Morgunblaðið - 07.12.2010, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 07.12.2010, Blaðsíða 23
✝ Kolbeinn IngiKristinsson fæddist í Tungu í Gaulverjabæj- arhreppi 1. júlí 1926. Hann lést á Heilbrigðisstofnun Suðurlands 30. nóvember 2010. Banamein hans var krabbamein. For- eldrar Kolbeins voru Kristinn Ög- mundsson frá Hjálmholti, f. 13.3. 1884, d. 8.10. 1934, og Sigríður Halldórsdóttir frá Kárastöðum í Þingvallasveit, f. 10.12. 1888, d. 21.2. 1984. Systir Kolbeins var Margrét Ágústa, f. 9.10. 1924, d. 7.7. 1928. Kolbeinn kvæntist eftirlifandi eiginkonu sinni, Þorbjörgu Sig- urðardóttur, þann 16.4. 1949. Foreldrar hennar voru Sigurður Óli Ólafsson, fv. alþingismaður, f. 7.10. 1896, d. 15.3. 1992, og Kristín Guðmundsdóttir hús- freyja, f. 4.2. 1904, d. 9.6. 1992. Sonur Kolbeins og Þorbjargar er Sigurður Kristinn viðskiptafræð- ingur, f. 11.2. 1960, búsettur í Kaupmannahöfn. Eiginkona hans er Edda D. Sigurðardóttir til Reykjavíkur. Þá tók Kolbeinn þátt í stofnun Egilskjörs við Hlemmtorg og starfaði þar sem verslunarstjóri fram til ársins 1964 þegar hann stofnaði eigin matvöruverslun, Kostakjör í Skipholti. Versluninni var lokað 10 árum síðar en árið 1975 var Kolbeinn ráðinn forstjóri Kaup- félagsins Hafnar á Selfossi (síðar Höfn-Þríhyrningur HF) og veitti því fyrirtæki forstöðu í 21 ár, þar til hann ákvað að láta af störfum í ársbyrjun 1996 eftir farsælan starfsferil við verslun í rúmlega 50 ár. Kolbeinn var virkur þátt- takandi í Kaupmannasamtökum Íslands og sat í stjórn samtak- anna í nokkur ár. Kolbeinn var mikill íþróttamaður á yngri ár- um og keppti þá í hástökki og stangarstökki. Hann var valinn í hið sigursæla frjálsíþróttalands- lið Íslands árið 1951 ásamt Clau- sen-bræðrum og fleiri afreks- mönnum. Hann stundaði skíðaiðkanir í mörg ár ásamt fjölskyldu sinni og keppti nokkur ár í badminton fyrir TBR. Golf átti hug hans allan sl. 40 ár en hann var félagi í Golfklúbbi Sel- fossi frá stofnun klúbbsins. Kol- beinn var gerður að heið- ursfélaga hjá Kaupmannasamtökum Íslands, UMF Selfoss, Golfklúbbi Selfoss og TBR. Útför Kolbeins fer fram frá Selfosskirkju í dag, 7. desember 2010, og hefst athöfnin kl. 13.30. snyrtifræðingur. Foreldrar hennar eru Sigurður Ás- mundsson sendi- fulltrúi, f. 27.3. 1932, d. 5.2. 1999 og Karí K. Eiríks- dóttir sjúkraliði, f. í Noregi 14.3. 1935. Börn Sigurðar og Eddu eru: a) Eva Katrín viðskipta- fræðingur, f. 25.7. 1985, búsett í Kópavogi. Sam- býlismaður hennar er Kristján Þór Gunnarsson læknir, f. 15.12. 1981. Börn Evu og Kristjáns eru Karólína Kol- brún, f. 2007 og Alexandra Edda, f. 2009. b) Andrea Þorbjörg nemi, f. 13.9. 1990, búsett í Kaup- mannahöfn. c) Kristín Edda nemi, f. 22.9. 1993, búsett í Kaup- mannahöfn. Kolbeinn ólst upp á Selfossi frá unga aldri ásamt móður sinni. Hann stundaði nám við Héraðs- skólann á Laugarvatni og síðar Samvinnuskólann í Reykjavík. Árið 1945 tók hann ungur við starfi verslunarstjóra hjá KÁ á Selfossi og starfaði þar til ársins 1957 þegar þau Þorbjörg fluttu Einstakur tengdafaðir minn, Kol- beinn I. Kristinsson, er látinn. Líf hans hefur verið farsælt og hamingju- ríkt þótt þungbært hafi verið fyrir átta ára pilt að missa föður sinn. Móð- ir hans kom syni sínum til manns með miklum dugnaði. Kolbeinn hitti ungur að árum konuna sem hann vildi eiga, Þorbjörgu Sigurðardóttur, lífsföru- naut til meira en 60 ára. Þau hafa ræktað hvort annað af virðingu og ást svo eftir hefur verið tekið. Aldrei orðið sundurorða, ávallt samheldin og skotin hvort í öðru. Kynni mín af þeim hófust þegar ég og sonur þeirra felldum hugi saman. Ég var kynnt fyrir tilvonandi tengda- foreldrum á yndislegu heimili þeirra á Selfossi. Mér leið vel í návist þeirra frá fyrstu stundu. Góð tengsl mynd- uðust sem áttu eftir að eflast með ár- unum. Kolbeinn var forstjóri Hafnar hf. á Selfossi og ég dáðist fljótlega að dugnaði hans og heiðarleika í starfi. Aldrei skyldi eytt um efni fram, hag- ur fyrirtækisins ávallt hafður í fyrir- rúmi. Ég tel víst að hagur lands okkar væri betri ef vinnubragða hans hefði notið við. Þau hjónin áttu sér sælureit, sum- arhúsið Tangann. Þar áttum við fjöl- skyldan ófáar stundirnar með þeim hjónum. Þegar hann var ungur maður var það draumur Kolbeins að verða flug- maður en þau áform urðu að engu þegar honum bauðst verslunarstjóra- staða hjá KÁ. Hann öðlaðist einka- flugmannsréttindi og var skýjum ofar í nokkur ár. Af framhaldsnámi varð þó ekki. Golfið átti hug hans allan í fjölda- mörg ár og deildi Þorbjörg þeim áhuga með honum. Hann var frábær dansari og vissi fátt betra en að sveifla draumadísinni sinni um dansgólfið, oft með sínum margfrægu skiptisporum. Þegar við fluttum til Kaupmanna- hafnar hlúðu þau vel að Evu Katrínu, dóttur okkar, sem kaus að ljúka námi sínu í Versló. Þau keyptu bíl handa henni svo hún kæmist ferða sinna og var bíllinn óspart notaður til ferða á Selfoss í mat til þeirra. Aldrei fór hún til baka án þess að bíllinn væri fylltur af bensíni ásamt smá vasapeningi. Margar urðu komur þeirra til Hafnar sem voru miklar gleðistundir fyrir okkur og dæturnar Andreu og Kristínu. Kolbeinn var fróður um borgina þar sem hann dvaldist árið 1955 og kynnti sér rekstur kjörbúða. Þar kaus hann að eyða 80 ára afmælisdegi sín- um með nánustu fjölskyldu og bauð til góðrar veislu í Tivoli. Foreldrar mínir, Sigurður og Karí, hrifust strax af tengdaforeldrum mínum og með þeim tókst einstök vinátta. Systur mínar og makar þeirra drógust líka að þeim hjónum og fjölskyldan varð stærri og ríkari. Ekki að ástæðulausu kölluðu börn systra minna þau hjónin afa og ömmu. Ekki má gleyma hlut Kristjáns Þórs Gunnarssonar, sambýlismanns elstu dóttur okkar. Þeir urðu strax miklir mátar og Kolbeinn tjáði mér að honum fyndist hann hafa eignast tengdason í honum. Höfðingi er fallinn frá. Kolbeinn hefur tekið sitt síðasta skiptispor á leið sinni til nýrra heima. Maðurinn minn hefur misst sinn besta vin, tengdamóðir mín heitt elskaðan eig- inmann og dætur mínar yndislegan afa. Ég kveð mætan mann sem ég með stolti gat kallað tengdaföður minn. Edda Dagmar Sigurðardóttir. Elsku besti afi minn. Ég man hvað þú hefur alltaf verið góður við mig og hjálpað mér með allt og stutt við bakið á mér þegar ég hef þurft á því að halda. Það eru svo margar góðar og skemmtilegar minningar sem við eig- um saman, afi. Ég man til dæmis þegar ég kom í heimsókn til þín og ömmu og við tvö fórum saman í langa bíltúra til Eyr- arbakka. Þar leyfðir þú mér að keyra sjálf þrátt fyrir að ég væri nú aðeins 13 ára gömul. Ég man líka eftir því þegar við gengum meðfram strönd- inni og fórum svo upp í vitann, þú passaðir alltaf upp á mig, leiddir mig og sagðir svo við mig: „Andrea, mér þykir alveg ofboðslega vænt um þig.“ Þá leið mér svo vel. Það var svo gott að geta kúrað í fanginu þínu og verið hjá þér. Ég gleymi því aldrei. Ég man líka þegar ég fór oft með þér í snóker þar sem þú spilaðir með vinum þínum og varst svo glaður. Á eftir var svo farið í einn bíltúr upp í Tanga og heim til ömmu í steikt brauð. Ég er svo þakklát fyrir að hafa átt tuttugu ár með þér, ég hefði þó gjarn- an viljað að þau hefðu orðið fleiri. Ég hef lært mikið, þú hefur kennt mér svo mikið um lífið og tilveruna og ver- ið traustur og góður vinur. Afi, ég lofaði þér einu fyrir stuttu og það var að sýna þér að ég gæti klárað námið mitt. Ég veit að það mun gera þig stoltan. Ég veit að þú fylgist með mér uppi á himnum. Þín er sárt saknað og það er erfitt að þú sért farinn frá okkur. Ég er full- viss um að englarnir og guð passa upp á þig og að þú sért kominn á góðan stað núna. Eva Katrín, ég og Kristín Edda gætum ekki hugsað okkur betri afa en þig. Þú hefur líka verið sá besti pabbi fyrir hann pabba okkar, alveg yndislegur tengdapabbi fyrir mömmu okkar og síðast en ekki síst sá allra besti eiginmaður í heiminum fyrir hana ömmu Obbu. Við stöndum öll saman og pössum upp á ömmu fyrir þig, hún verður aldrei ein. Eins og þú sagðir við mig fyrir nokkrum dögum, þá kveðjumst við ekki. Afi, ég veit að við sjáumst aftur uppi á himnum. Þar sem tár mín renna niður kinn- arnar vil ég ekki hafa þetta lengra. Ég vil þakka þér fyrir allt sem þú hef- ur gert fyrir mig og systur mínar. Þú ert sá eini sanni afi og enginn getur tekið sætið þitt. Mundu eitt, ég elska þig svo heitt, afi Kolli minn. Ég verð ætíð þitt „angasíli“ eins og þú og amma hafið kallað mig í gegn- um tíðina. Þú verður alltaf til staðar í huga mér og hjarta mínu. Guð geymi þig, hvíldu í friði og ró og englarnir verði með þér, afi minn. Ástarkveðja, Andrea Þorbjörg Sigurðardóttir. Elskulegur afi minn, afi Kolli, er látinn. Í gegnum hugann renna minn- ingar og um leið streyma tárin niður kinnarnar. Tár sem eru til marks um þá yndislegu tíma sem við höfum átt saman síðastliðinn aldarfjórðung. Síðustu dagana sem afi lifði gátum við rifjað upp þessa tíma saman, og auð- vitað grétum við saman. Tárin kusum við þó að kalla gleðitár, það er ekki hægt annað en að gleðjast yfir öllum þessum fallegu minningum. Afi var yndislegur maður með stórt og hlýtt hjarta. Hann var heiðvirður maður sem ávallt bar óflekkað mannorð, var heiðarlegur, hreinskilinn og sam- kvæmur sjálfum sér. Hann var maður sem ég hef ávallt litið upp til og mun ætíð gera. Hann kenndi mér hin réttu lífsgildi og hvað það er sem virkilega skiptir máli í lífinu. Þó verður að segj- ast að öllum minningunum sem ég á um afa fylgir, eins og hann sagði sjálf- ur við mig oftar en einu sinni, hans betri helmingur, yndislega amma mín, Obba. Þau voru sem eitt og verða ætíð fyrir mér. Fyrirmyndar- hjón að öllu leyti. Hin amma mín, Karí, vildi alltaf meina að þau væru holdgervingar hinna fullkomnu forsetahjóna og ég er henni algjörlega sammála. Slíkt sómafólk eins og afa og ömmu hittir maður sjaldan á lífsleiðinni. Ég á ótal góðar minningar um afa. Ég man þegar ég kom í Hafnartúnið og fékk hafrakex með rækjuosti, fór í nammiskúffuna hennar ömmu og rölti svo upp og horfði á Tomma og Jenna. Afi sá alltaf til þess að nýjustu þættirnir af Tomma og Jenna væru til þegar ég kom í heimsókn. Ég man þegar ég fór með afa og ömmu út á golfvöll og fékk að draga golfkerruna og pútta. Fara svo í Höfn á eftir og versla með ömmu, að sjálf- sögðu með mína eigin innkaupagrind. Þetta fannst mér toppurinn. Ég man hvað ég fylltist alltaf gleði og ánægju þegar ég sá hvað hann var óhræddur við að láta í ljós hvað hann væri alltaf jafn ástfanginn af ömmu og hversu heitt hann elskaði hana. Ég er svo þakklát fyrir allar þessar minn- ingar og ekki síst fyrir síðustu dagana sem við áttum saman. Ég er svo þakklát fyrir að hafa átt svona góðan og kærleiksríkan afa sem hefur tekið þátt í öllum stærstu stundunum í lífi mínu. Þegar ég útskrifaðist úr Versló, þegar ég kynntist Kristjáni, þegar ég eignaðist báðar dætur mínar, þegar ég útskrifaðist úr Háskólanum, þegar ég ákvað að fara aftur í háskólanám og þegar ég hélt afmælið mitt í Tang- anum í sumar. Stærsta minningin er þó samsafn allra þeirra litlu minninga um liðnar samverustundir okkar. Þegar afi lést missti ég ekki aðeins afa minn, heldur afar náinn vin sem ásamt ömmu hafði verið mér stoð og stytta síðastliðin ár og þá sérstaklega eftir að foreldrar mínir fluttu til út- landa. Ég kveð hann með miklum söknuði og sáru hjarta. Afi brýndi vel fyrir mér að þrátt fyrir skakkaföll og hindranir í lífinu yrði maður að halda áfram og því held ég áfram með minn- ingu um yndislegan mann og afa að leiðarljósi. Minning hans lifir í hjarta mér. Ég trúi því að við hittumst aftur, hann heldur verndarhendi yfir okkur þangað til. Hvíl í friði, elsku afi minn. Eva Katrín Sigurðardóttir. Meira: mbl.is/minningar Kolbeinn mágur minn er floginn á æðri svið. Hann gerði það fallega, átakalaust og með þeirri reisn sem ætíð var hans aðalsmerki. Hann valdi líka rétta daginn, sextugasta og þriðja trúlofunardag hans og systur minnar Þorbjargar. Það var honum líkt, allir hlutir höfðu sitt rúm og sinn tíma. Kolbeinn var mikill athafamaður. Allt sem hann tók sér fyrir hendur var gert af eljusemi og krafti sem ein- kenndu hann alla tíð. Ég var fjögurra ára þegar Obba stóra systir og Kolli mágur byrjuðu að draga sig saman. Ég fékk að koma með í spennandi heimsóknir til Kolla, en hann bjó ásamt Sigríði móður sinni í gamla bankahúsinu við Austurveg á Selfossi. Í herbergi Kolla héngu í loft- inu flugvélamódel af öllum stærðum og gerðum sem hann hafði sett saman af mikilli nákvæmni. Það var flott. Mér fannst kærastinn vel valinn af systur minni. Móðir Kolbeins Sigríð- ur – góða konan – átti alltaf sælgæti og appelsín, þetta var ekki slæmt. Kolli var einstakt snyrtimenni. Alltaf glæsilega til fara. Mér eru minnisstæðar skóburstunargræjurn- ar hans. Lítið járnbox sem í var skóá- burður og alls konar pússigræjur. Hann pússaði sína skó sjálfur. Snyrti- mennskan kom fram á öllum sviðum. Systir mín passaði vel inn í myndina, glæsileg og sæt Kvennaskólapía, flott klædd, hún stýrði á þeim tíma skáta- starfinu á Selfossi. Þau voru flott par sem sópaði að. Kolbeinn var sérfræðingur í heims- styrjöldunum fyrri og síðari. Hann þekkti allar gerðir flugvéla, ekki síst var hann fróður um allar flugvélar og flugkappa síðari heimstyrjaldarinnar. Þær voru ýmsar íþróttagreinarnar sem Kolli lagði stund á af miklu kappi. Fyrst stundaði hann frjálsar íþróttir, vann til margra verðlauna í stangar- stökki, síðar tók við badminton sem hann stundaði með Sigurði Kristni, einkasyni þeirra Obbu. Þar á eftir fylgdu skíðin og að lok- um golfið. Allt stundað af reglusemi og kappi og aldrei dugðu nema flott- ustu græjurnar. Kolbeinn hafði unun af laxveiði. Í mörg ár fóru þeir saman svilarnir, Kolbeinn og Hákon, í Laxá í Aðaldal og nutu þess vel í góðra vina hópi. Kolbeinn eignaðist konuna sem hann þráði, eignaðist soninn sem hann dáði og gætti vel, naut í ríkum mæli samvista við Eddu og Sigga, stelpurnar þeirra og langömmubörn- in. Ég kveð mág minn með þakklæti í huga fyrir góða samveru og er sann- færð um að nú sér hann vel allar golf- kúlurnar og verður fljótur að ná holu í höggi, ef ég þekki hann rétt. Við Hákon, Kristín Martha, Sig- urður Óli, Sveinbjörg, Hrefna Þor- björg og Björn vottum Obbu, Sigga Kidda, Eddu, Evu Katrínu, Kristjáni, Andreu Þorbjörgu og Kristínu Eddu innilega samúð. Sigríður Ragna Sigurðardóttir. Ég kynntist Kolbeini fyrst árið 2005, stuttu eftir að leið mín og Evu sonardóttur hans lágu saman. Allt frá fyrstu stundu var mér tekið opnum örmum og ekki leið á löngu þar til mér leið eins og ég hefði alltaf verið partur af þessari litlu en samheldnu fjöl- skyldu. Í reglulegum heimsóknum okkar Evu, síðar með dætur okkar, var allt- af tekið á móti okkur opnum örmum. Andinn í Háengi 3, heimili Kolbeins og Obbu, einkenndist af hlýju og ást. Allt svo snyrtilegt, fágað og hlýtt. Framreiddar veitingar án undan- tekningar tilbúnar á uppdúkuðu borði þegar við mætum í heimsókn. Það er ekki í boði að afþakka, en það kemur ekki að sök þar sem freistingarnar er ómögulegt að standast. Kolbeinn bauð mér iðulega í „hús- bóndaherbergið“ til að ræða hin ýmsu mál. Þar gaf hann iðulega góð ráð, á góðan hátt. Hann var áskrifandi að Newsweek og vel upplýstur um mál líðandi stundar. Hann hafði mikinn áhuga á tækni- framförum og las oftast yfir greinar tengdar framförum í læknavísindum. Þessum blöðum hélt hann til haga fyrir mig og sendi mig svo iðulega heim með góðar greinar sem ég skyldi nú lesa vel. Kolbeinn leitaði líka oft ráða hjá mér. Ráð sem ég gaf glaður ef ég gat. Kolbeinn vissi vel hversu heppinn hann var að eiga hana Obbu og lét það ófeiminn í ljós. Svo samheldin hjón eru líklega vanfundin. Hann sagði mér einu sinni að grunnurinn að far- sælu hjónabandi væri gagnkvæm virðing og það að fara aldrei ósáttur að sofa. Ég vil meina að það hafi tekist gott samband með okkur Kolbeini. Sam- band sem ekki allir eru svo heppnir að mynda með öðru fólki. Samband eins og ég hef átt við afa mína. Þó ég hafi aðeins þekkt Kolbein í fimm ár þá finnst mér eins og ég hafi alltaf þekkt hann og vildi að góðu stundirnar hefðu orðið fleiri. Ég er virkilega þakklátur fyrir að hafa kynnst svona góðum og elskandi manni eins og Kol- beini. Marga af hans mannkostum vil ég leggja mig fram við að tileinka mér. Tvö lýsingarorð koma fyrst upp í hugann þegar ég hugsa um Kolbein. Reffilegur og traustur. ..... en orðstír deyr aldregi, hveim er sér góðan getur. (Úr Hávamálum) Gott fólk markar spor í sálu manns. Kolbeinn hefur markað spor í mína sál. Spor sem eru djúp og hafa mikla og góða merkingu. Þína skál. Þinn vinur, Kristján Þór Gunnarsson. Kolbeinn Ingi Kristinsson HINSTA KVEÐJA Deyr fé, deyja frændur, deyr sjálfur ið sama; en orðstír deyr aldregi, hveim er sér góðan getur. (Úr Hávamálum.) Andrea Þ. Rafnar og Einar Þór Þórhallsson. MINNINGAR 23 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. DESEMBER 2010  Fleiri minningargreinar um Kol- bein Inga Kristinsson bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.