Morgunblaðið - 07.12.2010, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 07.12.2010, Blaðsíða 10
Ingveldur Geirsdóttir ingveldur@mbl.is Það er rosalega mikið aðgera í þessu. Ég stendvaktina kannski tólf tíma ádag, með einn upp í fjóra í hverjum tíma,“ segir Konráð Valur Gíslason einkaþjálfari í World Class. Konráð hefur unnið sem einkaþjálfari í rétt tæp þrettán ár, alltaf hjá World Class. „Það voru fá- ir í þessu þegar ég byrjaði sem einkaþjálfari, þá ekki nema nítján ára gamall. Ég var þá kominn á kaf í lyftingar, hafði verið í frjálsum á undan og var farinn að byggja mig aðeins upp og keppa í vaxtarrækt. Það lá bara beinast við að mennta sig í einkaþjálfun. Ég var að keppa mikið sjálfur í vaxtarrækt en hef síðustu árin einbeitt mér að því að þjálfa, bæði fyrir fitness og vaxt- arrækt og líka íþróttafólk með.“ Konráð segir að margt hafi breyst síðan hann byrjaði að þjálfa. „Það er alltaf eitthvað að breyt- ast, áherslurnar hafa farið svolítið úr þessum hörðu lyftingum og meira í þolþjálfun og keyrslu í ætt við krossfitt og svo eru hlaupin komin inn í þetta. Fólk er ekki leng- ur að hugsa eingöngu um að byggja sig mikið upp heldur frekar að halda sér í formi og vera lögulegt.“ Þjálfari meistaranna Nýlega fór fram Bikarmeist- aramót Alþjóðasambands líkams- ræktarmanna þar sem allir bestu keppendur landsins í fitness og vaxtarrækt mættust í Laugardals- höllinni. Þar var Konráð með um tuttugu keppendur sem stóðu sig allir vel. „Það voru um sextíu kepp- endur á mótinu svo ég var með einn þriðja af hópnum. Mínir keppendur náðu í tólf verðlaun af þeim átján sem voru í boði, sem var alveg frá- bært. Leggur áherslu á mikið aðhald Einkaþjálfarinn Konráð Valur Gíslason þjálfaði tólf af átján verðlaunahöfum á Bikarmeistaramóti Alþjóðasambands líkamsræktarmanna sem fór fram nýlega. Konráð er mjög ánægður með árangurinn en hann hefur meira gaman af því að þjálfa kvenfólk en karla. „Þær eru oft harðari en strákarnir og fylgja leiðbein- ingum vel eftir. Strákarnir reyna að fara auðveldari leiðina að þessu.“ Morgunblaðið/Ernir Konráð Valur Gíslason Einkaþjálfarinn þjálfaði tólf af átján verðlauna- höfum á Bikarmeistaramóti Alþjóðasambands líkamsræktarmanna. 10 DAGLEGT LÍFHreyfing og útivist MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. DESEMBER 2010 HJÁLPARSTARF HEIMA OG HEIMAN Í fátækustu ríkjum Afríku vinnum við að því að útvega hreint vatn og bæta þar með heilsu og almenna afkomu. Við eflum fólk til sjálfshjálpar og styrkjum konur sérstaklega. Hér heima veitum við fjölskyldum í fjárhagsvanda aðstoð með ráðgjöf, mat, fatnaði, lyfjagreiðslum og stuðningi við börn. Það eru því margir sem treysta á þitt framlag, bæði hér heima og erlendis. Þú getur valið: ■ valgreiðslu í heimabanka ■ gjafabréf á gjofsemgefur.is ■ frjálst framlag á framlag.is ■ 907 2002 fyrir aðstoð innanlands ■ 907 2003 fyrir aðstoð erlendis ■ söfnunarreikning: 0334-26-50886 kt. 450670-0499 HELMINGUR FRAMLAGA RENNUR TIL AÐSTOÐAR INNANLANDS P IP A R \T B W A - S ÍA - 10 29 21 Nú þegar frostið herðir og kuldinn hrekur marga frá því að stunda hreyfingu úti við, er um að gera að breyta til, færa sig inn í hús og tak- ast á við líkamlega krefjandi hluti. Innanhússklifur er eitt af því sem er í boði og hentar fólki á öllum aldri. Í Klifurhúsinu við Skútuvog er stærsti klifursalur landsins og þar er hægt að stunda grjótglímu en það er eitt afbrigði klettaklifurs. Grjótglíma er einstaklingsíþrótt en einnig er hægt að panta tíma fyrir hópa (10 eða fleiri). Klifur er að sjálfsögðu hægt að stunda eins og hverja aðra skemmtun eða hreyf- ingu en fyrir þá sem eru kappsamir þá eru haldin fjögur grjótglímumót í Klifurhúsinu yfir veturinn og efstu þrjú mót hvers þátttakanda telja sem stig að Íslandsmeistaratitli í grjótglímu. Klifur er vaxandi íþrótt á Íslandi og nýlega lentu þau Bryndís Muller 13 ára og Kjartan Jónsson 17 ára í þriðja sæti í Norðurlanda- meistaramóti. Vefsíðan www.klifurhusid.is Morgunblaðið/Kristinn Stuð Stundum þarf að taka verulega á í klifrinu og þessi vílar það ekki fyrir sér. Gaman að klifra í sig kraft Á aðventunni fer mikill tími fólks í jólaundirbúning og þá verður stund- um lítill tími aflögu til að fara í rækt- ina, sundið, út að hlaupa eða gera hvað annað til að viðhalda góðri heilsu. Og við hreyfingarleysi vilja vöðvar stirðna og stífna. Því er til- valið að skella sér í nudd á aðvent- unni, ein og sér eða saman tvö, hvort sem það er notalegt slökunarnudd eða kröftugt vöðvabólgunudd. Endilega … … farið í aðventunudd Nudd Streitulosandi og mýkjandi. Morgunblaðið/Ómar Allir sem reynt hafa vita hversu óþægilegt og jafnvel sársaukafullt það getur verið að fá sinadrátt. Sinadráttur er skilgreindur sem kröftugur, sársaukafullur samdráttur í vöðva eða vöðvum. Á meðgöngu þurfa margar konur að lifa við þessi ósköp og vakna þá gjarnan upp á nóttunni með sinadrátt í kálfanum en algengast mun einmitt vera að fólk fái sinadrátt í kálfann, þó svo að hann geti komið hvar sem er. Þeir sem stunda langhlaup eða aðrar íþróttir kannast margir við að fá sinadrátt, jafnvel í lærvöðva sem er víst frekar vont, enda er sinadrátt- ur algengur hjá þeim íþróttamönnum sem reyna á sig mikið og lengi og er þá oftast um að kenna vökvatapi en það eykur líkur á sinadrætti. Á dokt- or.is segir að sinadrátt sé líka hægt að fá vegna mikillar vinnu, meiðsla eða þegar fólk er lengi í sömu stell- ingunni. Þar segir ennfremur um þetta hvimleiða fyrirbæri: „Önnur vel þekkt tegund sina- dráttar er skrifkrampi sem er sina- dráttur í fingrum og hendi eftir lang- Ástæður fyrir sinadrætti og ráð til að koma í veg fyrir hann Enginn vill fá sinadrátt Reuters Snarpir Spretthlaupararnir Tyson Gay og Asafa Powell hafa eflaust einhvern- tíman fengið sinadrátt eins og margir þeirra sem eru keppnismenn í hlaupi. „Það voru um sextíu keppendur á mótinu svo ég var með einn þriðja af hópnum“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.