Morgunblaðið - 07.12.2010, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 07.12.2010, Blaðsíða 29
MENNING 29 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. DESEMBER 2010 Sú var tíðin að ungir mennfóru gjarnan á vertíð tilVestmannaeyja og áttu umlokin fyrir andvirði íbúðar og höfðu fest sér kærustu. Eða svo segir þjóðsagan. Af útgerð- armönnum í Eyjum hefur líka orð farið: jöxlum sem fast sóttu sjó og voru þjóðkunnir menn sem brugðu svip á umhverfi sitt. Það var því vel til fundið að skrá níutíu ára sögu Útvegsbændafélags Vestmannaeyja eins og Eyjamað- urinn Sigurgeir Jónsson hefur nú gert. Hann rekur sögu félagsins frá ári til árs, allt frá stofnun. Nefnir hvernig aflabrögð voru á hverri ver- tíð um sig sem sett í samhengi við aðra áhrifaþætti eins og þróun markaða, kjaramál, pólitík, land- helgismál og fleira. Þá eru í bókinni kaflar þar sem segir frá skipstjórum fyrri tíðar í Eyjum og skemmtilegar myndir af þeim. Sigurgeir Jónsson hóf ritun bók- arinnar árið 1999 og um líkt leyti tók Benedikt Gestsson nokkur viðtöl. Í megintexta hefur Sigurgeir þann hátt á að fylgja fundargerðum félags útvegs- bænda og fer ef til vill ekki nægilega út fyrir þann ramma. Dæmi um þetta í bók- inni er að þar segir frá því að árið 1978 væri „fjöldi báta undir hamrinum og gjaldþrot blasti við eigendum þeirra.“ – Þarna, eins og víðar í bók- inni, hefði mátt fylla betur í eyð- urnar og segja frá því hvernig út- gerðarmönnum tókst að synda til lands og koma sér út úr erfiðleikum þessara ára. Hefðu þar verið hæg heimatök með því að leita heimilda, t.d. í staðarblöðunum. Einnig hefði mátt segja betur frá sjóslysum við Eyjar sem hafa orðið til þess að bragarbót hefur verið gerð í örygg- ismálum sjómanna. Einnig vantar tilfinnanlega í bókina viðtöl við þá útgerðarmenn í Eyjum sem eru í framstafni í dag. Umbrot og letur bókarinnar er sviplítið, svo ekki eru skörp skil milli til dæmis meginmáls og millikafla – auk þess sem hnökra í umbroti sér stað. Tölulegar upplýsingar hefði mátt færa í skýringarmynd eða töfl- ur sem skýrt hefðu framsetningu. Eldri myndir í bókinni hefðu gjarn- an mátt vera stærri og nýlegri myndir hefðu sömuleiðis verið kær- komnar – jafnvel í lit enda er bókin prentuð á myndvænan pappír. Saga Útvegsbændafélags Vest- mannaeyja 1920-2010 bbbnn Eftir Sigurgeir Jónasson. Útvegsbændafélag Vestmannaeyja 2010. 174 bls. SIGURÐUR BOGI SÆVARSSON BÆKUR Útgerðarsaga úr Eyjum Hulda Vilhjálmsdóttir erung listakona sem hefurkomið sterkt inn í ís-lenskan listheim á und- anförnum árum, jafnt með gjörn- ingum í grasrótargalleríum sem málverkum í sýningarsal hefðbund- innar listmunaverslunar. Verk Huldu eru iðulega áleitin og fjalla um sjónarhorn hennar á lífið sem er oft og tíðum skondið, lifandi og óvænt. Yfirbragð sýningarinnar „Jörðin hreyfist“ í Gallerí Fold minnir við fyrstu sýn á sýningar nærvista vegna allt að því bernskra mynda af þekkjanlegum hlutum á borð við andlit, bíla og fjöll. Litapallíetta Huldu inniheldur að- allega ýmsa bláa liti, appelsínugulan, gulan og gráan sem gerir það að það skapast veruleikatenging og sterkur heildarsvipur. Það er erfitt að tala um málverk og myndir Huldu án þess að bera þau saman við eldri verk listasögunnar enda margt í verkum hennar sem minnir á lita- gleði Fauvistanna, klippitækni dada- istanna, tilvistartungumál express- jónistanna og svo má lengi telja. Áhugaverðustu verkin á sýningunni eru þau sem vísa á ljóðrænan hátt í hreyfingu jarðarinnar, hreyfingu sem tekur sér bólfestu í hjarta lista- konunnar og hún vill miðla til áhorf- enda, myndir sem innihalda lífrænar línur og búa yfir ákveðinni hrynjandi á borð við „Áfram fram“; „Fjallið hreyfist“ og ekki síst „Esja“ og „Fjallið inni í þér“ miðla þessari sterku tilfinningu á sannfærandi hátt. Þótt jákvæðni og gleði einkenni myndir Huldu má finna á sýning- unni myndir með þyngri undirtóni. Innilegar myndir á borð við „Litlu Huldu“ og „Börnin“ fela í sér tilvist- arlegar spurningar um lífið, gleymskuna og dauðann. Síðar- nefnda myndin er máluð í botn á gamalli skúffu, mynd sem sýnir mannveru, líklega konu, í rúmi en undir rúminu eru beinagrindur eða skuggar af börnum. Það er eitthvað ákaflega tragískt við þessa mynd, eitthvað sem snertir grundvallar- spurningu um lífið og listina. Vinnubrögð Huldu eru áhugaverð. Hún hræðist ekkert og drepur niður fæti hvar þar sem henni hentar og hefur engar áhyggjur þótt hún stígi á ákveðna, afmarkaða, skilgreinda fleti í sögu málaralistarinnar. Heild- arútkoman er svoltið tætt og sund- urlaus en hins vegar skilar hún hrif- næminu, sköpunargleðinni, tog- streitunni, yfirlegunni og óbilandi trúnni á sköpunarmátt listarinnar. Óheft vinnubrögðin gefa góð fyr- irheit um framhaldið en kalla þó á yfirvegaðri vinnu við uppsetningu sýninga. Hér hefur tekist nokkuð vel til með það og það verður áhugavert að fylgjast með Huldu sem hefur verið talin ein af efnilegustu mynd- listarmönnum þjóðarinnar og ekki að ástæðulausu. Hreyfanleiki og hrifnæmi Frá sýningu HulduVilhjálmsdóttur „Hún hræðist ekkert og drepur niður fæti hvar þar sem henni hentar,“ segir meðal annars í dómnum. Morgunblaðið/Ernir Gallerí Fold, Rauðarárstíg 12-14 Reykjavík Hulda Vilhjálmsdóttir: „Jörðin hreyf- ist“. Málverk, teikningar, keramik. bbbmn Sýningunni lauk í gær. Opið er í gall- eríinu virka daga kl. 10-18, laugardaga kl. 11-17 og sunnudaga kl. 12-17. Að- gangur ókeypis. ÞÓRA ÞÓRISDÓTTIR MYNDLIST Áþessum krepputímumþegar þjóðinni finnst aðallt sé ómögulegt erágætt að lesa sagnfræði. Þá áttar maður sig á að þetta er ekki í fyrsta skipti sem þjóðin hefur þurft að lifa erfiða tíma og eins er maður minntur á að fyrst lands- menn gátu risið upp eftir að hafa búið við sannkallaðar hörmungar þá hljótum við að geta það líka nú. Árið 2008 voru um 200 ár liðin frá því að lokaðist fyrir öll aðföng til landsins vegna Napóleonsstyrjald- anna sem þá geisuðu í Evrópu. Ís- lensku kaupskipin voru hertekin af Englendingum eða komust ekki til Íslands. Einn af þeim sem voru á þessum herteknu skipum var Magn- ús Steph- ensen dóm- stjóri í Reykjavík. Hann hafði eðlilega mikl- ar áhyggjur af löndunum sínum og reyndi eftir mætti að fá skipin leyst úr haldi. Magnús hélt dagbók í ferð sinni þar sem hann lýsir ferðalaginu og öllu því sem fyrir augu ber. Þessar dagbækur hefur Sögufélagið nú gef- ið út, en umsjón með útgáfunni höfðu Anna Agnarsdóttir prófessor og séra Þórir Stephensen. Anna rit- ar formála sem gefur afar grein- argott yfirlit yfir sögusvið dagbók- anna, en henni er einkar lagið að setja umfjöllunarefnið fram á skýr- an og einfaldan hátt. Er þó saga stríðsins og íslensku kaupskipanna allt annað en einföld. Anna vitnar í skjöl sem eru í söfnum á Íslandi, Bretlandi, San Francisco og í Ástr- alíu. Það sýnir að hún hefur ekki kastað höndum til verksins. Dagbókarhöfundurinn Magnús Stephensen hefur fengið það orð að skrifa fremur flókinn og leiðinlegan stíl, en dagbækurnar gefa nokkuð aðra mynd af honum. Vissulega er orðanotkun og setningaskipan ekki alveg eins og venja er, en það kem- ur alls ekki í veg fyrir að lesandi njóti þess að lesa um það sem á daga Magnúsar dreif. Þar segir frá stríði og viðræðum við embætt- ismenn, en einnig frá veislum sem hann sótti. Þessi lýsing er úr veislu sem hann sat með kaupmönnum í Noregi um 1799 og skorti greinilega ekki veisluföngin þar á bæ: „Borðið var praktugt og ríkmannlega útbú- ið. Réttir: kjötbollur, súpa ágæt, svo steikt holsteinsk og þeir sem heldur vildu hrá söltuð síld. Svo soðin hvít- káls höfuð með sósu, og afbragðs góðu reyktu svínslæri til, eða og fyr- ir þá sem heldur vildu, soðnu kjöti. Svo villifugla ýmislegra steik og ux- asteik ásamt seinast tertu bakkelsi með syltetöj á, og þar hjá borðinu allrahanda mögulegt syltetöj, man- dels nytur, vínberjaklasar, epli, per- ur, en rauðvín var þar ákaflega þrengt að hvörjum manni með óendanlegum skálum hvar við gutl- aðist ofan í þá ensku og marga fleiri pottflöskur hvörn og á fjórðu, því full var í fyrstu og jafnótt sett fyrir hvörn mann.“ Dagbækur á stríðstímum EGILL ÓLAFSSON BÓKMENNT- IR Dagbækur Magnúsar Stephensen bbbbn Anna Agnarsdóttir prófessor og séra Þórir Stephensen önnuðust útgáfuna. Sögufélag gefur út. EGILL ÓLAFSSON BÓKMENNTIR Í liðinni viku var opnuð sýning á ljósmyndum frá Íslandi í Náttúru- minjasafninu í Tórínóborg á Ítalíu, Museo Regionale di Scienze Nat- urali. Ljósmyndarinn nefnist Antonio Crescenzo og sýnir hann um 100 ljósmyndir á sýningu sem hann gaf heitið Ísland – íslandið með heita hjartað (Islanda – terra di ghiaccio dal cuore caldo). Er þetta í fyrsta skipti sem kast- ljósinu er beint að Íslandi hjá Nátt- úruminjasafninu í Tórínó. Auk ljós- myndanna getur að líta ýmsa safn- gripi frá Íslandi í eigu safnsins. Í verkum sínum reynir Crescenzo að sýna áhorfendum hin ýmsu nátt- úrufyrirbæri landsins og birtingar- myndir þeirra: eldfjöll, jarðhita, hveri, jökla, fossa, jurtir og dýr, auk þess sem hann beinir sjónum að hinu viðkvæma jafnvægi milli manns og lands. Bók var gefin út í sambandi við sýninguna, með myndum og ýmsum textum um náttúru og menningu Ís- lands. Sýningin stendur fram á nýja árið og mun líklega verða sett upp í fleiri söfnum í héraðinu. efi@mbl.is Sýning á Íslandsmyndum sett upp í safni í Tórínó Íslandsmyndir Inngangurinn að sýningu Antonios Crescenzos. 568 8000 – borgarleikhus.is – midasala@borgarleikhus.is Ofviðrið (Stóra sviðið) Þri 28/12 kl. 20:00 fors Mið 12/1 kl. 20:00 5.k Þri 25/1 kl. 20:00 Mið 29/12 kl. 20:00 frums Fim 13/1 kl. 20:00 6.k Mið 26/1 kl. 20:00 Sun 2/1 kl. 20:00 2.k Þri 18/1 kl. 20:00 Sun 30/1 kl. 20:00 8.k Lau 8/1 kl. 20:00 3.k Mið 19/1 kl. 20:00 Sun 6/2 kl. 20:00 9.k Sun 9/1 kl. 20:00 4.k Fös 21/1 kl. 20:00 7.k Fim 10/2 kl. 20:00 10.k Ástir, átök og leiftrandi húmor Fólkið í kjallaranum (Nýja svið) Mið 8/12 kl. 20:00 25.k Fös 10/12 kl. 22:00 Fim 16/12 kl. 20:00 lokas Fim 9/12 kl. 20:00 26.k Lau 11/12 kl. 19:00 Fös 10/12 kl. 19:00 27.k Sun 12/12 kl. 20:00 Verðlaunasaga Auðar Jónsdóttur Fjölskyldan (Stóra svið) Lau 18/12 kl. 19:00 9.k Fös 7/1 kl. 19:00 Sun 23/1 kl. 19:00 Fim 30/12 kl. 19:00 Lau 15/1 kl. 19:00 "Stjörnuleikur sem endar með flugeldasýningu", BS, pressan.is Jesús litli (Litla svið) Þri 7/12 kl. 20:00 Lau 11/12 kl. 19:00 aukas Lau 18/12 kl. 21:00 Mið 8/12 kl. 20:00 14.k Sun 12/12 kl. 20:00 16.k Mið 29/12 kl. 19:00 aukas Fim 9/12 kl. 20:00 15.k Fim 16/12 kl. 20:00 Mið 29/12 kl. 21:00 aukas Fös 10/12 kl. 19:00 aukas Lau 18/12 kl. 19:00 Fim 30/12 kl. 19:00 Gríman 2010: Leiksýning ársins Jesús litli - leikferð (Hof - Hamraborg) Lau 15/1 kl. 16:00 Sun 16/1 kl. 20:00 Mið 19/1 kl. 21:00 Lau 15/1 kl. 20:00 Þri 18/1 kl. 21:00 Fim 20/1 kl. 19:00 Sun 16/1 kl. 16:00 Mið 19/1 kl. 19:00 Fim 20/1 kl. 21:00 Sýnt í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri í samstarfi við LA Faust (Stóra svið) Fim 6/1 kl. 20:00 Sun 16/1 kl. 20:00 Fös 14/1 kl. 22:00 Fim 20/1 kl. 20:00 Aukasýningar vegna fjölda áskorana Horn á höfði (Litla svið) Sun 12/12 kl. 14:00 lokas Gríman 2010: Barnasýning ársins - síðasta sýning! Jesús litli – táknmálstúlkuð sýning í kvöld Hátíðartilboð Gjafakort Þjóðleikhússins Miðasala Hverfisgötu I 551 1200 I leikhusid.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.