna
heitið „oddball“ fyrir sérstakt kall í
grandi. Skilaboðin eru send í öðrum
slag með fylgjunni í lit sagnhafa.
Óvenjuhátt spil hefur það hlutverk að
vekja makker. Hjá útspilaranum biður
hátt spil um annan lit til baka. Spaða-
nían hjá vestri er sú furðuskepna sem
ætti að leiða austur á rétta braut.
12. október 1581
Vopnadómur var kveðinn upp
á Patreksfirði. Samkvæmt
honum áttu allir menn á Ís-
landi að eiga vopn. Dómurinn
komst aldrei í framkvæmd
nema á Vestfjörðum.
12. október 1905
Verzlunarskóli Reykjavíkur
(nú Verzlunarskóli Íslands)
tók til starfa. Honum var ætl-
að að búa unga menn undir
verslunar- og viðskiptastörf.
Fyrsta veturinn voru 47 nem-
endur í skólanum en nú eru
þeir á annað þúsund.
12. október 1918
Katla gaus eftir 58 ára hlé.
„Ægilegur gufustrókur teygði
sig lengra og lengra upp að
fjallabaki og loks hljóp jökull-
inn með eldgangi miklum,
vatnsflóði og jöklaburði fram
yfir Mýrdalssand til sjávar,“
segir í lýsingu Gísla Sveins-
sonar sýslumanns. Gosið stóð í
þrjár vikur.
12. október 1962
Kvikmyndin 79 af stöðinni var
frumsýnd í Háskólabíói og
Austurbæjarbíói í Reykjavík.
Hún var gerð eftir skáldsögu
Indriða G. Þorsteinssonar. Í
helstu hlutverkum voru Gunn-
ar Eyjólfsson, Kristbjörg
Kjeld og Róbert Arnfinnsson.
12. október 1998
Guðrún Katrín Þorbergsdóttir
forsetafrú lést, 64 ára að aldri.
Karl Sigurbjörnsson biskup
sagði í útfararræðu að hún
hefði vakið athygli „fyrir fág-
un og persónutöfra“. Allir
þjóðhöfðingjar Norðurlanda
voru við útförina.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
Þetta gerðist…
„Þetta eru svolítil viðbrigði, ég er farinn að finna
fyrstu gráu hárin,“ segir Jónas Örn Helgason há-
skólanemi léttur í bragði. Hann tók forskot á sæl-
una um síðastliðna helgi og hélt upp á árin tuttugu
og fimm í fyrsta skiptið í langan tíma.
„Ég er nýbúinn að halda veislu fyrir vini og ætt-
ingja en þetta er fyrsta afmælið sem ég held upp á
í tólf ár. Ég er ótrúlega lítið afmælisbarn en lang-
aði til að gera eitthvað núna. Ég bað nú ekki um
neitt í afmælisgjöf en það komu nokkrir með
pakka,“ segir hann hógvær.
Jónas er á lokaári í vélaverkfræði við Háskóla
Íslands og stefnir á áframhaldandi nám að lokinni útskrift. Margir
kannast eflaust við Jónas af sjónvarpsskjánum en hann tók þátt í
Gettu Betur hér um árið fyrir hönd Menntaskólans við Hamrahlíð.
Hann er fæddur og uppalinn í Grafarvogi og býr þar enn. Aðspurður
segist Jónas ætla að gera sér dagamun í dag og fá sér eitthvað gott í
gogginn. Hann fær þó ekki afmælisleyfi frá skólanum en lítur á björtu
hliðarnar.
„Þetta verður skárra en þegar ég varð tvítugur, þá var ég í skól-
anum frá 8-16 og vann frá 16 til miðnættis.“ hugrun@mbl.is
Jónas Örn Helgason er tuttugu og fimm í dag
Fyrsta veislan í tólf ár
Flóðogfjara
12. október Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólaruppr. Sólsetur
Reykjavík 2.49 0,6 9.11 3,9 15.28 0,8 21.35 3,5 8.10 18.20
Ísafjörður 4.54 0,4 11.07 2,2 17.39 0,4 23.24 1,8 8.20 18.20
Siglufjörður 1.28 1,3 7.14 0,4 13.32 1,4 19.45 0,2 8.03 18.02
Djúpivogur 6.10 2,3 12.36 0,6 18.21 1,9 7.40 17.48
Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Hinir skapandi töfrar fara á stjá þeg-
ar þú lætur af því að reyna að vera full-
komin/n. Farðu vel að heimilisfólkinu og
reyndu að skapa góðan anda innan fjölskyld-
unnar.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Mundu að dæma ekki aðra að óreyndu
svo þú verðir ekki sjálf/ur dæmd/ur. Eins
mótsagnakennt og það nú er, gerir mótlætið
þig enn meira aðlaðandi.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Það er eins og allt standi á haus í
dag. Þú trúir því að eitthvað sé mögulegt og
reynir að finna út úr því hvernig þú eigir að
framkvæma það.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Nú þarftu að gefa sjálfum þér sér-
stakan gaum og koma lagi á þín mál. Ekki
láta tilviljanir ráða sköpunarferlinu, heldur
val.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Þú ert með spurningar í hjarta. Þú hef-
ur mikið á þinni könnu en þarft að gæta þess
að gefa þér tíma til slökunar.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Nýttu þér þörfina fyrir að bæta skipu-
lag þitt í dag. Breyttu um aðferð, vertu hress
og kát/ur og talaðu skýrt og skorinort um
hlutina.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Þú þarft fyrr eða síðar að horfast í augu
við staðreyndir. En þú skalt bara muna að
það þarf tvo til að slást.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Þú hefur orðið fyrir vonbrigðum
og þarft því að gera þér grein fyrir hvaða
væntingar þú gerir til annarra. Láttu þér
standa á sama um fáfræði annarra.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Enginn bíður af því meiri hnekki
en þú sjálf/ur ef þú reynir að olnboga þig
áfram á annarra kostnað.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Rómantíkin liggur í loftinu og
minnsta ögrun kemur hjartanu af stað. Ein-
falt og kurteislegt nei er besta leiðin til að
losna úr óþægilegri stöðu.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Það er ekki gott fyrir heimilislífið
að taka vinnuna með sér heim. Einhver
smákvilli gerir vart við sig.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Þú gætir fundið til leiða í vinnunni
eða vantrúar á sjálfa/n þig. Einhver reynir að
ráðskast með tilfinningar þínar.
Stjörnuspá
Nýbakaðir foreldrar?
Sendið mynd af barninu til birtingar
í Morgunblaðinu
Frá forsíðu mbl.is er einfalt að senda
mynd af barninu með upplýsingum
um fæðingarstað, stund, þyngd,
lengd, ásamt nöfnum foreldra. Einnig
má senda tölvupóst á barn@mbl.is