Morgunblaðið - 07.12.2010, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 07.12.2010, Blaðsíða 1
Þ R I Ð J U D A G U R 7. D E S E M B E R 2 0 1 0  Stofnað 1913  286. tölublað  98. árgangur  MANNASIÐIR Á STÖÐ 2 BYGGÐIR Á SAMNEFNDRI BÓK HEFUR BEÐIÐ EFTIR EM Í 10 ÁR 365 FJALLS- TOPPAR Í ÁR HRAÐSKREIÐA HANNA AÐ KOMAST Í GÍR ÍÞRÓTTIR 3 LJÓSIÐ STYRKT 11GILLZ KENNIR ÍSLENDINGUM 30 Stundum er kvartað yfir því að kvikmyndauppeldi Íslend- inga sé ábótavant. Það á þó varla við um krakkana frá frí- stundamiðstöð ÍTR, Kampi, sem boðið var í Bíó Paradís í gær. Á hvíta tjaldinu fylgdust krakkarnir, sem eru 8 og 9 ára gamlir, með ævintýrum jafnaldra síns árið 1921 í hinni sígildu kvikmynd Charlies Chaplins, The Kid. Stefnt er að frekara samstarfi ÍTR og Bíós Paradísar um að kynna ungu kynslóðinni perlur kvikmyndasögunnar. Morgunblaðið/Golli Unga kynslóðin kynnist Chaplin Baldur Arnarson baldura@mbl.is „Við höfum verið að ná vaxtaprósent- unni niður á ásættanlegt stig. Við skulum ekki gleyma því að þegar rætt er um 3,5% vexti, reiknaða ávöxtunarkröfu lífeyrissjóðanna er um að ræða verðtryggð lán. Á heims- vísu eru þetta ekki lágir vextir eins og sakir standa. Það er fráleitt, nán- ast þjóðhættulegt, annað en að halda vaxtastiginu lágu. Við skulum heldur ekki gleyma því að við erum að tala um fjárfestingu sem er mjög örugg fyrir lífeyrissjóðina, nánast gull- tryggð. Ég hef trú á því að menn séu byrjaðir að sjá til sólar í þessu sem og ýmsu öðru,“ segir Ögmundur Jón- asson samgönguráðherra, aðspurður hvort samið hafi verið um vexti í fyr- irhugaðri fjármögnun lífeyrissjóða á vegaframkvæmdum. Forveri Ögmundar, Kristján Möll- er, þingmaður Samfylkingar, kveðst bjartsýnn á að framkvæmdir geti hafist með vorinu. Gangagerðin hefst næsta sumar Markmiðið sé að framkvæmdir við Vaðlaheiðargöng hefjist næsta sum- ar, ef allt gangi eftir. Stefnt sé að því að verja tæpum 40 milljörðum króna í fjórar framkvæmdir og er ætlunin að bjóða í fyrstu út 2. áfanga í breikk- un Suðurlandsvegar frá Vestur- landsvegi að Ölfusárbrú í febrúar. Hreinn Haraldsson vegamála- stjóri segir um einn til tvo mánuði líða að jafnaði frá útboði til fram- kvæmda. Því geti vinna við 2. áfanga af nokkrum á Suðurlandsvegi hafist í apríl eða maí. Fram- kvæmdir í gang í vor  Samgönguráðherra krefst lágra vaxta á lánum lífeyrissjóðanna Villtum refum hefur fjölgað nánast um allt land, að sögn Guðbrands Sverrissonar, bónda á Bassastöðum í Strandasýslu og refabana. „Við heyr- um meira af dýrbítum í haust en verið hefur undanfarið,“ sagði Guð- brandur. Ljótar fregnir af dýrbitnu fé hafa borist úr Borgarfirði og víðar að. Þá eru tófur svo kræfar að þær hafa ráð- ist á fé heima við bæi, m.a. í Skaga- firði. Líklega er það ætisskortur sem veldur bífræfninni. »12 Morgunblaðið/Árni Sæberg Tófa Sumar tófur leggjast á fé og yrðlingar þeirra komast á bragðið. Dýrbítar víða á ferðinni Á hluthafafundi Exista í gær voru laun stjórnar- manna ákveðin 300.000 krónur á mánuði og fær stjórnarformaður 400.000 krónur á mánuði. Þá fá stjórnarmenn- irnir, sem eru sex talsins, 150.000 krónur fyrir hvern fund sem þeir sitja, þó ekki fyrir fleiri en þrjá fundi í hverjum mánuði. Pétur J. Eiríksson, stjórnar- formaður Exista, segir launin endur- spegla þá miklu vinnu sem stjórnin þurfi að vinna fyrir félagið. »14 Stjórn fær allt að 4,6 milljónir Exista Hluthafa- fundur Exista. Girnilegar uppskriftir á www.jolamjolk.is dagar til jóla 17 Uppgjör stjórnlagaþingskosning- anna er afar flókið og erfitt fyrir leikmann að átta sig á því hvernig frambjóðendur raðast í sæti. Aðferðin sem notuð er mun engu að síður ráða eins vel í vilja kjósenda og kostur er, en hefur verið gagn- rýnd fyrir að vera ógagnsæ. Vigdís Hauksdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, sagði á Al- þingi í gær að mikil óvissa væri um réttmæti niðurstaðna kosning- arinnar, m.a. vegna þess að aðeins 11 frambjóðendur hefðu náð þar til gerðum sætishlut. Telur hún nauð- synlegt að fá málið á hreint með því að kæra það til Hæstaréttar. Ástráður Haraldsson, formaður landskjörstjórnar, segir landskjör- stjórn ekki telja að nein óvissa sé fyrir hendi. Úthlutun þingsæta hafi verið í samræmi við lög og á hann ekki von á neinum eftirmálum. »6 Ógagnsæjar kosningar Una Sighvatsdóttir Baldur Arnarson Meirihluti fjárlaganefndar leggur til miklar breytingar á fjárlagafrum- varpi næsta árs. Fjárlagahallinn verður skv. þessu 34 milljarðar að sögn Oddnýjar Harðardóttur, formanns fjárlaga- nefndar, en það er 2 milljörðum minna en áætlað var í upphafi. Tekjur ríkissjóðs verða sam- kvæmt áætlun núna 11 milljörðum lægri eftir breytingar, en útgjöldin 13 milljörðum lægri. Þar vega t.d. þungt vaxtagjöld ríkissjóðs, sem verða um 1,4 milljörðum lægri skv. breytingartillögum og framlög til vegaframkvæmda og -viðhalds, sem skert eru um rúm 10 milljarða. „Þetta tekur breytingum til batn- aðar myndi ég segja þar sem við höf- um fengið tíma til að fara vel yfir málin og ræða við sveitarfélög og stofnanir,“ segir Oddný. Stærstu breytingar varði grunnstoðir vel- ferðarkerfisins, þ.e.a.s. heilbrigðis- og menntastofnanir og löggæslu. „Þarna er um að ræða mjög miklar breytingar á fjárlögunum,“ segir Kristján Þór Júlíusson, Sjálfstæðis- flokki. „Forsendur þess voru brostn- ar þegar það var lagt fram og nú horfum við fram á tekjufallið í tengslum við nýja þjóðhagsspá fyrir næsta ár og varað hafði verið við. Því er mætt með þeim hætti að hræra áfram í ákveðnum stærðum, í stað þess að reyna að skapa auknar tekjur með því að örva atvinnurekst- ur í landinu eða skera niður á móti þessum útgjaldauka.“ Til þess að mæta útgjöldum eiga útgjöld á sviði félagsmála að dragast saman. Og nefnir Kristján framlög til öldrunarmála og lífeyristrygg- inga, ásamt því sem þarna fellur nið- ur fjárveiting sem ætluð var til að mæta kostnaði vegna ríkisábyrgða og einnig lækka framlög í Atvinnu- leysistryggingasjóð og vaxtagjöld. „Það koma inn aukin útgjöld upp á 8-9 milljarða af ýmsum toga. Stærstu breytingarnar eru í Jöfnunarsjóði, vegna húsaleigubóta og stuðnings við fjárhagslega veik sveitarfélög.“ Tekjurnar lækka um 11 milljarða  Miklar breytingar á fjárlagafrum- varpi  Gjöldin minnka um 13 milljarða Bætt í og skorið niður » Framlög til Heilbrigðisstofn- unar Austurlands eru aukin um 64 milljónir kr. samkvæmt breytingartillögum, Heilbrigð- isstofnun Suðurnesja fær 69 milljónum meira og Heilbrigð- isstofnun Þingeyinga 22,8 milljónum meira. » Framlög til Háskóla Íslands verða 141 milljón kr. hærri. » 204 milljónir eru áætlaðar í sjálfsmatskerfi framhalds- skóla, sem áður fékk ekkert. » Dregið er úr hagræðing- arkröfu til löggæslunnar um 100 milljónir. » Landsdómur fær 113,4 millj- ónir aukalega skv. breytingum. » Auka á eigið fé Byggða- stofnunar um allt að einn millj- arð króna að fenginni úttekt iðnaðarráðuneytisins á fram- tíðarfyrirkomulagi lánastarf- semi stofnunarinnar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.