Morgunblaðið - 07.12.2010, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 07.12.2010, Blaðsíða 27
DAGBÓK 27 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. DESEMBER 2010 Grettir Smáfólk Hrólfur hræðilegi Gæsamamma og Grímur Úthverfið Kóngulóarmaðurinn Ferdinand ÞAÐ KVIKNAÐI Í TÚNFISKSNÚÐLUNUM MÍNUM ÉG SLEKK BARA Í ÞEIM Á MEÐAN ÞÚ NÆRÐ Í KATTAMATINN VIÐ ERUM SANNIR PIPARSVEINAR ÉG SÉ AÐ ÞAÐ ERU FLEIRI ÁHORFENDUR EN VIÐ GETUM TEKIÐ Í SÆTI ÉG TÓK LÍKA EFTIR ÞVÍ STÓLLINN ERBILAÐUR! ÉG ÆTLA HEIM AÐ SKIPTA UM FÖT ÞAÐ VORU MISTÖK AÐ KLÆÐAST RAUÐU! ÞÚ ÆTTIR AÐ SJÁ ÞETTA, VÉLKÖTTURINN ER AÐ SLEIKJA SÓLINA HVAÐ MEÐ ÞAÐ? ALLIR KETTIR FARA Í SÓLBAÐ TIL AÐ HLAÐA SÓLARRAF- HLÖÐURNAR? ÉG SKAL SKO SÝNA HONUM HVERNIG MÉR LÍÐUR ÞEGAR HANN GERIR LÍTIÐ ÚR VANDAMÁLUM MÍNUM LÍTUR ÚT FYRIR AÐ ANNAR VIÐSKIPTA- VINUR OKKAR SÉ AÐ FARA Á HAUSINN ÞAÐ ER EKKERT TIL AÐ HAFA ÁHYGGJUR AF ÞAÐ ER RÉTT HJÁ ÞÉR! ÉG ÞARF AÐ KOMA MÉR NIÐUR Í LEIKHÚSIÐ ÉG SKAL KOMA MEÐ ÞÉR HÉRNA KEMUR HIN HNÝSNA FRÚ GRILBY ÞAÐ ER OF SEINT AÐ FLÝJA ÉG HEF VERIÐ AÐ VELTA ÞVÍ FYRIR MÉR AF HVERJU ÞÚ VAKIR SVONA LENGI FRAM EFTIR PETER? HÚN ER SÖM VIÐ SIG! Týnd næla Ég týndi bronslitaðri blómanælu með grænum steini föstu- daginn 5. nóvember síðastliðinn í sal 3 í Háskólabíói. Nælan er mér afar kær þar sem móðir mín átti hana er hún var yngri. Ég bið því finnand- ann, ef einhver er, að hafa samband í síma 898-1905 eða senda tölvupóst á lev2@hi.is. Þakkir Mig langar að koma innilegu þakklæti til mannsins sem fann veskið mitt fyrir utan Bónus í Smáralind og kom því til lögreglu. Það er yndislegt að enn sé fólk á Íslandi sem er samviskusamt og heiðarlegt. Færi ég honum þakkir og bið honum guðs blessunar. Einnig vil ég í leiðinni þakka fyrir greinar í blaðinu eftir Ársæl Þórð- arson. Jóhanna. Vill Hönnu Birnu aftur Drottinn minn, gefðu okkur Hönnu Birnu aftur. Gamall múrari. Nálastungur Ég mæli eindregið með að fara í nála- stungur hjá hjónunum í Hamraborg 20A, Kópavogi, þau hafa hjálpað mér mikið. Anna Lára. Jólaljósin í miðbænum Mig langar að gagnrýna hversu seint er kveikt á jólaljósunum í mið- bænum, er ekki hægt að breyta þessu? Á laugardaginn var klukkan langt gengin í sex þegar kveikt var á jólaljósunum. Ein vonsvikin. Ást er… … þegar þið eruð ólík, en jöfn. Velvakandi Svarað í síma 5691100 frá 10–12 velvakandi@mbl.is Félagsstarfeldriborgara Aflagrandi 40 | Vinnustofa kl. 9, göngu- hópur kl. 10.30, vatnsleikfimi kl. 10.45, uppl. kl. 12.15, postulín kl. 13, postulín kl. 13.30, félagsvist kl. 14. Lestrarhópur. Árskógar 4 | Smíði/útskurður kl. 9. Botsía kl. 9.45. Handavinna kl. 12.30. jóga kl. 13.30. Bústaðakirkja | Á morgun 8. des. kl. 13 spil og föndur. Gunnar Eyjólfsson leikari, les úr ævisögu sinni, Alvöru leiksins. Ritningarlestur og bæn. Dalbraut 27 | Handavinna kl. 8, vöfflu- kaffi kl. 13.30, jólasokkasýning. Digraneskirkja | Leikfimi kl. 11, hádeg- isv./helgistund. Sr. Fjalarr Sigurjónsson kemur í heimsókn. Fella- og Hólakirkja | Kyrrðarstund kl. 12. Gestur píanóleikarinn Halldór Vík- ingsson. Kaffi og meðlæti. Helgistund í kirkju. Félag eldri borgara í Garðabæ | Tré- smíði kl. 9/13, leshringur bókas., jóla- stund kl. 10.30, vatnsleikfimi kl. 12.10, opið hús í kirkju, karlaleikf./ bútasaumur kl. 13, botsía kl. 14, Bónusrúta kl. 14.45, línudans kl. 16. Félag eldri borgara í Kópavogi | Les- hópur í Félagsheimilinu Gullsmára 13 kl. 20. Njörður P. Njarðvík, rithöfundur og skáld. Enginn aðgangseyrir. Félag eldri borgara, Reykjavík | Skák kl. 13, frams. kl. 17.15, félagsvist kl. 20. Félagsheimilið Boðinn | Handavinna kl. 13. Aðventuhátíð kl. 20 14. des. Félagsheimilið Gjábakki | Leikfimi kl. 9.15, gler- og postulín kl. 9.30, jóga kl. 10.50, alkort kl. 13.30. Jólalegt morg- unverðarhlaðborð 9. des kl. 10-11.30. Ungir söngvarar/harmonikkuleikari. Tilk. þátttöku s. 554-3400, verð kr. 1200. Félagsstarf Gerðubergi | Vinnustofur kl. 9, m.a. glersk./ perlusaumur, staf- ganga kl. 10.30. Á morgun kl. 11 kemur Svavar Knútur trúbador í heimsókn. Laugard. 11. des. aðventuganga um Efra- Breiðholt, óskað er eftir ábendingum hvar bekkir eigi að vera við göngustíga. Lagt af stað frá Gerðubergi kl. 11. Furugerði 1, félagsstarf | Möguleik- húsið sýn. Aðventa eftir Gunnar Gunn- arsson í nýja salnum kl. 14. Veitingar á vægu verði. Grafarvogskirkja | Opið hús kl. 13.30. Helgistund, handavinna, spil og spjall. Hraunbær 105 | Jógaleikfimi kl. 9.30. Hraunsel | Rabb kl. 9, qi-gong og mynd- mennt kl. 10, leikfimi kl. 11.30, brids kl. 12.30, gler/myndmennt kl. 13, jóla- fundur 9. des. kl. 14. Hvassaleiti 56-58 | Lífsorkuleikfimi kl. 8.30/9.30/10.30. Bútasaumur kl. 9. Myndlist kl. 13. Börn úr Leikskólanum Austurborg syngja kl. 13.30, helgistund kl. 14, söngstund á eftir. Stólaleikfimi kl. 15. Hæðargarður 31 | Bútasaumssýn. Listasmiðju- og myndlistarsýning Erlu Þorleifsdóttur. Opnað f. hádegisverð kl. 12 föstudag 3. des. og 6. des. Jólafundur bókm.hóps kl. 20. Íþróttafélagið Glóð | Línudans í Kópa- vogsskóla, hópur I kl. 14.40, hópur II kl. 16.10, hópur III kl. 17.40. Versalir: Ganga kl. 16.30. Korpúlfar Grafarvogi | Á morgun kl. 13.30 er aðventufundur í Hlöðunni í Gufunesbæ, jóladagskrá, veitingar kr. 500. Á morgun mið. pútt kl. 10, ath. breytta dagsetningu. Safnaðarheimilið Kirkjuhvoll, Garða- bæ | Opið hús kl. 13 e. kyrrðarstund og súpu. Spil, saumað/spjall. Vesturgata 7 | Aðstoð v/böðun/ handavinna kl. 9.15, spurt/spjallað kl. 13, leshópur kl. 13, spil kl. 14.30. Vitatorg, félagsmiðstöð | Bútasaumur, morgunstund, glerbræðsla, upplestur, handavinna, félagsvist. Jóla og aðventu- fagn. 10. des kl. 18. Jólahlaðborð, skemmtun. Uppl. og skrán. í s. 411-9450. Ólafur Stefánsson er marg-fróður um vísur og tildrög þeirra. Hann skrifar fróðlegt bréf: „Hallgrímur Jónasson, ferða- garpur og kennari, gerði á fjöll- um vísu sem er minnisstæð. Einhver draugalýsulog leika um jökulrætur; nú er kalt á Kili og kannski reimt um nætur. Hallgrímur var, eins og kunn- ugt er, fararstjóri í Bjarmalands- för Steins og félaga til Sovétríkj- anna sumarið 1956. Steinn bar Hallgrími vel sög- una, en gat ekki setið á sér að segja, að „hagmælska hans hafi verið þreytandi til lengdar“. Hallgrímur var gríðarlega hag- mæltur og líklega talandi skáld, en það er sannleikur í þessum orðum Steins, eins og oftar, og mættum vér leirmenn þar af nokkurn lærdóm draga. Okkar vísur eru ekki eins ómissandi eins og vér hyggjum í hita leiks. En mig langar að setja hér tvær vísur í viðbót eftir Hallgrím. Þær eru úr ofannefndri ferð. Segðu mér sægolan hlýja er syngur í rá og böndum, fær Bjarnason áfengi áfram austur í Ráðstjórnarlöndum? Og: Leiðin er ljós fyrir stafni – langur er Kyrjálaflóinn – Brynhildur Buðladóttir ber okkur yfir sjóinn. Pétur Blöndal pebl@mbl.is Vísnahorn Af draugum og Bjarmalandsför

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.