Morgunblaðið - 15.10.2010, Side 22

Morgunblaðið - 15.10.2010, Side 22
22 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. OKTÓBER 2010 ✝ Jóhannes BergþórLong fæddist í Reykjavík hinn 26. október 1949. Hann lést á heimili sínu, Kristnibraut 6, 5. októ- ber 2010. Foreldrar hans eru Ólafur J. Long, f. 19. febrúar 1926, d. 23. október 1996, og Kristbjörg Ingimundardóttir, f. 27. febrúar 1925. Systkini Jóhannesar eru Inga Long, f. 20. apríl 1951, og Ingi- mundur G. Vilhjálmsson, f. 7. ágúst 1944, sammæðra. Hinn 24. nóvember 1973 giftist Jó- hannes Jónu Friðfinnsdóttur, f. 22. nóvember 1951, d. 18. júlí 2007, dótt- september 2005. 3) Helen Long, f. 2. ágúst 1979, maki Jón Ingi Hilm- arsson, f. 7. apríl 1974, dóttir þeirra er Emma, f. 7. nóvember 2002. Jóhannes ólst upp á Vesturgötunni í Reykjavík til 13 ára aldurs þegar hann flutti á Grensásveginn. Hann lauk gagnfræðaprófi frá Réttarholts- skóla 1965. Hann byrjaði ungur að vinna og vann við hin ýmsu störf. Jó- hannes var mikið í sveitinni hjá afa sínum og ömmu að Ysta-Bæli undir Eyjafjöllum sem barn og fram á ung- lingsár. Jóhannes átti og rak Fisk- búðina við Arnarbakka í Breiðholti til margra ára ásamt föður sínum, sem hann keypti út og rak búðina áfram einn, einnig átti hann og rak Kjörfisk í húsnæði við Fiskislóð. Uppúr 1990 seldi hann verslunina og vann sem verktaki hjá Sæbjörgu Fiskverkun. Árið 2000 hóf hann að reka sendibíl og gerði hann út til árs- ins 2009 þegar hann varð að hætta vegna veikinda. Útför Jóhannesar verður gerð frá Bústaðakirkju í dag, 15. október 2010, og hefst athöfnin klukkan 13. ir hjónanna Friðfinns Gíslasonar, f. 26. maí 1923, d. 10. ágúst 1998, og Ingunnar Helgu Hallgrímsdóttur, f. 14. febrúar 1924, d. 21. júlí 2009. Dætur Jóhann- esar og Jónu eru, 1) Berglind Long, f. 17. júní 1974, maki Gunnar Bergmann Traustason, f. 9. ágúst 1965, börn hennar eru Ágúst Örn, f. 27. desember 1990, Elma Sól, f. 17. júní 1995, og Dagur Snær, f. 29. október 1998. 2) Íris Long, f. 18. maí 1975, eiginmaður Guðmundur Guðjónsson, f. 6. febrúar 1974, synir þeirra eru Atli Geir, f. 7. júní 1996, Gauti, f. 15. júlí 2002, og Guðjón, f. 16. Elskulegur faðir minn hefur kvatt okkur eftir erfið veikindi. Það er erfitt að horfa uppá duglegan og kraftmikinn mann þurfa að lúta í lægra haldi fyrir þeim sjúkdómi sem krabbameinið er. Pabbi var alltaf stoð og stytta sem ég gat leitað til ef eitthvað bjátaði á. Hann vann alltaf mikið, kvartaði aldrei undan álagi og allt sem að hann tók sér fyrir hendur gerði hann vel og af mikilli sam- viskusemi. Við systurnar ólumst upp á ást- ríku heimili, þar sem foreldrar okk- ar stóðu þétt saman og studdu okk- ur stelpurnar í öllu sem við tókum okkur fyrir hendur, Það var því mikið áfall er móðir okkar veiktist og féll frá fyrir rúmum 3 árum. Pabbi varð aldrei samur eftir það, hann saknaði mömmu mikið. Ég veit að þau hafa náð saman að nýju og það huggar mig. Það er dýrmætt fyrir mig að hafa getað eytt síðustu dögunum með pabba á heimili hans, þar sem hann vildi kveðja. Takk fyrir allt sem þú hefur gert fyrir mig, elsku pabbi, allt klappið á bakið, öll faðmlögin, öll samtöl okk- ar um lífið, allar leiðbeiningarnar og alla ástina og væntumþykjuna sem þú hafðir að geyma. Nú veit ég að þið mamma passið vel upp á hvort annað. Guð geymi þig, elsku pabbi minn. Minning þín er ljós í lífi mínu. Þín, Berglind. Það er komið haust og litirnir í náttúrinni skarta sínu fegursta, laufin fjúka um og trén eru að sofna sínum vetrarsvefni. Eftir erfið veik- indi er Bergþór tengdafaðir minn lagður til hinstu hvílu í dag. Hnyttinn, kraftmikill, duglegur og ákveðinn eru orð sem koma í hugann þegar ég hugsa um Bergþór. Þegar við hittumst fyrst var ekki erfitt að koma af stað umræðu, þar sem ég er að vinna við að selja fisk og hann rak fiskbúð í mörg ár, þá gátum við talað um það og allt í kringum það. Ég sá strax að þarna var á ferðinni maður með fastar skoðanir og rúmlega það, en hann var einnig sanngjarn og alltaf tilbúinn að gera allt fyrir fjölskyldu sína og vini. Mig langar að þakka fyrir þann tíma sem áttum saman og senda fjölskyldu og vinum hans samúðar- kveðju. Gunnar Bergmann Traustason. Takk fyrir allt, elsku besti afi okkar. Við söknum þín mikið. Nú ertu kominn til ömmu sem passar vel upp á þig, heldur fast um þig og brosir fallega brosinu sínu. Okkur leið alltaf vel hjá ykkur, sérstaklega þegar við fengum dek- urdaga og kósíkvöld með gistingu hjá ykkur. Við verðum dugleg og sterk eins og þú varst alltaf, elsku afi. Guð geymi þig, elsku afi. Þín, Ágúst Örn, Elma Sól og Dagur Snær. Ég sendi þér kæra kveðju nú komin er lífsins nótt, þig umvefji blessun og bænir ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því, þú laus ert úr veikinda viðjum þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér, og það er svo margs að minnast svo margt sem um hug minn fer, þó þú sért horfinn úr heimi ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir.) Takk fyrir allt og allt. Þín systir Inga og Ólafur. Elsku Bergþór. Það var á þessu hausti þar sem náttúran skartaði sínum fegurstu litum, að mágur og kær vinur Beggi Long eins og við kölluðum hann kvaddi. Hann hafði ákveðið að fara með okkur hjónunum í ferðalag til Florida og vera með mér á afmæl- isdegi mínum og hafði lagt mikið á sig til að geta það en skömmu fyrir brottför hrakaði honum það mikið að hann átti ekki kost á að fara með. Það var erfið stund þegar við kvöddum hann á spítalanum daginn sem við fórum en hann var búinn að stefna að þessu allt sumarið að komast í síðustu ferðina með okkur en við höfum ferðast mikið saman í lífinu, hann og góð mágkona mín hún Jóna en hún lést úr sama ill- víga sjúkdómi árið 2007 og það er sárt að missa þetta góða fólk alltof snemma en þau verða með okkur í huga hvar og hvert sem förum. Ég kveð þig kæri mágur og vinur með þessu ljóði eftir Hákon Að- alsteinsson. Dökkur skuggi á daginn fellur, dimmir yfir landsbyggðina. Köldum hljómi klukkan gellur, kveðjustund er milli vina. Fallinn dómur æðri anda, aðstandendur setur hljóða. Kunningjarnir klökkir standa, komið skarð í hópinn góða. Gangan með þér æviárin okkur líður seint úr minni. Við sem fellum tregatárin trúum varla brottför þinni. Þína leið til ljóssins bjarta lýsi drottins verndarkraftur. Með kærleiksorð í klökku hjarta kveðjumst núna, sjáumst aftur. Okkar innilegustu samúðar- kveðjur til móður hans Kristbjarg- ar, dætra Berglindar, Írisar og Helenar, tengdasona og barna- barna. Guð blessi minningu hans. Viðar og Brynja. Mig langar að skrifa nokkur orð til minningar um bróðurson minn og vin, Jóhannes Bergþór Long, ávallt kallaður Bergþór í fjölskyld- unni. Hann var sannur vinur, alltaf boðinn og búinn til að hjálpa mér, hvort sem það var að mála, vegg- fóðra eða leggja parket. Hann var bæði fjölhæfur og vandvirkur. Góðar minningar áttum við þeg- ar Jóhanna dóttir mín og Bergþór voru unglingar, er við fórum í þrjár vikur til útlanda. Fyrst til Kaup- mannahafnar og þaðan með lest til Rómar og skoðuðum okkur um á Ítalíu, m.a. fórum við að sumar- setri páfans, sáum Aidu í útileik- húsi sem okkur þótti öllum stór- fenglegt. Síðan aftur til Danmerkur og þaðan til Englands og einhverra hluta vegna vorum við skráð á hótel þar sem hr. og frú Long með dóttur og hlógum við mikið að því, og Bergþór svaf í barnaherberginu.Við minntumst oft í gegnum árin á þessa ferð. Ég minnist allra þeirra stunda sem ég átti á fallegu heimili Berg- þórs og Jónu konu hans, sem lést fyrir fáum árum. Þar var gestrisni og góðmennskan höfð í fyrirrúmi. Ég votta dætrum hans þremur, fjölskyldum þeirra og eftirlifandi móður hans alla mína samúð. Anna Long. Jóhannes Bergþór Long ✝ Elfar Sigurðs-son fæddist í Reykjavík þann 11. október 1935. Hann lést á Hjúkr- unarheimilinu Grund 6. október sl. Foreldrar hans voru Evlalía Jóns- dóttir, f. 28. október 1914 í Reykjavík, d. 9. mars 1976 og Sig- urður Einarsson, f. 24. ágúst 1913 í Reykjavík, d. 17. desember 1988. Syn- ir þeirra hjóna auk Elfars voru: Einar f. 9. júlí 1943, d. 22. sept- ember 2005 og Hörður, f. 16. júní 1952. Einnig átti Elfar tvö hálf- systkini, samfeðra: Elínu Hildi, f. 22. apríl 1960 og Helga, f. 5. des- ember 1970. Elfar giftist þann 31. desember 1966, Guðrúnu Jónu Jóhann- esdóttur, f. 10. desember 1941, frá Ytri-Tungu í Staðarsveit. For- eldrar Guðrúnar Jónu voru Svanhvít Björnsdóttir f. 12. maí 1913 á Álfta- vatni í Staðarsveit, d. 10. apríl 1969, og Jóhannes Krist- jánsson, f. 17. júní 1906 á Efra-Hóli í Staðarsveit, d. 9. október 2000. Elfar og Guðrún Jóna bjuggu á Hellissandi að undanskildum sl. 9 árum í Reykjavík. Sonur Elfars og Guðrúnar Jónu er Grétar Jón, f. 7. apríl 1972. Börn hans eru: Saga Dröfn, f. 10. desember 1997, og Anton Már, f. 15. júlí 2003. Elfar starfaði sem vélstjóri ár- um saman. Einnig rak hann bif- reiðaverkstæði í nokkur ár. Útför Elfars fer fram frá Grensáskirkju í dag, 15. október 2010, og hefst athöfnin kl. 13. Þann 11. október sl. voru liðin 75 ár síðan drengur að nafni Elfar Sig- urðsson fæddist í Vesturbæ Reykja- víkur og ólst þar upp með jafnöldr- um sínum og vinum. Snemma varð KR aðaláhugamál hjá honum og vin- um hans, farið var í skála KR að Skálafelli á sumrin og á veturna á skíði, en Elfar hafði mikinn áhuga á þeirri íþróttagrein. Þessi áhugi hans á skíðaíþróttinni kom vel í ljós seinna á lífsleiðinni þegar hann stóð fyrir því ásamt fleirum að byggja skíðalyftu á Fróðárheiði á Snæfells- nesi. Elfar vann við byggingu rat- arstöðvar í Aðalvík og síðar að Gufuskálum, þar sem hann kynntist stúlku af Snæfellsnesi og felldu þau hugi saman. Keyptu þau sér lítið hús á Hellissandi, þar sem Snæfells- jökullinn blasti við úr eldhúsglugg- anum. Síðan byggðu þau við húsið og var það orðið sæmilega stórt þegar sonurinn Grétar Jón fæddist árið 1972. En lífið er ekki alltaf leik- ur eins og þau kynntust og þegar heilsa Elfars gaf sig, fluttu þau til Reykjavíkur. Blessuð sé minning Elfars. Sendi ég systur minni og syni hennar mínar innilegustu samúðar- kveðjur. Gunnar Jóhannesson Í dag kveðjum við Elfar Sigurðs- son sem hefði orðið 75 ára gamall þann 11. október sl. en hann and- aðist fimm dögum áður en sá dagur rann upp. Hann var fæddur í Vesturbænum í Reykjavík þar sem hann kvaddi einnig þennan heim. Í nær fjóra ára- tugi bjó hann þó við rætur Snæfells- jökuls, nánar tiltekið á Hellissandi, þar sem heimili þeirra hjóna, Elfars og Guðrúnar Jónu, var nánast við rætur jökulsins og ekkert skyggði á þá fegurð sem honum fylgir. Þær voru ófáar ferðirnar sem við fórum til þeirra hjóna vestur og var ávallt vel tekið á móti okkur og börn- um okkar. Elfar hafði mjög gaman af að fara með okkur í næsta nágrenni Hellissands og sýna okkur hina ýmsu staði. Minnumst við sérstak- lega hve stoltur hann var er hann sýndi okkur skíðalyftuna á Fróðár- heiði sem hann stóð fyrir að reisa í félagi við fleiri. Hann hafði alltaf mikinn áhuga á skíðaíþróttinni enda góður skíðamaður á yngri árum. Einnig tók hann þátt í að reisa skíða- skála KR í Skálafelli á árunum 1956- 59 ásamt félögum sínum úr KR. KR- áhuginn var til staðar alla ævi og fylgdist hann ávallt vel með sínu liði og fór oftsinnis á völlinn í Frosta- skjóli, ásamt félögum sínum úr KR, eftir að hann flutti suður aftur. Elfar hafði einnig mjög mikinn áhuga á veiði og fór ófáar veiðiferðir í vötn og ár á Snæfellsnesi og víðar. Elfar hafði upphaflega komið sem ungur maður til að vinna tímabundið við Gufuskála en ílengdist og settist að á Hellissandi, þar sem hann undi hag sínum vel. Hann vann sem vél- stjóri í mörg ár, bæði til sjós og lands, en einnig rak hann bifreiða- verkstæði í nokkur ár. Árið 2001 fluttu þau hjón til Reykjavíkur, en Elfar var þá orðinn heilsuveill. Í rúmt ár hafði hann ver- ið vistmaður á Grund. Elfar var góður drengur, vildi öll- um vel og lagði ekki í vana sinn að tala illa um náungann. Barngóður var hann með eindæmum og minnast börn okkar hans með þakklæti. Með þessum fátæklegu orðum vilj- um við þakka allar samverustundir sem við höfum átt í gegnum árin með þeim hógværa manni sem Elfar var. Elsku systir og mágkona, Grétar Jón og börn, megi Guð vera með ykkur. Blessuð sé minning Elfars Sig- urðssonar. Hann hvíli í friði. Hrólfur og Hrönn. Kveðja frá skíðadeild KR Elfar, vinur okkar, lést aðfara- nótt 6. október 2010. Hann hafði lengi átt við veikindi að stríða, en bar þau með æðruleysi og mikilli já- kvæðni. Ekki lét hann þau hindra sig í að fara á KR-völlinn og hvetja sína menn meðan hann átti þess nokkurn kost. Elfar var einn þeirra ungu manna, sem fæddir voru á fjórða tug síðustu aldar. Hann ólst upp í Vesturbænum og lágu leiðir okkar flestra saman þar í barnæsku. Við lékum okkur saman á róluvellinum við Hringbrautina. Svo stækkaði hópurinn eftir því sem árin liðu. Við vorum í skíðadeild KR. Sóttum gamla skálann í Skálafelli, sem stóð þar, sem skíðadeildin byggði sinn fyrsta skíðaskála. Stundum var líka farið í KR-braggann á Hellisheiði. En svo fór að báðir þessir skálar urðu eldi að bráð. Árið 1955 brann skálinn í Skálafelli. Þegar þetta gerðist var Elfar í skálanum ásamt tveim félögum sínum. Þeir urðu varir við eldinn rétt áður en húsið varð alelda, en tókst af miklu harð- fylgi að bjarga sér út. Á hlaupum greip Elfar með sér málverk, sem hékk þar á vegg. Þegar út kom tók ekki betra við. Ofsarok var og tókst Elfar á loft og fauk nokkurn spöl. Ekki sleppti hann málverkinu og tókst þeim félögum að koma því í hús í skála ÍK við Kýrhólahæðir. Næsta vor var byrjað að byggja nýjan skála í Skálafelli og veg að honum. Keyptur var stór og mikill hertrukkur og lítil jarðýta. Elfar hafði þá um skeið unnið á vélaverk- stæði og lá því beinast við að fela honum umsjón tækjanna. Elfar sá um að halda þeim gangandi. Þær voru ófáar næturnar, sem hann lá undir bílnum úti í móa við ÍK- skálann og gerði við bremsur, brotnar fjaðrir og annað sem und- an hafði látið. Þetta voru góðir tímar. Þarna var hópur af ungu glaðværu fólki sem var staðráðið í að ná markmiðum sínum. Mark- miðin náðust og meira til. Þarna bast fólk vinaböndum fyrir lífstíð. Upp úr þessu fór Elfar að stunda sjó og síðar tók hann að sér umsjón með vélbúnaði í frysti- húsum á Hellissandi. Þá nýttist reynsla Elfars af skíðamennsku og samband hans í skíðadeild KR við uppbyggingu skíðasvæðis á Fróðárheiði. Á þessum árum kynntist hann eftirlifandi konu sinni Guðrúnu Jónu Jóhannes- dóttur. Þau áttu saman mjög góð- an tíma. Þau hjón fluttu til Reykjavíkur þegar heilsa Elfars fór að bila. Þar kom að Elfar varð vistmaður á Elliheimilinu Grund, nánast á bernskuslóðum sínum. Þangað heimsóttum við hann félagarnir. Við fórum saman á róluvöllinn og þaðan í Pétursbúð, sem nú heitir Kjötborg. Gönguferðum lauk með því að við, gamlingjarnir, settumst saman á bekk sunnan undir Elli- heimilinu. Við rifjuðum upp gaml- ar samverustundir og hlógum saman. Nú er þetta liðin tíð. Í framtíðinni verður Elfars minnst sem trausts, jákvæðs vinar, sem alltaf tók málstað lítilmagnans. Þegar við hittum hann og spurð- um hann, hvernig hann hefði það, svaraði hann ávallt: „Ég hef það ágætt.“ Við efuðumst stundum um að það væri alveg satt, en nú erum við hinsvegar viss um að hann hef- ur það „ágætt“. Jónu, syni þeirra Elfars, Grét- ari og fjölskyldu þeirra sendum við innilegar samúðarkveðjur. Fyrir hönd gamalla félaga í skíðadeild KR, Marteinn Guðjónsson. Elfar Sigurðsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.