Morgunblaðið - 07.12.2010, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 07.12.2010, Blaðsíða 18
18 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. DESEMBER 2010 Hlutverk úrskurð- arnefndar lögmanna er m.a. að fjalla um kvörtun á hendur lög- manni vegna háttsemi hans sem kann að stríða gegn lögum eða siðareglum lög- mannafélagsins (LMFÍ). Í nefndinni sitja þrír hæstarétt- arlögmenn, Gestur Jónsson hrl., Kristinn Bjarnason hrl. og Einar Gautur Steingrímsson hrl. Erindi var sent nefndinni í maí sl. og hefur nefnd- in nú úrskurðað. (Úrskurðurinn er ekki kominn á vef LMFÍ þegar þetta er skrifað en má finna á thordisb.blog.is.) Í stuttu máli óskaði ég eftir að nefndin skæri úr um það hvort lögmaður SP fjármögnunar hefði brotið siðareglur lögmanna með því að hunsa kröfu um dóms- úrskurð til að svipta mig vörslu bifreiðar og að fyrirskipa vörslu- sviptingarmönnum að sækja bif- reiðina inn í aðgangsstýrða bíl- geymslu í starfsstöð minni skv. upplýsingum frá eiganda vörslu- sviptingarfyrirtækisins. Póst- samskipti við lögmanninn sem lögð voru inn til nefndarinnar staðfesta mótmæli mín um afhend- ingu bifreiðarinnar án dóms- úrskurðar, ágreining um vörslu- sviptingar án dóms og laga, ágreining um lögmæti láns- viðskiptanna (þá hafði nýlega fall- ið dómur í héraði sem dæmdi gengistryggingu ólögmæta), at- hugasemd við falsaðan lánssamn- ing auk þeirrar staðreyndar að málið biði úrskurðar Neyt- endastofu sem taldi að hin ýmsu lagabrot kæmu til álita í þessum lánsviðskiptum SP. Úrskurðarnefnd lögmanna komst að því að kollegi þeirra hefði ekki brotið siðareglur þar sem hann væri ekki sjálfstætt starfandi og því ættu flest ákvæði reglnanna ekki við að und- anskildum ákvæðum í l. kafla, án þess að tilgreina hver þau ákvæði væru. 1. gr. þess kafla er til dæm- is svo hljóðandi: „Lögmanni ber að efla rétt og hrinda órétti. Skal lögmaður svo til allra mála leggja, sem hann veit sannast eftir lögum og sinni samvisku.“ Einnig hélt nefndin því fram að ekkert í gögnunum sýndi að lögmaðurinn hefði gefið vörslusvipting- araðila fyrirmæli um framkvæmd vörslu- sviptingar og þá um leið þjófnað á per- sónulegum eigum og eigum vinnuveitanda. Þess má geta að nefndin getur kallað aðila til skýrslugjafar en gerði ekki. Í nið- urstöðu nefndarinnar segir: „Ekki verður séð að aðgerðirnar hafi stuðst við ákvæði aðfararlaga nr. 90/1989 eða nauðungarsölulaga nr. 90/1991, enda ekki um fulln- ustuaðgerð að ræða.“ Íslensk aðfararlög eru almenn lög sem gera ekki ráð fyrir því að þegnarnir geti samið sig undan skýrum ákvæðum þeirra, ekki frekar en að hægt væri að semja sig undan ákvæðum almennra hegningarlaga eða umferðarlaga. Engu að síður ganga þessir þrír hæstaréttarlögmenn út frá því að umrædd vörslusvipting, sem er aðför í skilningi laga, hafi einungis stuðst við einhliða ákvæði í bíla- samningnum, einhliða sömdu af SP, eins og ekkert sé sjálfsagðara. Skv. ákvæðinu er SP heimilt að vörslusvipta án atbeina sýslu- manns. Forvitnilegt væri einnig að fá álit þessara eða annarra lög- manna á því hvort þeir telji að einstaklingar hafi samið frá sér stjórnarskrárbundinn rétt um frið- helgi heimilisins með því að sam- þykkja í smáa letrinu svo hljóð- andi ákvæði: „SP, eða þeir sem SP tilnefnir, á að hafa óskoraðan að- gang að starfsstöð leigutaka, heimili eða starfssvæði til að skoða bifreiðina.“ (Nær hefði reyndar verið að segja „… til að taka bifreiðina.“) Skilmálar þessara undirmáls- lána endurspegla mikla tauga- veiklun lánveitanda gegn lántaka enda hófst markaðssetning lán- anna af fullum krafti þegar veru- legir erfiðleikar blöstu við íslenska fjármálakerfinu og finna þurfti leiðir til að komast framhjá ís- lenskum lögum. Einu lögfræðilátin, hingað til, sem styðja vörslusviptingar án dóms og laga liggja hjá SP en eru sögð trúnaðargögn og því ekki til sýnis. Því er vissulega áhugavert að fram sé komið álit þriggja hæstaréttarlögmanna sem telja að hægt sé að nýta ákvæði í samningi þar sem einstaklingar fyrirgera rétti sínum til að leita réttar síns hjá dómstólum. Þess má geta að fyrrverandi dómsmálaráðherra, Ragna Árnadóttir, hefur lýst því yfir á opinberum vettvangi að ef aðilar mótmæla afhendingu bif- reiða, eigi þeir rétt á úrskurði dómstóla. Hæstiréttur hafnaði hinn 16. júní sl. kröfu Lýsingar hf. um að- farargerð með þeim röksemdum að slík óvissa hafi verið um ætluð vanskil leigutaka/lántaka við rift- un samnings, að ekki væri uppfyllt skilyrði 78. gr. laga nr. 90/1989 um aðför til að leyfa hina um- beðnu aðfarargerð. Skilmálar á samningsformum Lýsingar hf. sem eru sambærilegir skilmálum SP og hinna eignaleigufyrirtækj- anna, dugðu því ekki til. Að lokum. Merkilegt er að vita til þess að einn af lögmönnum úr- skurðarnefndarinnar sem er eig- andi lögmannstofunnar Lagastoð- ar ehf. skuli ekki álíta sjálfan sig vanhæfan til að úrskurða í máli tengdu SP. Lagastoð er sú lög- mannsstofa sem eflaust á met í innheimtu og stefnum á kröfum fyrir m.a. SP, kröfum vegna upp- gjörs á ólöglega gengistryggðum lánum, ólöglega vörslusviptum bif- reiðum og tækjum, ímynduðum viðgerðarkostnaði ásamt ímynd- uðum virðisaukaskatti. Eins situr lögmaðurinn í slitastjórn „gamla“ Landsbankans sem var móðurfyr- irtæki SP. Í dag er „nýi“ Lands- bankinn móðurfyrirtæki SP. Sami bankinn, önnur kennitala. Að semja sig frá íslenskum lögum Eftir Þórdísi Björk Sigurþórsdóttur » Það merkilegasta við niðurstöðu úrskurð- arnefndar LMFÍ er að þrír hæstaréttarlög- menn telja að hægt sé að semja sig frá almenn- um lögum. Þórdís Björk Sigurþórsdóttir Höfundur er viðskiptafræðingur og formaður Borgarahreyfingarinnar. Það er þekktara en frá þurfi að segja að íþróttaumfjöllun flestra fjölmiðla er mjög ríkjandi á mark- aðnum, og er þá sama hvort það eru prent- miðlar, útvarps- stöðvar og eða sjón- varpsstöðvar. Sérrásir læstra myndlykla sjá um út- rásir íþróttaunnenda. En mér er hjartans mál að fjallað sé meira um listir af öllu tagi. Mér er bent á að íþróttaefni sé besta mál og allt af hinu, þarft mál vegna hreyfingarleysis þjóðar í of- fituvanda. En ég bendi á að íþróttaáhugafólk sem stundar íþróttir er trúlega mest lítið í yf- irkjörþyngd. Það getur hins vegar verið annð í gangi hjá því fólki sem liggur heima í sófa yfir feitu poppi og gosi/bjór með manískan bolta í gangi og eða mætir í hóp yfir breiðtjaldssporti á veitinga- húsum, –gjarnan með feitan bjór og hljóðkerfið á góðum styrk. En er hægt að sam- eina sport og list- umfjöllun? Nei, það yrði fljótt blásið af, því ímynd sport- áhugamannsins hefur ekki áhuga á neinu öðru en endalausu sporti – keppni af öll- um stærðum og gerð- um. En það er þó eitt listform sem er stundað í fáeinar mín- útur fyrir hvern landsleik. Ég er auð- vitað að tala um að þjóðsöngvar eru leiknir við upphaf hvers landsleiks, það er reyndar einungis leikinn flutningur – ekki sunginn. Í öllum fréttatímum er íþrótta- og veðurpakki en þar mætti minnka pólitíkina, en auka pæl- ingar um bjartsýni. Ég meina: breyta öllum áherslum til móts við tímamörk íþrótta og veðurpakka. Afmörkuð umfjöllunarefni 3-5 mín. að hámarki. „Landinn“, lands- byggðarþáttur, er nú í gangi alla sunnudaga, það er til fyrirmyndar. En fyrir mig sem þoli ekki íþróttafréttir og fyrir íþróttafíkla sem þola ekki listir, þá skal vakin athygli á því að listmenning teygir anga sína víðar en margan grunar: Listhönnuðir sjá um rétt útlit klæðnaðar íþróttamanna og ann- arra. List í umhverfis- og utan- húshönnun jafnt sem innanhúss er hvar sem þú gengur um án þess að taka eftir því. Áhugi minn ligg- ur því í listum allt frá litlu hand- verki og upp í arkitektúr híbýla og umhverfis. Fréttaþættir mættu því skiptast í eftirfarandi: Í léttum réttum er þetta helst: Matarlyst pólitíkusa könnuð. Ákærumál á ör- væntingarfólk bönnuð. Frum- kvöðla-útrásarmörk hönnuð. Upp- lýsingamiðstöð stjórnarskrár skönnuð. forystukind@simnet.is Eftir Atla Viðar Engilbertsson. »Matarlyst pólitíkusa könnuð. Ákærumál á örvæntingarfólk bönn- uð. Frumkvöðla-útrás- armörk hönnuð. Upp- lýsingamiðstöð stjórnarskrár skönnuð. Atli Viðar Engilbertsson Höfundur er fjöllistamaður. Sportrásir fjöllistasparnaðar – meira fyrir áskrifendur Fáðu þér áskrift á mbl.is/askrift Pöntunartími auglýsinga er fyrir klukkan 16:00 þriðjudaginn 21. desember 2010. Nánari upplýsingar veitir Katrín Theódórsdóttir í síma 569 1105, kata@mbl.is Í þessu blaði verða kynntir fullt af þeim möguleikum sem í boði eru fyrir þá sem stefna á heilsuátak og bættan lífstíl í byrjun ársins 2011. Meðal efnis verður: • Hreyfing og líkamsrækt • Vinsælar æfingar • Bætt mataræði • Heilsusamlegar uppskriftir • Andleg vellíðan • Bætt heilsa • Ráð næringarráðgjafa • Hugmyndir að hreyfingu • Jurtir og heilsa • Hollir safar • Ný og spennandi námskeið • Bækur um heilsurækt • Skaðsemi reykinga • Ásamt fullt af fróðleiksmolum og spennandi viðtölum Morgunblaðið gefur út glæsilegt sérblað um heilsu og hreyfingu mánudaginn 4. janúar 2011. Heilsa og hreyfing

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.