Morgunblaðið - 07.12.2010, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 07.12.2010, Blaðsíða 24
24 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. DESEMBER 2010 ✝ Guðríður Ara-dóttir fæddist í Ólafsvík 27. des. 1918. Hún lést á Hjúkr- unarheimilinu Sunnu- hlíð í Kópavogi 24. nóvember sl. Foreldrar hennar voru Ari Bergmann Einarsson, fæddur í Klettakoti í Fróð- árhreppi á Snæfells- nesi 4. mars 1891, d. 9. ágúst 1978 og Frið- dóra Friðriksdóttir, f. í Ólafsvík 7. des. 1892, d. 27. okt. 1975. Systkini Guðríðar voru Einar Bergmann, f. 28. feb. 1922, d. 3. ágúst 2002, maki Iðunn Vigfúsdóttir, f. 29. maí 1927 og Ás- laug, f. 6. ágúst 1924, d. 26. mars 2004, maki Bárður Jensson, f. 16. okt. 1918, d. 20. okt. 1995. 5. nóv. 1938 giftist Guðríður Agli Sigurðssyni bifreiðarstjóra, f. 14. nóv. 1915 að Miklaholtshelli í Flóa, d. 31. okt. 1971. Egill var sonur feb. 1946, maki Garðar Briem, tæknifræðingur, f. 1. júlí 1945. Börn þeirra: 1) Egill, f. 17. júlí 1971, maki Cristina Valle, f. 11. júní 1967. Börn þeirra Nadine Björk, f. 30. maí 2003 og Gabriel Aron, f. 31. júlí 2007. 2) Gunnlaugur Einar, f. 31. mars 1974, maki Alda Bragadóttir, f. 16. júní 1971. Börn þeirra Einar Andri, f. 5. okt. 2003 og Helgi Hrannar, f. 5. okt. 2003. 3) Þóra Björg, f. 22. feb. 1978, maki Magnús Sveinsson, f. 6. sept. 1977. Börn þeirra Tinna Marín, f. 16. mars 2006 og Sveinn, f. 17. sept 2009. Guðríður var heimavinnandi hús- móðir þar til Egill féll frá. Þá hóf hún störf í borðstofu starfsfólks Landspítala við Hringbraut og starfaði þar til ársins 1990. Guð- ríður var ötull félagi í Kvenfélagi Hallgrímskirkju í Reykjavík og var sæmd sem heiðursfélagi félagsins í mars 2002. Að lokinni hálfrar aldar búsetu í Eskihlíð í Reykjavík bjó hún á Sunnuhlíðarreitnum í Kópa- vogi og loks á hjúkrunarheimili Sunnuhlíðar. Útför Guðríðar fer fram frá Hall- grímskirkju í dag, 7. desember 2010, og hefst athöfnin kl. 15. hjónanna Sigurðar Magnússonar, f. 29. júní 1870, d. 14. okt. 1935 og Hólmfríðar Þórunnar Ragnheiðar Gísladóttur, f. 31. júlí 1876, d. 9. des. 1949. Dætur þeirra eru: a) Steinunn Kolbrún líf- eindafræðingur, f. 11. júlí 1939, maki Hauk- ur Hergeirsson, fv. tæknistjóri, f. 24. ágúst 1931. Börn þeirra eru: 1) Egill Bergmann, f. 18. des. 1959, maki, Margrét Kjart- ansdóttir, f. 11. feb. 1961. Börn þeirra Dagur, f. 22. des. 1988 og Andri, f. 26. apríl 1992. 2) Haukur, f. 7. apríl 1963. 3) Guja Dögg, f. 11. feb. 1965. Börn hennar Sigtryggur, f. 6. des. 1985 og Arnór Kári, f. 27. ágúst 1987. 4) Arngeir Heiðar, f. 10. júní 1968, maki Rebecca Austen- Brown, f. 21. mars 1971. b) Hrafn- hildur Bergdís skrifstofustjóri, f. 1. „Amma, af hverju spilarðu svarta Pétur með lokuð augun?“ Þetta minntirðu mig reglulega á að ég hafi sagt við þig þegar við vorum að spila og þú varst að passa okkur systkinin. Við bræðurnir vorum ekki alltaf að gera þér gæsluverk- efnið auðvelt. Þegar allt var í rusli og hamagangurinn sem mestur átt- ir þú það til að setja flottasta dótið okkar í svartan poka og ætlaðir að gefa það fátæku börnunum í Afríku. Þegar ró hafði færst yfir liðið tók- um við oft í spil þar sem þú áttir það til að dotta því spilamennska var ekki þitt uppáhald. Ég man svo vel hvað mér fannst gott að koma í heimsókn til þín í Eskihlíðina. Fyrstu árin tók ég strætó úr Kópavoginum til að heim- sækja þig og síðar þegar ég byrjaði í Verzló kom ég reglulega til þín eftir skóla og hjálpaði þér með ýmis verkefni sem þú geymdir þar til ég kæmi. Þú áttir alltaf súkkulaðiköku sem þú vissir svo vel að var uppá- haldið mitt. Jólakakan var alveg sérstök og þú passaðir að eiga af- gang sem dugði út janúar fyrir mig því þú varst ekkert að ýta henni að öðrum. Þú fylgdist alltaf með öllu sem var að gerast hvort sem það voru daglegar fréttir sem rötuðu á for- síður blaðanna eða aðrar minni fréttir og umræður. Við gátum talað um allt og þú sýndir hugðarefnum mínum áhuga. Þú sagðir alltaf að ég hefði þennan mikla áhuga á útivist frá afa þótt ég og afi næðum ekki að kynnast þar sem hann féll frá langt um aldur fram. En núna ertu komin til afa og færð að hvíla í friði með honum. Ég á bara góðar minn- ingar um þig, amma, sem ég ætla að varðveita vel. Gunnlaugur Einar. Elskuleg tengdamóðir mín og einlægur vinur, Guðríður Aradóttir, hefur kvatt þetta jarðneska líf í hárri elli eftir langvarandi veikindi. Hún fæddist og ólst upp í sjáv- arplássinu Ólafsvík, sem var ólíkt því sem það er í dag og var oft á vetrum einangrað frá öðrum byggð- um. Á þeim árum og fram yfir kreppuna miklu ríkti þar dæmalaus fátækt og depurð eins og víðar, þó sjósókn og skepnuhald hafi bjargað mörgum frá hungurvofunni. Guðríð- ur átti því láni að fagna að heim- ilisfaðirinn var dugmikill stýrimað- ur og skipstjóri, sem var ötull við að afla til heimilisins og móðirin ekki síður hörkudugleg við búskapinn. Guðríður hafði alla burði til að mennta sig, því hún var einstaklega vel gefin og kunni góð skil á réttu og röngu, en það lá ekki fyrir henni að ganga menntaveginn. Hún var einkar listræn og liggja margvísleg verk eftir hana, bæði máluð og út- saumuð. Hún lagði leið sína til Reykjavíkur til að afla sér vinnu sem leiddi síðar til funda við Egil Sigurðsson og í framhaldinu gengu þau í hjónaband sem var einkar ást- ríkt og hamingjusamt. Ég man þann dag sem ég, nánast óharðnaður unglingur, stóð í fyrsta sinn á stofugólfi á heimili þeirra Guðríðar og Egils fyrir tæpri hálfri öld. Nú skyldi strákinn skoða. Sú „serimonía“ varð afar einföld, drif- inn með hraði inn í eldhúskrók og engu líkara en verið væri að stofna til mikillar veislu. Þetta var dæmi um einstakt viðmót þeirra hjóna. Fram að ótímabæru hvarfi Egils úr þessum heimi var alúð og hlýja að- alsmerki þeirra beggja enda voru þau alltaf „eitt“. Því varð lát Egils eftir snörp en stutt veikindi einkar erfið Guðríði, þá aðeins 53 ára, og markaði djúp sár innra með henni. Hún varð aldrei mikil félagsvera en þó gekk hún ákveðin í raðir kvenna í Kvenfélagi Hallgríms- kirkju í Reykjavík, sem var hluti af hennar lífsstarfi. Þetta varð hennar aðaláhugamál allt þar til kraftar þrutu. Það varð henni mikið ánægjuefni þegar félagar hennar heiðruðu hana árið 2002 og gerðu að heiðursfélaga. Guðríður réð sig fljótlega eftir lát Egils til Ríkisspít- ala þar sem hún virtist hafa fundið uppáhaldsstarf sitt í borðstofu starfsfólks. Þar fékk hún gnægð tækifæra til að gefa í ríkum mæli af sjálfri sér. Ég þakka tengdamóður minni áratugalanga tryggð og vináttu og megi hún hvíla í friði í faðmi allra þeirra ástvina sem á undan eru gengnir. Garðar Briem. Við erum svo glaðar – svo glaðar nú gengur það betur um sinn ef leggjum við okkar litla skerf til liðs, rætist hugsjónin. Að byggja Hallgrími heilagt hús svo háreist og stílhreint senn það gnæfir og bendir, til himins hátt sem heit trú, þess afburða manns. Við hugsum til feðra og mæðra vors fátæka og kalda lands er undu í hreysum, með sólskin í sál við sálmana guðlegu hans. Í amstri – daganna og önnum við eigum þá björtu von að það litla pund, er við látum af hendi lofi Guðs heilaga son. Þetta ljóð eftir kvenfélagskonuna Matthildi Guðmundsdóttur frá Bæ, sem ort var eftir einn fjáröflunar- dag Kvenfélags Hallgrímskirkju, lýsir mjög vel kvenfélagskonunum fyrir um það bil 30 árum síðan. Ein þessara kvenna var Guðríður Ara- dóttir, sem kvödd verður frá Hall- grímskirkju í dag. Þessi glaðværa kona átti gott með að fá aðra til liðs við að und- irbúa basar og var gaman að sjá hvað hún var útsjónarsöm að sauma úr bútum sem að hún hafði fengið fyrir félagið. Þannig urðu t.d. ófá tveggja lítra ísbox að fallegum dúkkurúmum, þegar hún var búin að sauma utan um þau og sníða í þau lítil rúmföt. Kvenfélagið stóð einnig fyrir happdrætti og var Guð- ríður alltaf með miða í veskinu sínu. Sagði hún sjálf svo frá, að þegar hún var í strætisvagni eða í rútunni á leið vestur í Ólafsvík, þá bauð hún bílstjóranum miða og ef hann keypti miða þá gerðu farþegarnir það líka. Hennar hjartans mál var að í Hallgrímskirkju kæmi stórt orgel og fékk hún að sjá þá ósk sýna uppfyllta. Í bók þar sem skráð eru nöfn gefenda í skírnarfontssjóð er nafn Guðríðar einnig oft skráð, ásamt fjölskyldu hennar. Fyrir hönd kvenfélagsins þakka ég Guðríði samfylgdina með þessu litla versi eftir fyrsta formann kven- félagsins, Guðrúnu Jóhannsdóttur frá Brautarholti. Ég kveð þig, hugann heillar minning blíð, hjartans þakkir fyrir liðna tíð, lifðu sæl á ljóssins friðar strönd, leiði sjálfur Drottinn þig við hönd. Ása Guðjónsdóttir formaður Kvenfélags Hallgrímskirkju. Guðríður Aradóttir Þjónusta Tek að mér sölu, kynning- arstarfsemi, vörudreifingu o.fl. Upplýsingar í síma 847 8704 eða manninn@hotmail.com. Labrador Retriever hvolpar. Hreinræktaðir. Ættbókarfærðir HRFÍ. Sprautaðir. Tilbúnir til afhendingar. Upplýsingar í síma 695 9597 og í síma 482 4010. Dýrahald Bókhald C.P. þjónusta. Veiti bókhalds-, eftirlits- og rannsóknarvinnu alls- konar. Hafið samband í síma 893 7733. Bílaþjónusta Húsviðhald Parket er okkar fag í 26 ár Verið í góðum höndum Notum eingöngu hágæða efni Förum hvert á land sem er FALLEG GÓLF ehf - Sími 898 1107 www.falleggolf.is - golfslipun@simnet.is Þak og utanhússklæðningar og allt húsaviðhald Ragnar V Sigurðsson ehf Sími 892 8647. Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl ✝ Okkar innilegustu þakkir fyrir allan þann stuðning sem okkur hefur verið sýndur vegna fráfalls móður okkar, JÓHÖNNU DAGMARAR MAGNÚSDÓTTUR, Víkurbraut 32 d, Höfn. Minning hennar lifir með ykkur. Sigríður Hafdís Benediktsdóttir, Helga Fríða Tómasdóttir, Stephen Gunnar Lane, Magnús Richardson Lane. ✝ Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og vináttu við fráfall ástkærrar móður minnar, GUÐNÝJAR SIGURÐARDÓTTUR frá Reyðarfirði. Jóhanna Karlsdóttir. ✝ Elskulegi stjúpfaðir minn, afi, langafi og bróðir, ÁRNI ÁRNASON, Furugrund 68, Kópavogi, sem lést mánudaginn 29. nóvember, verður jarðsunginn frá Digraneskirkju fimmtudaginn 9. desember kl. 15.00. Örn Vilmundarson, Kristín G. Arnardóttir, Kristófer Jóhannesson, Theodóra Dröfn Skarphéðinsdóttir, Eydís Anna Kristófersdóttir, Viktor Jóhannes Kristófersson, Sigurjón G. Arnarsson, Árný Ösp Arnardóttir, Björg Árnadóttir, Friðrik Árnason. ✝ Einlægar þakkir til allra sem sýndu samúð og vinar- hug við andlát og útför, SÆMUNDAR SALÓMONSSONAR frá Ketilsstöðum. Björgvin Salómonsson, Svandís Salómonsdóttir, systkinabörn og fjölskyldur. ✝ Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og jarðarför elskulegs eiginmanns, föður, tengdaföður, afa og langafa, SIGURÐAR SIGURÐSSONAR, Hamrahlíð 30, Vopnafirði. Friðdóra, Sigtryggur, Sigurður, Greta Marín, Gerður, Jóhanna, Edna Dóra, Árbjört, Tryggvi Snær, Per, Steinar, Torbjørn Angel, Ylfa Rós.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.