Morgunblaðið - 15.10.2010, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. OKTÓBER 2010
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, sisi@mbl.is Viðskipti
vidsk@mbl.is Ívar Páll Jónsson, fréttastjóri, ivarpall@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins | Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is
Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Prentun Landsprent ehf.
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Verði fjárlagafrumvarp ríkisstjórn-
arinnar óbreytt að lögum skerðast
tekjur sveitarfélaganna verulega á
næsta ári. Aldís Hafsteinsdóttir,
bæjarstjóri í Hveragerði, metur
áhrifin um 8 milljarða króna, gróft
reiknað. Kom það fram í framsögu-
ræðu hennar á fjármálaráðstefnu
sveitarfélaga í gær.
„Það er ekki vænlegt að stoppa í
fjárlagagat með því að skerða tekju-
stofna annarra,“ segir Aldís í samtali
við Morgunblaðið. Hún segir ekki í
neina sjóði að sækja hjá sveitarfélög-
unum sem eigi undir högg að sækja
fjárhagslega.
Ríkið bætti sveitarfélögunum upp
hækkun tryggingagjalds með 1,2
milljarða króna endurgreiðslu í ár.
Sveitarstjórnarmenn treystu því að
svo yrði áfram en ekki er gert ráð
fyrir því í frumvarpinu.
Aldís telur að lækkun launa-
greiðslna ríkisins og minni umsvif
leiði til minni eftirspurnar á vinnu-
markaði sem nemi 1.340 stöðugild-
um. Komi ekki annað til auki þetta
atvinnuleysi um 1% af vinnuafli.
Húsaleigubætur minnka
Ríkið mun ekki hækka framlög til
húsaleigubóta á næsta ári þannig að
hægt verði að halda húsaleigubótum
óbreyttum. Segir Aldís að þar vanti
550 miljónir upp á og sveitarfélögin
geti ekki annað en dregið samsvar-
andi úr mótframlagi sínu. Það þýðir
að framlög til húsnæðisbótakerfisins
verða 1,1 milljarði lægri á næsta ári
en nú er. „Það mun koma niður á
þeim sem verst eru settir því 80% af
þeim sem þiggja húsaleigubætur eru
með tvær milljónir eða minna í árs-
laun. Mér finnst ekki rétt að gera
þetta,“ segir Aldís.
Átta milljarðar færðir til
Segja ríkið stoppa í fjárlagagatið með
því að taka af tekjum sveitarfélaganna
Bæjarstjóri Aldís segir ekki lengur
hægt að hagræða án þess að íbú-
arnir verði þess varir.
Áhrif fjárlagafrumvarps
» Ríkið hættir að endurgreiða
sveitarfélögunum trygginga-
gjald.
» Aukaframlag í Jöfnunarsjóð
verður fellt niður.
» Útsvar lækkar vegna fækk-
unar starfa hjá ríkinu og minni
umsvifa.
» Tekjur minnka vegna lækk-
unar fasteignamats.
» Minni tekjur verða af úttekt
séreignasparnaðar.
Jón Gnarr, borgarstjóri í Reykjavík, lét ekki sitt eftir liggja á alþjóðlegum
degi öndunarmælinga sem var í gær. Jón líkt og fjöldi annarra kom við í
húsakynnum SÍBS þar sem boðið var upp á öndunarmælingu endurgjalds-
laust.
Á staðnum voru hjúkrunarfræðingar og læknar sem veittu upplýsingar
og ráðgjöf eftir mælinguna. Ekki er annað vitað en að borgarstjórinn hafi
staðið sig með prýði í mælingunni.
Samkvæmt upplýsingum sem fengust eru um fimm prósent Íslendinga
með astma og hafa um átján prósent Íslendinga 40 ára og eldri mælst með
skerta öndun, en það getur bent til langvinnrar lungnateppu.
Morgunblaðið/Golli
Borgarstjórinn öndunarmældur
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
„Breyting á rekstri sambýlisins í Mýrarási er hluti
endurskipulagningaraðgerða SSR og forsenda
þess að aðrar aðgerðir geti gengið eftir,“ segir Jón
Heiðar Ríkharðsson, framkvæmdastjóri Svæðis-
skrifstofu málefna fatlaðra í Reykjavík, í skriflegu
svari vegna málefna sambýlisins í Mýrarási 2, sem
á að loka um áramót.
Á sambýlinu eru þrír íbúar og átta starfsmenn í
5,8 stöðugildum. Öllum nema forstöðumanninum
hefur verið sagt upp og ekki liggur fyrir hvert íbú-
arnir flytja. Í svarinu kemur fram að þeim verði
boðin búseta við sambærilegar eða betri aðstæður.
Jón Heiðar segir að ákvörðunin um lokunina
tengist því að hún snerti fáa einstaklinga og hafi í
för með sér mikla hagræðingu. Verklagi SRR hafi
verið fylgt, þegar íbúunum hafi verið veittar upp-
lýsingar um stöðu sambýlisins, og hafi íbúarnir og
aðstandendur þeirra verið þeir fyrstu sem upplýst-
ir hafi verið um hvað væri framundan.
„Í þeim viðtölum kom skýrt fram að verið væri
að kynna þær aðstæður sem upp voru komnar, að
því miður væri á þessum tímapunkti ekki hægt að
kynna væntanlegt búsetutilboð en að þeir yrðu
upplýstir um framhaldið þegar frekari upplýsingar
lægju fyrir. Þegar ný tilboð liggja fyrir verða þau
kynnt íbúum og átt við þá samráð um ákvörðun
nýrrar búsetuþjónustu.“
Lokun sambýlis forsenda þess
að aðrar aðgerðir gangi eftir
Íbúum sambýlisins verður boðin búseta við sambærilegar eða betri aðstæður
Sambýlið í Mýrarási
» Á sambýlinu í Mýrarási 2 eru þrír íbúar á
aldrinum 64 til 75 ára.
» Gerður Árnadóttir, framkvæmdastjóri
Þroskahjálpar, sagði nýverið að um væri að
ræða veikasta hópinn af öllum; gamalt,
þroskahamlað fólk.
» Forstöðumaður sambýlisins sagði óviss-
una afar erfiða fyrir íbúana, enda óvíst hvort
hópnum verður tvístrað.
Listi yfir umsækjendur um stöðu
ráðuneytisstjóra innanríkisráðu-
neytis og velferðarráðuneytis verð-
ur að öllum líkindum birtur í dag,
en umsóknarfrestur er runninn út.
Samkvæmt upplýsingum Morgun-
blaðsins á aðeins eftir að yfirfara
nokkrar umsóknir með tilliti til
formgalla en annars er ekkert að
vanbúnaði.
Um stöðu ráðuneytisstjóra innan-
ríkisráðuneytis voru þrettán um-
sækjendur en töluvert fleiri um
stöðu ráðuneytisstjóra velferðar-
ráðuneytis þar sem umsóknir
hlaupa á tugum. Einstök nöfn feng-
ust ekki uppgefin en aðeins að á
meðal umsækjenda um bæði störf
væru vel hæfir einstaklingar. Sam-
kvæmt heimildum Morgunblaðsins
eru þar á meðal núverandi og fyrr-
verandi ráðuneytisstjórar hinna
sameinuðu ráðuneyta.
Fjöldi sótti um starf
ráðuneytisstjóra
Enginn af 29 um-
sækjendum um
starf upplýsinga-
fulltrúa sjávar-
útvegs- og
landbúnaðar-
ráðuneytis var
kallaður í viðtal
áður en ráðið var
í stöðuna, sam-
kvæmt upplýs-
ingum frá ráðu-
neytinu. Bjarni
Harðarson, fyrrverandi þingmaður
Framsóknarflokksins sem síðar
gekk til liðs við VG, hlaut stöðuna.
Þegar óskað var svara við því
hvers vegna enginn var kallaður til
viðtals var þeirri fyrirspurn vísað
til Sigurgeirs Þorgeirssonar ráðu-
neytisstjóra. Ekki náðist í hann í
gær.
Staða upplýsingafulltrúa er ný
og hún er tímabundin, til þriggja
mánaða. Að sögn Níelsar Árna
Lund, skrifstofustjóra í ráðuneyt-
inu, er nú unnið að rökstuðningi
fyrir ráðningunni, en slíkt er aðeins
gert ef einhver umsækjenda óskar
eftir slíku.
Fyrir nokkru var fyrrverandi að-
stoðarmaður Jóns Bjarnasonar,
sjávarútvegs- og landbúnaðar-
ráðherra, ráðinn skrifstofustjóri
hjá ráðuneytinu, einnig tímabund-
ið. Einn umsækjenda var for-
stöðumaður upplýsingasviðs á
Fiskistofu og gagnrýndi hún það
harðlega að hafa ekki verið boðuð
til viðtals. runarp@mbl.is
Enginn umsækjenda
kallaður í viðtal
Bjarni
Harðarson
Baldur Guð-
laugsson, fyrr-
verandi ráðu-
neytisstjóri
fjármálaráðu-
neytisins, hefur
verið ákærður
fyrir inn-
herjasvik og brot
í opinberu starfi.
Karl Axelsson,
lögmaður Bald-
urs, staðfesti þetta í samtali við
Morgunblaðið í gærkvöldi.
Baldur er sagður hafa búið yfir
innherjaupplýsingum um atriði sem
lutu að stöðu bankanna seinni hluta
sumars 2008, stuttu fyrir fall
þeirra, þegar hann seldi hlutabréf
sín í Landsbankanum. Þá hafi hann
gerst sekur um brot sem opinber
starfsmaður þar sem hann hafi
fengið upplýsingarnar í starfi sínu
og nýtt sér þær sem slíkur.
Að sögn Karls bjó Baldur ekki yf-
ir upplýsingum umfram það sem
allir vissu um bága stöðu bankanna
á þeim tímapunkti þegar hann seldi
bréf sín. kjartan@mbl.is
Baldur ákærður
fyrir innherjasvik
Baldur
Guðlaugsson