Morgunblaðið - 07.12.2010, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 07.12.2010, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. DESEMBER 2010 Ríkisstjórnin hefur ákveðið að framlengja endurgreiðslur skatta vegna endurbóta á íbúðar- húsnæði. Þetta skilar vonandi ár- angri, en hver er trúverðugleiki ríkisstjórnarinnar í þessum efnum þegar almennir skattar eru hækkaðir í sömu andrá?    Skattaend- urgreiðsl- urnar eru fram- lengdar í því skyni að efla atvinnu, en hver er trúverðugleiki ríkisstjórn- arinnar á því sviði þegar hún á sama tíma stendur í vegi fyrir at- vinnuuppbyggingu á flestum svið- um?    Ekki nóg með það, sama rík- isstjórn leggur ofurkapp á að koma Íslandi inn í Evrópusam- bandið, en eitt helsta einkenni þess er að mikið atvinnuleysi er landlægur vandi. Trúir því ein- hver að ríkisstjórn sem sækir um aðild að Evrópusambandinu leggi áherslu á fulla atvinnu?    Ríkisstjórnin sem sótti um aðild að atvinnuleysinu segist líka hafa mikinn áhuga á að almenningur fái að kjósa sem oftast og mest. Afstaða almennings á að ráða, nema í málum þar sem rík- isstjórnin er á öndverðum meiði við almenning. Engin kosning á að fara fram um nýtt Icesave ef ríkisstjórnin getur komist hjá því og tillaga um að kosið yrði um hvort sótt yrði um aðild að ESB var felld á þingi. Hvar er trúverð- ugleikinn í þessari framgöngu?    Því er fljótsvarað, hann er ekki fyrir hendi. Og eftir að rík- isstjórnin hefur lofað fullnægj- andi aðgerðum „eftir helgi“ mán- uðum saman er trúverðugleiki nokkuð sem engin leið er að tengja við ríkisstjórnina. Hvar er trúverðugleikinn? STAKSTEINAR Veður víða um heim 6.12., kl. 18.00 Reykjavík -8 skýjað Bolungarvík -4 léttskýjað Akureyri -7 skýjað Egilsstaðir -6 skýjað Kirkjubæjarkl. -4 léttskýjað Nuuk 0 skýjað Þórshöfn -1 léttskýjað Ósló -9 léttskýjað Kaupmannahöfn -1 léttskýjað Stokkhólmur -2 skýjað Helsinki -5 snjókoma Lúxemborg 0 skýjað Brussel -1 þoka Dublin -1 léttskýjað Glasgow 1 snjókoma London 0 þoka París 2 skýjað Amsterdam 1 þoka Hamborg 0 þoka Berlín 1 skýjað Vín 0 þoka Moskva -10 þoka Algarve 17 þrumuveður Madríd 13 léttskýjað Barcelona 16 léttskýjað Mallorca 17 léttskýjað Róm 15 skýjað Aþena 12 léttskýjað Winnipeg -12 snjókoma Montreal -3 snjókoma New York 0 alskýjað Chicago -8 skýjað Orlando 8 heiðskírt Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 7. desember Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 11:01 15:38 ÍSAFJÖRÐUR 11:41 15:08 SIGLUFJÖRÐUR 11:26 14:49 DJÚPIVOGUR 10:39 14:59 „Þetta atvik – sama hvað gerðist – er alvarlegt áfall fyrir ímynd Banda- ríkjanna á Íslandi,“ segir í skeyti Carol van Voorst, þáverandi sendi- herra Bandaríkj- anna á Íslandi, 13. desember 2007. Sendiherr- ann skrifar skjal- ið, sem er meðal þeirra banda- rísku sendiráðs- gagna, sem lekið var til uppljóstr- unarvefjarins WikiLeaks, eftir að hafa verið kallaður á fund utanrík- isráðherra. Tilefnið var meðferð Erlu Óskar Árnadóttur Lilliendahl á JFK- flugvelli fjórum dögum áður. Hún var handtekin við komuna til Banda- ríkjanna vegna þess að tveimur ár- um áður hafði hún dvalið í landinu þremur vikum lengur en ferða- mannaáritun hennar leyfði. Erla var kyrrsett á flugvellinum, síðan færð í fangelsi, látin sæta læknisskoðun og yfirheyrð. Hún var flutt í járnum í fangelsið og aftur á flugvöllinn. „Mikilvægt er að við komum mál- inu af forsíðunum,“ skrifar van Vo- orst. „Utanríkisráðherrann sem og forsætisráðherrann hafa persónuleg afskipti af málinu og eru ekki líkleg til að láta það fjara út.“ Van Voorst gerir 19. desember grein fyrir því að bréfi um málið frá Stewart Baker, aðstoðarráðherra í heimavarnarráðuneyti Bandaríkj- anna, hafi verið vel tekið í utanrík- isráðuneytinu, einkum orðalagi þar sem meðferð Erlu Óskar er hörmuð. Mikilvægast sé þó að endurskoða eigi starfshætti í því skyni að bæta meðferð gesta á borð við hana. Van Voorst lýsir því síðan að hún hafi átt samtal við Erlu Ósk í síma og boðið henni að koma í sendiráðið við hentugleika til að fá rétta vega- bréfsáritun. Fjölmiðlafárinu var lok- ið, en engum sögum fer af umbót- unum í meðhöndlun ferðalanga. kbl@mbl.is Uppnám vegna handtöku Carol van Voorst. ALLT FYRIR ELDHÚSIÐ SEVERIN smáraftæki í miklu úrvali. Töfrasprotar, kaffivélar, blandarar, brauðvélar, flóunarkönnur, poppvélar, raklette grill og fleira og fleira. IBILI pottar og pönnur á allar gerðir hellna í miklu úrvali. AIDA matarstell, hnífar og glös – góð vara á frábæru verði. SILIT og eldhúsáhöld, hágæða áhöld í miklu úrvali.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.