Morgunblaðið - 12.10.2010, Blaðsíða 36
ÞRIÐJUDAGUR 12. OKTÓBER 285. DAGUR ÁRSINS 2010
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 350 ÁSKRIFT 3890 HELGARÁSKRIFT 2400 PDF Á MBL.IS 2218
1. Ragnar er hættur að stækka
2. Ísland á EM eftir sigur á Skotum
3. Fannst meðvitundarlaus í tanki
4. Ráðist á stúlku í Laugardal
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Á morgun gefur Bloodgroup út síð-
ustu plötu sína, Dry Land, á vínyl.
Hún kom út á geisladisk í desember á
síðasta ári. Öllum seldum eintökum
fylgir kóði svo hægt sé að nálgast
stafrænt niðurhal af lögunum.
Morgunblaðið/Jakob Fannar
Þurrt land komið á ví-
nyl með kóða á netið
Kvikmyndasafn Íslands sýnir í ár
nokkrar af þekktustu myndum Al-
freds Hitchcocks. Á morgun mun
Psycho verða sýnd í Bæjarbíóinu í
Hafnarfirði klukkan 20:00 en það er
ein frægasta mynd hans. Um
spennumynd er að ræða sem fjallar
um sérkennilegt og
ástríðufullt samband
Bates-mæðg-
inanna.
Mæðginin og hryll-
ingssamband þeirra
Í kvöld og ann-
að kvöld verða
haldnir raf-
tónleikar á Fak-
torý þar sem
brautryðjendur í
tilraunakenndri
tónlist á Íslandi
leika. Finnbogi
Pétursson mun
spila en einnig mun troða upp danska
hljómsveitin Selvhenter sem hefur
vakið mikla athygli að undanförnu
fyrir framsæknar tónsmíðar.
Tilraunakenndir
tónleikar á Faktorý
Á miðvikudag Suðvestan 3-8 m/s, en sunnan 8-13 við vesturströndina. Dálítil væta öðru
hverju, en yfirleitt þurrt á austanverðu landinu. Hiti 6 til 13 stig.
Á fimmtudag Suðvestanátt og skúrir, einkum SV-lands. Hiti 5 til 10 stig.
Á föstudag og laugardag Suðlæg átt og vætusamt. Lítil úrkoma NA-lands. Milt veður.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Dálítil væta, en skýjað með köflum og þurrt á austanverðu landinu.
Hiti 5 til 13 stig að deginum.
VEÐUR
Þrír leikir fóru fram í úrvals-
deild karla í körfuknattleik í
gær. Íslandsmeistaralið Snæ-
fells lagði Keflavík á heima-
velli en þessi lið mættust í
úrslitum Íslandsmótsins í
vor. Nýliðar Hauka byrja
tímabilið af krafti og liðið
hefur unnið báða leiki sína,
en Tindastóll tapaði gegn
Haukum. ÍR-ingar hafa tapað
báðum leikjum sínum en
Njarðvík hafði betur gegn ÍR í
gær. »4
Íslandsmeistararnir
unnu Keflavík
Íslenska landsliðskonan í körfuknatt-
leik, Helena Sverrisdóttir, er ein af
aðeins 30 leikmönnum í bandaríska
kvennaháskólaboltanum sem til-
nefndir eru til hinna
eftirsóttu John R.
Wooden-
verðlauna. »4
Helena Sverrisdóttir
tilnefnd til verðlauna
Portúgalskir blaðamenn virtust
vera þess fullvissir í gær að Íslend-
ingar muni setja svokallaðan „yfir-
frakka“ á Cristiano Ronaldo þegar
Ísland og Portúgal eigast við í und-
ankeppni EM á Laugardalsvelli í
kvöld. Landsliðsþjálfarinn Ólafur
Jóhannesson sagðist í samtali við
Morgunblaðið ekki ætla að grípa til
slíkra ráða. »1
Ólafur setur ekki „yf-
irfrakka“ á Ronaldo
ÍÞRÓTTIR
Hugrún Halldórsdóttir
hugrun@mbl.is
„Í dag eru Þingvellir einn fjölsótt-
asti ferðamannastaður landsins og
eftir að Hótel Valhöll brann sár-
vantar þjónustu á svæðinu. Það má
segja að þetta hafi verið kveikjan,“
segir Ólafur M. Finnsson um
meistaraverkefni sitt „Nature Cult-
ure Crash“ sem hann vann ásamt
Grími Víkingi Magnússyni við Arki-
tektaskólann í Árósum. Þeir fé-
lagar hönnuðu nútímahótel á Þing-
völlum og vonast til að verkefnið
ýti undir umræðuna um framtíð
staðarins.
Áhrifamikill ráðstefnusalur
Ásýnd byggingarinnar er túlkun
Ólafs og Gríms á bergmyndunum í
Almannagjá, en klæðningin er
ómeðhöndlaður viður sem gránar
með tímanum og fellur þar af leið-
andi inn í litaflóru Þingvalla. Í
hönnunarferlinu lögðu þeir sér-
staka áherslu á að tengja innra
rými byggingarinnar við náttúruna
þannig að gestir hefðu ávallt teng-
ingu við umhverfið.
Á hótelinu er að finna allt frá
eins manns herbergjum upp í for-
setasvítur, veitingastað með útsýni
yfir Þingvallasvæðið og síðast en
ekki síst glæsilegan ráðstefnusal
sem hefur tengingu inn í Almanna-
gjá þar sem klettaveggurinn mætir
gestum. „Hugmyndin er fengin frá
því að Alþingi var sett og lögin
voru lesin upp fyrir landann. Sá
sem er við ræðupúltið er með
klettana í baksýn og svo eru það
klettarnir sem kasta hljóðinu til
áhorfenda, líkt og forðum.“
Hvað verður um svæðið?
Ólafur segir allflesta Íslendinga
hafa taugar til Þingvalla og því sé
mikilvægt að byggingin sé opin öll-
um sem heimsækja staðinn.
„Hótelið yrði opið almenningi á
þeim tíma sem upplýsingamiðstöðin
væri opin. Þá væri hægt að ganga í
gegnum klettinn yfir gjána og á
þak hússins, sem er eins konar
fimmta hliðin, en þaðan fæst útsýni
alveg 360 gráður.“
Ólafur og Grímur hafa ekki enn
kynnt verkefnið hér heima en að-
spurður segist Ólafur hafa mikinn
áhuga á að vita hvað verði um það
svæði sem Valhöll stóð á og stingur
í sömu andrá upp á því að haldin
verði hugmyndasamkeppni.
„Það bráðvantar samkeppni
heima því í krísunni þurrkaðist
arkitektamarkaðurinn út í einu vet-
fangi. Þetta væri upplagt verkefni
fyrir atvinnulausa arkitekta.“
Nánari upplýsingar um verkefni
Ólafs og Gríms má finna á heima-
síðum þeirra: grimarkitekt.me og
finnsson.info.
Glæsihótel á Þingvöllum
Meistaraverk-
efni tveggja
ungra arkitekta
Aðlagast umhverfinu Ásýnd byggingarinnar er túlkun Ólafs og Gríms á bergmyndunum í Almannagjá, en klæðn-
ingin er ómeðhöndlaður viður sem gránar með tímanum og fellur vel að litaflóru Þingvalla.
Arkitektar Grímur Víkingur Magnússon og Ólafur M. Finnsson unnu að
þessu sameiginlega meistaraverkefni við Arkitektaskólann í Árósum.