Morgunblaðið - 15.10.2010, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 15.10.2010, Blaðsíða 11
Morgunblaðið/Árni Sæberg Michael Burke Ástrali sem fékk nóg af hringrásinni í lífi sínu og hélt í ótímabundna og óskipulagða heimsreisu. Íslands, hingað kom ég frá Tékk- landi og héðan fer ég 20. október til Bretlands á tónlistarhátíðina Su- personic. Svo mun ég heimsækja vini í Þýskalandi. Ég kom til Íslands til að fara á Iceland Airwaves en svo sá ég að RIFF [Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík] ætti sér stað í lok sept- ember og ákvað að slá tvær flugur í einu höggi. Ég flýtti fluginu mínu hingað og bauð mig fram til vinnu á hátíðinni,“ segir Burke sem starfaði sem sjálfboðaliði á RIFF. Hann sá um sýningarnar og viðburðina sem áttu sér stað í Iðnó. „Þetta fór vel og ég fékk að hitta flotta leikstjóra. Ég vann hvern dag alla hátíðina en skipulagði mig þannig að ég gæti séð eitthvað af myndum líka. Mér finnst frábært hjá aðstandendum RIFF að fá sjálf- boðaliða allstaðar að úr heiminum til að vinna á hátíðinni. Mér fannst gaman að fá þetta tækifæri og hitta þessa alþjóðlegu blöndu starfs- manna sem þau voru með. Ef ég fæ tækifæri til að starfa sem sjálf- boðaliði á svipuðum hátíðum í öðrum löndum mun ég taka því, þetta er góð leið til að kynnast fólki allstaðar að úr heiminum.“ Hugmyndin um Ísland flott Þegar ég hitti Burke var hann að leggja upp í fimm daga hringferð um Ísland sem hann ætlaði að vera kominn úr þegar Iceland Airwaves hæfist. „Á þessu ári hef ég farið á tvær comedy-hátíðir í Ástralíu, eina í Edinborg og svo RIFF svo ég er eiginlega kominn með nóg af því að fara á svona sýningar. Ég hlakka því mikið til að fara á Airwaves, þar sem ég get hlustað á það sem ég vil og farið af viðburðinum þegar ég vil. Þegar ég sá Airwaves auglýst fannst mér góð hugmynd að koma hingað. Ég vissi ekkert hverju ég átti von á, mér hafði alltaf fundist hugmyndin um Ísland flott, ég vissi ekkert um landið. Jú ég hafði hlustað á tónlist héðan, séð listir og hönnun sem er allt mjög töff,“ segir Burke. Hann er ekki aðeins lögfræðingur, uppi- standari og ferðalangur, hann skap- ar líka sína eigin tónlist. „Ég er með heimahljóðver og bý til tilraunakennda tónlist en ég hef ekkert gefið út. Ég spila líka til gamans með tveimur vinum mín- um,“ segir Burke og segist alls ekki vera tónlistarmaður, bara grúskari. Tekur uppistandið fram yfir Burke er mjög hress og fyndinn og það kemur mér ekki á óvart að hann starfi sem uppistandari, en hefur hann eitthvað verið að koma fram hér á landi? „Nei ég hef ekki komið fram síðan í Edinborg. Ég þarf að skrifa nýja sýningu enda orðinn leiður á því sem ég hef verið að flytja. Ég var að koma fram tvisvar til þrisvar á viku í Ástralíu og ég var eiginlega orðinn leiður á þessu,“ segir Burke. Spurður hvern- ig það fari saman að vera lögmaður og uppistandari segist hann taka uppistandið fram yfir lögin. „Ég er ekki mjög formleg persóna og á erf- itt með þær hömlur sem lögfræðin setur á mig. Ég leik alvarlega per- sónu í réttinum, frelsið í uppistand- inu á betur við mig. Lögin eru áhugaverð en ég naut þess ekki að vinna við þau á þessum punkti í líf- inu.“ Ég get ekki staðist freistinguna og spyr Burke hvort hann sé fynd- inn og fæ til baka tilheyrandi hlát- ursroku. „Ég hata þessa spurningu, ég er oft spurður hennar þegar fólk kemst að því að ég er í uppistandi. Ég var hvattur af vinum mínum til að prófa uppistand og ég elskaði það svo ég hélt áfram. Ég er alls ekkert frægur í Ástralíu, kannski bara pínulítið í Perth þaðan sem ég er,“ segir Burke og bætir alvarlegur við; „Ég er ekki hrokafull manneskja.“ Þar með er búið úr bollunum og ég kveð þennan lífsglaða Ástrala og óska honum góðrar skemmtunar á Iceland Airwaves. DAGLEGT LÍF 11 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. OKTÓBER 2010 Augu heimsins beinast nú að námumönnunum í Chile, sem hefur öllum verið bjargað úr iðrum jarðar eftir 69 daga vist, en augu þeirra eru hulin dökkum sólgleraugum. Það er ekki að ástæðulausu: „Þeir þurfa að vera með þessi gleraugu í tvær til þrjár vikur, dagsbirtan má ekki koma í augun á þeim því aug- un eru mjög lengi að venjast breyt- ingunni frá myrkri í birtu. Ef þeir taka þau af of snemma getur það valdið gríðarlegum höfuð- verkjaköstum og óþægindum og viðkomandi getur orðið veikur í mikilli birtu um ókomna framtíð. Þeir taka þau einu sinni ekki af sér þegar þeir hitta sína nánustu,“ segir Kjartan Kristjánsson, sjón- fræðingur og eigandi Optical Stud- io. Hann veit meira um gleraugun sem námumennirnir bera: „Þetta eru Oakley-sólgeraugu sem þeir eru með. Það voru fréttamenn í Chile sem leituðu til fyrirtækisins Oakley fyrir nokkrum vikum með þá ósk að Oakley legði til 35 stk. af Oakley með Black Iridium-linsu til handa námumönnunum. Það er engin tilviljun að Oakley Black Iridium varð fyrir valinu; það sem er einstakt við linsuna, HDO High Definitition Optics, er að engin bjögun á sér stað í henni þótt hún sé bogin og fylgi höfuðlaginu. Black Iridium-linsan sem er gríða- lega skörp er líka óbrjótanleg auk þess að verja augun 100% fyrir UV-geislum sólarinnar. Flestir af- reksíþróttamenn nota einmitt þessa gerð í sínu sporti,“ segir Kjartan en Optical Studio, sem er umboðsaðili fyrir Oakley-sólgler- augu, fékk í gær fjölda fyrirspurna frá viðskiptavinum varðandi sólger- augun sem námumennirnir í Chile ganga með. ingveldur@mbl.is Hönnun Reuters Dagsbirtan Luis Urzua kom síðastur námumanna upp og var hann með sól- gleraugu eins og hinir sem á undan voru komnir. Mega ekki taka gleraugun niður Sólgleraugu Oakley Radar með Black Iridium linsu. Abúmm tjiggí búmm! Ég flauta, raula og hummalög inní mér og upphátt daginn út og daginninn, meðvitaður og ómeðvitaður um það, enmér er nokk sama því það hjálpar mér í gegn- um daginn. Það er alveg ótrúlegt hvað tónlist er stór partur af daglegu lífi manns, bara það að heyra gott lag í bílnum á leiðinni í vinnuna getur breytt deginum manns. Eitt lag getur gert myrkasta og kaldasta morgun að góðum degi. Það er alveg klárt mál að tónlist hefur tilfinningalegt gildi. Hún getur komið manni í gott skap, gert mann dapran, vakið upp góðar og slæmar minningar, hneykslað mann, skapað um- ræður og jafnvel gert mann pirraðan. En ég held nú að í flestum tilfellum þá komi tónlist manni í gott skap. Það er eins og hún haldi manni í jafnvægi og bjargi manni úr leiðinlegu amstri hins hvers- dagslega lífs. Tónlistin tengir fólk saman, sama hver lífsháttur, þjóðerni og kyn- þáttur þess er. Fólk safnast sam- an þar sem tónlist er og tjáir þær tilfinningar sem það ber gagnvart henni. Tónlist er í raun alheimstungumál sem allir geta deilt og fundið til- finningar með. Allan ársins hring í marga áratugi hefur fólk allstaðar að í heiminum safnast saman bara eingöngu til þess að hlusta saman á tónlist. Það hefur dansað saman, grátið saman, sungið saman og jafnvel kynt undir ástareldi. Það er í raun fátt annað sem fær annan eins fjölda fólks saman. Ef tónlist væri ekki svona mikill partur af lífi fólks þá væru allar þessar tónlistarhátíðir sem haldn- ar eru árlega löngu orðnar útdauðar. Ég hlusta á tónlist við hvert tækifæri, í bílnum, á rölt- inu, í ræktinni, í vinnunni og heima hjá mér. Hún skiptir mig miklu máli og gegnir mjög stóru hlutverki í lífi mínu. Hún veitir mér innblástur, ánægju, gefur mér spark í rassinn í ræktinni og jafnframt róar mig niður eftir um- fangsmikinn dag. Smekkur minn á tónlist er það víður að ég hef úr nógu að velja við hverja af þessum athöfnum. En það sem leikur við eyrun á mér þessa dagana er með- al annars Mumford & Sons, Arcade Fire og Vamp- ire Weekend, svo eitthvað sé nefnt. Ef ég væri fastur á eyðieyju og mætti taka þrjá hluti með mér þá myndi ég klárlega taka með mér ipodinn, eilífðarbatterí og svo kannski mat bara svona til að hafa eitthvað til að narta í meðan ég nýt tónlistarinnar. Iceland Airwaves er nú í fullum gangi og ég fyllist nostalgíu um leið og ég hugsa um þær stundir sem ég hef átt á fyrri hátíðum. Í ár á ég ekki miða og er mjög svekktur en ég óska öllum þeim sem eru gestir hátíðarinnar í ár góðrar skemmtunar. Njótið tónlistarinnar og þess að vera til. Og rétt í lokin: ef einhver skyldi finna ómerktan Airwaves-miða þá er hann örugglega minn. George Kristófer Young | george@mbl.is Heimur George » Ef ég væri fastur á eyðieyju og mætti takaþrjá hluti með mér þá myndi ég klárlega taka með mér ipodinn, eilífðarbatterí og svo kannski mat bara svona til að hafa eitthvað til að narta í meðan ég nýt tónlistarinnar. Passaðu vel uppá rafgeyminn í vetur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.